Dagblaðið - 09.10.1978, Side 40
SANDDÆLUNNIHVOLFDI
VK)Þ
TlrTi
lLlíÍU ILiJ
SSKER
frjálst, úháð dagblað
MÁNUDAGUR 9. OKT. 1978.
KEA úthlutað
sömu lóð í
þriðja skipti
Kaupfélag Eyfirðinga hefur nú fengið
úthlutað síðustu verzlunarlóðinni sem
eftir er við Glerárgötu. Það merkilega
við þessa úthlutun er að Byggingarnefnd
Akureyrar úthlutar KEA þessa lóð nú i
þriðja skipti. 1 hin tvö fyrri skipti hefur
KEA ekki nýtt byggingarréttinn og
fresturinn runnið út.
Byggingarlóð þessi er við Glerárgötu
20 við hlið verzlunarhúss Raforku. Á
móti KEA sótti Akurvík h.f. um lóð
þessa. DB ræddi við Arngrím Bjamason
aðalfulltrúa kaupfélagsins og sagði
hann að þegar væri byrjað að grafa fyrir
grunni hússins, þannig að Ijóst væri að
KEA ætlaði sér að nýta rétt sinn að
þessu sinni, en byggingarfrestur rennur
út um næstu mánaðamót.
Arngrímur sagði að sótt hefði verið
um lóðina undir verzlunar-og iðnaðar-
húsnæði. Ekki er endanlega ákveðið
hvaða starfsemi verður nákvæmlega í
hinu nýja húsi, en kjörmarkaður er við
hlið hins væntanlega húss. Arngrímur
sagði að lóðin væri frekar litil og
væntanlega yrði húsið 4—5 hæðir eins
ogönnurhúsígrenndinni. JH
/yKaupið\»
,5 TÖLVUR >►'
I* QG TÖLVUÚR
BANKASTRÆTI8
£1*11
— komin íheimahöfn
íverkstæði Vita-
mála íFossvogi
„Mínir menn gefast aldrei upp,”
sagði Aðalsteinn Júliusson vita- og
hafnamálastjóri i viðtali við Dag-
blaðið í gær. Þá hafði mistekizt fyrsta
tilraun til þess að koma á réttan „kjöl”
sanddælunni Hák, sem hvolfdi í
ruddasjó um 9 milur frá Þormóðsskeri
í fyrradag.
Hákur hefur að undanförnu unnið
norður á Hólmavík við dýpkun.
Varðskipið Árvakur var með Hák i
drætti á leið til Reykjavíkur, eða^
nánar til tekið að verkstæði Vitamála-
stjórnarinnar i Fossvogi. Hvolfdi
Háki, sem fyrr segir, i ruddaveðri.
Árvakur hélt þannig áfram með Hák
þar til komið var nærri hafnar-
garðinum á Akranesi.
Dráttarbáturinn Magni fór með
flotkrana Reykjavíkurhafnar til liðs
við sanddæluna í gær. Kafarar komu
fyrir virum í sanddælunni og var
Hákur kominn talsvert upp í rétt horf,
þegar vírstroffur slitnuðu. Féll sand-
DB-mynd: Vlðir Guðnason.
dælan með skvampi miklu í sjó niður
aftur.
Næsta tilraun fór vel. Tókst að
koma sanddælunni á réttan „kjöl”
Var þá ferðinni haldið áfram og kom
„Ég gæti allt eins
lagt til að leggja
blaðið niður”
Árvakur með Hák að verkstæði Vita-
og hafnarmálastjórnarinnar i Fossvogi
um kl. 3 í nótt.
„Það, sem blasir við, er að húsið á
Hák er i burtu. Að öðru leyti er ekkert
hægt að segja um skemmdir,” sagði
Helgi Theódórsson, verkstjóri í viðtali
við DB i morgun. „Við göngum i'að
taka upp vélar og gera það, sem gera
þarf,” sagði Helgi. BS.
Flateyri:
Ökuferðin
endaði
Z' ■ ■■
a gjor-
gæzludeild
— sagði Sigmar í Sigtúni á 20 ára veitinga-
mannsafmælinu sínu
-* Þannig var vagninn útlitandi eftir að ökuferðinni
lauk. Eitthvað hefur Bakkusi konungi farízt stjórn
bifreiðarinnar óhöndugiega.
DB-mynd: Þorsts. Traustas.
Ökuferð þriggja drukkinna pilta á
Flateyri endaði eins og oft vill verða
þegar Bakkus er hafður með í ráðum við
stjórn ökutækisins; með árekstri og slysi
á farþegum. Atburðurinn átti sér stað
um kl. 1 aðfaranótt föstudags.
Piltarnir byrjuðu á því að keyra niður
fiskikassa við frystihúsið. Þaðan héldu
þeir áfram á mikilli ferð upp Hafnar-
strætið og móts við hús varð fyrir þeim
kyrrstæður bíll, sem flaug eina 25 metra,
svo einhver hefur hraðinn verið. Þar
endaði sem sé ökuferð piltanna þriggja.
