Dagblaðið - 19.12.1979, Síða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1979.
DB á ne ytendamarkaði
Em verstu kartöflumar teknar úr
til þess að selja í verzlunum?
Miklu betri kartöflur á boðstólum í „höfuðvíginu” Grænmetisverzluninni heldur en almenningi
er boðið upp á
„Getur það hugsazt að verstu kart-
öflurnar séu tíndar úr og seldar í
verzlunum, en skástu kartöflurnar
séu síðan seldar í Grænmetisverzlun-
inni sjálfri?” spurði viðmælandi
Neytendasíðunnar á dögunum. —
Viðmælandi okkar sagðist hafa rætt
við nokkra aðila sem hefðu tækifæri
„Ég vil helzt ekki kaupa skepnufóður
og þess vegna kem ég hingað til þess
að kaupa kartöflur,” sagði Steinn
Guðmundsson knattspyrnudómari og
fyrrverandi knattspyrnumaður, en
hann var einn af þeim sem staddir voru
í kartöflukaupum i Grænmetinu á
mánudaginn.
DB-mynd Bjarnieifur.
til þess að kaupa mikið magn af kart-
öflum í einu í 25 kg pokum. Þeim
hefði öllum komið saman um að þær
kartöflur sem á boðstólum eru í
„höfuðvíginu”, Grænmetisverzlun-
inni í Síðumúlanum, væru langtum
betri og stærri en þær sem boðið
hefur verið upp á i verzlunum.
í útsölu Grænmetisins geta við-
skiptavinirnir sjálfir valið sér kart-
öflur í poka og notfæra menn sér það
í ríkum mæli. Þar eru á boðstólum
(mánud.) ágætar kartöflur, bæði
rauðar, gullauga og hollenzkar bintje
En nú er verið
að keyra fínar
erlendar
„jólakartöflur”
í búðir
kartöflur. Tilfellið er að þær eru
miklu stærri heldur en þær kartöflur
sem hafa verið á boðstólum undan-
farið í verzlunum. — Þær eru lika
allar í I. flokki. I verzlunum hefur
verið á boðstólum 2. flokkur, sem
eru litlar íslenzkar kartöflur, kannski
ekki beinlínis vondar á bragðið, en
fljótlega eftir að þær eru keyptar
kemur af þeim megnasta moldar-
bragð.
í Grænmetinu kostar kg af kartöfl-
um kr. 270 kr. ef keypt er í „lausu”.
En ef keyptur er 25 kg poki kostar
Það færist I vöxt að fólk komi i Grænmetið og kaupi bæði kartöflur og grænmeti. Sennilega eru lélegustu kartöflurnar ekki
valdar úr til að selja i verzlunum, en samt er það tilfellið að kartöflurnar sem eru á boðstólum í Grænmetinu sjálfu eru yflr-
leitt miklu betri en þær sem eru i verzlunum. Þær hafa ekki farið i gegnum pökkunarkerfi einkasölunnar. Er þar kannski
komin skýringin? DB-mynd Bjarnleifur.
hvert kg 240 kr., pokinn kostar 6000
kr. Sparnaður er nánast enginn en
aðalatriðið er að fá góðar kartöflur,
en þá verður líka að vera fyrir hendi
aðstaða til þess að geyma kartöflurn-
ar, köld, dimm og þurr geymsla.
A mánudaginn var byrjað að
dreifa fínum hollenzkum kartöflum í
verzlanir, þannig að borgarbúar geta
fengið ágætar kartöflur með jóla-
steikinni.
Á mánudaginn var til alveg stórfínt
hvítkál og rauðkál, laukur og gul-
rætur i Grænmetinu. Hvítkálið
kostaði 280 kr. kg, rauðkálið 300 kr.
kg, laukurinn 326 kr. kg og gulræt-
urnar, sem voru stórar og hreinar,
kostuðu 760 kr. kg. -A.Bj.
