Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 19.12.1979, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979. Skóbúðin ng Snorrabraut JO SÍM114190 LIPURTÁ Keflavík Herraskóbúðin ÁRMÚLA 7 - SÍMI 81646 HÁ LEÐUR- STÍGVÉL Litur: Svart Nr. 37—41 Verð kr. 29.900.- r 'Clarks GEFIÐ NYTSAMA • r f •«/» inlnoint \ Hanzkaskinnskórnir 1 fást núna í 6 litum SKÓSEL LAUGAVEGI60 SÍMI 21270 PÓSTSEIMDUM ✓ Hefur þú heyrt um LEIRBAKSTRANA frá Chattanooga „Steam pack”? r 4 :k V... , V' r* "\ r ^ k Þú sýður þá í 15 mín. við lágt hitastig, þá halda þeir sama hitastigi i 30 min. Einstaklega góðir fyrir fóik sem þjáist af vöðvabólgu eða gigt. Við bjóðum bakstra af ýmsum stærðum svo sem: Bakbakstra í tveimur stœrðum. Hálsbakstra og herða. Axlabakstra. Hné og handleggsbakstra. Einnig eru fáanlegir isbakstrar af sömu tegund. V erið velkomin i verzlun vora. IfemediaM. Borgartúni 29. — Reykjavik — Simi 27511. Stjómmálaflokkamir sátu fyrir svörum hjá iðnrekendum: ÞRÍRAFFJÓR- UM VIUA VIRD- ISAUKASKATT Þrír af stjórnmálaflokkunum fjór- um eru fylgjandi virðisaukaskatti. Alþýðubandalagið hefureitt alvarlegar efasemdir um ágæti bess skatts. Þetta kom fram í svörum stjórnmála- flokkanna við fyrirspurnum iðnrekenda á fundum, sem voru haldnir laust fyrir kosningarnar. Allir flokkarnir nema Alþýðubanda- lagið segjast vilja fella niður nýbygg- ingagjaldið. Allir fjórir segjast vilja fella niður aðflutningsgjöld af aðföngum til iðnaðar. Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn kveðast vilja, að hlutafé njóti sömu skattmeðferðar og sparifé almennt. Alþýðubandalagið svarar því neitandi, og Framsókn tekur ekki af- stöðu. Þegar spurt er, hvort flokkarnir vilji gefa verðlagningu iðnaðarvara frjálsa, svara Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn jákvætt. Alþýðubandalagið segist hafa skilning á, að gera þurfi veigamiklar breytingar á verðlags- kerfinu að því er iðnað varðar. Alþýðuflokkurinn svarar þessu jákvætt en setur fyrirvara vegna aðgerða í baráttu við verðbólgu. Sérstaða Alþýðu- bandalagsins Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn vilja ekki, að iðnverkafólk fái sömu skattfriðindi og sjómenn. Framsókn kvaðst vilja það. Alþýðubandalagið tekur ekki afstöðu. Enginn flokkur svarar játandi spurning um, hvort hann sé fylgjandi niðurfellingu launaskatts. Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðubandalagið segj- ast andvígt niðurfellingu aðstöðu- gjalds. Framsókn og Alþýðuflokkurinn taka ekki greinilega afstöðu til málsins. Allir nema Alþýðubandalagið taka undir þá kröfu iðrirekenda, að Verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins verði alfarið notaður til að jafna sveifiur en ekki til að fresta tímabundið nauðsynlegum gengisbreytingum. Alþýðubandalagið kveðst ekki telja þennan sjóð hagstjórnartæki. Alþýðubandalagið er einnig eini flokkurinn, sem hafnar þeirri kröfu, að öllum atvinnuvegum verði tryggður sami aðgangur að fjármagni á sam- bærilegum kjörum. Ennfremur er það Alþýðubanda- lagið eitt, sem vísar á bug kröfu Félags islenzkra iðnrekenda um, að öllum at- vinnugreinum og félagsformum verði tryggðsömu starfsskilyrði. Loks eru flokkarnir á einu máli um, að leggja beri áherzlu á að auka fram- leiðni í atvinnuvegunum. -HH. Dagbiað án ríkisstvrks lifi i Samvinnutrygg ingar sigruðu Samvinnutryggingar gt sigruðu örugglega i firmakeppni Taflfélags Reykjavikur sem lauk um helgina. Keppandi Samvinnutrygginga var hinn ungi og efnilegi Jóhann Hjartar- son og hlaut hann 13,5 vinninga af 16 mögulegum í úrslitunum. Alls tóku 228 fyrirtæki og stofnanir þátt í keppninni. Keppnis- fyrirkomulag var þannig, að fyrst var keppt í undanrásum, en síðan komust 44 fyrirtæki í úrslit. Dregið var um, fyrir hvaða fyrirtæki hver skákmaður keppti. Röð efstu fyrirtækja í úr- slitunum varð þessi og eru nöfn keppenda innan sviga: 1. Samvinnutryggingar gt (Jóhann Hjartarson) 13,5 v. 2. Ritfangaverzlun V.B.K. (Margeir Pétursson) 11,5 v. 3. Hljóðfæraverzlun Pálmars (Jóhannes G. Jónsson) 11,5 v. 4. Model-Magasín (Jón Þorsteinsson) 11 V. 5. Skákhúsið (Haukur Angantýsson) 1 1 V. — í firmakeppni Taflfélags Reykjavíkur 6. Mjólkurfélag Reykjavíkur (Ásgeir Þ. Árnason) 10,5 v. 7. Bílaklæðningarhf. (Björn Þorsteinsson) 10,5 v. . 8. Kjöríshf. (Benedikt Jónasson) 10,5 v. 9. Nesti hf. (Ágúst Karlsson) 10,5 v. 10. Matstofa Miðfells sf. (Ásgeir P. Ásbjörnsson) 10 v. Skákmótinu stjórnuðu Ólafur H. Ólafsson og Helgi Samúelsson. -GAJ. Það er ekki amalegt að fá jólasvein til þess að aðstoða við jólaklippinguna. Villi Þór rakari brá á það ráð og virðist þessum unga viðskiptavini líka vel við aðstoðarmanninn og ekki síður við vænt jólaeplið. DB-mynd Hörður.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.