Dagblaðið - 23.11.1978, Side 4
Norski rithöfundurinn
Pál Espolin Johnson.
Fyrirlestrar:
Fimmtud. 23. nóv. kl. 20:30
„Norge i Nord, Scenerier ogportretter”,
kynning á eigin verkum.
Laugard. 25. nóv. kl. 16:00
„Olav Duuns Juvikfolke”.
VÉRIÐ VELKOMIN. NORRÆNA
HÚSIÐ
Fjölbreytt úrval af
skrifborðsstólum
FRAMLEIÐANDI:
STÁLIÐJAN H/F
KRÓM
HÚSGÖGN
SMIÐJUVEGI5 - KÚP.
SÍMI43211,
Akranes —
Gangavörður
Óskum eftir aö ráða í starf gangavaröar við
Grunnskólann viö Vesturgötu.
Skriflegum umsóknum sé skilað á Bæjarskrif-
stofuna fyrir 10. desember n k. Nánari
upplýsingar gefur undirritaður í síma 1211
eða 1320.
Akranesi 21/11,1978.
Bæjarritari.
Til sölu
Eftirgreindir lausafjármunir úr innréttingum eldri
bæjarfógetaskrifstofunnar í Kópavogi verða til sýnis og
sölu á lögreglustöðinni í Kópavogi að Auðbrekku 57,
fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24.
nóvember 1978 kl. 13.00 — 19.00 báða daga.
Loftljósalampar, 2 st. háir skrifstofustólar, 8 st. hansa-
gluggatjöld 165 cm að lengd, 3 st. strimlasóltjöld fyrir
glugga 165 cm, að hæð og 310 cm og 255 cm. að lengd,
gluggagjöld (tauefni), 3 st. fataskápar, skápur
(afgreiðsluborð), hansahillur með uppistöðum og
járnum, gardínubrautir og l st. skrifborð.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notadra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Franskur Chrysler'71 Fiat128'73
Toyota Crown '67 Rambler'67
Volvo Amazon '65 Fiat 125 '73
Einnig höfum vid lírval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleda.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
HöfMúni 10 - Sími 11397
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
__ -
á neytendamarkaði
„Sýning eða sala?”
— Kaupmannasamtökin taka hart á opnum sölubúðum
fyrir utan leyf ilegan verzlunartíma
„Við eigum áð sjá um að kaupmenn
framfylgi launasamningum sem gerðir
hafa verið við Verzlunarmannafélag
Reykjavikur," sagði Jón I. Bjarnason
m.a. i samtali við Neytendasíðu DB
vegna fréttar á síðunni um að Borgar-
húsgögn hefðu verið kærð fyrir að
hafa „húsgagnasýningu” á
sunnudögum, fyrir utan venjulegan
verzlunartima.
Jón sagði ennfremur að þeir hjá
Kaupmannasamtökunum teldu að
sala færi fram á þessum „sýningum”.
Húsgögnunum væri ekki komið fyrir
öðru vísi en á venjulegum söludögum.
Fólk kænii og skoðaði húsgögnin,
skrifaði siðan undir samning og fengi
siðan húsgögnin send heim næsta dag
eða svo. „Þetta er i rauninni ekkert
öðruvisi heldur en sala á húsgögnum
gengur fyrir sig dagsdaglega.” sagði
Jón.
„Okkur berast óteljandi kærur um
brot bæði á lokunartímasamhvkkt
fyrir Reykjavíkurborg og eins á
verzlunarlöggjöfinni og ekki sizt á
kjarasamningum við V.R. Við erum
ákaflega frjálslyndir og reynum að
dreifa þessum málum á bezta veg en
það er bara ekki alltaf hægt.” sagði
Jón.
„Við getum endalaust deilt um
hvað er skynsamlegt og hvað ekki. En
samtökin verða að fara eftir þeirri lög-
gjöf sem er í gildi á hverjum lima og
sjá um að þær reglugerðir sem gefnar
hafa verið út og launakjarasamningar
sem gerðir eru hverju sinni við
viðkomandi launþegasamtök séu
haldnir. 1 þessu tilfelli eru það launa-
kjarasamningar við Verzlunarmanna-
félag Reykjavikur. sem er stærsta
launþegafélag landsins. sem um er að
ræða. — Okkur ber skylda til þess að
sjá um að okkar félagar hafi
samningana í heiðri,” sagði Jón I.
