Dagblaðið - 08.01.1980, Side 8

Dagblaðið - 08.01.1980, Side 8
8 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1980. Þriðji ársfjórðungur 79 erai óafgreiddur: ÍSFIRMNGAR LANGEYGIR EFHR OLÍUSTYRKNUM — en hann kemur væntanlega um miðjan mánuðinn Ísfirðingar eru orðnir nokkuS óþolinmóðir að biða eftir greiðslu olíustyrks fyrir þriðja ársfjórðung sl. árs bélagsmálaráðuneytið greiddi bæjarfélaginu styrkinn i nóvember en hann hefur ekki enn borizt notendum í bænum. ísfirðingar hafa bent DB á það misræmi sem felst í því að bæjar- félagið skorar á gjaldendur að gera upp gjöld sín fyrir áramót en síðan líður og bíður og ekki bólar á styrknum. Bolli Kjartansson bæjarstjóri á ísafirði sagði í gær að drátturinn á greiðslu olíustyrksins stafaði af breytingum á íbúaskrá og það tefði afgreiðslu málsins ef unnið væri að fjarvarma- og hitaveitumálum. Síðasti mánuður ársins væri einnig alltaf erfiður vegna uppgjara. Bæjarstjóri sagði þó að olíustyrkurinn kæmi til greiðslu um miðjan janúar. Þá var hann inntur eftir greiðslu olíustyrks fyrir fjórða ársfjórðung og sagði hann að hann bærist frá félagsmálaráðuneyti í febrúar og það færi síðan eftir mannafla hjá bænum hvenær hægt væri að greiða styrkinn en reynt væri að flýta þvi eins og hægt væri. -JH. Mhúfu. myndir a minutunm í öll skírteini Minúfu, VD LŒKJARTORG myndir s/mi 12245 Happdrætti Sjálfsbjargar 24. desember 1979 Aðalvinningur: Bifreið FORD MUSTANG 79, nr. 24875. 10 sólarlandaferðir með Útsýn, hver á kr 300.000. 89 vinningar á kr. 20.000 hver (vöruúttekt). 194 15096 27827 477 16400 28144 481 18127 29039 1141 18446 29104 1275 18608 29185 1422 19211 29215 sólarferð 2077 19388 29343 2439 19552 29475 2462 20069 29543 3486 20208 sólarferö 30029 3525 20740 30424 4172 20936 31239 4549 21074 31862 4550 21197 33215 sólarferð 4693 21999 34353 5223 22000 35057 5292 22224 35418 5531 22274 37246 6457 22275 sólarferð 37429 7287 22792 sólarferð 38237 7354 22837 38462 sólarferö 7655 23298 38780 8944 23590 40469 9357 23747 40660 9500 24781 41869 10959 24785 sólarferð 41904 12001 24875 billinn 42135 12525 25068 42591 sólarferð 12836 26081 43534 13323 26210 44402 13988 27019 44695 sólarferö 14672 27191 44713 14752 27809 44988 14903 SJÁLFSBJÖRG, LANDSSAMBAND FATLAÐRA HÁTÚN112, REYKJAVÍK. SÍMI 29133. Tónlistarfólkið sem skemmtir i Cannes. Frá vinstri eru Eva Albertsdóttir, Magnús Kjartansson, Krístinn Svavarsson, Kma Þórarinsdóttir, Haraldur Sigurðsson, Pálmi Gunnarsson, Þórhallur Sigurðsson, Hrólfur Gunnarsson, Björgvin Halldórsson, Ragnhildur Gísladóttir og Erna Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Þórð Árnason. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson. ÚRVALSUÐ ÍSLENZKRA POPPARA TIL FRAKKLANDS Lagið Eina ósk, sem Björgvin Halldórsson gerði frægt á sólóplötu sinni, heitir nú One Wish. HLH-lagið Riddari götunnar kallast Streetrider og Nesti og nýja skó hefur verið skírt upp og nefnist á ensku Sandwiches and Beer. Þessi þrjú lög eru brot af fimmtíu mínútna prógrammi sem hópur íslenzkra tónlistarmanna flytur á einum þekktasta nætur- klúbbi Cannesborgar í Frakklandi nú síðar i mánuðinum. Hópur þessi, alls tólf manns, fer utan á tónlistaráðstefnuna í Midem sem er skammt frá Cannes. Til viðbótar þeim fara fjórir menn frá Hljómplötuútgáfunni hf. Menn frá útgáfunni sóttu þessa ráðstefnu i fyrra og er boðið til islenzku tónlist- armannanna bein afleiðing af þeirri ferð. Það eru liðsmenn Brunaliðsins og HLH-flokksins sem fara í ferð þessa. Til viðbótar verða með i ferðinni þeir Þórður Árnason gítarleikari og Kristinn Svavarsson saxófónleikari. Hópurinn æfir nú af kappi undir förina. Hann kemur alls þrisvar sinnum fram í klúbbnum Club Whisky A-Go-Go i borginni Cannes sem þekktust er fyrir árlega kvik- myndahátíð sína. Á prógramminu verða eingöngu íslenzk lög sem bæði verða sungin á ensku og íslenzku. Ráðstefnan í Midem stendur yfir dagana 18.-24. janúar. Héðan fer hópurinn þann 16. og kemur aftur heim tíu dögum siðar. -ÁT- Ríkisstjómin ræðir styrk á fundi í dag Hljómplötuútgáfan hf. sótti um fjárhagslega fyrirgreiðslu til ríkis- stjórnarinnar vegna ferðarinnar til Midem í Frakklandi. Að sögn Magnúsar H. Magnússonar ráðherra verður beiðni fyrirtækisins væntanlega tekin til afgreiðslu í dag. Magnús kvað hins vegar Sighvat Björgvinsson fjármálaráðherra hafa verið lasinn að undanförnu og venjan væri sú að fjármálaráðherra væri viðstaddur þegar fjallað væri um beiðni sem þessa. -ÁT Skipsstrandið við Rif: Baujan var Ijóslaus Nú er Ijóst orðið að það var ekki aðeins veðurofsinn, sem olli strandi Hamars SH—224 í landshöfninni i Rifi í fyrrinótt. Baujan sem átti að lýsa skipinu inn mun hafa orðið Ijóslaus. Að sögn Haf- steins Jónssonar fréttaritara DB á Hellissandi hefur verið kvartað undan þessari bauju til Vitamála- stofnunarinnar án þess að úrbætur hafi fengizt. I slíku veðri sem geisaði þessa nótt verður baujan jafnan Ijós- laus og þar með gagnslaus. í Ijós hefur komið að það getur reynzt mjög afdrifaríkt. í fyrra strandaði 380 tonna skip, Garðsvík, á sama stað og Hamar strandaði nú, á svokallaðri Tösku sem er sker við innsiglinguna í landshöfnina. GAJ/HJ, Hellissandi. Rúðubrot dg ærsl í Hafnarfirði Til nokkurra óláta og ærsla kom í Hafnarfirði í fyrrakvöld er unglingar kvöddu jólin. Hafnarfjörður var á árum áður frægur fyrir ólæti á þrettándanum en slík læti hafa farið minnkandi á siðustu árum. Lögreglan hafði að venju nokkurn viðbúnað, m.a. varalið frá Reykjavík. Unglingar brutu rúður bæði í Ráðhúsinu og í Sparisióði Hafnar- fjarðar og höfðu ærsl í frammi. Voru nokkrir teknir úr umferð og yfir- heyrðir. -A.St.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.