Dagblaðið - 09.10.1978, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 1978.
19
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
GLENTORAN FEKK 600 ÞUS. KR. SEKT
—vegna óláta eftir UEFA-leikinn við Vestmanneyinga í Belfast
Aganefnd Knattspyrnusambands
Evrópu — UEFA — dæmdi norður-
írska félagið Glentoran á laugardag í
600 þúsund króna sekt (3000 svissneska
franka) á fundi sínum i Ziirich á laugar-
dag. Það var vegna óspekta, sem áttu sér
stað i Belfast eftir UEFA-leik Glentoran
og ÍBV þar 13. september. Áhorfandi
réðst að Fríðfinni Finnbogasyni — sló
hann I höfuðið með hornfána og svo var
höggið mikið að Friðfinnur missti með-
vitund.
Á fundi aganefndarinnar var John
Roberts hjá Wrexham, Wales, daemdur í
þriggja leikja bann í UEFA-keppni.
Hann var rekinn af velli 13. september.
Gary Owen hjá Man. City var meðal sjö
leikmanna, sem daemdir voru í eins leiks
bann vegna tveggja bókana dómara í'
UEFA-leikjum á leiktímabilinu. Strang-
asta dóminn hlaut Umdu Ozer, Tyrk
landi. Fjögurra leikja bann. Gríska liðið
Piraeus Olympiakos var dæmt í 400 þús-
und kr. sekt vegna framkomu leikmanna
liðsins og fararstjóra í Sofia 28. septem-
ber. Töpuðu þar gegn Levski 3-1. Grikk-
irnir sögðu, að flösku hefði verið kastað i
einn leikmann liðsins — og lögreglu
þjónn hefði ráðizt á þjálfarann. Mót-
mæli Grikkja ekki tekin til greina.
Kalisas frá Olympiakos var dæmdur i
fjögurra leikja bann og félagi hans Gala-
kos i 2ja leikja bann. Þeir voru reknir af
velli ásamt Pavel Panov, Levski, sem
hlaut 3ja leikja UEFA-bann.
14 íslandsmet unglinga í lyftingum
—á úrtökumóti á Akureyri fyrir Norðurlandamótið í Kaupmannahöf n
(Jrtökumót Lyftingasambands íslands
fyrir Norðurlandamót unglinga var
haldið á Akureyrí á laugardag. Akur-
eyríngar sáu um mótið fyrir hönd sam-
bandsins. Norðurlandamótið verður
haldið i Kaupmannahöfn 4. og 5.
nóvember nk. og munu þar keppa tlu
íslendingar — fullskipað landsiið. Á
mótinu á Akureyri voru sett 14 tslands-
met unglinga. Guðgeir Jónson,
Ármanni, átti mjög góðar tilraunir við
Norðurlandametið i unglingaflokki i létt-
þungavigt. Lyfti 162 kg en mistókst við
168 kg.
Úrslit i einstökum flokkum.
60. kg. flokkur
1. Þorvaldur B. Rögnvaldsson, KR
snaraði 81 kg og jafnhattaði 95 kg.
Samtals 176 kg.
Árangur Þorvaldar i snörun er nýtt met.
67,5 kg flokkur
Sigurvegari Haraldur Ólafsson, Þór,
Akureyri. Snaraði 85 kg og jafnhattaði
110 kg. Samtals 195 kg.
75 kg flokkur
Þar var mjög skemmtilegt einvígi —
eitt hið bezta, sem lengi hefur átt sér
stað í lyftingum. Þorsteinn Leifsson,
KR, sigraði. Snaraði 110 kg og jafn-
hattaði 140 kg. Tvíbætti þar metið.
Freyr Aðalsteinsson, Þór, snaraði 107.5
kg en mistókst klaufalega við 135 kg í
jafnhendingu. Samanlagt hjá Þorsteini
250 og hann tvíbætti þar einnig metið.
82.5 kg flokkur.
Guðgeir Jónsson, Ármanni sigraði.
Snaraði í keppninni 120 kg en í auka-
tilraun 130, sem er met. Jafnhattaði
162.5 kg. og tvíbætti metið. Samanlagt
282,5. Nýttmet.
90 kg flokkur
Þar sigraði Birgir Þór Borgþórsson,
KR. Setti fimm íslandsmet. Snaraði 130
kg. Met. Tvíbætti met í jafnhöttun.
Fyrst 165 kg. — síðan 170 kg. Átti
góðar tilraunir við 175 kg. Náði saman-
lagt 300 kg. Met og ekki margir, sem
hafa náð þeirri þyngd hér á landi. Hann
vann bezta afrekið á mótinu. 652 stig
samkvæmt stigatöflunni. Guðgeir
Jónsson var næstur með 642 stig og
Þorsteinn Leifsson vann þriðja bezta
afrekið 595 stig.
100 kg flokkur
Óskar Kárason, KR, sigraði. Snaraði
120 kg. Átti góðar tilraunir við 132.5 kg.
en mistókst — og bætti þvi ekki eigið
met. Jafnhattaði 140 kg og hætti þar
keppni eftir eina tilraun. Samtals 260
'kg.
llOkg flokkur
Ágúst Kárason, KR — bróðir Óskars
— sigraði. Snaraði 120 kg. og jafn-
hattaði 160 kg, sem er hans bezti
árangur. 280 kg samanlagt.
Sigurvegarar í hverjum flokki eru
taldir öruggir með sæti á NM.
Sparilán Landsbankans eru í
reynd einfalt dæmi. Þú safnar
sparifé með mánaðarlegum
greiðslum í ákveðinn tíma, t.d. 24
mánuði og færð síðan sparilán til
viðbótar við sparnaðinn. Lánið
verður 100% hærra en sparnaðar-
upphæðin, — og þú endurgreiðir
lánið á allt að 4 árum.
Engin fasteignatrygging, aðeins
undirskrift þín, og maka þíns.
Landsbankinn greiöir þér al-
menna sparisjóðsvexti af sparn-
aðinum og reiknarsér hóflega
vexti af láninu . Sparilánið
er helmingi hærra en sparnaóar-
upphæðin, en þú greiðir lánið til
baka á helmingi lengri tíma en þaó
tók þig að spara tilskylda upphæð.
Biðjið Landsbankann um
bæklinginn um sparilánakerfið.
Sparifjársöfhun tengd réttí til lántöku
Sparnaöur Mánaðarleg
þinn eftir innborgun
Sparnaður í
lok tímabils
Landsbankinn
lánar þér
Ráðstöfunarfé Mánaðarleg
þitt 1) endurgreiðsla
Þú endurgreiðir
Landsbankanum
hámarksupphæð
12 mánuði
18 mánuði
24 mánuði
25.000
25.000
25.000
300.000
450.000
600.000
300.000
675.000
1.200.000
627.876
1.188.871
1.912.618
28.368
32.598
39.122
á 12 mánuðum
á 27 mánuðum
á 48 mánuðum
'aH;
1) I tölum þessum er reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytst miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns-eru háð vaxtaákvörðun Seðlabanka íslands á hvcrjum tima.
LANDSBANKTNN
SparUán-trygging í framtíð