Dagblaðið - 23.04.1979, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 23. APRlL 1979.
(i
Iþróttir
Iþróttir
'15
Iþróttir
Iþróttir
9
íþróttir
HALLUR
Stúdentar
hrepptu
bikarinn
—sigruðu Eyf irðinga 3-2 í úrslitum
Bikarkeppni Blaksambandsins
Stúdentar hrepptu bikarinn í blaki cr
þeir sigruðu Eyfirðinga 3—2 í Haga-
skóla á laugardag. Eyfirðingar hafa
aldrei sigrað Stúdenta en á laugardag
voru þeir býsna nærrí því. Aukahrinu
þurfti til að skera úr um sigurvegara og
Stúdentar sigruðu 15—13 í lokahrin-
unni eftir að staðan hafði verið 13—13.
Eyfirðingar náðu raunar afgerandi
forustu, komust í 7—1, en Stúdentar
náðu að jafna metin, 10—10 og sigra
siðan.
Sigur Stúdenta var þvi tæpur en það
fór ekkert á milli mála hvor aðilinn var
sterkari í Hagaskóla í fyrstu hrinunni,
Stúdentar sigruðu þá örugglega 15—0.
í annarri hrinu var mikil barátta.
Eyfirðingar komust í 6—3, eftir að
Stúdentar höfðu skipt mönnum inn á,
er litið hafa reynt sig í vetur. Stúdentar
náðu síðan aftur forustunni, 9—6,
Eyfirðingar komust yfir, 10—9 og
sigruðu 15—13. Þriðja hrinan var hins
vegar ekki eins jöfn, hana unnu
Stúdentar 15—6, staðan 2—1
Stúdentum í vil. Fjórðu hrinuna unnu
Eyfirðingar nokkuð óvænt því flestir
bjuggust við að Stúdentar myndu láta
ikné fylgja kviði — en Eyfirðingar
jöfnuðu metin, 2—2 með 15—13 sigri.
Fimmtu hrinuna þurfti til og þrátt fyrir
óskabyrjun tókst Eyfirðingum ekki að
sigra — Stúdentar sigruðu 15—13 og
hrepptu bikarinn.
Eyfirðingar léku siðan í gær við
Þrótt og var það síðasti leikur 1.
deildar. Þróttur sigraði 3—0, 15—7,
15—12, 15—13 og hrepptu því annað
sætið — og keyptu Þróttarar sér sjálfir
silfurpeninga þar sem Blaksambandið
hefur ekki efni á slíkum munaði!
Lokastaða 1. deildar varð:
Laugdælir 16 13 3 40—19 26
Þróttur 16 12 4 40—19 24
ÍS 16 11 5 38—22 22
UMSE 16 3 13 18—42 6
Mimir
Blkarmeistarar Studenta eftir sigurínn gegn Eyfirðingum á tröppum íþróttahúss Hagaskóla. DB-mynd Bjamleifur.
Viggó ekki
með Víking
—gegn Val í undanúrslitum bikarsins
Viggó Sigurðsson mun eklti geta
leikið með Viking i undanúrslitum
bikarkeppni HSÍ. Vikingar hafa mjög
reynt að fá Viggó lausan til að leika
gegn bikarmeisturum Vais i undan-
úrslitum en i gær var endanlega gert út
um það. Barcelona, hið nýja félag
Viggós, tilkynnti honum að hann yrði
að vera kominn til Barcelona á mið-
vikudag — og leika sinn fyrsta ieik á
sunnudag.
Víkingar hafa því orðið enn fyrir
blóðtöku — fimmti landsliðsmaðurinn,
sem hverfur frá félaginu á einu ári, frá
þvi Víkingur og Valur mættust fyrir ári
í undanúrslitum bikarsins og Vikingur
sigraði þá. Vikingar hafa verið mjög
óánægðir með þann drátt sem orðið
hefur á bikarnum. islandsmótinu lauk
11. apríl — og 14 dögum síðar fer fram
undanúrslitaleikur við Val. VUja Vík-
ingar meina að þetta hafi verið gert af
ásettu ráði, með það í huga að Viggó
gæti ekki leikið. Og sú hefur orðið
raunin — Viggó Sigurðsson hverfur nú
til Spánar.
