Dagblaðið - 11.02.1980, Page 9

Dagblaðið - 11.02.1980, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 11. FEBRUAR 1980. Erlendar fréttir 8 REUTER i Bróðir Iranskeisara fyrrverandi rekinn úr alþjóðaólympíu- nefndinni Bróðir keisarans fyrrverandi í íran missti sæti sitt í alþjóðaólympíu- nefndinni á fundi hennar í Lake Placid i gaer. Gholam Reza Phalevi prins var formlega sviptur sæti sinu þar sem hann hefði ekki mætt á þrjá síðustu fundi nefndarinnar. Er þetta aðferð sem beitt hefur verið nokkrum sinnum áður í alþjóðaólympíunefndinni þegar losna hefur þurft við stjórnarmenn sem hættir eru að starfa. Prinsinn hafði átt sæti í nefndinni síðan árið 1955. Margir fulltrúar á fundi nefndar- innar í Lake Placid, þar sem vetrar- ólympíuleikarnir fara nú fram, töldu Cyrus Vance utanríkisráðherra Banda- ríkjanna fremja mikil veizluspjöll, þegar hann skoraði á þjóðir heims að mæta ekki til sumarleikanna í Moskvu. Var Vance að flytja setningarræðuna er hann lét þessi orð falla. Bandarísku forkosningamar. 9 ■N CARTER SIGRAÐI KENNEDY í MAINE — óvissa hver áhrif ósigur Kennedys á heimavelli hefur óvæntur árangur Jerry Brown Jimmy Carter Bandaríkjaforseti sigraði naumlega i forkosningum Demókrataflokksins í Mainefylki i gær. í morgun þegar tæplega 90% atkvæða höfðu verið talin hafði forsetinn fengið 44% atkvæða en Edward Kennedy, helzti keppinautur hans, 39%. Jerry Brown fylkisstjóri í Kaliforniu hafði fengið mun meira fylgi en búizt hafði verið við eða 15% atkvæða. Ekki er fullljóst hvað þessi ósigur Edwards Kennedys á heimaslóðum hans táknar. Maine er eitt af austur- fylkjunum, sem hafa ávallt verið sterkustu vígi Kennedyanna. Þetta er i annað skiptið sem þeir Kennedy og Carter reyna með sér í forkosningum fyrir þing Demókrata- flokksins þar sem frambjóðandi flokksins i forsetakosningunum verður valinn. Edward Kennedy vill túlka úrslitin sem sigur fyrir sig. Skoðanakannanir haFi spáð Carter 20% fleiri atkvæðum en sér. Úrslitin sýni að' hann — Kennedy — sé í mikilli sókn. Jody Powell blaðafulltrúi Jimmy Carters sagði hins vegar að allar slíkar vangaveltur Kennedys væru á sandi byggðar. — Þar sem ég ólst upp er sigur sigur og ósigur ósigur, — sagði Powell. Talsmenn Demókrataflokksins i Maine vildu ekkert segja um úrslitin i morgun. Sögðu þeir að vel gæti verið að úrslitatölur gætu breytzt áður en öll atkvæði hefðu verið talin. Stuðningsmenn Kennedys virðast þó tviinælalaust telja þessi úrslit sigur fyrir sinn mann. Benda þeir á að í Iowa hafi Carter haft helmingi fleiri atkvæði en Kennedy. Nú hafi sá síðarnefndi hins vegar náð mun betri árangri en nokkur þorði að spá honum fyrirfram. Straumurinn sé greinilega til hans. Carter Bandarikjaforseti lagði Kennedy öldungadeildarþingmann á heimavelli hins síðarnefnda. Zimbabwe/Ródesía: Deilur milli IVkgabes og So- ameslávarðar Mugabe skæruliðaforingi slapp naumlega lifandi í gær er sprengja sprakk undir bifreið hans er henni var ekið eftir þjóðvegi. Mugabe slapp ómeiddur en ef sprengjan hefði sprungið nokkrum andartökum fyrr hefði hann ekki þurft að kemba hærurnar. Þetta er í annað sinn á fimm dögum, sem Mugabe verður fyrir árás. í fyrra skiptið var handsprengju kastað inn í hús hans. Rétt eftir að fregnir um tilræðið bárust til Salisbury tilkynnti Soames, landstjóri Breta í Zimbabwe/Ródesíu, að hann hefði svipt einn helzta aðstoðarmann Mugabes heimild til að taka frekari þátt í kosningabaráttunni. Ljóst þykir að deilur þeirra Soames og Mugabe fara nú harðnandi, jafnvel svo að upp úr geti soðið. Aðstoðarmaður Mugabes hefur þó enn heimild til að bjóða sig fram í komandi þingkosning- um. Mugabe er mjög hataður af mörgum hvítum íbúum Zimba- bwe/Ródesiu þar sem það voru skæru- liðar hans sem voru athafnasamastir í borgarastyrjöldinni. Þeir skutu til dæmis niður farþegaflugvél árið 1977. Að sögn skutu þeir alla þá sem af komust eftir að vélin hafði hrapað til jarðar. Mugabe hefur verið talinn hafa mjög marxiska stefnu en segist þó munu virða allar lýðræðisreglur í kom- andi kosningum og eftir þær. Nóbelsverðlaunahafinn Solzhenitsyn: Afganistan sýnir heims- valdastefnu kommúnismans Sovézki nóbelshafinn í bókmenntum Alexander Solzhenitsyn sagði í gær, að innrás Sovétrikjanna í Afganistan sýndi berlega ásókn kommúnismans i alheimsyfirráð. Solzhenitsyn skrifar grein í tímaritið Time þar sem kemur fram sú skoðun hans að hinn vestræni heimur hafi vanmetið kommúnismann allt frá árinu 1918 og stæði enn vanmáttugur nú vegna andlegrar vangetu. Hann vísaði á bug fullyrðingum að innan Sovétríkjanna væri skoðana- ágreiningur um vinstri- og hægristefnu. Hann sagði það sameiginlegt markmið valdamanna í Moskvu að ná heimsyfír- ráðum. Á leið sinni að því markmiði væri öllum meðulum beitt. Hann sagöi að átök manna milli þar eystra væru ekki hugmyndafræðileg, heldur persónuleg valdabarátta. Solzhenitsyn bætti því síðan við, að lítill munur væri á kommúnistum i Kína og Sovétríkjunum. Að gera bandalag við Kínverja jafngilti sjálfs- morði. Með því að styrkja Kínverja með bandarískum vopnum mætti e.t.v.sigra Rússa, en eftir það kæmi ekkert i veg fyrir endanlegan sigur Kín- verja. Gripið simann aeriðgóð kaup Smáauglýsingar BIAÐSINS Þverholti11 sími 2 70 22 Opið til kl.10 í kvöld

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.