Dagblaðið - 11.02.1980, Page 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
8
Keypti lágmyndina fyrir 70
þús. var400milljóna virði
Lánið lék við fombókasalann en ekki lávarðiim
Fyrir einu ári tók fornbókasalinn
Nicholas Meinertzhagen í London
eftir marmarastyttu í fornverzlun þar
í borg. Þó styttan væri skitug taldi
fornbókasalinn að hún kynni að fara
vel í íbúð sinni. Hann ræddi því við
fornsalann og keypti styttuna fyrir
tæplega 200 þúsund krónur.
Fornsalinn hafði keypt hana á upp-
boði hjá Cristie’s fyrir um 70 þúsund
krónur.
Það eina sem Meinertzhagen vissi
um styttuna var að hún var af páfa.
Hann fór síðan á stúfana til þess að
kanna forsögu hennar. Hann fékk til
þess aðstoð Victoríu og Albertssafn-
anna og komst að því að styttan var
af Gregory XV. páfa og það sem
meira var, að marmarastyttan var
eftir barokkmeistarann Giovanni
Lorenzo Bernini.
Talið er að jterðmæti brjóst-
myndarinnar af páfanum sé um 400
milljónir króna. Hún var gerð árið
1621, þegar Bernini var 23 ára að
aldri. Hún er úr röð fjögyrra páfa-
mynda eftir hann, en þrjár þeirra
voru úr bronsi. Ekki hefur verið
kunnugt um marmaramyndina síðan
seint á sautjándu öld.
Og fórnarlamb sögunnar, því
uppboðssaga án fórnarlambs er eins
og morð án líks, er Lanesborough
lávarður. Hann kom marmaramynd-
inni á uppboð hjá Cristie’s. Þegar
hann var spurður um viðbrögð sín
við fréttinni sagði hann: ,,Ég settist
niður og fékk mér einn sterkan af
koníaki.”
Talið er að langa-langafi lávarðar-
ins hafi keypt brjóstmyndina af páf-
anum þá er hann var á ferðalagi á
ítaliu. Það varð lávarðinum því
nokkuð dýrt að þekkja ekki þennan
dýrgrip sem forfaðir hans hafði fest
kaup á. Allt innbú lávarðarins hafði
verið selt á uppboðinu fyrir rúmlega
100 milljónir króna. Lávarðurinn
hugleiðir nú málsókn á hendur
uppboðsfyrirtækinu.
Brjóstmyndin góða
V*, *' thfS $Á
: r'.-: ' ' :
' •> -
.
'
Ágreiningur
í írsku friðar-
hreyfingunni
Ágreiningur virðist vera
kominn upp meðal forustumanna
irsku friðarhreyfingarinnar, sem
fékk friðarverðlaun Nóbels árið
1976. Önnur þeirra kvenna, sem
þá veitti verðlaununum viðtöku í
Osló, Betty Williams, hefur til-
kynnt afsögn sína úr stjórn sam-
takanna. Jafnframt hefur verið
tilkynnt að einn stjórnar-
mannanna, Peter Mclachlan, hafi
verið rekinn úr stjórninni. Á-
greiningurinn er sagður vera um
afstöðuna til IRA hreyfing-
arinnar, en hluti hennar stendur
að írska lýðveldishernum, sem
staðið hefur fyrir ýmsum
hryðjuverkum í Norður-írlandi.
Sovézk farþega-
þota lenti á
Kennedyflugvelli
Sovézk flugvél frá Aeroflot
lenti á Kennedyflugvelli i
morgun. Hún fékk enga af-
greiðslu og var það í samræmi við
fyrri yfirlýsingar starfsfólks á
flugvellinum. Eftir tveggja
klukkustunda bið á Kennedyflug-
velli var sovézku vélinni skipað að
taka sig aftur á loft og fljúga til
Dullesflugvallar við Washington
en þar eru rikisstarfsmenn starf-
andi og ekkert bann við af-
greiðslu sovézkra flugvéla.
