Dagblaðið - 23.11.1978, Síða 12
12
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÖVEMBER 1978.
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1978.
13
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Dirk Dunbar með knöttinn og hugleiðir stöðuna. Andartaki síðar sendi hann knöttinn til John Johnson sem sést að baki spænska leikmannsins til hægrí. DB-mynd Bjarnleifur'.
ALLT ANNAR KLASSI
—þegar Barcelona sigraði stúdenta 125-79 í Evrópuleiknum í gær
Þrátt fyrir stjörnuleik John Johnson
og þrátt fyrír að Jón Héðinsson léki að
iikindum sinn bezta leik á ævinni voru
yfirburðir FC Barcelona körfuknatt-
leiksliðsins spánska of miklir i gær til að
þessi Evrópuleikur yrði nokkurn tima
spennandi. Þó þurfa stúdentar ekki að
vera óánægðir með leik sinn á móti þessu
sterka liði. Staðreyndin er aðeins sú að
þarna sást greinilega munurinn sem er á
beztu tegund af evrópskum körfubolta
og þeim sem við leikum hér á landi.
Þrátt fyrir að á köflum tækist
stúdentum að loka svæðisvörn sinni
nokkuð vel hafði það lítið að segja hittni
Spánverjanna var svo góð að þeim brást
varla langskot, sem þeir fengu að undir-
búa í friði. Að vísu reyndi ÍS liðið pressu-
vörn gegn FC Barcelona i byrjun, sem
sýnir að þar var engin minnimáttar-
kennd á ferðinni. Sú varnaraðferð gekk
þó ekki nægilega vel og var því fljótlega
hætt. Birgir Birgis þjálfari stúdenta
sagðist telja þetta spánska lið hreint frá-
bært. Því miður væru leikmenn þess svo
hávaxnir að ÍS-menn hefðu átt við ofur-
efli að etja. Öryggið í fráköstum hjá leik-
mönnum FC Barcelona hefði verið
mjög mikið, þannig að ef knötturinn
hefði ekki farið ofan í körfuna hefðu þeir
I flestum tilfellum náð frákastinu.
Ekki bætti úr fyrir stúdentum, að
Dirk Dunbar er ekki nema svipur hjá
sjón eftir uppskurðinn á hnénu. Satt að
segja leikur hann ekki nema á rúmlega
gönguferö og áhorfendur urðu því af
þeirri ánægju að sjá hann og Johnson
leika saman á fullu. Johnson bætti
meiðsli Dunbars að visu upp með
frábærum leik og sá ekki á honum nein
þreytumerki þrátt fyrir að hann léki
hverja mínútu leiksins og skoraði 24
stig.
Það var sem sagt aldrei vafi á hvort
væri betra liðið i gærkvöldi. FC Barce-
lona er lið, sem gat leyft sér að leika
allan siðari hálfleikinn með annað lið sitt
á leikvelli. Ekki voru þar samt neinir
aukyisar á feröinni. Varalið Spánverj-
anna stendur greinilega ekki fjarri þeim
fimm beztu og stúdentar voru ekki
öfundsverðir þvi ef einhverjum var
sleppt lausum voru mestar likur á þvi að
hann skoraði.
Sá eini stúdentanna, sem einhverja
möguleika hafði á aö ná knetti úr frá-
kasti var Jón Héðinsson. Eins og áður
sagði átti hann mjög góðan leik i gær-
kvöldi og náði ótrúlega mörgum frá-
köstum í vörninni. Jón var einnig annar
stigahæstur stúdentanna, skoraði 23 stig
og aðeins Johnson gerði fleiri. Jón
þjáðist ekki af neinni minnimáttarkennd
gegn Spánverjunum. Ekki átti hann þó
við neina smákalla að etja, flestir þeirra
eru um það bil 10 sm hærri en hann.
En Jón Héðinsson lét sig hvergi i
bardaganum.
Dirk Dunbar sagði eftir leikinn, að
þetta spænska lið væri mjög gott og teldi
hann það fullkomlega sambærilegt við
beztu bandarisku háskólaliðin. En í
Bandaríkjunum er vegur körfuboltans
mestur í heiminum og því langt til
jafnað.
