Dagblaðið - 11.02.1980, Page 2
2
/*
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
ERU FJOLMIÐLARNIR
Á MÓTIBREIÐHOLTI?
Magnús Sigtryggsson hringdi og,
kvaðst vilja kvarta undan því, að það
væri alltaf blásið út í fjölmiðlum
þegar einhver ólæti yrðu i Breiðholti
eða skemmdarverk væru frantin.
Sagðist hann óttast að slíkt gæti
virkað sem hvatning á unglinga i
Breiðholti að brjóta af sér vitandi að
þess yrði strax getið í fjölmiðlum.
,,Ég spyr,” sagði Magnús. „Eru
hvergi brotnar rúður nema i Breið-
holti? Jú. Það eru brotnar rúður út
um allan bæ. Ég hef kynnt mér það.
En það er aldrei minnzt á rúðubrot
nema í Breiðholti.
Ég hef áreiðanlegar heimildir fyrir
því, að afbrot séu sízt meiri í Breið-
holti en annars staðar. Ég held, að
það^sé kominn tími til að fjölmiðl-
armf hætti aö blása út fréttir um
rúðubrot i Breiðholti.”
H
Unnið að viðgerðum eftir rúðubrot í
Breiðholti. DB-mynd RagnarTh.
Bömin vilja ekki hátta vegna sjónvarpsins:
Bamamyndir f remst-
ar í sjónvarpsdagskrá
Andrés Fjeldsted skrifar:
Sunnudaginn 26. janúar var hinn
frábæri Harold Lloyd síðastur á dag-
skrá sjónvarpsins. Hann brást ekki
frekar en fyrri daginn.
Þótt þeir, sem raða niður sjón-
varpsdagskránni virðist ekki átla sig
á því, þá er það nú samt svo, að
þessar gömlu þöglu gamanmyndir
hitta beinl í mark hjá börnum. Það er
hálfóskemmtilegl að þurfa að senda
þessi litlu grey grátandi í rúmið, af
því að sjónvarpið lekur svo lílið tillil
til þeirra.
Nú kann einhver að segja, að ein-
„Fyrir hönd þeirra foreldra, sem eru að reyna að
koma börnunum í rúmið ó skikkanlegum tíma á
kvöldin, mótmæli ég því, að I framtiðinni verði
svona myndir settar aftast i dagskrána," skrífar
Andrés Fjeldsted.
faldast sé að láta börnin ekkert vita,
hvað þarna er á ferð. Málið er bara
ekki svona einfalt. Sjö til átta ára
krakkar geta sjálftr lesið sjónvarps-
dagskrána og vita þvi alveg, hvað um
er að ræða. Ekki bætir það heldur úr
skák, að í skólanum daginn eftir fá
þau ósparl að heyra það hjá þeim
félögum sínum, sem myndina fengu
að sjá, af hve miklu þau haft misst.
Fyrir hönd þeirra foreldra, sem eru
að reyna að koma börnunum í rúmið
á skikkanlegum tíma á kvöldin mót-
mæli ég því að í framtiðinni verði
svona myndir settar aftast í dag-
skrána.
Tveir af oddvitum Framsóknarflokksins, Jón Helgason, forseti Sameinaðs þings,
og Steingrimur Hermannsson, sjávarútvegsráðherra.
DB-mynd Bjarnleifur.
Kosningasigur Framsóknarflokksins:
Furðulegasta
fyrírbæri
aldarinnar
LOKSINS A ISLANDI ! !!!
WÉm
HEWLETT hp PACKARD
HEWLETT-PACKARD-oinkaumboð á Islandi
STÁLTÆKI
Bankastræti 8.
Simi 27510.
Wifcr »&{!'/■
fc'NTER ♦'
STO
Nttn, CHS
vr w ) 'é*
ma e K'J UÍ37X
•v M j, 4 |
| j t 1
1 O 1
Unnar Brynjarsson, verkamaður
Hrærekslæk N-Múlasýslu skrifar:
Mesta mein aldarinnar er saga
Framsóknarflokksins, sagði einn
ágætur maður. Furðulegasta fyrir-
bæri aldarinnar er sigur Framsóknar-
flokksins í kosningunúm 1979, segi
ég.
