Dagblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 23.11.1978, Blaðsíða 1
frfálst, úháð rlanhlaíl 4. ÁRG. - FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978 - 262. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMtJLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022. Grandiére vísað úr landi: TALU MAUNU VERA LOKKt MED DÓMSSÁ TTINNI —og hyggst nú fá henni rift, enda haf i hann verið blekktur til að fallast á hana Fransmanninum Roger Claude Marie de La Grandiére hefur verið visað úr landi og honum tilkynnt, að hann fái ekki að koma hingað næstu fimm árin. Gildir þetta um Norður- lönd. Grandiére er talinn „óæskilegur" i 'landinu vegna brots hans á 108. grein 'hegningarlaganna. Í fyrradag var gerð sátt i sakadómi vegna brotsins, og féllst Grandiére þar á að borga 100 þúsund króna sekt og jafnframt að borga nýjan frakka handa skrifstofu- stjóra sjávarútvegsráðuneytisins i stað þess sem hann eyðilagði með „tákn- rænu hvalablóði”. Samkvæmt þeim upplýsingum sem DB aflaði sér í morgun, var það algjör forsenda sáttarinnar af hálfu frans- mannsins, að þar með væri málinu lokið. Nú þykir honum hafa verið komið aftan að sér og hann jafnvel blekktur til að fallast á sáttina. Hefur hann nú í hyggju að krefjast aftur fjárins. sem hann hafði þegar borgað, og vill harn þar með rifta sáttinni. Dc La (irandiére hefur verið gerti skylt að niæta hjá lögrcglunni í Reykjavik daglega næstu daga, þangað til hanr. verður fluttur .úr landi. ■ÓV. Ágreiningurinn í skákheiminum: Friðrik boðar að segja „alla söguna" „Vegna atriða sem fram er haldið i fréttatilkynningu frá Skáksambandi islands getur svo farið, að ég eigi ekki annan kost en þann að segja alla söguna um framboð mitt, aðdraganda þess og framvindu mála," sagði Fiðrik Ólafsson, forseti FIDE í viðtali við Dagblaðið. Friðrik kvað menn verða að gæta þess fyrst og fremst, hvort orð þeirra og gerðir væru íslenzku skáklifi til gagns eða ógagns. Að öðru leyti kvaðst hann ekki vilja einstökum spurningum vegna fram- boðsmálsins eins og það er lagt fyrir i fréttatilkynningunni. Stjórnir Taflfélags Reykjavikur og Taflfélags Kópavogs hafa sent frá sér mjög áþekkar fréttatilkynningar. í þeim er fagnað kosningu Friðriks Ólafssonar í forsetastól FIDE. Jafnframt er Einari S. Einarssyni, forseta Skáksambands íslands, þakkað fyrir störf hans í þágu framboðsins og undirbúnings að kosningunni. Eins og í fréttatilkynningu stjórnar Skáksam- bandsins er Högna Torfasyni einnig þakkað hansframlag. „Þetta er mál, sem helzt ætti að : ræða á aðalfundi Skáksambandsins, ef menn telja þess nauðsyn," sagði Haraldur Blöndal í stjórn Taflfélagsins Mjölnis í Reykjavik. í áðurgreindri fréttatilkynningu Skáksambandsstjómarinnar er vikið að „ágreiningi”, sem upp kom i sam- bandi við gjaldkerakjör FIDE i Buenos Aires. Á sinum tima vakti það mál talsverða umræðu. Vegna frétta- tilkynningar Skáksambandsstjórnar- innar hefur hún að einhverju leyti verið vakinaftur. -BS. GRANDIÉRE — frakki ráðuneytis- stjórans kostar Frakkann leyfi til að dvelja meðal tslendinga. Ölsala við umferðarljós? Það var engu líkara en útsala vœri hafin ú jólaöli við umferðarljósin ú gatnamótum Lönguhlíðar og Miklubrautar I gœrdag. Svo var þó ekki. Húlkan hafói leikið ökumanninn grútt. Slynkur kom ú bllinn og út ultu ölkassamir l snjóinn. Martröð ökumannsins varð að veruleika. Hjúlparlið þusti ú vettvang og úður en ú löngu leið komst bíllinn af stað aftur með vöruna, sem orðið hafðiú einhver rýrnun vegna óhappsins. DB-mynd Bjamleifur. Gwynne Dyer: Nýr dálkahöfundur í DB Dagblaðið hefur gert samning við fréttaskýrandann Gwynne Dyer un einkarétt á greinum hans og munu þær birtast öðru hvoru í blaðinu. Dyer er 35 ára gamall, sagnfræðingur að mennt og hefur undanfarir fimm ár stundað greinaskrif fyrir ýmis þekkt blöð í Bretlandi og Bandaríkj unum. Má þar meðal annars nefna Times, Guardian, Daily Telegraph oí Sunday Times í Bretlandi og bandarísku blöðin New York Times Washington Post og Christian Science Monitor. Alls eru greinar Gwynnt Dyer birtar í rúmlega 100 blöðum i 38 löndum i öllum heimsálfum Gwynne Dyer er fæddur í Nýfundnalandi en varð kanadiskur ríkisborgar árið 1949, þegar landið sameinaðist Kanada. Síðan árið 1962 hefur Dyei einkum verið búsettur í Bretlandi, Bandarikjunum og í Miöausturlöndum. Munaði30 kflómetrum að endar vegarins næðu saman — sjábls. 6og7 Truarleiðtog- inn þjáðistaf heilasjúkdómi ogjafnvel krabbameini — sjá bls. 6 og 7 Áferð og flugi á kostnað ríkisins — sjá bls. 5 A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.