Bjarnason.
Þannig hafa Kaupmannasamtökin
sennilega í nógu að snúast, þvi margir
húsgagna- og teppakaupmenn auglýsa
um hverja helgi „sýningu” i
verzlunum sínum. Að sjálfsögðu
verða kaupmenn að fara að lögum,
eins og aðrir borgarar þessa lands.
Hins vegar sýnist venjulegum neyt-
anda að þeir eigi ekki að vera aðilar að
samningum þar sem þeir taka sér það
vald að vera einskonar forsjá al-
mennings. — Sýnist manni að ef kaup-
maðurinn sjálfur vill standa i verzlun
sinni fram yfir „leyfilegan" verzlunar-
líma ætti honum að vera það heimilt.
Hann er þó altént að veita viðskipta-
vinum sínum betri þjónustu.
Kaupmannasamtökin hafa verið
talsmenn „frjálsrar” álagningar og
frjálsræðis yfirleitt, að þvi er þeir segja
sjálfir. Hins vegar sýnist ekki vera
sama hvert frjálsræðið það er sem um
er að ræða. Sennilega á það sama við
hér ogsvo viða annars staðar:
„Það er ekki sama Jón og séra Jón.”
-A.Bj.
Á undanförnum árum hafa oft verið haldnar húsgagnasýningar 1 sýningarsölum eins og t.d. Laugardalshöll og nýja sýn-
ingarsalnum á Ártúnshöfða. Haukur kaupmaður sagði að viðskiptavinir kynnu vel að meta að fá að skoöa húsgðgn
ókeypis á sunnudögum i verzlunum frekar en að kaupa sig inn i sýningarsali fyrir þúsund krónur. — Þessi mynd var tekin
á Húsgagnavikunni 1976 í Laugardalshöll. DB-mynd Bjarnleifur
Engin samningsbrot við
Verzlunarmannafélagsmenn
— segir kaupmaður sem stendur einn í verzlun sinni
á sunnudagssýningum sínum
„Ég hef ekki brotið neina samninga
við Verzlunarmannafélagið, þvi ég er
einn i verzluninni á húsgagnasýning-
um minum,” sagði Haukur Óskarsson
i Borgarhúsgögnum, er DB spurði
hann hvort hann hefði brotið gerða
samninga á starfsfólki sinu.
„Það fer engin sala fram á
sýningum þessum, og það eru ekki
gerðir neinir kaupsamningar. Það væri
hreinlega ekki hægt að koma þvi við
vegna mikillar aðsóknar fólks i að
skoða. Fólk gengur um verzlunina og
skoðar húsgögnin. Það kemur kannske
aftur daginn eftir og gerir þá samning.
Við teljum að þetta sé til hagræðingar
fyrir viðskiptavinina. t fyrsta lagi að
geta komið og skoðað hlutina á frídegi
og i öðru lagi er á rúmhelgum dögum
oft erfitt að fá bílastæði við húsgagna-
verzlanir,” sagði Haukur.
Haukur sagði einnig að í ágúst hefði
Hörður Pétursson (i HP-húsgögn),
formaður Féiags húsgagna-
kaupmanna hringt til sin og sagt sér að
hann hygöist halda „húsgagna-
sýningu” i verzlun sinni, þar sem Emil
Hjartarson í TM húsgögnum væri
búinn að gera það. Haukur sagðist þá
hafa spurt Hörð hvort þetta væri
leyfilegt og játti Hörður þvi og sagðist
hafa kannað það hjá lögreglunni.
Lögreglan hefði sagt að hún léti það
afskiptalaust, þótt húsgagnasýningar
væru haldnar utan leyfilegs verzlunar-
tíma. Haukur sagði að sér hefði
fundizt þetta ágætis hugmynd, og
hefur hann síðan haft sýningar um
tólf helgar. „Enginn hefur sagt neitt
og ekkert gerzt i málinu fyrr en nú að
Félag húsgagnakaupmanna hefur
kært til Kaupmannasamtakanna,”
sagði Haukur.
Má geta þess að ekki hefur verið
haldinn neinn fundur i félaginu um
málið, en formaðurinn tilkynnti Hauki
hins vegar að hann hygðist kæra málið
til samtakanna.
Fara nú fram yfirheyrslur i málinu
og verður fróðlegt að fylgjast með þvi
hverja framvindu það tekur.
-A.Bj.