Einn þeirra þríkjálkabrotnaði og var
fluttur til ísafjarðar en læknir kom
þaðan rúmum hálftíma eftir að slysiö
hafði átt sér stað. Frá ísafirði var
pilturinn fluttur til Reykjavíkur á
gjörgæzludeild og komst ekki til
meðvitundar fyrr en á laugardags-
morgun. Hann er úr allri lífshættu.
Félagar hans tveir slösuðust minna.
GAJ/ÞT, Flateyri
sagði Björn Þórhallsson, stjómarformaður
DB fyrir verðlagsdómi í morgun
„Aðspurður kveðst Björn ekki styðja
tillögu um að lækka verð blaðsins, og
gæli allt eins lagt til að leggja blaðið
niðui". var bókun réttarins í verðlags
dómi. sem settur var í morgun kl. 9.15 til
þess að fjalla um kæru verðlagsstjóra á
hendur Dagblaðinu hf. og Reykjaprenti
hf.. útgáfufélagi Vísis.
„Álíta mætti, að að baki ákvörðunar
verðlagsnefndar lægi sá tilgangur að
hætt yrði að gefa blaðið út,” sagði Björn
Þórhallsson, viðskiptafræðingur og
stjórnarformaður Dagblaðsins hf.
Lögmaður Dagblaðsins hf. i þessu
máli, Skúli Pálsson hrl„ óskaði bókað:
„Formaður verðlagsnefndar (Björgvin
Guðmundsson) verði tekinn fyrir dóm,
svo að færi gefist á því að spyrja hann
um framkvæmd þessarar ákvörðunar
(þ.e. ákvörðunar um verðlagningu DB),
og almennt um framkvæmd verðlagn-
ingar á lesefni í landinu.”
Framangreint gerðist i verðlagsdómi
vegna kæru á hendur Dagblaðinu hf. og
Reykjaprenti hf. vegna Vísis. Þessi blöð
hafa ekki viljað hlita ákvörðun verð-
lagsnefndar þar sem hún synjaði um að
leyft yrði að selja þessi blöð á kr. 120.00
í lausasölu en lagði svo fyrir, að þau
skyldu kosta kr. 110.00. Þessi ágrein-
ingur tekur einnig til áskriftargjalds
blaðanna.
Bjöm Þórhallsson tók fram, að
ákvörðun hefði verið tekin um verð-
hækkun á blöðunum fyrir mánaðamót
og vildu þau ekki una ákvörðun verð-
lagsnefndar um aðra verðlagmngu.
Sverrir Einarsson sakadómari og Egill
Sigurgeirsson skipa verðlagsdóm.
Gisli ísleifsson hrl. er lögmaður verð-
lagsstjóra i þessu kærumáli.
Um það leyti sem DB fór í prentun
voru réttarhöld að byrja yfir Vísismönn-
um. Stjórnarformaður Reykjaprents hf„
Hörður Einarsson, var mættur ásamt
lögmanni fyrirtækisins, Sveini Snorra-
syni hrl.
I stjórn Dagblaðsins hf. eru sömu
menn og verið hafa frá stofnun 1975:
Björn Þórhallsson, Jónas Kristjánsson,
Axel Kristjánsson, Haukur Helgason og
Sveinn R. Eyjólfsson, sem er fram-
kvæmdastjóri.
Dagblaðið mun skýra frá framvindu
málsins, en fleira gerðist ekki í morgun í
þvi. - BS
„Ég ætla að reyna að ná hálfri öld í
veitingamennskunni,” sagði Sigmar
Pétursson í Sigtúni, þegar fréttamaður
DB leit inn hjá honum á heimili hans
sl. laugardag. Þar héldu þau hjónin,
Sigmar og Þórdis, hóf með gömlum
starfsmönnum og vinum í tilefni af 20
ára veitingamannsafmæli Sigmars.
Sigmar hóf veitingarekstur i Breið-
firðingabúð hinn 2. október 1958.
Sigtún tók svo tiT starfa 5. október
1963 og er enn eitt stærsta og
kunnasta veitingahús höfuðborgar-'
innar.
„Það er enginn bilbugur á mér
ennþá,” sagði Sigmar Pétursson,” en
okkur 'fannst sjálfsagt að halda upp á,
þessi tvö afmæli með vinum og
kunningjum, flestum fyrrverandi og
núverandi samstarfsmönnum um
langt árabil. Ekki geta þó nærri allir
verið með að þessu sinni þar sem til
dæmis margir þeirra eru nú að
störfum uppi í Sigtúni.”
Hópurinn, sem þarna var að halda
upp á starfsafmæli hefur svo oft staðið
í ströngu, þegar aðrir halda daginn
hátíðlegan af margvíslegu tilefni, að
þeir eru margir, sem heils hugar óska
þeim Sigmari Péturssyni og Þórdísi
konu hans til hamingju með afmælið.
BS.
„REYNIAÐ NÁ HÁLFRIÖLD"
20 ára veitingamannsafmæli hans. Ekki verður betur séð en að heimilishundur-
inn samgleðjist húsbændunum á afmælinu, þótt hann sé kominn „undir borðið”.
DB-mynd: Hörður.