Dagblaðið - 13.07.1979, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 1979.
21
—til að koma í veg fyrir unglingavandamálið
—enborganráð virðistkæfamáliðíkerfinu
Síðastliðið haust tóku nokkrir
unglingar á aldrinum 14—18 ára sig
saman og ákváðu að gera eitthvað til
að koma í veg fyrir áframhaldandi
unglingavandamál á Hallærisplan-
inu. Ætlunin var að fá Tónabæ og
stofna þar unglingaklúbb, þar sem
unglingar kæmu saman einu sinni í
viku.
Til að byrja með fóru þau niður á
Hallærisplan með nokkurs konar
skoðanakönnun, röbbuðu við ungl-
inga á staðnum og spurðust fyrir um
hvort áhugi væri fyrir hendi ef því-
líkur klúbbur yrði stofnaður.
70% þeirra unglinga sem spurðir
voru voru mjög jákvæðir og vildu
flest allir að um diskóklúbb væri að
ræða, og að hann yrði einu sinni i
viku.
Þar sem svo margir höfðu áhuga á
þessu létu framkvæmdaaðilarnir
ekki sitja við orðin tóm, heldur
hringdu til Hinriks Bjarnasonar þá-
verandi framkvæmdastjóra Æsku-
lýðsráðs, sem sagði þeim aftur að
senda bréf til Æskulýðsráðs og yrði
málið tekið fyrir á fundi.
Beðið var um að dansleikur yrði
haldinn 1. desember í Tónabæ fyrir
unglinga. Svarið var játandi og dans-
leikurinn var haldinn. 500 manns
sóttu Tónabæ í þetta skiptið og fór
dansleikurinn í alla staði mjög vel
fram og voru bæði lögregla og full-
trúi frá útideild sammála um það.
Báðu um aðstöðu
fyrir klúbbinn
íTónabæ
Framkvæmdaaðilarnir, ungling-
arnir sem stóðu að ballinu, ræddu við
unglinga og völdu jafnframt 6
krakka í undirbúningsnefnd fyrir
diskóklúbbinn.
Annar dansleikur var siðan hald-
inn 3. febrúar og fór hann á sama veg
og hinn, allt hafði tekizt með afbrigð-
um vel.
Undirbúningsnefndin var nú skip-
uð af 14 unglingum og lögðu þau inn
beiðni til Æskulýðsráðs 4. marz um
að fá aðstöðu fyrir klúbbinn í Tóna-
bæ einu sinni i viku og var gerð ná-
kvæm lýsing á hvernig klúbburinn
skyldi starfræktur. 6. marz sendi
Æskulýðsráð bréf tíl undirbúnings-
nefndarinnar þar sem segir að Æsku-
lýðsráð geti eigi verið við þeirri
beiðni að lána Tónabæ einu sinni i
viku frá marzbyrjun til ágústloka.
Undirbúningsnefndin gafst ekki
upp heldur sendi aftur bréf, en sama
svarið fékkst aftur. Þá var það næsta
að ræða við Hinrik Bjarnason sem
sagði að borgarráð hefði alveg með
Tónabæ að gera og að Æskulýðsráð
ætli sér ekki að leigja út staðinn fyrr
en endanlega hefði verið ákveðið með
framtíð staðarins.
Tónabæjarnefnd hafði skilað af
sér áætlunum varðandi Tónabæ, þar
sem þrjú atriði komu til greina. í
fyrsta lagi að halda áfrani unglinga-
böllum i Tónabæ, að breyta Tónabæ
í félagsmiðstöð fyrir hverfið og i
þriðja lagi að svl .t húsið og kaupa
annað hentugra.
Skrifuðu borgar-
ráði 4. apríl
Undirbúningsnefndin skrifaði þá
borgarráði bréf 4. apríl sl. þar sem
beðið var um að flýtt yrði ákvörðun
um framtíð Tónabæjar.
Fyrir nokkrum dögum hringdi
síðan einn af undirbúningsnefndar-
mönnum til ritara borgarstjóra en
fékk þá það svar að þetta bréf væri
ekki enn komið fyrir fund. Nú er
undirbúningsmönnum farin að
leiðast biðin, enda níu mánuðir siðan
ákveðið var að stofna klúbbinn, sem
að öllu leyti yrði starfræktur af ungl-
ingum í sjálfboðavinnu.
Einnig hefur undirbúningsnefndin
heyrt að Æskulýðsráð hafi sent
borgarráði bréf þess efnis að fjárhæð
vanti til að hægt sé að standsetja
Tónabæ og eins fyrirspurn um
hvernig rekstri staðarins skuli háttað.
Hvort Æskulýðsráð ætti alfarið að
sjá um dansleiki tvö kvöld í viku eða
hvort leigja ætti húsið út. En ekkert
virðist duga á borgarráð, málið
virðist ekki vekja áhuga þeirra, svo
nú er bara eftir að vita, hvort
ákvörðunin verður tekin fyrir vetur-
inn.
- ELA
LABRADORIÞYKKVABÆ
Helgi Valdimarsson byggingameistari og Valur Valdimarsson múrarameistari og
framkvxmdastjóri Varða við grunn 12 ibúða blokkarinnar við Ásgarðsveg á Húsavik.
