Dagblaðið - 12.12.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1978.
\
„Þeir sem grafa öðrum gröf
DB-mynd Mats.
Oddný A. Jónsdöttir Fáskrúðsfirði
skrifar:
Hverjir eru ábyrgir fyrir blaðaskrif-
um þeim sem birtast í dagblöðum og
eru miður skemmtileg aflestrar, sbr.
grein birta í Dagblaðinu þann 18. nóv.
sl. með yfirskriftinni „Slæleg fram-
kvæmd dómsmála á Fáskrúðsfirði”?
Svo mörg voru þau orð. Maður lítur
ekki svo i blað að ekki sé rógburður
eða meiðyrði um einhvern eða ein-
hverja. Ég hélt að það væri ekki í
verkahring dagblaða að fjalla um þessi
mál og finnst mér mál til komið að birt
séu nöfn þeirra manna sem láta hafa
slíkt eftir sér, þvi blaðamenn, hverjir
sem eru, hljóta að hafa fréttina héðan.
Heimilis-
iæknir
Haddir lesenda taka við
skilaboðum ti{ umsjónar-
manns þáttarins „Heim-
ilislœknir svarar" i síma
27022, kl. 13-15 alla
virkadaga.
Fáskrúðsfjörður.
En hverjir hafa efni á að veita slikar
heimildir?
Þvi í ósköpunum er aldrei getið þess
sem vel er gert? Hér eru ótal félaga-
samtök og margt fólk sem vinnur að
góðum og þarflegum málefnum. Af
hverju er þess ekki getið og höfð viðtöl
við þetta fólk og þau birt i blöðum?
Kannski loka þessir ritsnillingar héðan
augum og eyrum fyrir öllu þvi sem vel
er gert en draga það sem miður fer i
dagsljósið. Eða hafa þeir kannski
ánægju af óförum annarra? Þá ættu
þeir að passa að grafa ekki sjálfum sér
gröf með slikri framkomu. Slikt gæti
gerst.
Ég skora á öll. dagblöð að yfirfara
allar greinar vel áður en þær eru birt
ar.
Það er hagstætt að
verzlaí
ÍTqimattfrfl
Telpnakjólar
í mjögfallegu
úrvali.
Verð frá kr. 4.700.-
Drengjavesti
ogpeysur
•
Drengjaföt
úrsléttu flaueli
ál—2ára. Verð
(með blúnduskyrtu)
kr. 9.620.-
•
Póstsendum
Fataverz/un
Hamraborg 14 — Sími43412.
Spurning
dagsins
Ertu búin(n) að
kaupa jólaeplin
Hilmar Bárðarson byggingarmaður:
Nei, þau eru sjálfsagt hluti af jólunum
og ég býst við að ég rcyni að kaupa eitt-
hvaðaf þeim. Þaðer þóekkert vist.
Hörður Kristjánsson, gæzlumaður
skýlisins á Hlemmi: Nei. ég er einn
þannig að ég kaupi litið. Kannski svona
fimm stykki.
Þorgeir Jónsson simsmiður: Nei, ég er
ekki búinn að þvi. Ég verð að fara að
drifa í þvi. Ég reikna mcð að kaupa
svona lOkiló.
Sveinn Ágústsson simsmiður: Nei. ég cr
ekki búinn að þvi. Ég veit ekki hvort ég
geri það nokkuð. það er alvcg óvíst.
Edda Þorvaldsdóttir afgreiðslustúlka:
Nei, mér finnast epli ekkert góð. Ég býst
þó við að kaupa svona kiló fyrir krakk-
ana.
Guðlaugur Kristján Júliusson nemi: Nei,
ég er ekki búinn að kaupa jólaeplin. Ætli
ég geri það ekki einhvern daginn. Ég er
vanur að fá kassa af eplum fyrir jólin.