Dagblaðið - 17.05.1979, Side 2

Dagblaðið - 17.05.1979, Side 2
OPNUNARTÍMI VEITINGAHÚSA — hálf-tólf reglan mætti f júka R. R. hringdi: Mig langar til þess að leggja orð í belg varðandi breyttan opnunartíma veitingahúsa. Nú stendur jafnvel til að hafa veitingahúsin opin til kl. 3, og er ég ánægður með þá ráðstöfun. Ekki hefur þó enn fengizt úr því skorið hvort hálf-tólf reglan eigi að standa eða ekki. Mér finnst það að mörgu leyti fáránlegt að ætla að hætta að hleypa gestum inn kl. 11,30 þegar dansleikirnir standa til kl. 3. Ég hef grun um að fáir verði eftir inni kl. 3, þvi ég held að fáir nenni að hanga svona lengi á sama skemmtistaðnum. Núna, þegar aðeins er opið til kl. 2, er reynsla mín sú að þegar sé hópurinn allmikið farinn að þynnast fyrir þann tíma. Með lengingu opnunartímans finnst mér því nauðsynlegt að gera fólki kleift að skokka svolítið á milli staða en vera ekki rigbundið við sama staðinn í þrjá og hálfan klukkutíma. DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979. Væntanlega gefst gestum skemmtistaðanna bráðlega kostur á að dansa til kl. 3. Tlllitssemi i umferðinni er nauðsynleg. notið þá vinstri til framúraksturs Lesandi hringdi: Mikið skelfing fer það i taugarnar á mér þegar ökumenn nota bæði hægri og vinstri akreinar til þess að komast leiðar sinnar. Það hefur nú eitthvað verið skrifað um þetta áður í blöðin, en það er eins og fólk taki bara ekkert mark á því. í morgun var ég t.d. á leið minni í vinnuna og burfti að fara inn alla Miklubrautina. Ég er sannfærður um að ég hefði getað sparað mér nokkrar mínútur i þessari ferð ef ökumenn hefðu ekið á hægri akrein og aðeins notað þá vinstri til framúraksturs. Lumeniti BEZTI MOT LEIKURINIM GEGN HÆKKANDI BENSÍNVERÐI HABERG ht Raddir lesenda Hringið í síma 27022 milli kl. 13 og 15, eða skrifið Dóra Jónsdóttir umsjónarmaður Popphorns á föstudögum. Sumarf rí sjónvarpsins: Kemur illa við gamla fólkið Skartgripir við öll tœkifœri SIGMAR 6. MARÍUSSON Hverfisgötu 16A - Sfmi 21366. Sjónvarpsáhorfandi skrifar: Margir eru að vonum mjög undr- andi vegna nýlegra frétta af stórkost- legu fjársvelti útvarps og sjónvarps og ýmiss konar sparnaðaráformum þessara fyrirtækja. Þetta er vitaskuld mál sem þarf að leita lausnar á hið bráðasta þannig að ekki þurfi til þess að koma að skera verði niður efnið sem hefur hingað til verið sizt of mikið. Ein er sú hugmynd sem hefur skotið upp kollinum í sambandi við þessa umræðu. Hún er sú að sumar- frí sjónvarpsins verði lengt. Þessa tillögu lízt mér vægast sagt mjög illa á. Ég var þvert á móti farinn að gera mér vonir um að þessi ósiður sjón- varpsins legðist niður af því að þó að það séu fjölmargir sem telja sig geta verið án sjónvarpsins í nokkurn tíma þá má ekki gleyma hinu að sjónvarpsleysið kemur illa við marga aðra. Ég minnist þess sérstaklega, er ég vann á elliheimili hér í borg um hrið, hve gamla fólkinu leiddist oft á kvöldin í sjónvarpslausa mánuðinum og ráfaði eirðarlaust um gangana. Þannig er ástatt um margt fólk sem ekki hefur við mikið að vera, þó ungt og fullfrískt fólk telji sig geta verið án þessarar dægrastyttingar enda getur það bætt sér það upp með margs konar skemmtunum öðrum sem gamla fólkið og ýmsir aðrir hópar eiga ekki kost á. Því vil ég skora á yfirvöld að stefna að því að sumarfrí sjónvarpsins verði afnumið og sjónvarpað verði alla daga vik- unnar i stað þess að leiða hugann að lengra fríi. Sjónvarpsleysi kemur sér vafalaust illa fyrir þá sem bundnir eru heima við öll kvöld. hægri Anægður með föstudagspopp þatturinn vinsæll meðal tonlistarmanna Friðrik Karlsson hringdi: Á lesendasíðu Dagblaðsins 15. maí sá ég skrif um hve föstudagspoppið i útvarpinu væri lélegt. Ég er svolítið i tónlist sjálfur og er mjög ánægður með þennan þátt. Þetta jass-rokk er ný stefna hér og er að ryðja sér braut inn á hérlendan markað. Mér ftnnst því mjög sárt að sjá þessa tónlistar- stefnu rakkaða niður í upphafi. Ég veit að meðal minna kunningja, sem eru margir hverjir tónlistarmenn, er þessi þáttur mjög vinsæll og vil ég færa stjórnanda hans, Dóru Jóns- dóttur, þakklæti mitt og minna kunningja fyrir þáttinn. Akið akrein

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.