Úl á hvað er þessi sigur? Fyrir
síðustu kosningar töluðu frambjóð-
endur flokksins mikið um félags-
hyggju og samvinnu og orð eins og
ábyrgð, festa, heilindi og dreng-
skapur heyrðust oft. Var helzt á
þeim að skilja, að þessi fjögur siðast-
nefndu atriði væru þeirra prívat
kostir sem þeir einir hefðu.
Félagshyggju og samvinnu nefndu
þeir svona bara til að segja fólki, að
þetta væru hlutir sem þeir væru ekki
búnir að gleyma. Sennilega hafa þeir
séð þessi orð í gömlum árgöngum af
Timanum.
Er líklegt, að svona orðskrúð haft
borið þetta mikinn árangur í at-
kvæðasmöluninni? Eða hefur sumu
yngrafólki fundizt það einhver erfða-
synd að fylgja ekki afa og ömmu að
málum? Maður hélt, að kjósendur
tímaskekkjuflokksins væru sem
óðast að tínasl í gröfina. Ekki er ólík-
legt að dagblaðið Timinn skipti um
Ólympíuleikarnir í Moskvu:
Eins og
G. K. hringdi:
Það er ef til vill að bera í bakka-
fullan lækinn að tala um ólympíu-
leikana í Moskvu. Ég Vil þó segja að
ekki þarf að fara marga áratugi aftur
í tímann til að finna hliðstæðu þar
sem voru ólympíuleikarnir í Berlín
árið I936undirsljörn Adolfs Hitler.
Þá langar mig líka til að koma því
á framfæri að ég styð Vigdísi
Finnbogadóttur í forselakosningun-
um.
Einokun
útvarps
Erlendur Magnússon hringdi og
vildi vekja athygli á lélegri þjónustu
útvarpsins í sambandi við auglýs-
ingar. Fólk þyrfti að mæta niður á
Skúlagötu 4 til að fá auglýsingar
birtar og greiða þær fyrirfram.
„Þetta er nokkuð sem þeir gætu ekki
gert ef þeir hefðu ekki þessa
einokunaraðstöðu,” sagði Erlendur.
Of hár tollur
á kvikmynda-
vörum
12 ára kvikmyndaáhugamaður
hringdi:
Mér finnsl of mikill tollur á kvik-,
myndavörum, sérstaklega á hljóð-
kvikmyndavélum. Þær kosta svona
200—400 þúsund og ég hef ekki fjár-
muni í slikt.
nafn og heiti þá „Tímaskekkja”,
þannig að Framsóknarflokkurinn
heiðri áratuginn sinn og sýni þannig
málgagninu tilhlýðilega virðingu.
Alþýðuflokkurinn hefur enga
stefnu, sagði formaður Framsóknar-
flokksins, en hún er lík stefnu míns
flokks. Þetta sagði hann raunar ekki í
sömu setningunni en það munaði
ekki miklu.
Ekki hefur maður heyrl neinar
fréttir um mikið fyllirí kosningadag-
ana þannig að þar mætli finna ein-
hverja skýringu á fylgi Framsóknar-
flokksins.
Það kaldhæðnislega við þetta er
það, að hið aukna fylgi Framsóknar
veldur því, að stjómarkreppa er i
landinu. Framsókn fram til forystu
sungu þessir karlar svo skært inn i
hjörtu fólksins. Veizlu það ekki, að
amma þín var í Framsókn.var sagt
svo mjúklega við þá sem áttu að
kjósa í fyrsta sinn, að þeir komusi
við.
Hvað er það sem heillar kjósendur
Framsóknar? Er það kannski hin
glæsta stefna? „Herinn á að vera,
herinn á að fara.” Framsókn má
líkja við mann sem stendur með lapp-
irnar sína í hvoru herbergi og
tvíslígur með þröskuldinn á milli.
1936
u
Nú er deilt um, hvort íslendingar eigi
að taka þátt í ólympíuleikunum í
Moskvu. Myndin er af Vilhjálmi
Einarssyni, rektor. Hann er eini
íslendingurinn sem hefur hlotið verð-
laun á ólympiuleikum, hlaul silfur-
verðlaun í þristökki á ólympíuleikun-
um í Melbourne árið 1956.