Dagblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979.
13
er við öllu búinn á bak við hann. DB-mynd emm.
RNÆR
ÍVÖLDI
karmeistara Akraness
gróður svo grasið á nokkuð langt í land enn-
þá.
Eftir velheppnaða Indónesíuferð Skaga-
manna álitu menn, að Keflvíkingar yrðu
þeim auðveld bráð, en það fór á annan veg.
Skagamenn kunnu afar illa við sig á mölinni,
en leikmenn ÍBK börðust eins og ljón allan
leikinn — leikmenn voru samstilltir og hefðu
þegar á allt er litið átt að bera sigur úr
býtum.
Annars var þetta fyrst og fremst leikur
hinna sterku varna. Marktækifæri voru fá
beggja vegna og reyndar teljandi á fingrum
annarar handar — 011 í síðari hálfleik.
Strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiksins
átti Ólafur Júlíusson hörkuskot að marki
Skagamanna, en fyrrum félagi hans, Bjami
Sigurðsson landsliðskandidat, varði með
glæsibrag. Ekki er ónýtt fyrir Skagamenn að
hafa fengið hann til liðs við sig. Þeir Ragnar
Margeirsson og Guðjón Guðjónsson, bezti
maður vallarins, áttu báðir marktækifæri en
í bæði skiptin varði Bjarni frá þeim.
Hættulegasta tækifæri leiksins fékk hins
vegar Skagamaðurinn Matthías Hallgrims-
son á 47.mínútu þegar hann geystist inn fyrir
vörn Keflvíkinga. Hann skaut hörkuföstu
skoti að marki, en Þorsteinn Ólafsson,
landsliðsmarkvörður, kom hendi á boltann
en hélt ekki. Knötturinn hrökk í stöngina og
þar kom Guðjón Þórhallsson, hinn stórefni-
legi miðvörður, að og bjargaði frá marki.
Annars var oft mikið um hlaup en lítil
kaup i leiknum. Þrátt fyrir góða tilburði bar
lítið á spili hjá báðum liðum, en þrekið
skorti ekki.
Kristján Olgeirsson var einna beztur hjá
Akurnesingum svo og Arni Sveinsson, sem
nú lék í fremstu víglínu og var vörn ÍBK
skeinuhættur oft á tíðum. Flestir leikmenn
skiluðu hlutverki sínu ágætlega, en það var
eins og bæði liðin vantaði samstillingu og
e.t.v. á mölin einhvern þátt þar í.
Rétt er að geta Sigurbjörns Gústafssonar,
en hann er orðinn einn traustasti varnarmað-
urÍBKogfer fram með hverjum leik.
Dómari var Óli Ólsen og skilaði hann hlut-
verki sínu af stakri prýði.
emm.
Nu getur Sten-
mark sigrað
Alþjóðaskíðasambandið hefur breytt regl-
unum í keppni heimsbikarsins á ný. Nú fá 15
efstu menn stig í hverri keppni og stigaút-
reikningurinn verður hagstæður svigmönn-
um. Ef þessi nýi útreikningur hefði verið
notaður á síðasta keppnistímabili væri Inge-
mar Stenmark, Svíþjóð, handhafi heims-
bikarsins.
Brenndu af víti
en unnu samt
— Barcelona varð Evrópumeistari bikarhafa eftir
æsispennandi leik við Fortuna Diisseldorf í gærkvöldi
Barcelona varð í gærkvöldi Evrópu- í síðari hálfleiknum dofnaði talsvert kölluðum þrumufleyg af um 30 metra
meistari bikarhafa er liðið lagði v-
þýzka liðið Fortuna Diisseldorf að velli
með 4—3 eftir framlengdan leik. Leik-
urinn fór fram á St. Jakobs leikvangin-
um í Bern í Sviss og þeir 58.500 áhorf-
endur sem lögðu leið sína á völlinn
fengu svo sannarlega nóg fyrir aurana
sína því ieikurinn var mjög fjörugur
allt frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu.
Geysilegur hraði var i fyrri hálfleikn-
um og greinilegt var að bæði lið lögðu
allt kapp á sóknarleikinn. Strax á 4.
mínútu náði Barcelona forystu. Carlos
Rexach og Sanchez brutust þá upp all-
an völlinn og samvinna þeirra endaði
með fallegu skoti frá Sanchez, sem
söng í netmöskvum Fortuna.
Þjóðverjar eru þekktir fyrir flest
annað en uppgjöf og ekki liðu nema 4
mín. þar til þeir höfðu jafnað metin.
Markvörður Barcelona hélt þá ekki
föstu skoti frá Rudi Bommer og bræð-
urnir Klaus og Thomas Allofs voru
skyndilega komnir einir innfyrir vörn
Barcelona. Thomas varð fyrir til að
senda boltann í netið og staðan var
orðin jöfn.
Enn liðu ekki nema 4 mín. þar til
Barcelona fékk gullið tækifæri til að
taka forystu á ný. Þá var Carrasco illa
brugðið í vítateig Fortuna og víta-
spyrna dæmd. Ekki tókst Rexach
vetur til en svo, að markvörður Fort-
una, Daniel, varði laust skot hans auð-
veldlega.
