Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 10

Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978. MMBIAÐIB Útgefandfa DagblaðM hf.'. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórf: Jónas Kristjónsson. Fróttastjóri: Jón Birgir Pétursson. RrtstjómarfuBtnji: Haukur Halgason. Skrífstofustjóri rítstjómar J6- hannes Reykdal. íþróttir Hallur Sfmonarson. Aöstoóarfróttastjórar Atli Stainarsson og Ómar ValdF marsson. Menningarmál: Aöalsteinn Ingótfsson. Handrít: Asgrímur Pólsson. Blaöamonn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefónsdóttir, EMn Aberts dóttir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónssón, Hailur Hallsson, Helgi Pótursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson. Hönnun: Guöjón H. Pálsson. Ljósmyndir Ari Kristinsson, Ámi Póll Jóhannsson, Bjamleífur Bjamleifsson, Höröur Vilhjólmsson, Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldkeri: Þróinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Drerfing arstjóri: Mór E.M. Halldórsson. Ritstjóm Siöumúla 12. Afgraiðsla, óskriftadeild, auglýslngar og ^krifstofur Þverhofti 11. Aöablmi blaösins er 27022 (10 linur). Áskrift 2400 kr. ó mónuöi inrjanlands. í lausasölu 120 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Slðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hlmir hf. Slðumúla 12. Prentur Arvakur hf. Skeifunni 10. Þokuframleiðsluvélar íslenzkir stjórnmálamenn halda fast við hin gömlu vinnubrögð að gefa al- menningi rangar upplýsingar um vilja sinn og verk. Sjónhverfingar vísitölu- málsins eru skólabókardæmi um óbeit stjórnmálamanna á hreinskilni gagnvart fólki. Allir stjórnmálaflokkar átta sig á, að einn af þremur höfuðþáttum baráttu gegn verðbólgu hlýtur að felast í minnkun éinkaneyzlu almennings, minnkaðri kaupgetu fólks. Annar þátturinn er minnkun fjárfestingar atvinnu- vega og þriðji þátturinn er minnkun ríkisumsvifa. Stjórnmálaflokkarnir eru ekki alveg sammála um, hve mikill hluti vandans eigi að koma í hlut hvers hinna þriggja aðila, almennings, atvinnuvega og hins opinbera. Dagblaðið hefur haldið því fram, að ríkisvaldið eigi sök á þeirri verðbólgu, sem er umfram alþjóðlega verðbólgu, og eigi því að draga saman seglin meira en hinir tveir. Stjórnmálaflokkarnir hafa hins vegar hagsmuna að gæta. Völd þeirra breytast í hlutfalli við breytingar á um- svifum hins opinbera. Þess vegna eru þeir ákaflega tregir til niðurskurðar hjá ríkinu og vilja fremur leggja meiri byrðar á skattgreiðendur, það er almenning. Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir kaupráni í upphafi þessa árs. Þess vegna er óþarfi að taka mark á þeim flokki núna, þegar talsmenn hans og málgögn kvarta um kauprán af hálfu hinna flokkanna. Þar sýnir hann aðeins ábyrgðarlausa stjórnarandstöðu. Miklu nær væri, að Sjálfstæðisflokkurinn fagnaði því kaupráni, sem nú er verið að fremja. Stjórnarflokkarnir þrír hafa allir lagt fyrir ríkisstjórn- ina tillögur um kauprán. Þær fela það í sér, að kaup hækki ekki um 14,1% nú um mánaðamótin, heldur um 3,6%—6,1%. Auðvitað er það liður í baráttunni gegn verðbólgu að skerða lífskjörin með þessum hætti. En flokkarnir þora bara ekki að segja fólki sannleik- ann. Alþýðubandalagið gengur lengst í sjónhverfingun- um og heldur því fram, að tillögur sínar feli ekki í sér neitt kauprán. Ríkið muni bæta fólki þetta upp með öðrum hætti. Talsmenn Alþýðubandalagsins viðurkenna, að slíkt mundi kosta ríkið mikið fé. Þeir segja sex