Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.10.1978, Qupperneq 6

Dagblaðið - 09.10.1978, Qupperneq 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978. Hvar eru stóru málin? —könnun DB leiðir í Ijós að öll eru á leið í gegnum dómskerf ið —en sum í f yrsta gír Saka- og dómsmálaumrxða undan- farinna ára spratt ekki af engu. Á tiltölulega skömmum tima komu upp hvert stórmálið á fxtur öðru, — hrika- leg ofbeldismál og fjárglæfrar af ýmsu tagi. Það þarf ekki að rifja upp fyrir les- endum Dagblaðsins þá umrxðu, sem spannst I kjölfar þessara mála. En hvað skyidi hafa orðið um öll þessi mál. Hafa þau sofnað I kerfinu? Var þeim stungið undir stól? Duttu þau upp fyrir? Blaðið gerði könnun á stöðu yfir tuttugu mála af þessu tagi, mála, sem vakið hafa mikla athygli og hafa flest verið rakin rxkilega I blaðinu. Könnun blaðsins leiddi I Ijós, að engu hefur verið stungið undir stól, öll þessi mál eru I gangi — en dómskerfið er oft nokkuð seinvirkt. Ástxðan er likiega fyrst 'óg fremst sú, að skortur er á mannafla til rannsóknarvinnu. Hér á eftir fer úttekt á stöðu þessara mála i dómskerfinu. -ÓV. Keðjutékkamálið: „Vandræðabarnið bíður afgreiðslu ff Vandræðabarn dómskerfisins, keðjutékkamálið, biður afgreiðslu hjá embætti ríkissaksóknara. Rannsókn málsins lauk i -byrjun sumars eftir liðlega tveggja ára þrotlaust starf og barst málið ríkissaksóknara 5. júní sl. Mál þetta er gífurlega umfangs- mikið og fylla gögn þess hálft her- bergi hjá ríkissaksóknaraembættinu, þar sem þrengsli eru mikil fyrir. Um er að ræða meinta keðjutékka- starfsemi 17 reikningshafa. Máliðkom upp í byrjun rannsóknar Geirfinns- málsins og varð rannsókn þess afar viðamikilogtafsöm. Landsbankamálið: Rannsókn á 51,5 m. kr. f járdrætti stendur enn Rannsókn Landsbankamálsins — meintur fjárdráttur Hauks Heiðars, fyrrum forstöðumanns ábyrgðadeildar bankans upp á um 51.5 milljónir • stendur enn yfir hjá Rannsóknarlög reglu ríkisins. Rannsókn málsins hófst um jól í fyrra þegar Landsbankinn kærði Hauk Heiðar og sat hann í gæzluvarðhaldi fram i miðjan marz. Rannsóknin hefur staðið óslitið síöan og treysti Hallvarður Einvarðsson, rannsóknar- lögreglustjóri, sér ekki til að segja um horfur í málinu, hvenær rannsókn lyki. Haukur Heiðar viðurkenndi við yfir- heyrslur að hafa dregið að sér umrædda upphæð í allmörgum tilvikum í sambandi við viðskipti Landsbankans og fyrirtækisins Einar Ásmundsson, Import-Export. Tugir milljóna voru sóttar i svissneskan banka og fluttar heim. Haukur hefur sett gildar tryggingar fyrir endur- greiðslu fjárins. Manndrápið á Skólavörðustíg: Væntanlega dæmt í málinu fyrir áramót Fjárdrátturinn hjá útvarpinu: Auglýsinga- stjórinn ákærður í síðustu viku Manndrápsákæran gegn Jennýju Grettisdóttur, sem banaði eiginmanni sínum Arelíusi Viggóssyni á Skóla vörðustíg 21A í febrúar sl., verður tekin fyrir í sakadómi Reykjavíkur innan fárra vikna. Ákæran á hendur Jenný var gefin út sl. vor. og var máP' há þingtest. cn síðan frestað til hausts m.a. vegna réttamlés. i þcr.nc’: voóaatburð bar þannig að, aö ’heiftarlegu rifrildi aðfaranótt 20. febrúar sl. lagði Jenný hníf í brjóst Arelíusar og lézt hann skömmu síðar.Þau voru um það bil að slíta hjúskapsínum. Dómarar i málinu eru saka- dómararnir Haraldur Henrysson, Sv' ,. .arsson og Gunnlaugur Rnen’ : jafnframt er dómsfor- niaðu. L’.mur getur fallið I málinu íylr „i-amót. Um miðja síðustu viku var gefin út opinber ákæra á hendur Rós Péturs- dóttur, fyrrum auglýsingastjóra út- varpsins, fyrir fjárdrátt, sem nam tæpri milljón króna. Barst málið til sakadóms Reykja- víkur fyrir helgina og verður því væntanlega úthlutað til dómara áður en langt um líður. Dómur ætti að geta fallið í vetur. Fjárdráttur auglýsingastjórans fyrr- verandi náði nokkur ár aftur í timann. Henni var vikið úr starfi þegar upp komst, fyrr á þessu ári. Fíugfrakt Flugleiðamálið: Vörnum skilað fyrir mánaðamót Flugleiðamálið er vel á veg komið i sakadómi Reykjavikur. 