Á 34. mínútu skaut Carrasco þrumu-
skoti að marki Fortuna og að þessu
sinni hélt Daniel markvörður ekki
knettinum og Juan Asensi skoraði
auðveldlega. Eftir þetta mark færðist
mikið fjör i áhangendur Barcelona,
sem voru í miklum meirihluta á áhorf-
endapöllunum, en á 42. min. þögnuðu
allir þeirra lúðrar þegar Seel jafnaði á
nýjan leik fyrir Fortuna. Þannig var
staðan í hálfleik — 2—2.
í síðari hálfleiknum dofnaði talsvert
yfir leiknum og greinilegt var, að bæði
liðin kusu að taka sem minnsta áhættu.
Lítið var um marktækifæri og það
merkilegasta, sem gerðist allan síðari
hálfleikinn var, að Zimmermann, einn
bezti maður Fortuna, varð að yfirgefa
völlinn á 84. mínútu vegna meiðsla.
Fyrri hluti framlengingarinnar var
svipaður síðari hálfleiknum, að því
leytinu til, að hvorugt liðið virtist vilja
taka áhættu. Barcelona varð þó fyrra
til að reyna eitthvað og það gaf af sér
mark. Á 103,minútu (13. mín framleng-
ingarinnar) skoraði Rexach með sann-
færi án þess að Daniel markvörður
Fortuna kæmi nokkrum vörnum við.
Rétt á eftir var flautað til leikhlés i
framlengingunni. Leikmenn beggja
liða voru orðnir örþreyttir, en enn voru
15 mín. eftir ogallt gat gerzt.
Á 113. mínútu kom síðan reiðar-
slagið fyrir Fortuna. Hans Krankl, sem
kunni vel að meta frelsið eftir að
Zimmermann yfirgaf völlinn, hljóp
skemmtilega inn í eyðu og renndi knett-
inum fram hjá Daniel, sem kom út a
móti á fullri ferð. Sendingunaá Krankl
átti Carrasco, sem lék í stað Juan Carl-
Rexach brenndi af víti, en bætti það
upp með marki síðar í leiknum.
os Heredia, sem var meiddur.
Leikmenn Fortuna voru þó enn ekki
dauðir úr öllum æðum og á 125. mín-
útu bætti Seel sínu öðru marki og
þriðja marki Fortuna við með skoti í
þaknetið af stuttu færi eftir þvögu í
markteignum. Við markið færðist
aftur lif í leikmenn Fortuna, en loka-
mínútur leiksins börðust örþreyttir
leikmenn beggja liða við að leika knatt-
spvrnu með takmörkuðum árangri.
TVEIR NYLIÐARI
LANDSUÐSHÓPNUM
„íslenzka landsliðið i knattspyrnu
leikur sinn fyrsta landsleik í ár á þriðju-
dag i Sviss. Sá leikur er liður í Evrópu-
keppni landsliða og það er fyrsta sinn,
sem ísland og Sviss leika landsleik,
þegar frá er talinn einn unglingalands-
leikur,” sagði Helgi Daníelsson, for-
maður landsliðsnefndar KSÍ á blaða-
mannafundi í gær.
Síðan tilkynnti hann skipan lands-
liðshópsins og hann er mjög svipaður
og skýrt var frá í DB í gær. Þessir menn
eru i hópnum.
Þorsteinn Ólafsson, ÍBK, 10 lands-
leikir.
Bjarni Sigurðsson, ÍA, 4 unglinga-
landsleikir,
Árni Sveinsson, ÍA, 19 landsleikir.
Jóhannes Eðvaldsson, Celtic,fyrirliði,
26 landsleikir og þar af 21 sinni fyrir-
liði.
Marteinn Geirsson, Fram, 39 lands-
leikir.
Janus Guðlaugsson, FH, 11 lands-
leikir.
Guðmundur Þorbjörnsson, Val, 12
landsleikir.
Atli Eðvaldsson, Val, 11 landsleikir.
Ásgeir Sigurvinsson, Standard Liege,
21 landsleikur.
Pétur Pétursson, Feyenoord, 5 lands-
leikir.
Arnór Guðjohnsen, Lokeren, 4
unglingalandsleikir, 8 drengjalands-
leikir.
Jón Pétursson Jönköping, 23 lands-
leikir.
Karl Þórðarson, La Louviere, 6 lands-
leikir.
Ottó Guðmunsson, KR, 7 unglinga-
landsleikir.
Sævar Jónsson, Val, nýliði.
Jón Oddsson, KR, nýliði.
Á blaðamannafundinum kom fram
gagnrýni frá flestum fréttamanna að
Pétur Ormslev, Fram, og Ingi Björn
Albertsson, Val, skyldu ekki vera í
landsliðshópnum. Landsliðsþjálfarinn
Youri llitchev svaraði þvi til, að þessir
leikmenn væru mjög undir smásjá
landsliðsnefndar en þó ekki verið valdir
að þessu sinni. Einnig var minnst á Teit
Þórðarson, Öster, í því sambandi.
Landsliðsmennirnir halda til Sviss á
laugardag með stuttu stanzi i Kaup-
mannahöfn. Þar bætist Jón Pétursson i
hópinn. Ásgeir, Karl og Arnór koma
frá Belgíu á sunnudagskvöld, svo og
Pétur Pétursson frá Hollandi en fyrir-
liðinn Jóhannes Eðvaldsson kemur til
Bcrn á þriðjudag — leikdaginn. Komið
verður heim aftur á miðvikudag.