Að ári liðnu eiga þarna að verða tilbúnar til notkunar 12 íbúðir i þriggja hæða blokk..
Skammt frá er kominn grunnur átta ibúða blokkar, sem verður tilbúin eftir tvö ár.
DB-mynd Hörður
Húsavík:
Tvær blokkir með
20 íbúðum
fyrir 310 milljónir
Önnur verður tibúin að ári, hin eftir tvö ár
Á næstu tveimur árum munu rísa og
verða tílbúnar til notkunar tvær
íbúðarblokkir svo tíl í miðjum Húsa-
víkurbæ. Önnur blokkin verður 12
íbúða blokk en hin með átta íbúðum.
Það er byggingameistari í Garðabæ
sem átti það tilboð sem tekið var og
fyrir stuttu hittu DB-menn hann á
byggingarstaðnum.
,,Ég bauð í verkið tæplega 310 millj-
ónir króna og þessu tilboði var tekið.
íbúðirnar í blokkunum verða 2ja, 3ja
og 4ra herbergja og ætlaðar ýmist til
leigu eða sölu en Húsavíkurbær reisir,
samkvæmt sérstakri byggingaráætlun
um slíkar íbúðir víðsvegar um landið,”
sagði Helgi Valdimarsson bygginga-
meistari.
Stærra húsið, 12 íbúða blokkin, á að
vera tilbúin að ári en hin minni að
tveimur árum liðnum. Farmannaverk-
fallið tafði framkvæmdir í byrjun því
sementslaust og timburlítið var a Húsa-
vik, en nú hefur úr því rætzt.
„Allir starfsmenn við byggingar hús-
anna eru frá Húsavík. Ég er cina að-
skotadýrið,” sagði Helgi.
Múrarameistari blokkanna er Valur
Valdimarsson, Björn Guðmundsson
frá Hólabrekku i Reykjadal sá um jarð-
vinnu, Grímur Leifsson sér um raf-
lagnir og Sigurður Jónsson um pípu-
lagnir.
Valur múrarameistari er fram-
kvæmdastjóri byggingafélagsins
Varða, en það félag rekur steypustöð á
Húsavík og hefur byggt ódýrustu
íbúðir á landinu ásamt þeim á Akureyri
og hjá Einhamri í Reykjavík. Valur
sagði við grunn nýju blokkanna
tveggja á Húsavík, að þó þeir hjá
Varða hafi byggt 60 íbúðir á Húsavík,
m.a. fyrstu blokkirnar þar þrjár, hafi
þeir ekki boðið í smíði þessara blokka.
Vildi hann sem fæst orð hafa um
ástæðuna.
„Það eru vissulega margir óvissu-
þættir í verðlagi núna,” sagði Helgi,
,,en samningar um blokkasmiðina eru
verðtryggðir. ,,En ég held að við meist-
ararnir sleppum alltaf frá þessu, þó
litið sé upp úr því að hafa á stundum.
Getur þar margt spilað inn í, t.d. rugl-
aði farmannaverkfallið planinu svolitið
núna.”
■Helgi kvað ánægjulegt að last við
verkefni úti á landi. Áður hcfur hann
m.a. byggt póst- og simstöð á Norð-
firði. „Það var samningur upp á
ákveðið verð, en það er gott að vinna
fyrir Póst og sinia.”
- ASt.
Motocross á sunnudag
Vélhjólaíþróttaklúbburinn gengst
fyrir motocrosskeppni á vélhjólum á
sunnudaginn, 15. júlí, kl. 14 að Sand-
féili við Þrengslaveg, sem er keppnis-
svæði klúbbsins.
Mikill undirbúningur hefur verið i
sambandi við þessa keppni og hefur
keppnisforminu verið breytt nokkuð
frá síðustu keppni til að auka á spennu
og ánægju áhorfettda. Keppt verður á
stórum vélhjólum og skellinöðrum.
-ÓV
Þegar erfiðleikar lífsins sækja að og
kallar frá Dagblaðinu koma og taka af
manni myndir, er gott að leita til
mömmu. Jafnvel þó maður sé orðinn
næsta fullorðinn og sjálfstæður. Gott
er einnig að eiga að systkini ef mamma
má ekki vera að því að sinna manni.
Þessa fallegu hunda hittu DB-menn i
Þykkvabænum á dögunum. Móðirin er
labradorhundur að hálfu leyti en faðir
hvolpanna er hreinræktaður labrador.
Svo kynið er gott, spyrji einhver unt
það. Hvolparnir voru upphaflega 7 í
systkinahópnum en fjórir hafa þegar
yfirgefið móður sína.
DB-mýnd Bjarnleifur.
Rallkappi i motocrosskeppni, sem fram fúr í síöasta mánuöi.
DB-mynd Hörður
J
c
Þjónusta
Þjónusta
Þjónusta
Garðaúðun
Tek að mér úðun trjágarða. Pant-
anir í sfma 20266 á daginn og
83708 á kvöldin
Hjörtur Hauksson
skrúðgarðyrkjumoistari
o
Garðaúðun
Sími 15928
<0
Brandur Gíslason garðyrkjumaður
BÓLSTRUNIN MIÐSTRÆTI 5
Viðgerðir og klæðningar. Falleg og vönduð áklæði.
Sími 21440,
heimasími 15507.