Dagblaðið - 26.08.1978, Page 2

Dagblaðið - 26.08.1978, Page 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 1978. Bóndi skrifar: Leitt þótti mér að sjá hvernig sýningjn mín, Landbúnaðarsýningjn á Selfossi, lyktaði af peningaplokki ofan á alla þá umræðu sem staðið hefur um afætuskap landbúnaðarins og svo varnir gegn því. 1500 króna aðgangseyrir er í sjálfu sér ekki hár, ef aðstaða hefði leyft að færa sér i nyt allar þær upplýsingar og þann þjóðlega fróðleik, sem uppá var boðið. Hins vegar virtist meiri áherzla hafa verið lögð á að enginn kæmist ókeypis inn á svæðið en að vel færi um þá sem inn á það kæmu gegn uppsetttu gjaldi. Aðeins voru sæti fyrir nokkra tugi manns í senn í sýningardeildum ýmissa fyrirtækja. Sýning þessi var svo yfírgripsmikil að nálega heilan dag hefði þurft til að nýta sér hana til Raddir lesenda fullnustu og hvergi var afdrep til hvildar nema á matsölustaðnum, sem var þá háð því að maður keypti sér næringu nauðugur viljugur. Ég og fleiri starfsbræður minir úr uppsveitum Árnessýslu hugðumst sameina þessa sýningarferð verzlunar- ferð til Selfoss. Við sóum yfirleitt ekki límaokkar. Fórum við inn á sýninguna snemma dags, gengum þar um, fleyttum rjómann, og ákváðum síðan hvað við hygðumst skoða nánar. Mikil mannmergð var á staðnum. sem gleði- legt er. Dapra hliðin á þvi var þó sú að hvergi var afdrep og sjálfsagt þreytir slíkur múgur okkur strjálbýlismenn fyrren þéttbýlismenn. Nema hvað að þegar við höfðum fengið smjörþefinn af sýningar- atriðum, hugðumst við bregða okkur Landbúnaðarrukkunarsýningunni á Selfossi lokið: Siðlaus sýning — bið við beljurassa í stað þess að skoða Selfoss út til innkaupa og aðdráttar. 1 hliðinu mættum við þá dónaskap og tortryggni. Afdráttarlaust var okkur tjáð að ef við hygðumst bregða okkur út, yrðum við að kaupa okkur inn aftur fullu verði. Annars gætum við hugsanlega selt öðrum miðana með þeim orðum að þeir segðust hafa fengið aðskreppa út. Að vera á sýningu sins eigin félags- skapar og mæta slíkri framkomu er með slíkum eindæmum að skoðun minni vil ég ekki lýsa á prenti. Sáum við okkar kost vænstan að láta fyrir berast á svæðinu og skoða það sem skoðað yrði unz komið væri að þvi atriði, sem við ætluðum að sjá síðdegis. Velktumst við þreyttir um svæðið. — Er okkur var gengið i gegnum naut- gripasýningarsalinn, þar sem gang- vegurinn var á milli tveggja raða kúa, er allar voru þannig bundnar að aftur- endarnir snéru að gestum. likt og á sýningarstjórn, varð einni malar- frúnni að orði; „Á maður að hanga hér við beljurassa í allan dag?” Á frekara tali hennar heyrðist að hún var að bíða eftir sama atriði og við. Ekki skil ég svo við án þess að segja frá nokkrum litlum strákum, sem stungu fingrum sinum niður í vatnskerin með fiskaseiðunum. Kom þá starfsmaður á vettvang og rak strákana frá með slikum ónotum og af slikri smekkleysu að strákarnir flúðu og gleði þeirra var spillt. Var það e.t.v. allt í lagi þar sem þeir höfðu þá þegar greitt aðganginn? Tilkynningar og þegar lýst var eftir fólki var einnig oftast ósmekklega framkvæmt, þó sérstaklega síðar- nefnda atriðið. Þvi sting ég niður penna um þetta að ég vil að fólk viti að þessi dóna- skapur og peningaplokkunarþefur. sem þarna réði ríkjum, er ekki samkvæmt hugmyndum okkar bænda. Misvitrum mönnum hefur verð falin framkvæmd sýningarinnar. Megi Búnaðarfélag Suðurlands bera gæfu til að ala þá betur upp fyrir næstu sýningu eða að fá heilbrigða menn. aðkomna, ef með þarf. Bráðum kveð ég fólk og frón y Vísur og vísnaspjall fm Jön Gunnar Jónsson Um áramótin 1873—74 er Matthias Jochumsson í Lundúnaborg og á gamlárskvöldi yrkir hann langt kvæði, sem hann nefnir Islandsvisur, hér eru tvær þeirra. Þegar