Kvcharski, þjálfari FC Barcelona,
sagðist vera sæmilega ánægður með leik
sinna manna. lslendingarnir hefðu verið
betri en hann átti von á og hann sagðist
ætla að reyna að sjá til þess að Spán-
verjar næðu betri árangri á móti þeim i
leiknum úti á Spáni. Fyrir utan John-
son, sagðist Kvcharski telja að sá númer
fimm af Íslendingunum, Jón Héðinsson,
hefðiátt beztan leik.
Fyrir stúdenta voru þeir stigahæstir
Johnson með 24 stig, Jón Héðinsson
með 23 stig og Dirk Dunbar með átján
stig. Bjarni Gunnar gerði 6, Ingvar Jóns-
son 4, Ingi Stefánsson og Steinn Sveins-
son 2 stig hvor. Stigahæstur hjá Spán-
verjunum var Epi með 29 stig síðan
komu Flores með 26, Amsa 14,
ÓG.
QPR 15 3 6 6 II-I7 12
Ipswich I6 5 2 9 16-23 I2
Bolton 16 3 4 8 19-34 10
Wolves I6 4 I ll 13-31 9
Chelsea 16 2 4 I0 19-34 8
Birmingham I6 2 3 II I6-28 7
1 2. deild hafa Crystal Palace og Stoke
22 stig. West Ham, Fulham og Burnley
19 stig.
Lið Ystad 1978—’79 Efsta röö frá
vinstri: Sven Nilsson, Bertil Engström,
Lars Eriksson, Thomas Hansson, Sven
Áke Frick, Basti Rasmussen, Örjan
Sterner.
Miöröð: Christian Hemme, Lars
Gösta Andersson, Kenncth Persson,
Lars Bertil Persson, Björn Johansson,
Anders Dahlberg, Lars Brun.
Fremsta röð: Björn Jakobsson, Kav
Eklund, Bengt Andersson.
Ajax féll illa í Budapest
Ungverska liðið fræga, Honved Buda-
pcst, lék sinn bezta leik I gær, frá þvi
leikmennirnir snjöllu Puskas, Boszik og
félagar þeirra gerðu þar garðinn frægan
á árunum 1950—1956, þegar liðið vann
stórsigur á Ajax, Amsterdam, i UEFA-
keppninni. Úrslit 4—1 og eitt mesta tap
Ajax I Evrópukeppni var staðreynd —
félagsins, sem á fyrstu árum þessum ára-
tugs varð þrisvar Evrópumeistarí.
Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik
en í þeim siðari reyndist miðherjinn
Nagy Ruud Kroll mjög erfiður. Skoraði
tvívegis og Honved komst í 3—0 áður en
Englendingurinn Ray Clarke skoraði
eina mark Ajax úr vítaspyrnu. Það
verður erfitt fyrir hollenzka liðið að
vinna upp þennan þriggja marka mun,
þegar liðin leika i Amsterdam eftir
hálfan mánuð.
Danska liðið Esbjerg kom mjög á
óvart og vann Hertha Berlín 2—1.
Jiirgen Milevski náði þó forustu fyrir
Hertha á 6 mín. en Leif Hansen jafnaði
úr víti á 12 mín. I s.h. sótti Esbjerg lát-
laust við mikinn fögnuð 18 þúsund
áhorfenda — og Erik Jespersen skoraði
snemma i hálfleiknum. Mikil gleði Dana
en glaðastur var þó gjaldkeri Esbjerg.
Tugmilljónir króna á ísl. vísu komu i
kassa hans. Mikil aðsókn var að öllum
leikjunum i UEFA-keppninni. Næstum
250 þúsund á leikina sjö og hefðu verið á
fjórða hundrað þúsund ef leikur AC
Milano og Manch.City hefði farið fram.
WBA náði mjög athyglisverðum
árangri í Valencia — jafntefli 1 — 1 eftir
mikla pressu spánska liðsins framan af.
Reiner Bonhof og Mario Kempes aðal-
menn Valencia og landi Kempes, Dario
Felman, Argentínu, skoraði eftir
fimmtán mínútur. En leikmönnum
WBA tókst að verjast vel og á 48 min.
jafnaði svertinginn Laurie Cunningham.
Var nærri siðar i leiknum að skora aftur.
