Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. Hattur og Fattur bálreiðir: Engar myndir af okkur í karamellusamkeppnina Herra ritstjóri! Við undirritaðir, Árni Biandon og Gisli Rúnar Jónsson, er léðum þeim Hatti og Fatti raddir okkar á sam- nefndri hljómplötm vildum gjarnan fá að vekja athygli á eftirfarandi í blaði yðar: Auglýsingaherferð sú, sem hafin er á vegum hljómplötuútgáfunnar Steina h/f, vegna hljómplötunnar um Hatt og Fatt og hefur með að gera „karamellusamkeppni” og annað i þeim dúr, er okkur algjörlega óviðkomandi. Okkar framlag til áðurnefndrar hljómplötu var, eins og áður segir, einungis að Ijá þeim Hatti og Fatti raddir okkar við ágeet lög og Ijóð Ólafs Hauks Símonarsonar og var gerður skriflegur samningur þar að lútandi. „Karamellusamkeppni þessi var sett á laggirnar án okkar vitundar og samþykkis, auk þess sem myndbirting með auglýsingunni er brot á samningi útgáfufyrirtækisins við okkur. Auk þess lýsum við okkur and- víga hvers konar auglýsingaskrumi af þessu tagi! Með vinsemd, Árni Blandon, Gisli Rúnar Jónsson. „Ég er gull og gersemi” — orðsending til Ólafs Jóhannessonar fyrrverandi forsætisráðherra Jóhann Þórólfsson skrifar: Það er athyglisvert að fyrrverandi forsætisráðherra er orðinn svo montinn, að eftir þvi að hlusta á hann í sjónvarpi og viðtölum gæti maður haldið að hann væri sá eini á þessu landi sem gæti stjórnað þvi. Hvernig honum dettur í hug að gefa þetta i skyn við kjósendur er óskiljanlegt, ekki sizt þegar haft er i huga að flokkur hans var annar stærsti flokkur landsins en varð undir hans stjórn minnsti flokkurinn. Svo ætlar þessi sami Ólafur að telja fólki trú um að hann sé eini ntaðurinn á þingi sem fallinn sé til forystu. Nei, Ólafur, þú skalt aldrei láta þér detta i hug, ekki sízt þegar hugsað er út i vinstri stjórnina sálugu sem þú varst faðirinn að, að nokkur hugsandi kjósandi treysti þér fyrir þjóðar- skútunni. Þú ættir heldur að ráða þig sem fjósamann hjá einhverjum bó.nd- anum, sem þú berð svo mikið fyrir brjósti. Svo mikið er vist að Fram- sóknarflokkurinn fær aldrei mitt at- kvæði. Eini maðurinn i flokknum sem ég hef borið virðingu fyrir er Eysteinn Jónsson. Hann er þjóðhollur ráðherrastóla, sem aldrei vita hvort þeir eiga að stíga í vinstri fótinn á morgun eða þann hægri. Ég held að Ólafur haldi að hann sé sendiboði guðs, að minnsta kosti er ekki hægt að draga aðrar ályklanir þegar maður hlustar á hans málflutning bæði í sjónvarpi og út- varpi, þar gefur hann í skyn að enginn á þcssu landi geli stjórnað þessum hólnta iti ma hann, meira að segja gengur liann nteð þá dillu að hann gæti orðið forseli landsins. Já, miklir menn eruni við,Hiólfur minn, maðurinn hlýtur að vera l'arinn að kalka. Ég held að bezl væri að kveðja fyrrverandi forsætisráðherra rneð eftirfarandi Ijóðlinum Sölva Helga- sonar: Ég ergull oggersemi, gimsteinn elskurikur. Ég er djásn og dýrmæti, drottni sjálfum líkur. <€ „Ég held að Ólafur haldi að hann sé sendiboði Guðs,” segir bréfritari. Islendingur og sýndi hann það ekki honum til handa með þökk fyrir góða hvað sizt þegar hann var ráðherra. viðkynningu. Held ég að ég endi þessi orð með því Að síðustu: Ekki Framsókn i að senda honum kæra kveðju með rikisstjórn eftir kosningar, alls ekki, ósk um góða heilsu og langa lífdaga allt er betra en að láta menn komast í Borðar þú rjúpu á jólunum? Einar Þðr Garðarsson: Nei, það verður hamborgarhryggur og svínakótelettur hjá okkur. Spurning dagsins Sigurður Ragnar Magnússon: Stundum geri ég það. Þórdís Andrésdóttir: Ef ég fæ rjúpu á annað borð, já. Ég vonast til þess að maðurinn minn komist á rjúpnaveiðar fyrir jólin. Hann sér um þetta. Ég kaupi ekki rjúpur í búðum. Við bjóðum upp á eitt glæsilegasta úrval hérlendis af fatnaði fyrir karlmenn. Verslið í rúmgóðri og snyrtilegri herrafataverslun okkar að Laugavegi 103 v/Hlemm. LAUGAVEGI 103 REYKJAVÍK Soffía Jacobsen: Nei, á aðfangadags- kvöld hef ég hamborgarhrygg. Nikulás Einarsson: Já, það stendur til að hafa rjúpu um þessi jól. Vinur okkar gefur okkur rjúpurnar. Jón Haukur Olafsson: Nei, ég er aiveg á móti- rjúpnadrápi. Ég borða hangikjöt á aðfangadagskvöld.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.