Dagblaðið - 31.08.1978, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1978.
ÚTSALA
í nokkra
BARNAFATAVERSLUN
Glæsibæ, Álfheimum 74
•REYKJAVÍK, ICELAND•
Smiðir!
Tvo smiði vantar við byggingu skóla-
húss á Eskifirði. Uppl. í síma 97-6179 á
Eskifirði kl. 12.00—13.00 og eftir kl.
19.00.
Baháí-kynning
Kynning verður á eftirtöldum stöðum á Baháí-trúnni:
Kópavogi:
Miðvikudag kl. 20 að Hrauntungu 60 (neðri hæð)
Hveragerði:
Þriðjudag kl. 20 að Varmahlíð 28.
Keflavík:
Fimmtudag kl. 20 að Túngötu 11.
Ólafsvík:
Mánudag kl. 20 að Hjallabrekku 2.
Reykjavík:
Föstudag kl. 20.30 að Óðinsgötu 20.
UTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir tilboðum í
lagningu Vogaæðar. Útboðsgögn verða afhent
á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja Vesturbraut
lOa Keflavík og á Verkfræðiskrifstofunni
Fjarhitun hf. Álftamýri 9 Reykjavík gegn 20
þúsund króna skilatryggingu. Tilboð verða
opnuð á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja
fimmtudaginn 14. septemberkl. 14.
Blaöburdarböm óskastí
miðbæinn.
Uppl. hjá umboðsmanni, í síma
41582.
BIADIÐ
Dömur athugið!
Námskeið hefst 4. september.
Leikfimi, dag- og kvöldtímar, tvisvar og fjórum sinn-
um í viku.
Sturtur, sauna,, ljós, sápa, shampoo, olíur og kaffi
innifalið i verði.
Vigtað í hverjum tíma og megrunarkúrar.
Nudd eftir tímana og sér eftir pöntunum.
Tiu tíma nuddkúrar án leikfimi.
Innrítun ísíma 86178.
Ath. Karlatímar í leikfimi á föstudögum. Opið
i nuddi og sauna fyrir karlmenn alla föstudaga
frákl. 15.00.
Innritun í síma 86178.
e)>a
\Sími42360 -86178A
Heilsurœktin HEBA Auðbrekku 53 sími 42360
Heimsmeistaraeinvígið ískáká Filippseyjum:
Ovissa um fram
hald einvígisins
—18. skákinni frestað tvisvar að ósk Kortsnoj
— sakar dómara og skipuleggjendur um hlutdrægni
Mikil óvissa var um áframhald
heimsmeistaraeinvígisins í skák vegna
þess að áskorandinn Viktor Kortsnoj
neitar að hefja einvígið aftur fyrr en
gengið hefur verið að kröfum hans um
að sovézki dulsálarfræðingurinn
Vladimir Zoukhar verði fjarlægður úr
áhorfendasalnum og að keppendurnir
fái glerbúr umnhverfis sig, sem aðeins
sjáist inn i en ekki út..
Kortsnoj stendur nú illa að vígi í
einvíginu. Hann hefur tapað fjórum
skákum en unnið aðeins eina. Öðrum
skákum hefur lokið með jafntefli.
Anatoly Karpov heimsmeistari hefur
komið með málamiðlunartillögu til
þess að leysa einvigið úr sjálfheldunni.
Hann og sovézka sendinefndin hefur
boðizt til þess að færa dulsálarfræðing-
inn aftar í áhorfendasalinn, gegn þvi
að Kortsnoj taki niður dökku spegil-
sólgleraugun sem hann notar í
skákunum gegn Karpov.
Kortsnoj hefur aðeins svarað þessu
tilboði á þann veg að ekki verði um
neina málamiðlun að ræða. Hann
hefur notað gleraugun til þess að
verjast hinu starandi augnaráði
sovézka heimsmeistarans. Kapparnir
hafa teflt 17 skákir og hefur 18. skák-
inni verið frestað og átti að tefla hana i
gær. Henni hefur nú verið frestað
aftur að beiðni Kortsnoj og hefur
hann þá notað þá þrjá frestunarmögu-
leika sem hann hefur í einviginu.