hylur himinljós hei’ög tjaldbúð nætur, hnipir sérhver hagarós, himinninn sjálfur grætur. Röðlar gylla Ránargöng, raddir fullar hljóma, heyrum dilla hnattasöng, hörpur gullnar óma. Þessa vísu ritaði Matthias á eintak af ljóð mælum sínum, sem hann sendi vinkonu sinni. Sjáðu Snót mitt sálarskrín, sett með slitnu letri. Grátlegt er það, góðin min, að gjöfin er ei betri. Um tværsystur. Láttu þér því um og ó að elta systur tjáðar. Þegar þú vilt, það vcistu þó, þær vilja fá þig báðar. Barnavísurnar hans Matthíasar Jochums- sonar frá Oddaárunum, sem hér voru prentaðar nýlega, komust þvi miður ekki allar réttar tii skila. Þess vegna kemur ein þeirra aftur: Ég á að geyma bæ og bú, bæði slá og róa, hirða lambiö, kálf og kú, kríu, hrafn og spóa. Hér eru vísur, sem Matthías orti á Akureyri um börn Steingrims sonar sins. Ávextirnir urðu tveir, cins og bögglar sýnast þeir, en þeir geta orðið meir — eins og ég og séra Geir. og hræðstu eins og böl og bann, barnið mitt, að styggja hann. Þessar vísur voru fleiri. Stúlkan litla, sem þarna er ort um, mun enn vera á lífi, gegn og merk kona, listræn, eins og hún á ætt til, hefur kennt söng og tónlist, flutt ágæta minninga- og tónlistarþætti í útvarpið. Hún heitir Guðrún Sveinsdóttir. Nokkrar vísur eftir Matthias af öðrum toga spunnar: Allt vort strlð er augnablik, ekki er stórt að láta, þó oss sýnist þankastrik þessi lifs vors gáta. Heyrði ég móður hugga börn hjartaljóði finu, og sama hljóðið særðan örn syngja jóði sínu. Sofa til skiptis systur tvær Ennþá man ég ungdóminn: sin á hvorum beði, ástarbliða samhljóminn, Krists eru lýðum taldir, hjá oss gjarnan hýrast þær, munaryndis málróminn, en sagan kennir Kríst í oss heita Sorg og Gleði. meðan anga vorblómin. kvalinn í þúsund aldir. Langi þig að leika dátt Til dótturdóttur orti hann;> litla stund við Gleði, Ævilöng vinátta var með þeim Matthiasi og veit ég eitt þú varast mátt: Guð sé með þér, Gunna mín, Hannesi Hafstein. Þegar Hannes var settur vektu ei Sorg á beði. gættu vel að ráði þin, sýslumaður Dalamanna í upphafi embættisferils efþú stilliræra lund síns, það var á haröæristimum, sendi Matthías Vakni Sorgin sofnar hin, svo er úti friður, auðnan Ijær þér gull i mund. honum þessar stökur í bréfi. þú ert orðinn þeirrar vin, Besta nám i heimi hér Hvað segirðu, Hannes, nú þér sem geðjast miður. hygg ég stjórn á sjálfum sér, um heiminn þarna í Dölunum? stjórn, sem gerir geðið tryllt Hýrnar ei þin hruma trú Fái Sorg i faðminn sinn fríðan ver á beði, göfugt, hógvært, jafnt og stillt. á helvítinu og kvölunum? vaka kann hún, vinur minn, Trúðu á hann, sem til þin sér, Ereilifið baulu-bú, en væran sefur Gleði. trúðu á Guð i sjálfri þér, bundið fast á hölunum, og góssið likast gamalkú, grindhoraðri á mölunum? Úrskriftamálum: Heimtaðu ekki drósar dyggð dyggðalaus og háifur. Enginn skyldi treysta tryggð, tryggðarofi sjálfur. Hugsaðu ei um heilagleik hér á breyskri jörðu. Guð hefur skapað vífin veik, en veikari menn þau gjörðu. Aldrei kviknar æru-blóð undir þrælsins helsi. Viljurðu koma upp kostaþjóð, kenndu snótum frelsi. Einhverju sinni mælti skáldið fram þessar visur: Allt hið bliða yngir mig, allt hið friða kætir, allt hið striða egnir mig, ailt hið þýða bætir. Horfðu á bjarta himininn, haltu spart i auðinn, fyrir hjartahlýindin hörfar svarti dauðinn. 1 elli sinni orti Matthías þessa vísu, sem lýsir vel höfundi sínum. Bráðum kveð ég fólk og frön og fer í mína kistu — rétt að segja sama flón scm ég var í fyrstu. J.G.J:-S. 41046. AF AOA 5 P/EA/Pt/O 77/Y U /\ TV< 'P&, , &ASSVSG,///! yPfcö/'A b/'p //07A AGry/?Kl/&/' 0 7AO/T/ Tv<^//? <y//c//i t//'-? •$////// tfxU&CC'/i

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.