Dagblaðið - 31.08.1978, Qupperneq 1
ríírfálst,
’úháð
dagblað
Ný ríkisstjórn mynduð:
Ólafur /eggur ráðherra-
lista fyrir forsetann
— ÓlafurJóhannesson eini ráöherrann sem áðurhefursetið í ráðherrastóli
„Ég hefði helzt viljað fara til forseta
nú fyrir hádegið en auðvitað raeður hann
þvi,” sagði Ólafur Jóhannesson í viðtali
við DB. Hann bætti við: „Annars er
maður aldrei öruggur fyrr en búið er að
skrifa undir.”
Nú er Ijóst, að tekizt hefur að mynda
nýja ríkisstjóm undir forsæti Ólafs
Jóhannessonar. Flokksstjórnarfundir
aðildarflokkanna samþykktu þessa
stjórnarmyndun í gærkvöldi af nokkuð
mismunandi hrifningu.
Á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokks-
ins urðu talsverðar umræður, snarpar á
köflum. Þegar til atkvæðagreiðslu kom,
nokkru eftir miðnætti, um aðild að
stjórn í samræmi við samstarfsyfir-
lýsingu, sem kynnt var, féllu atkvæði
þannig: 30:12. Meðal þeirra 12 sem
greiddu atkvæði á móti voru þeir Gylfi
Þ. Gíslason, Bragi Sigurjónsson,
Sighvatur Björgvinsson og Vilmundur
Gylfason.
„Ég vil ekki nota orðið klofningur,
þótt skoðanir séu skiptar i Alþýðu-
flokknum um afstöðu til þessarar ríkis-
stjórnar,” sagði Benedikt Gröndal, for-
maður Alþýðuflokksins, í morgun. „Það
kom í Ijós á flokksstjórnarfundi í gær-
kvöldi að skoðanir voru skiptar um
hvort taka ætti þátt í þessari stjórnar-
myndun. Við atkvæðagreiðslu kom
fram að mikill meirihluti var fylgjandi
þvi að við færum í þessa rikisstjórn. Eðli-
legt er að ekki séu allir sammála.
Stjórnin nýtur fylgis trausts meirihluta í
Alþýðuflokknum og við göngum til
þessa samstarfs heils hugar,” sagði
Benedikt.
Klukkan 11.45 í gærkvöldi hófst at-
kvæðagreiðsla fyrir luktum dyrum i
flokksstjórn Alþýðubandalagsins. 104
samþykktu stjórnaraðild á grundvelli
samstarfsýfirlýsingarinnar. 19 greiddu
atkvæðiá móti. Nokkuð varliðiðá nótt
þegar þingmenn og nokkrir aðrir
forystumenn ákváðu að fara heim og
sofa á tilnefningu i ráðherrastóla og
skiptingu málaflokka milli þeirra.
Mjög hefur verið reynt að fá þá Geir
Gunnarsson og Lúðvik Jósepsson til
þess' að verða ráðherrar í nýrri stjórn.
Að þeim frátöldum var I nótt búizt við
því að ráðherrar AB yrðu Ragnar
Arnalds, Svavar Gestsson og Hjörleifur
Guttormsson. Helzt kom á óvart að
Ólafur Ragnar Grímsson varð ekki ráð-
herra. Hann hefur unnið mjög ötullega
að stjórnarmyndunarviðræðum allt frá
byrjun þeirra, sem og reyndar Kjartan
Ólafsson.
Miðstjórnarfundur Framsóknar
flokksins samþykkti samstarfsyfirlýs-
inguna og ríkisstjórnaraðild með öllum
þorra atkvæða, eða öllum nema einu
mótatkvæði i gærkvöldi. Að óbreyttu
frá því í nótt er Ólafur Jóhannesson eini
þingmaðurinn í nýju ráðuneyti sem
hefur setið í ráðherrastóli áður, enda er
honum falið forsætið í nýju stjórninni.
BS/HH
4. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978 — 190. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022.
Ólafur Jóhannesson gat vel leyft sér
að hafa sigurbros á vör I morgun.
Honum hafði tekizt að mynda nýja ríkis-
stjórn eftir sumarlangan barning stjórn-
málamanna. Eilifar tilraunir sem mönn-
um hafa virzt fara hring eftir hring,
höfðu farið f vaskinn.
Tveir mánuðir eru nú frá þingkosning-
um og þótti mörgum tfmi til að stjórn
væri mynduð.
í morgun stóð aðeins á Alþýðubanda-
lagsmönnum að tilnefna ráðherra sina i
hinni nýju „Ólafiu”, annarri vinstri
stjórninni sem Ólafur Jóhannesson veitir
forstöðu.
Þetta er
nýja
stjórnin
— baksíða
Leigjandinn
fylgir með
íkaupum
a ibuðmm
bls.5
Fjórir
kaupráns-
flokkar
— forustugrein á
bls. 10
Hvað er
framundan?
— kjallaragrein
Jónasar
Bjarnasonar
á bls. 10 og 11
Alþýðubandalagsmenn þinguðu I
ormsson frá Neskaupstað og Ragnar Arnalds með
þeirra er einn samráðherra þeirra, utanrfkisráðherrann, Benedikt Gröndal.
— DB-myndir R.Th. Sig.
Hvað vill ný vinstri stjórn?
Launaþak við 233 þúsund
—aukið atvinnulýðræði,
frjálsari verðlagningu
frestað — baksíða