milljarða og aðrir segja fimmtán milljarða. Auðvitað verður þetta fé tekið með sköttum, sem rýra kjör almennings. Niðurstaðan af tillögum Alþýðubandalagsins yrði sú, að kaupmáttur yrði heldur lakari en hann varð eftir kauprán ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Fram- sóknarflokksins í upphafi ársins. Hver er líka tilgangurinn, ef hann er ekki kauprán? Hvers vegna er stungið upp á, að 2% kauphækkun verði breytt í „félagslegar umbætur” af hálfu ríkisins, sem komi í sama stað niður? í rauninni er bara verið að búa til þoku til að drepa málinu á dreif. Því meira sem pró- sentur eru færðar til og frá, þeim mun meiri líkur eru á, að fólk skilji ekki lengur upp né niður í neinu. Framsóknarflokkurinn má eiga það, að hann er treg- astur til þessa sjónhverfingaleiks. Hann vill skera launin beint niður um 8% og aðeins um 2,5% í sjónhverfing- um. Alþýðuflokkurinn gengur beint til verks í 5% lækk- un og 5,5% í sjónhverfingum. Alþýðubandalagið ber svo af með 8% kauplækkun í sjónhverfingum. Vandinn er svo bara sá, að fólk er ekki eins vitlaust og stjórnmálamennirnir virðast halda. Það sér, að talnaleik- irnir eru sjónhverfingar, vísvitandi blekkingar. Og van- traust almennings eykst. Svíþjóð: Vita ekkert hvað varð af 25 kílóum af geislavirkum plútóníum úrgangi Sænsk yfirvöld fylgjast á engan hátt með þeim geislavirku efnum, sem flutt eru á brott frá kjarnorkuverum þar 1 landi. Gildir þá einu hvort um er að ræða úrgang eða ónotað efni, sem flutt er frá orkuverunum. Upplýstist þetta i sjónvarpsþætti, sem sýndur var 1 sænska sjónvarpinu í fyrri viku. Upp- lýstist þá meðal annars að sænsk yfir- völd vita ekki hvað varð af 24,4 kíló- grömmum af efninu plutonium, sem sent varfráSviþjóðárið 1969. Þetta magn af plutonium mundi nægja til að framleiða tvær til þrjár kjarnorkusprengjur eins og þær sem varpað var á borgina Hirosima í Japan I lok síðari heimsstyrjaldar. Mál þetta hefur mjög verið rætt I sænskum fjölmiðlum undanfarna daga og I ljós hefur komið að geisla- virkum úrgangi hefur verið safnað saman á að minnsta kosti fimm stöðum í Sviþjóð og einum stað í Nor- egi. Hefur efninu verið komið fyrir með leynilegum hætti ogekki almennt kunnugt um að þar væri geislavirkt efni til staðar. í sjónvarpsþættinum áðurnefnda var upplýst að visindamenn á vegum sænska hersins hafa lengi gert til- raunir til undirbúnings gerð sænskrar kjarnorkusprengju. Áðurgreind 24,4 kílógrömm af V Atvinnuleysi á íslandi spilapen ingar pólitíkusa Belgar Loksins finnst orðið lifsmark meðal stjómmálamanna I sambandi við að losa okkur við þau yfir 90 erlend veiði- skip, sem geta komið á íslandsmið til fiskveiða, og það eftir að við einir ráðum yfir 200 mílna fiskveiðiland- helgi við ísland. Þetta eru eins og ihverjar aðrar eftirlegukindur, og svo |lengi sem þessir útlendingar eru hér við land við veiðar er lokapunkturinn lekki kominn í landhelgisbaráttu iokkar. Hér er um að ræða 3 þjóðir, 'Belga, Færeyinga og Norðmenn. Það er ekki að furða þótt menn spyrji: Hvers vegna Belgar, hvað eigum við þeim að gjalda, hvaða skynsamlegar ástæður liggja því til grundvallar að hér skuli ennþá koma upp undir tugur belgiskra togara og taka hér við land um 6000 tonn af bolfiski og að þvi að menn álíta þó nokkuð af humri? Ég hefi spurt menn til hægri og vinstri og bak og fyrir og enginn hefur getað gefið svar: Belgar láta okkur ekkert I té, því er hér um hreint glapræði að ræða. Við aumingjarnír, með 40% lé- legri lífsafkomu