Dagblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 17.05.1979, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 17. MAÍ1979. 9 veiðum ~| Ekkert rauðsokkahjal íhöfuð- I ■ ■■ x ■■■■ | IÆ I — karlinn ræður ollu! Æsilegur og spennandi eltingaleikur ,varð í Reykjavík um hádegisbilið í gær er apafjölskyldan úr Blómavali stakk af. Var verið að gefa öpunum og hreinsa til hjá þeim. Sáu þeir sér þá leik á borði og skutust út og náðust ekki fyrreneftirtvo tíma. „Þetta eru hinar mestu skynsemis- skepnur,” sagði Bjarni Finnsson i Blómavali í samtaii við DB. „Karlinn sá að það var opið og skipti engum tog- um — hann þaut út og kerlingarnar hans báðar áeftir. Við urðum að fátvo menn frá Sædýrasafninu til þe?s að Það er munur að hafa ráð undir rifi hverju og fingur á hverjum fæti. Ekki er gott að sjá hvað er upp og hvað er niður a þessu mannfólki! DB-myndir Hörður Vilhjálmsson. hjálpa okkur að ná þeim inn. — Á tímpbili voru 10—12 manns á eftir apa- greyjunum. Önnur kerlingin var komin langleiðina upp á Kringlumýrarbraut þegar hún náðist.” — Er heimilislífið ekki ófriðsamt fyrst kerlingarnar eru tvær og karlinn aðeins einn? „Aldeilis ekki. Þetta eru fjölkvænis- verur og allt er í mestu sátt og sam- lyndi. Karlinn er mjög harður af sér og ræður öllu. Hann étur fyrst og gefur kerlingunum síðan merki um að þær geti komizt að þegar hann er búinn. Fyrr fá þær ekki að snerta matinn!” Aparnir voru auðvitað öskureiðir og reyndu að verjast á méðan var verið að elta þá og góma, en urðu hinir spök- ustu þegar þeir voru aftur komnir á sinn stað og virtist ekki hafa orðið meint af ævintýrinu. Þeir eru ættaðir úr Hveragerði úr apauppeldi Páls Michaelsen. „Þeir gera mikla lukku greyin,” sagði Bjarni. „Einn maður kom til min á sunnudaginn og þakkaði mér með handabandi fyrir að hafa þá, sagði að það sparaði sér stórfé í bensínkostnaði að þurfa ekki að keyra með fjölskyld- una til Hveragerðis til að skoða Bændahöllin tvöföMuð — skortur á hótelrými fyrirsjáanlegur, segir hótelstjóri Sögu „Fyrir liggur samþykki eignar- aðila, Stéttarsambands bænda og Búnaðarfélags íslands, fyrir stækk- uninni, lóð er tryggð, teikningar sam- þykktar og nú er í vinnslu áætlana- gerð fyrir fjárveitingavaldið,” sagði Konráð Guðmundsson, hótelstjóri á Sögu í Bændahöllinni, í viðtali við DB í gær. Óljóst er enn hvenær ráðizt verður í þessar framkvæmdir, en viðbygg- ingin fullbyggð mun þýða tvöföldun húsrýmis Bændahallarinnar. í fyrstu verður lögð áherzla á að auka gisti- rýmið. „Miðað við þróun undanfarinna ára í nýtingu hótela hér og þá stað- reynd að allgóð nýting er nú orðin 5 mánuði ársins í stað þriggja áður, er Ijóst að eftir svo sem eitt til tvö ár verður einhver að fara af stað til að mæta þörfinni,” sagði Konráð. - GS l.íkan af B „-ndahöllinni fullbjggðri. ráðstefnusalur. Álman til hægri út úr húsinu verður Innflytjendur - Útflytjendur Hafið þið íhugað kosti góðrar flutningaþjónustu, þar sem hagnaður felst í öruggri upplýsingaþjónustu, og kunnugleika á lægstum kostnaði við flutninga. Fulltrúi vor verður í Reykjavík í næstu 2 vikur, > og ef þér óskið upp- lýsinga um starfsemi okkar á flutningaleiðinni Hamborg / Rotterdam / Antwerpen / Reykjavík sem aðalhafnir Evrópuviðskipta, þá vinsam- legast hafið samband við auglýsingaþjónustu blaðsins sem fyrst. ÚTlLÍF GLÆSIBÆ - SÍMI 30350 BORÐGRILL GASGRILL Það varð uppi fótur og fit i Blómavali um hádegisbilið í gær þegar apafjölskyldan slapp úr búri sínu. FERÐAGRILL MARGAR GERÐIR - GRILLMÓTORAR GRILLÁHÖLD - GRILLKOL - Upplýsingar í auglýsinga þjónustu DB. - H-480 Scantrans GmbH Scantrans GmbH ■ Internationale Spedition Postfach 1056 22 • MelBberghof VIII. 2000 Hamburg 1 Telefon 040/33 65 61 • Telex 211620 scant d

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.