Dagblaðið - 11.02.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 11.02.1980, Blaðsíða 4
SMIÐJUVEGI9 A - KÓP. - Sími 44445 Ráðherra synjaði beiðni Neytendasamtakanna: Síminn minnkar þjónustuna um /eið og símagjöld hækka — öllum viðgerðar- og endumýjunarkostnaði skellt á notendur þó síminn eigi öll tæki í landinu » Með þessum gómsæta rétti má bera fram niðursoðna tómata eða hrásal- at, rétt eftir þvi sem hver vill. Ekki er tekið tillit til þess i hráefniskostn- aðinum. Jafnframt því sem Póstur og sími hefur nú fengið heimild lil hækkunar gjaldskrár sinnar er enn minnkuð sú þjónusla sem stofnunin veitir símnot- endum. Telja Neytendasamtökin að hin nýja gjaldskrá fái vart staðizt, ef í harðbakkann slær, að því er varðar ný ákvæði um viðhaldskostnað sem í nýrri gjaldskrá er í einu og öllu lagður á notendur, þó Pósl- og síma- málastofnunin eigi öll símtæki sem eru í höndum símnotenda. f Neytendasamlökin höfðu óskað éflir því við ráðuneytið að fá til um- sagnar efnislegar breytingar á gjald- skrá og reglugerðum Pósts og síma. Þeirri beiðni Neytendasamtakanna synjaði samgönguráðuneytið sem fer með y firstjórn símamála. í næstsíðustu gjaldskrá símans stóð m.a.: ,,Viðgerðarkostnaður notenda- búnaðar er ekki innifalinn i afnota- gjaldi en greiðist eftir reikningi, nema um eðlilegt slit séað ræða”. I nýjustu gjaldskránni er. þessu ■breytl þannig að orðin „nema um eðlilegt slit sé að ræða” eru felld niður og allur viðgerðarkostnaður, hvort sem er af eðlilegu sliti eða óhöppum, er lagður á notandann. Neytendasamtökin telja að þelta mundi vart fá slaðizt lög þar sem Póstur og sími á öll símtæki í landinu og leigir þau aðeins notendum. Eðli- legt slit eigi því hér eftir sem hingað lil að falla á eiganda tækjanna. Eftir að samgönguráðuneytið synj- aði beiðni Neytendasamtakanna þess efnis að fá lil umsagnar efnislegar breytingar gjaldskrár Pósts og síma er enginn aðili í landinu sem gætir réttar notenda gagnvart Póst- og símamálaslofnuninni. Sömu ósk báru Neytendasamtökin fram varðandi efnislegar breylingar á gjaldskrám hita- og rafmagnsveitna. Einnig því var synjað og þar gætir enginn hags- muna neytenda. - A.St. «c I frumtiðinni verða símnotendur að greiða allan viðgerðarkostnað við síma sína, jafnvel þótt um „eðlilegt slit” sé að ræða. Þrátt fyrir það er Póstur og sími eigandi símtólanna og leigir þau út til símnotenda! DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980. DB á ne ytendamarkaði BJARNASON^ CgjKfc ELDHUSKROKURINN Steiking í skál eða potti Steikingarilátið er ýmist úr eldföst- um leir, eldföstu gleri eða málm- blöndu. Það á að vera hæfilega rúm- golt og með þéttu loki. Steikt er í smjöri (eða smjörl.) og enginn vökvi látinn á steikina meðan á steikingu stendur. Þegar steikin er hæfilega steikl er hún tekin úr ílátinu og litið eitl af kjötsoði eða vatni soðið í því unz steikarskófin er uppleyst. Síðan er steikin látin aftur i ílátið og eftir það má ekki sjóða á steikinni. Ef steik er t.d. framreidd með grænmeti eða sveppum er meðlætið hreinsað og skorið í hæfilega bita og steikt með steikinni þannig að kjötið og grænmetið verði tilbúið á sama tíma. Steikina á helzt alltaf að fram- reiða í ílátinu sem hún er steikt í. Kostir við þessa aðferð eru að hver réttur heldur sínu rétta bragði. Næst verður sagt frá pönnusteikingu. Osta- og beik- on skúffukaka -VÉLAVERKSTÆDI Egils Vilhjálmssonar H/F Ostur og beikon á sérlega vel saman. Hér er uppskrift að osta- og beikonrélti, eins konar ofnskúffu- köku. 150 g beikon 3egg 2 dl rifinn ostur 1 tsk basilikum 6 dl mjólk 2—2 1/2 dl hveiti • Klippið beikonsneiðarnar i ca tveggja cm langa bila. Brúnið þá á heitri pörtnu. Smyrjið ofnskúffuna að innan með feitinni sem eftir varð við beikonsteikinguna. Hrærið eggin saman, bætið ostinum, basilikum og helmingnum af mjólkinni saman við. Hrærið hveitinu saman við og loks er afgangurinn af mjólkinni látinn út í og brúnuðu beikonbitarnir. Hellið deiginu í smurðu ofnskúff- una og bakið við 225°C hita í um það bil 30 minúlur eða þar til kakan er orðin ljósbrún. Hráefniskostnaður er um 2000 kr. eða um 500 kr. á mann, því upp- skriftin er ælluð fyrir fjóra. - A.Bj. • Endurbyggjum vélar • Borumblokkir • Plönum blokkir og head • Máimfyllum sveifarása, tjakköxla og aöra slitfleti m/ryðfriu harðstáli FULLKOMIÐ RENNIVERKSTÆÐI SlMI 44445

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.