Dagblaðið - 28.11.1978, Síða 2

Dagblaðið - 28.11.1978, Síða 2
14 DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1978 Hljómplötuútgáfan er orðin alvöruiðnaður: ÚTGÁFAN HEFUR EKKIAÐEINS AUKIZT — PLÖTURNAR HAFA □NNIG BATNAÐ STÓRUM — Platan og bókin eru tvímælalaust keppinautar, er álit útgefenda Allar útgefnar bækur fásthjáokkur Sparid sporin niður í miðbœ—Hœg bílastœði OPIÐALLA laugardaga í desember lAUGAVEGl 178. Laugavefl 178-Sími 86780 (NæatahÚ8VÍöSj6rwarp<«) k á Allir eiga sín einkamál, en átt þú EINKAMÁL STEFANÍU eftir Ásu Sólveigu? Ef ekki, þá ættir þú ekki að draga það lengi, því að allt virðist benda til þess að hún veröi upp- seld löngu fyrir jól. Ása Sólveig hefur áður hlotið verðskuldaða vió- urkenningu fyrir út- varps- og sjónvarpsleik- rit sín og ekki mun þessi bók draga úr því áliti sem Ása hefur áunnið sér. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Vesturgötu 42, sími 25722 Árið 1973 voru flutt inn 15.7 tonn af islenzkum plötum og 68.2 tonn af erlendum. Áríð 1976 hefur þessi mismunur lagazt nokkuð. t>á eru fluttar inn 32.9 lestir af islenzkum plötum og 59.7 af erlendum. „Það var óvenju góð bóksala i fyrra miðað við fyrri ár og ég tel að setja megi það í samband við þann samdrátt sem varð í hljómplötuútgáfunni,” sagði Eirikur Hreinn Finnbogason útgáfu- stjóri Almenna bókafélagsins í samtali við Dagblaðið. Eiríkur benti á, að sjálfsagt spilaði fleira inn i en samdráttur plötuútgáf- unnar. „Fólk hafði sérstaklega rúm peningaráð í desember í fyrra, er opin- berir starfsmenn fengu uppbót á laun sin,” sagði hann. „En ef við berum saman jólavertiðina í fyrra og svo aftur í hittifyrra kemur i Ijós að þá var vegur hljómplötunnar mikill en bóksalan frekardræm. Skoðun min á að aukning hljómplötu- útgáfunnar hafi áhrif á bóksölu er svo sern ekki byggð á neinum rannsóknum heldur miklu fremur tilfinningu,” sagði Eirikurennfremur. Arnbjörn Kristinsson formaður félags islenzkra bókaútgefenda tekur undir orð Eiríks Hreins á öðrum stað í blaðinu. Þar segir hann: „Ég held að hljómplatan hafi tekið töluvert frá bókinni siðustu fjögur til fifnm ár en ég tel að bókin sé að vinna á aftur.” Útgáfan í tölum Útgáfa og sala íslenzkra hljómplatna hefur aukizt gifurlega undanfarin ár. Árið 1973 voru alls gefnar út 39 plötur. Fjórtán þeirra voru litlar, 25 stórar. Næsta ár á eftir — þjóðhátíðaráriö — fjölgaði plötunum nokkuð. Alls voru gefnar út 44 plötur, tólf litlar og 32 stórar. . Siðan kemur stökkið mikla, sem lengi verður í minnum haft. Árið 1975 var gefin út hvorki meira né minna en 61 plata. Sextán þeirra voru litlar og 45 stórar. Þessi mikla útgáfuaukning er fyrst og fremst því að þakka að hljóð verið Hljóðriti í Hafnarfirði tók til starfa á árinu. Ári siðar, eða 1976, voru út gefnar sextíu íslenzkar plötur, allar stórar. Það er talið algjört metár i hér- lendri plötuútgáfu. Í fyrra dalaði útgáfan nokkuð en þó ekki líkt því eins mikið og spáð hafði verið. Því miður hefur Dagblaðið ekki undir höndum haldbærar tölur um titla- fjöldann í fyrra en láta mun nærri að 50 plötur hafi þá komið út. Það sem af er þessu ári eru komnar út um fjörutiu plötur og talsverður fjöldi enn á leiðinni, aHt fram yfir mánaðamótin nóvember/desember. Salan Nóg um útgáfuaukninguna og snúum okkur að sölunni. Árið 1973 seldust um 65.300 islenzkar hljómplötur. Árið eftir var salan komin upp í 91.300 eintök og komu út sautján plötur sem flokka má undir popp. Árið 1976 eru poppplöt- urnar orðnar 37 talsins eða rúm 60% heildarútgáfunnar. Þá er jafnframt önnur þróun sjáanleg. Útgáfa frumsam- ins efnis hefur stóraukizt. Sömuleiðis hafa plötur farið ört batnandi og hefur aldrei verið á boðstólum eins mikið úrval góðrar islenzkrar tónlistar og einmitt núna. Æfingin skapar meistarann. ÁT. Islenzkar hljómplötur 1 bland við erlendar. 1975 heldur salan enn áfram að aukast. Þá seldust um 126.750 islenzkar hljóm- plötur. Metárið, 1976, komst salan upp i 153.600 eintök, sem þýðir að þá var meðalupplagið 2.560 eintök. Það ár kom reyndar út metsöluplatan Einu sinni var, sem seldist í um átján þúsund eintökum á sama árinu. Til samanburðar má geta þess að bezt selda íslenzka bókin til þessa seldist í tiu þúsund eintökum á einu og sama árinu. Nokkrar plötur hafa farið yfir það mark, svo að segja má að vinsæl hljómplata nái til mun fleiri en metsölubók. Sú aukning sem hefur orðið á hljóm- plötuútgáfu -er aðallega í einum flokki hennar — poppmúsíkinni. Árið 1973 Uppplýsingamar i þossari grein eru að mestu leyti fengnar i óprentaðri athugun þeirra Sigurjóns Sighvatssonar fyrrum framkvæmda- stjóra Hljóðríta og Leifs Haukssonar fymim liðs- manns Þokkabótar.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.