1. október sl. átti að skila vörn í málinu en verjendur fengu þá frest til næstu mánaðamóta til að skila skriflegum vörnum. Mál þetta kom upp 1974 þegar i Ijós kom að starfsmaður í toll- vörugeymslu Flugleiða hafði af- greitt vörur til innflytjenda án þess að greiddir væru tollar og önnur tilskilin gjöldafvörunum. Sex menn eru ákærðir i málinu Guðgeir Leifsson (starfsmaður Flugleiða), og héildsalarnir og sölumennirnir Matthias Einarsson, Jóhann Stefánsson, Ásgeir H. Magnússon, Garðar Ólafsson og Loftur Baldvinsson. Dómari í málinu er Gunnlaugur Briem sakadómari, en meðdómarar hans Ragnar Ólafsson, hæstaréttarlög- maður og Garðar Valdimarsson, skattrannsóknarstjóri. Röng lyf jameðferð? Tvö dauðsföll til at- hugunar hjá landlækni Hjá embætti landlæknis stendur yfir rannsókn á tveimur dauðsföllum, sem hugsanlegt er talið að hafi stafað af rangri lyfjameðferð og læknis- meðferð. Dauðsföll þessi urðu bæði i Reykja- vík snemma á þessu ári og voru bæði rannsökuð hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Fyrri rannsókninni lauk i júni og hinni siðari i siðasta mánuði og voru málin send þaðan til ríkissak- sóknara. Frá ríkissaksóknara fóru málin til umsagnar landslæknis, sem síðan leitar til innlendra og erlendra sérfræðinga. Ekki er vitað hvenær athugun landlæknisembættisins lýkur, en frá því embætti fara málin aftur til ríkissaksóknara, sem mun taka ákvörðun um hvort ástæða er til frekari aðgerða, t.d.. málshöfðunar. Annar sjúklingurinn dó á sjúkra- húsi en hinn i heimahúsi. Beindist lög- reglurannsóknin að því hvort um væri að kenna óvarlegum lyfja- ávisunum, lyfjameðferð og/eða læknismeðferð. Læknamálið: Tveir menn vinna eingöngu við rannsókn málsins eftir ítarlega lögreglurannsokn Tveir rannsóknarlögreglumenn beina nú kröftum sínum nær eingöngu að rannsókn Læknamálsins svo- nefnda. Varðar það kæru á hendur lækni nokkrum, sem talinn er hafa falsað fjölda reikninga fyrir aðgerðir. rannsóknir og skoðanir, sem aldrei hafa farið fram og þannig haft umtals- verðar fjárhæðir út úr sjúkrasamlagi og tryggingum. Mál þetta er mjög viðamikið og seinunnið, að sögn rannsóknarlög- reglustjóra. Þarf að yfirheyra mikinn fjölda fólks viða á landinu. Nauðgunarmál: 18 ára piltur ákærður Fjárdráttur borgarlögmanns: Fimm millj. króna fjárdráttur Mál Páls Líndals, fyrrum borgarlög- manns, hefur enn ekki verið þingfest í sakadómi Reykjavikur en þess er að vænta að það verði fljótlega. Páll var ákærður I sumar fyrir að hafa dregið að sér rúmar fimm milljón krónur af fé, sem hann veitti viðtöku fyrir hönd borgarsjóðs. Páll lét af störfum borgarlögmanns um leið og mál þetta kom upp sl. vetur. Dómari í máli Páls er Haraldur Henrysson sakadómari. Fyrir nokkru var höfðað opinbert mál á hendur Hirti Hringssyni, fyrir nauðgun, innbrot og þjófnað. Hjörtur brauzt í sumar inn i kjallaraíbúð í vesturborg Reykjavíkur, stal þar 200 þúsund krónum og nauðgaði húsmóðurinni eftir að hafa grímubúið sig. Hann náðist tveimur Geirfinns- og Guðmundarmálin eru nú í höndum ríkissaksóknara, sem býr gögn málsins i hendur hæstarétti., Eins og skýrt var frá í DB i siðasta mánuði hefur ákæruvaldið áfrýjað undirréttardómunum frá 19. desember í fyrra. Það er venja i morð- og manndráps málum að áfrýja undirréttardómum til hæstaréttar. Þegar rikissaksóknari hefur afgreitt málið til hæstaréttar getur dregizt töluvert að dómur verði kveðinn upp þar. Hæstiréttur er svo dögum siöar. Hann er 18 ára gamall og hefur ekki áður komizt í kast við lögin. Nauðgun, alvarlegasta brotið af þessum þremur, er talið varða við 194. gr. hegningarlaga. Viðurlögeru 1 — 16 ára fangelsi. hlaðinn málum, að þar er að minnsa kosti eins árs biðtimi. Það getur þvi farið svo, að hæstaréttardómur i þessum umfangsmestu sakamálum síðari tima á íslandi verði ekki kveðnir uppfyrr enáárinu 1980. Fimm einstaklingar vorur dæmdir fyrir morðin á Guðmundi Einarssyni og Geirfinni Einarssyni og aðra aðild að málunum. Það voru Sævar M. Ciesielski, Kristján V. Viðarsson, Guöjón Skarphéðinsson, Tryggvi R. Leifsson og Erla Bolladóttir. Geirfinns- og Guðmundarmálin: Hæsfaréttardómur ekki fyrr en 1980?

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.