Nasistar fyrír
rétti í Köln
Dómstóll i Köln í Vestur-
Þýzkalandi mun í dag fella dóm í
máli þar sem þrír fyrrverandi SS
foringjar eru ákærðir fyrir að
hafa sent þúsundir franskra
gyðinga og kommúnista i út-
rýningarbúðir nasista á árum
síðari heimsstyrjaldarinnar. Rétt-
arhöld vegna þessa máls hófust í
október síðastliðnum. Þar á und-
an hafði orðið að leysa úr ýmsum
viðamiklum lagaflækjum. Talið
er að þetta verði síðustu réttar-
höldin, sem haldin verði yfir
fyrrum foringjum nasista á
árum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Bílþjóf ur skaut
lögreglumann
Maður sem grunaður var um
að hafa stolið bifreið skaut lög-
reglumann til bana á Spáni í gær
og særði annan alvarlega. Var
verið að elta manninn um skóg-
lendi nærri borginni Lugo.
Þrátt fyrir að Juliusi Nyerere forseta Tanzaníu hafi tekizt að halda styrkri
hendi um stjórnvölinn i landi sinu sfðan það fékk sjálfstæði árið ’61, er þó ýmis-
legt þar sem veldur forsetanum erfiðleikum. Þar má meðal annars nefna efna-
hagslif landsins, sem er i rústum. Ekki bætti úr að herförin inn i Uganda til að
frelsa landsmenn þar undan ógnarstjórn Idi Amins varð dýrari en búizt var við.
Tanzanfa verður meira að segja enn þá að standa undir verulegum kostnaði
vegna Uganda og herliðs sfns þar. Myndin sýnir Julíus Nyerere kanna heiðurs-
vörð i höfuðborginni Dar Es Salaam.
Stálverkfallið í Bretlandi:
LEBT0GAR 70 ÞUSUNDA
VNJA SEMM UM14%
— þau komi í stað framleiðsluaukningar - afgangurínn krefst enn 20% hækkunar
Nokkrar horfur virtust á þvi í
morgun, að verkfall starfsmanna í
brezkum stáliðnaði væri að leysast.
Það hefur nú staðið í tæpar sjö vikur.
Leiðtogar um það bil sjötíu þúsund
starfsmanna hafa nú lýst því yfir að
þeir vilji ganga að tilboði um 14%
launahækkun. Hefur hún verið gerð á
grundvelli þess að jafnhliða náist um
samsvarandi framleiðsluaukning í stál-
iðjuverunum.
Eftir er að leggja tilboð þetta fyrir
almenna félagsmenn. Samtals er stál-
iðnaðarmenn í verkfalli á Bretlands-
eyjum sagðir vera um það bil 130
þúsund.Fjórðungur þeirra, sem er hjá
einkafyrirtækjum, hefur þó aðeins
verið í verkfalli í eina viku. Meginhluti
brezks stáliðnaðar er í höndum ríkis-
fyrirtækisins British Steel Corporation.
Þeir verkalýðsforingjar sem ekki
hafa viljað fallast á tilboð um 14%
launahækkun halda sig enn við kröfur
um 20% hækkun. Einnig var sú krafa
gerð á hendur British Steel fyrirtækinu
að það hætti við ráðagerðir um að
fækka starfsfólki sínu. Ráðamenn
fyrirtækisins hafa bent á að það hafi
..IONAS
HAF.ALDSSON
OLAFUR
GEIRSSON
verið rekið með miklu tapi undanfarin
ár og engin tök séru á að veita neinar
launahækkanir.
Starfsmenn eins af einkafyrirtækjun-
um samþykktu í gær að hverfa aftur til
vinnu í dag. Ekki er ljóst hvort þetta er
samfara einhverri kjarabót til þeirra.
Verið er að reyna að koma á nánara
samstarfi á milli leiðtoga einstakra
verkalýðsleiðtoga í stáliðnaði. Dæmi
um lítil tengsl þeirra á milli er
meðal annars að það tilboð sem leið-
togar 70 þúsund stáliðnaðarmanna
samþykktu í gær höfðu aðrir leiðtogar
hafnað á föstudaginn var.