GYÐJAN 0G UXINN
1/2 dags starf
Nefnd, sem skipuð var til að úndirbúa alþjóðaár
fatlaðra 1981, óskar eftir að ráða starfsmann 1/2
daginn frá miðjum janúar næstkomandi. Um-
sækjendur þurfa að hafa góð tök á ensku og
norðurlandamálunum, kunna vélritun og geta
unnið sjálfstætt.
Þekking á málefnum fatlaðra æskileg.
Umsóknin sendist nefndinni merkt „ALFA ’81”,
Hátúni 12, Reykjavík, fyrir 5. janúar næstkom-
andi.
SJONVARPSBUDIN
Neytendasíðunni hefur borizt
skemmtilegt bréf frá lesanda sem
kallast Gapuxi. Tilefnið er uxakjöt í
Eldhúskróki síðunnar. Gapuxi segir:
— Nautakjöt fæst víða en hvar fæst
uxakjöt? ^Veit fólk í kjötbúðum
nokkuð hvað uxakjöt er eða hvað uxi
er? Dagblaðskokkapían veit það
vafalaust!
Svo mörg voru þau orð Gapuxa.
Dagblaðskokkapían, sem reyndar í
þetta sinn er tvöhundruðpunda karl-
peningur, hefur þetta um málið að
segja:
Orðið uxi hefur frá fornu fari
verið notað um vanaða nautgripi til
aðgreiningar frá törfum, sem hafðir
eru til undaneldis. Löggjafinn gerir
til að mynda greinarmun á þessu
tvennu í reglugerð nr. 442/1977 um
slátrun, mat og meðferð sláturaf-
urða. Þaðan er efni Eldhúskróksins
fengið. Við nautgripaslátrun er
enginn munur gerður á uxakjöti og
nautakjöti við flokkaskipun. Þess
vegna vita hvorki afgreiðslumenn í
verzlunum né neytendur hvaðan hver
einstakur kjötbiti er upphaflega
runninn. Hlutverk Eldhúskróksins er
meðal annars að benda neytendum á,
að þegar keypt er kjöt í N-flokknum,
má eiga von á bæði nautum, uxum og
algeldum kúm. Nánari skilgreining er
því miður ekki fyrir hendi af fram-
leiðandans hálfu utan skipting í þrjá
aldurs- og gæðaflokka.
Beztu jóla- og áramótakveðjur frá
Eldhúskróknunt.
Frá Sauðárkróki:
Gott salat með jólasteikinni
Húsmóðir á Sauðárkróki sendi okkar
eftirfarandi:
Um leið og ég sendi ykkur nóvem-
berseðilinn ætla ég að senda ykkur
uppskrift af jólasalatinu mínu. Það
er mjög gott með öllu kjöti, sér-
staklega með hamborgarhryggnum.
Þetta salat laga ég 22. eða 23.
desember því það er betra ef það er
búið að bíða í nokkra daga.
Uppskrift
dagsins
Og ég laga svo mikið, læt það í
lukt ílát og geymi í ísskápnum, að ég
á það yfir öll jólin. Stundum einnig
yfir áramótin, því eins og ég sagði, er
þetta mjöggott meðöllummat.
Ávaxtasalat með eggjum
1—2 egg.
I—2 msk sykur
1/2 sítróna
I 1/2 bolli rúsínur
1 1/2 bolli gráfíkjur
5—6 epli
rjómi
Egg og sykur er þeytt yfir gufu,
sítrónusafanum bætt út í á meðan
þeytt er. Þegar eggjahræran er orðin
létt og dálítið þykk er hún tekin af
hitanum og þeytt í við og við meðan
hún kólnar.
Rúsínur, gráfíkjur og epli skorið
smátt og látið i glerkrukku og eggja-
hrærunni hellt yfir. Látið bíða í
ísskápnum.
Áður en salatið er notað er
þeyttum rjóma blandað saman við.
Sennilega er bezt að blanda aðeins
rjómanum saman við það sem borið
er fram hverju sinni.
Hráefniskostnaður er nálægt 2000
kr., en þá er ekki reiknað með þeytta
rjómanum.
-A.Bj.