í Belgrad lék Arsenal einnig sterkan
varnarleik og tókst að verjast áföllum
eftir að Svijetin Blagojevic hafði skorað
fyrir Rauðu stjörnuna snemma leiks.
Pat Jennings var hetja Arsenal i
leiknum.
Áhorfendur voru tæplega 71 þúsund i
Stuttgart og þar vann þýzka liðið stóran
sigur á Dukla Prag — og lék oft snilldar-
lega. Þá kom mjög á óvart, að eitt af
botnliðunum i 1. deildinni vestur-þýzka,
Duisburg, tókst að ná jafntefli við
franska liðið Strasborg. Ekkert mark
skorað en Strasborg hefur góða forustu í
1. deildinni í Frakklandi.
Hins vegar er Borussia Mönehenglad-
bach i mikilli lægð — eins og vel hefur
komið fram á keppnistímabilinu.
Óþekkjanlegt lið frá þvi Bonhof fór til
Valencia. Stielike til Real Madrid, Vogts
slasaðist, og Heynches hætti. Aðeins
jafntefli við pólska liðið Slask Wroclaw á
heimavelli — en Slask sló sem kunnugt
er Vestmannaeyinga út í 2. umferð með
tiltölulega litlum mun. -hslm.
Fram - Valur
Tveir leikir verða i handknattleiknum
i kvöld i Laugardalshöll. Kl. 20.00 leika
Valur og Fram 11. deild kvenna og strax
á eftir verður leikur sömu félaga I 1.
deild karla.
Víkingur stefnir í
átta liða úrslitin
Áhorf endur geta haf t úrslitaáhrif, þegar Víkingur og sænska
liðið Ystad leika í Evrópukeppninni á laugardag
„Ég hef trú á því aö leikir Víkings og
sænska liðsins Ystad i 2. umferð Evrópu-
keppni bikarhafa I handknattleiknum
verði mjög skemmtilegir og jafnir. Fyrri
leikurinn verður á laugardag í Laugar-
dalshöllinni og við erum bjartsýnir á að
strákarnir I Vikingsliðinu nái sér vel á
strík. Þeir hafa æft vel og undirbúið sig
fyrir þennan leik — og geta á góðum
degi leikið snjallan handknattleik” sagði
Eysteinn Helgason, formaður hand-
knattleiksdeildar Vikings i samtali við
DB í gær. Leikurinn á laugardag hefst
kl. 15.30. Leikinn dæmda hinir þekktu
dönsku dómarar Henning Svensson og
Per Jörgensen.
Víkingur og Ystad mætast i 16 liða
úrslitum keppninnar. Sviarnir komust i
16 liða úrslitin með því að vinna finnsku
bikarmeistarana Cocks Ruhimáki tví-
vegis, fyrst 27—24 í Finnlandi en seinni
leikinn unnu þeir á heimavelli 34—16.
Segja má að þessi úrslit lýsi vel liði
Ystad, það stendur sig alltaf vel á heima-
velli þegar áhorfendur styðja við bakið
á heimamönnum en lakar á útivelli. Vík-
ingar hafa undirbúið sig vel fyrir leikinn
og þeir telja sig eiga mikla möguleika á
því að vinna Ystad í Laugardalshöllinni
með góðum stuðningi áhorfenda.
Eitt bezta lið
Svíþjóðar
Ystad IF er tvímælalaust eitt bezta
handknattleikslið Svíþjóðar um þessar
mundir. Að sögn íslenzkra handknatt-
leiksmanna, sem leikið hafa í Svíþjóð
undanfarið leikur liðið hraðan og
skemmtilegan handknattleik, enda fær
það allajafna flesta áhorfendur á leiki
sína af sænsku Iiðunum. Er yfirleitt upp-
selt á leiki liðsins heima í Ystad, en
iþróttahöllin þar er mjög glæsileg og
rúmar yfir 2000 áhorfendur.
Ystad er bær í Suður-Sviþjóð. Hand-
knattleikur er svo gróin íþróttagrein í
Ystad að bærinn er oft kallaður Mekka
handknattleiksins í Svíþjóð og má segja
að hann haft þar svipaða stöðu og
Hafnarfjörður hér heima á Íslandi.