Kortsnoj og aðstoðarmaður hans,
frú Petra Leeuwerik, dvelja nú í
Manila en þaðan er fjögurra tima
akstur á mótstaðinn í Baguio. Þau
svöruðu ekki hringingum fréttamanna
i morgun, en starfsmenn hótelsins
staðfestu að þau dveldu þarenn.
Kortsnoj neitar að taka niður sól-
gleraugun sem hann notar til þess að
verjast hinu stingandi augnaráði
Karpovs heimsmeistara.
Kortsnoj hélt blaðamannafund í
gær þar sem hann sagði að dulsálar-
fræðingurinn truflaði taflið. Hann hélt
þvi einnig fram að skákdómaramir og
skipuleggjandi mótsins, Filipps-
eyingurinn Florencio Campomanes
væru hlutdrægir og drægju þeir taum
heimsmeistarans.
Áskorandinn Viktor Kortsnoj stendur
nú illa að vigi og óvist er um framhald
einvígisins. Hann hefur m.a. frestað
næstu skák tvisvar og getur ekki
frestað fleiri skákum i einviginu.
Margs konar bflaþjónusta
Það er til ýmiss konar bílaþjónusta. Flestir bíleigendur kannast við slikar stofnanir því bílar þurfa viðhald eins og allir vita.
En bílaþjónustan sem þessar ungu dömur hér að ofan veita er e.t.v. nokkuð frábrugðin hinni hefðbundnu, þótt e.t.v. megi
flokka hana undir viðhald líka. Bllaþjónusta þessi kallast Kvenökuþórarnir h/f og eigendur eru Sheryl Sommers og Claire
Mealey i Santa Ana I Kaliforníu. Svarti drekirin sem hýsir bilaþjónustuna er útbúinn bar og sjónvarpi og fleiri þægindum.
Stúlkurnar báðar eru einhleypar og viðskiptin ganga að sögn stórvel.
SYNISENDIHERRA MEXICO
í BANDARÍKJUNUM RÆNT
samkvæmt síðustu f réttum fannst drengurinn látinn
skammt utan Mexicoborgar
Syni sendiherra Mexico i Banda-
rikjunum var rænt fyrir utan heimili
hans i gærkvöldi. Að sögn lögreglu
stóðu fjórir vopnaðir menn að ráninu.
Sendiherra Mexico i Bandarikjunum er
fyrrverandi fjármálaráðherra lands sins,
Hugo Margain.
Yfirvöld neituðu að staðfesta frétt
kvöldblaðsins El Sol um að komið hefði
til skotbardaga á milli mannræningj-
anna og lifvarða drengsins. Yfirvöld
sögðu aftur á móti að verið gæti að
mannræningjarnir tilheyrðu útlægum
skæruliðahópi sem kennir sig við 23.
september.
Mannránið er framið aðeins tveimur
dögum áður en forseti Mexico, Jose
Lopez Portillo, flytur árlegt ávarp sitt til
mexikönsku þjóðarinnar. Það hefur
mjög vérið um það rætt í Mexico að
forsetinn muni veita ýmsum föngum
uppgjöf saka, þar á meðal ýmsum
félögum úr skæruliðahópnum 23.
september. Áður en forsetinn flutti
ávarp sitt i fyrra stóðu skæruliðarnir I
23. september að mörgum sprengju-
tilræðum.
Lögreglan sagði síðar í nótt að
orðsending hefði fundizt í bilnum sem
mannræningjarnir komust undan á og
þar segist skæruliðahreyfingin 23.
september bera ábyrgð á morðinu.
Meðlimir úr fjölskyldu sendiherrans
sögðu Reuters fréttastofunni aftur á
móti að ekkert mannrán hefði átt sé sér
stað og væri sonur sendiherrans undir
læknishöndum vegna botnlangabólgu.
Samkvæmt siöustu fféttum er bárust
skömmu áður en Dagblaðið fór í prentun
sagði að sonur sendiherrans hefði fundizt
látinn skammt fyrir utan Mexicoborg.