Dagblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1979.
DB á ne ytendamarkaði
I flugi frá Kaupmannahöf n:
Appelsfnan á 128 kr.
og vínberið á 22 kr. stk
i
Þeim sem daglega eru vanir að
hafa ferska ávexti á borðum sínum
bregður sennilega i brún þegar þeir
þurfa að kaupa inn þessa dagana.
Vegna farmannaverkfallsins eru
ávextir ekki væntanlegir til Iandsins
eftir eðlilegum leiðum í bráð, heldur
eru þeir fluttir hingað'í flugi. Flug-
frakt er há og hækkar verðið á ávöxt-
unum svo um munar — því flutnings-
kostnaðurinn er reiknaður inn í verð
vörunnar og ofan á það leggst álagn-
ingin. Nýlega hefur smásöluálagning
á ferskum ávöxtum verið hækkuð í
40%, en heildsöluálagning er hins
vegar óbreytt, 9%.
Við skoðuðum ávaxtaverðið í
Blómavali í fyrradag. Þá kostuðu
appelsínur 743 kr. kg (áður 443 kr.),
sitrónur kostuðu 1040 kr. (áður 770
kr.), vínberin kostuðu 3532 kr. kg
(áður 2473 kr.) og kg af grape
kostaði 785 kr. (áður490 kr.).
Þannig kostar ein meðalappelsina
127,50 kr., en ein sítróna hvorki
meira né minna en 139 kr. — Við
létum vigta fyrir okkur 8 stk. af
vínberjum sem reyndust kosta I 77 kr.
eða 22,12 kr. hvert stykki!
Þetta háa ávaxtaverð stafar af far-
mannaverkfallinu. Neytendur verða
að borga brúsann, eins og alltaf, en i
þessu tilfelli græða bæði þeir sem
flytja flugfrakt til landsins og þeir
sem selja ávextina — þvi hærra sem
verðið er þeim mun hærri er sá hlulur
sem kemur í þeirra vasa.
Enn er þó hægt að fá ávexti á skap-
legu verði, sjá viðtöl annars staðar á
síðunni.
- A.Bj.
<c
Appelsínurnar sem fluttar eru til
landsins flugleiðis kosta 743 kr. kg,
eða 128 kr. stykkið.
„Teljum hreina vitleysu að
hækka ávaxtaverðið um 100%”
,,Okkur kemur ekki til hugar að
flytja ferska ávexti inn með flugi.
Þannig yrði að selja appelsínukass-
ann á um eða yfir 10 þúsund krónur!
Flugfraktin er svo rosalega mikil.
Með Iscargo kostar ks. 1,93 gyllini
frá Rotterdam, eða 310,40 k r.!
Þannig yrði flutningskostnaður á 20
kg appelsínukassa 6.208 kr.,” sagði
Magnús Erlendsson hjá Björgvin
Schram ávaxtainnflytjanda í samtali
við Neytendasíðuna.
,, Við áttum hins vegar rauð epli frá
Kanada og græn frá Frakklandi í
skipi og fékkst leyfi til þess að skipa
farminum upp. Við áttum einnig
nokkurt magn af appelsínum. Það
verður lokið við að aka út eplum á
489 kr. og 550 kr. út úr búð og appel-
sínum á 439 kr. kg nú fyrir helgina,
til viðskiptavina okkar.
Við ætlum okkur ekki að hækka
ávaxtaverðið um 100%, teljum það
hreina vitleysu,” sagði Magnús.
— Þið hafði ekki fengið leyfi til
þess að flytja grænmeti inn á sama
hátt og ferska ávexti?
„Nei, það er ríkiseinkasala á græn-
metinu. Viðskiptaaðilar okkar er-
lendis geta aldrei skilið hvers vegna
við fáum ekki leyfi til að flytja
grænmetið inn. Okkur hafa oft bor-
izt tilboð sem eru mun hagstæðari
heldur en Grænmetisverzlunin fær,
en við megum ekkert aðhafast,”
sagði Magnús.
Benda má á, að með því að flytja
ávextina inn með flugi fá smásalarnir
nærri helmingi meira í sinn hlut.
Smásöluálagning á ferska ávexti er
núna 40%, en álagningin leggst á vör-
una þegar búið er að reikna með
flutningskostnaðinum. Heildsölu-
álagning á ferskum ávöxtum er
óbreylt frá því sem áður var eða 9%,
en hún leggst einnig á flutningsgjald-
ið.
„Ekki gaman að
flytja inn ávexti
á þessu verði”
,,Það er ekki gaman að vera að
flytja inn ávexti á þessu verði, en við
töldum okkur tilneydda að grípa til
þessa úrræðis. Við vissum ekki bctur
en að ekki fengist að losa ávexti úr
skipunum,” sagði Aðalsteinn Egg-
ertsson hjá Eggert Kristjánssyni, sem
er annar stærsti innflutningsaðili
ferskra ávaxta til landsins.
„En þetta er ákaflega litið magn
sem við höfum flutt inn í fluginu,
appelsínur, sítrónur, grape, vinber og
smávegis af bönunum. Ávextirnir
koma frá Danmörku með Flugleiðum
og við greiðum 242 kr. fyrir hvert kg.
Við höfum orðið varir við að fólk
kaupir þessa ávexti og er okkur þakk-
látt fyrir að hafa þá á boðstólum,”
sagði Aðalsteinn.
-A.Bj.