Ystad IF varð Svíþjóðarmeistari árið
1976 og liðið sigraði í sænsku deildar-
keppninni sl. vor, hlaut 32 stig i 22 leikj-
um, einu stigi meira en Lugi, lið Jóns
Hjaltalín Magnússonar og tveimur
stigum meira en Drott, lið Ágústs
Svavarssonar. 1 Sviþjóð er sá háttur
hafður að fjögur efstu liðin i deildar-
keppninni leika aukakeppni um Sví-
þjóðarmeistaratitilinn og þá keppni
vann Drott naumlega. Deildarkeppnin
er nýlega haftn í Svíþjóð og hefur Ystad
hlotið 9 stig i 6 fyrstu leikjum sinum.
Margir góðir leikmenn eru i liði Ystad
1F en þrír þeirra eru þekktastir. Stjörnu-
leikmaður liðsins er Basti Rasmussen, 24
ára gamall slökkviliðsmaður, sem leikið
hefur 80 landsleiki fyrir Svíþjóð. Basti er
einn vinsælasti leikmaðurinn í sænskum
handknattleik, mikill spilari og góð
skytta. Hann var annar markhæsti
deildarkeppninnar sl. keppnistimabil,
skoraði 151 mark í 22 leikjum. (Ágúst
Svavarsson var i 4. sæti með 128 mörk).
Annar landsliðsmaðr i Ystad er Sven-
Áke Frick, 32 ára gamall verkfræð-
ingur með 65 landsleiki að baki. Hann er
kjölfestan í vörn liðsins og einnig
drjúgur markaskorari. Erik Larsson
heitir mikil vinstrihandarskytta í liðinu,
24 ára gamall. Hann hefur leikið 6
landsleiki en sl. 2 ár hefur hann ekki
gefið kost á sér í landsliðið, Svíum til
mikilla vonbrigða.
Víkingsliðið
Þetta er i annað skiptið, sem Víkingur •
tekur þátt í Evrópukeppni í handknatt-
leik. Víkingur varð íslandsmeistari 1975
og árið eftir tók félagið þátt i Evrópu-
keppni meistaraliða en var slegið út í 1.
umferð af margföldum Evrópu- og
Þýzkalandsmeisturum Gummersbpch. í
1. umferð Evrópukeppni bikarmeistara
drógust Víkingar gegn enska liðinu
Halewood en Englendingarnir drógu lið
sitt út úr keppninni og Víkingarnir
komust þar með fyrirhafnarlaust i 2.
umferð. Víkingsliðið hefur sýnt ótvíræð-
ar framfarir undir stjórn pólska þjálfar-
ans Bodans Kowalski og þeir eru stað-
ráðnir í því að vinna Sviana og komast í
3. umferð.
Eftirtaldir leikmenn skipa lið Víkings
í leiknum gegn Ystad IF:
Nr.' I: Eggert Guðmundsson, 22 ára
gamall, 45 leikir í meistaraflokki Vik-
ings.
Nr. 2: Magnús Guðfinnsson, 19 ára
gamall, 23 leikir í mfl. Víkings.
Nr. 3: Steinar Birgisson, 24 ára gamall,
33 leikir í mfl. Víkings. 3 landsleikir.
Nr. 5: Skarphéðinn Óskarsson, 27 ára
gamall. 172 leikir í mfl. Víkings.
Nr. 6: Sigurður Gunnarsson, 19 ára
gamall, 33 leikir í mfl. Víkings, 2 lands-
leikir.
Nr. 7: Páll Björgvinsson, 27 ára gamall.
271 leikur í mfl. Vikings, 26 landsleikir.
Nr. 8: Erlendur Hermannsson, 22 ára
gamall, 90 leikir í mfl. Víkings.
Nr. 9: Árni lndriðason, 28 ára gamall,
31 leikur í mfl. Víkings, 40 landsleikir.
Nr. 10: Ólafur Einarsson, 26 ára gamall,
35 leikir í mfl. Vikings, 57 landsleikir.
Nr. 11: ViggóSigurðsson, 24ára gamall,
145 leikir í mfl. Víkings, 34 landsleikir.
Nr. 12: Kristján Sigmundsson, 21 árs
gamall, 27 leikir í mfl. Víkings, 22 lands-
leikir.