ísland í 4.
sæti á NM
ísland hafnaði f neðsta
sæti í Kalottkeppninni
—í Danmörku—íslenzka unglinga-
landsliðið feti f rá sigri gegn Dönum
íslenzka unglingaiandsliðið 1 hand-
knattleik hafnaði i fjórða sæti á
Norðuriandamótinu, sem fram fór í
Danmörku um helgina. Aðeins einn
sigur, gegn Finnum, en ósigrar gegn
Dönum, Norðmönnum og Svíum.
Danir urðu Norðurlandameistarar —
sigurðu Svia i úrslitaieik, 15—14.
íslendingar léku sinn fyrsta leik
gegn Dönum og í leikhléi var staðan
9—5 íslandi í vil. En ekkert gekk i
síðari hálfleik og Danir náðu að sigra,
15—14. Síðan mættu íslendingar Sví-
um og töpuðu enn — 21—15. Þriðji
leikur íslands var gegn Finnum og hann
vannst, 24—23, eftir að ísland hafði
fiaft yfir í leikhléi, 12—11.
íslendingar og Norðmenn léku þvi
um þriðja sætið og Norðmenn sigruðu
18—14, en Norðmenn sigruðu Finna
21—18.
—sem f ram f ór f Bodö um helgina
Islenzka sundlandsliðið hafnaði í
neðsta sæti i Kalott-keppninni i sundi,
sem fram fór í Noregi um helgina.
Finnar sigruðu, hlutu 269.5 stig,
Norðmenn urðu i öðru sæti með 254.5
stig, i þríðja sæti urðu Sviar með 177.5
stig og íslendingar ráku lestina með
124.5 stig.
Aðeins eitt gull vannst í Bodö í
Kalottkeppninni, sem er á milli norður-
héraða Finnlands, Noregs, Svíþjóðar
og síðan íslands. Selfyssingurinn Hugi
Harðarson sigraði i 200 metra bak-
sundi á 2:18.7. Hugi setti piltamet í 800
metra skriðsundi er hann synti á 9:09.1.
Brynjólfur Bjarnason varð í öðru sæti í
800 metra skriðsundi er hann synti á
nýjum Íslandsmettíma, 8:48.7, en hann
'var síðan dæmdur úr leik vegna mis-
[heppnaös snúnings. Eftir fyrri daginn
Maraþon-
met
— strákarniríLeikni
léku Í40 klukkustundir
Strákarnir i Leikni settu nýtt
jíslandsmet i maraþonknattspyrnu um
helgina — léku i 40 klukkustundir. Þeir
voru á skotskónum, piltamir, þvi þeir
skoruðu yfir 1800 mörk — B-lið
[sigraði, skoraði 989 mörk gegn 864
Imörkum A-liðsins.
Á þessari DB-mynd Grétars eru
istrákarnir. A-lið talið frá vinstri:
Leifur ívarsson, Gunnar Kristófersson,
Gunnar ö. Gunnarsson, Magnús
Magnússon. B-lið: Björn Sigurbjörns-
son, Rúnar Vilhjálmsson, Haukur
Ragnarsson og Hilmar Harðarson.
höfðu Norðmenn forustu með 136.5
stig. Finnar voru í öðru sæti með 128
stig, Sviar í þriðja sæti með 87 stig og
íslendingar ráku lestina með 61.5 stig.
Brynjólfur Bjarnason varð í öðru sæti í
200 metra flugsundi á 2:19.5, þriðji í
400 metra skriðsundi á 4:16.8. Ingi Þór
Jónsson varð þriðji í 200 metra flug-
'sundiá 2:19.6.
Blikarnir
sigruðu
/—
—1-0 íbæjarkeppni
Kópavogs og
Vestmannaeyja
Kópavogur sigraði Vestmannaeyjar í
bæjarkeppni i knattspyrnu í gær. Það
jvoru Blikarnir, fulltrúar Kópavogs,
Isem sigruðu 1—0 en Breiðablik féll
síðastliðið haust i 2. deild. Það var vor-
bragur á leiknum en Blikarnir virðast
nokkuð sprækir. Eina mark leiksins
skoraði Friðfinnur Finnbogason en í
vitlaust mark, sjálfsmark.
FÓV.