heldur en fólk á Norðurlöndunum og jafnvel meiri mismun í Belgíu, erlendum skuldum vafðir einS og skrattinn skömmunum, teljum okkur vera stóra kalla og gefum einni elztu og rikustu iðnaðar- þjóð heimsins aflaverðmæti sem munu seljast á markaði I Ostende fyrir um tvö þúsund milljónir islenzkra króna, allt i gjaldeyri. Um 1/4 hluti þessa er þorskur eða meira. Hvar eru nú yfirlýsingamar um að ekki kæmi til mála að nokkurt erlent veiðiskip kæmi inn í íslenzka fiskveiði- lögsögu nema i gegnum gagnkvæma fiskveiðisamninga? Belgar eiga, engin fiskimið til að bjóða upp á. Svo fárán- legar ábendingar hafa heyrzt í sam- bandi við Belga að þeir væru Efna- hagsbandalagsþjóð og það væri gott að eiga þá sem vini innan Efnahags- bandalagsins. Hér ætti þvi að vera á ferðinni kaup á vinum á erlendum vettvangi með efnahagsaðstoð að hætti Bandaríkjamanna og Rússa. Ja, miklir kallar eru við lslendingar. Nei, ég held að enginn ábyrgur islenzkur stjórnmálamaður vildi við þetta kann- ast í alvöru. Þessi keypta vinátta hefur ekki beint reynzt Bandarikjamönnum Kjallarinn PéturGuðjónsson og Rússum traust i framkvæmd.. Gleymzt hefur gjörsamlega að líta á viðskiptahliðina. Svo lengi sem Belgar veiða þennan fisk sjálfir þurfa þeir ekki að kaupa hann af okkur. Á þenn- an heimskulega hátt útilokum við okkur frá að véra seljendur á þennan hluta Evrópumarkaðsins sem við erum búnir að borga dýru verði í tolla- ívilnunum til handa Efnahagsbanda- laginu á íslenzka markaðnum að eiga aðgang að. Hvernig sem lesið og reiknaðer. ekkiglóra. Og hvað gera svo belgisk stjórnvöld gagnvart okkur svona i kaupbæti? Þau brjóta öll lögmál og heiðvirðar reglur frjáls viðskiptalifs i samskiptum við okkur með því að greiða himinháar uppbætur beint og óbeint til þeirrar út- gerðar, sem veiðarnar stunda við Island. Nemur þetta i Efnahagsbanda- lagslöndunum með öllu um 1/3 af kostnaðarverði þess að draga fisk úr sjó. Þetta þýðir beint í framkvæmd útilokun eðlilegrar samkeppni, útilok- un Islendinga frá þessum markaði þar sem markaðurinn endurspeglar ekki eðlilegt heimsmarkaðsverð á kostnaði við fiskveiðar. Þegar dæmið er gert upp þýðir þetta, ef við neyddumst til að selja okkar fisk á þennan markað, niðurskurð á lífsafkomu íslenzku þjóðarinnar um nákvæmlega þá upp- hæð sem belgiska ríkisstjórnin greiðir í uppbætur til sinnar útgerðar. Ég er hræddur um að allt dæmið hafi aldrei verið skoðað af okkar góðu forsvars- mönnum. Staðreyndin er sú i dag að ennþá. á þessari stundu, lesandi góður. eru hér upp i 8 belgísk togveiðiskip að hirða um tvö þúsund milljóna verðmæti árlega úr okkar sjóðum. Skáldið hafði drukkinn mann i huga er það kvað: „Gakktu i sjóðinn og sæktu þér hnefa .. ” Er það lokastaðreynd þessa máls að við séum á alþjóðavett- vangi með álika dómgreind allsgáðir eins og aðrir eru drukknir? Norðmenn Lítið, og ekki betra, verður uppi á teningunum þegar veiðiheimildir Norðmanna eru skoðaðar. Grundvall- arreglan um gagnkvæmar fiskveiði- heimildir er hér lika brotin þvi Norð- menn hafa ekkert látið á móti. Þvert á móti hafa þeir með einhliða ráðstöfun um ofveitt Norðaustur-Atlantshafs síldarstofninn við strendur sinar og þar með beint komið í veg fyrir að hann rétti eðlilega við og gæti ef til vill nú eða bráðlega orðið styrk stoð i efna- hagsafkomu okkar íslendinga. Norð- menn hafa hér beint unnið skemmdar- verk gagnvart okkur I gagnkvæmum fiskveiðihagsmunum. Norsk útgerð

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.