Þrjú mörk fyrstu
fimm mínúturnar
—þegar Leeds sigraði Chelsea—Liver-
pool tókst ekki að skora gegn Tottenham
Leikvöllur Tottenham, White Hart
Lane I Lundúnum, fylltist af áhorfend-
um, þegar Liverpool lék við Tottenham
þar I gærkvöld I 1. deild. Hliðum vallar-
ins var lokað, þegar rúmlega 50 þúsund
voru komnir inn á völlinn — ög þúsundir
lokaðir úti. Það var mikil spenna i leikn-
um en ekki tókst leikmönnum liðanna að
finna leiðina i markið. Litlu munaði þó
að Liverpool næði sigri fimm min. fyrír
leiksiok. Alan Kennedy, bakvörður,
spyrnti rétt framhjá marki Tottenham I
opnu færí.
Leikmenn Liverpool voru ekki á skot-
skónum eins og i fyrri leik liðanna á An-
field. Þá sigraði Liverpool með 7—0.
Báðir heimsmeistarar Tottenham,
Argentínumennirnir Ardiles og Villa,
léku — Villa þó aðeins í siðari hálfleik
— og stóðu sig vel.
Urslit á Englandi i gær urðu þessi:
1. deild
Leeds — Chelsea 2— 1
Tottenham — Liverpool 0—0
2. deild
Leicester — Wrexham I — I
N ewcastle — Cambridge 1 —0
Stoke — Oldham 4—0
Leik WBA og Nottingham Forest var
frestað vegna UEFA-leiks WBA.
Það var mikið fjör í byrjun leiksins í
Leeds. Á 3ju mín. skoraði Langley fyrir
Chelsea. Arthur Graham jafnaði fyrir
Leeds á næstu mín. og Ray Hankin
skoraði sigurmark Leeds á fimmtu mín.
Þrjú mörk fyrstu fimm min. leiksins en
síðan ekki söguna meir. Stoke náði C.
Palace að stigum i 2. deild með stórsigri
á Oldham — og Mike Thomas, sem
skrifar undir hjá Man. Utd. í dag,
skoraði jöfnunarmark Wrexham í
Leicester.
Liverpool hefur tveggja stiga forustu i
1. deild en staða efstu og neðstu liða þar
er nú þannig:
Liverpool 16 12 3 1 40—7 27
Everton 16 9 7 0 23—9 25
WBA 15 9 4 2 30—13 22
Nott. For. 15 6 9 0 18—9 21
k, ‘xma
'Stefán Halldórsson
Olafúr Benediktsson
Ystad—eitt skemmti-
legasta lið Svíþjóðar
Margir íslendingar þekkja vel til Ystads-
liðsins, sem leikur við Víking í Evrópukeppni
bikarhafa á laugardag. Hér á eftir fer álit
fjögurra kunnra handknattleiksmanna á
liðinu.
Stefán Halldórsson, fyrrum leik-
maður með Viking og landsliðinu,
æfir nú með Kristianstad í Sviþjóð og
byrjar að keppa með því félagi um ára-
mótin:
Lið Ystad er eitt hið skemmtilegasta
i Svíþjóð. Það leikur hratt og fjöl-
breytilega og i liðinu er engan veikan
hlekk að finna. Ég tel möguleika
Vikings á því að komast áfram í 3. um-
ferð 50%, ef vel gengur í fyrri leik
liðanna heima á Islandi.
Ólafur Benediktsson, markvörður
Vals og landsliðsins og leikmaður með
sænska liðinu Olympia sl. keppnis-
timabil:
Ég lék tvisvar gegn þessu liði og tel
það með skemmtilegri liðum, sem ég
spilaði á móti. Ég var sérstaklega hrif-
inn af Basta Rasmussen, hann er
geysilega skemmtilegur leikmaður og
einstaklega fjölhæfur. Að því leytinu
minnir hann mig á Geir Hallsteinsson.
Víkingarnir eiga möguleika gegn
æssu liði, ef þeim tekst vel upp í leikj-
unum tveimur.
Hilmar hefur stundað nám i íþrótta-
fræðum í Svíþjóð og gjörþekkir
sænskan handknattleik:
Lið Ystad leikur léttan og skemmti-
legan handknattleik. Þrir leikmenn
eru mest áberandi i liðinu, fyrirliðinn
Basti Rasmussen, mikill spilari og
markaskorari, heilinn á bak við
sóknarlotur liðsins, Sven-Áke Frick,
geysisterkur varnarmaður og loks
vinstri handar skyttan Lars Eriksson.
Lars er góður kunningi minn frá þvi
við vorum saman í skóla i Svíþjóð.
Ystad er stemningarlið, því gengur vel
á heimavelli en liðið nær oft lélegum
árangri á útivelli. Að minu mati felast
möguleikar Vikings í því að ná góðum
ieik á heimavelli og vinna Svíana þar,
'því þeir eru mjög erfiðir heim að
sækja.
Hilmar Björnsson, þjálfari Vals og
áður leikmaður í Hellas i Svíþjóð..
Viöar Simonarson, margfaldur
Íslandsmeistari með FH og landsliðs-
maður, leikmaður i Svíþjóð sl. vetur:
Ég sá Ystad spila nokkra leiki og tel
þetta lið hiklaust i hópi skemmti-
legustu Iiðanna í Svíþjóð. Basti
Rasmussen er bezti maður liðsins,
hann byggir upp leik liðsins og er |
einnig góð skytta. Ystad hefur einnig
tvær stórskyttur og góða markverði.
Það þarf að spila beittan sóknarleik
gegn Ystad og því tel ég Viking eiga
nokkra möguleika gegn Svíunum.
Hilmar Björnsson
Viðar Simonarson
UEFA-keppnin
Úrslitin I leikjunum I UEFA-keppninni I knattspyrn-
unni I gær urðu þessi.
Í Valencia: — Valencia, Spáni,-West Bromwich
Albion, Englandi, 1—1 (1—0). Mark Valencia.
Felman á 15 mín. WBA. Cunningham 48 min. Áhorf-
endur 48þúsund.
í Mönchengladbach: — Borussia Mönchenglad-
bach, Vestur-Þýzkalandi, — Slask Wroclaw,
Póllandi, 1—1 (1—0). Mark Gladbach. Kulik. Slask.
Olesiak. Áhorfendur 20 þúsund.
í Esbjerg: — Esbjerg, Danmörku,-Hertha Berlln,
Vestur-Þýzkalandi, 2—1 (1—1). Esbjerg. Hansen,
vítaspyrna, Jestersen. Hertha Milevski. Áhorfendur
ISþúsund.
í Strasborg: — Strasborg, Frakklandi, — MSV
Duisburg, V-Þýzkalandi, 0—0. Áhorfendur 25
þúsund.
í Budapest: — Honved, Ungverjalandi, — Ajax,
Hollandi, 4—1 (0—0). Honved. Nagy 48. og ól.min.
Lukacs 66.mín. og Wimpert 88.min. Ajax. Clarke 80.
mín. vitaspyrna. Áhorfendur 18 þúsund.
í Belgrad: — Rauóa stjarnan, Júgóslavíu, —
Arsenal, Englandi, 1—0 (1—0). Markið Blagojevic.
Áhorfendur 50 þúsund.
í Stuttgart: — VfB Stuttgart, Vestur-Þýzkalandi,
— Dukla Prag, Tékkóslóvaklu, 4—1. (2—0). Stutt-
gart. Volkert tvö, Kelsch og Ohlicher. Dukla Gajdu-
sek. Áhorfendur 70.900.
Leik AC Milano og Man. City, sem fara átti fram I
Milano I gær var frestað vegna þoku. Verður leikinn I
dag og hefst kl. 12.30.
Firmakeppni Fram
Knattspyrnufélagið Fram heldur firmakeppni í
knattspyrnu 25. og 26. nóvember I íþróttasal Álfta-
mýrarskóla. Upplýsingar um keppnina eru veittar I
síma 34792 næstu daga milli kl. 6—8. Þátttökugjald I
keppninni er 20 þúsund krónur.
Nýkomið!
Frá VanityFair
Náttkjólar
Litir: Blágrænt og bleiht
Verð hr. 6.900.
PÓSTSENDUM
FATA-
DEILDIN
Aðalstræti 9
Miðbæjarmarkaður-
inn. Sími 13577.