Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.02.1980, Qupperneq 12

Dagblaðið - 11.02.1980, Qupperneq 12
12 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980. Ráðskonan að Bessastöðum: Hér gerum við allan mat sjálfar — eftirminnilegast þegar leyniþjónustumenn voruhérí hverjuskoti „Hér kaupum við ekkeri tilbúið að fyrir veizlur, heldur útbúum allt sjálfar,” sagði Sigrún Pétursdóltir ráðskona að Bessastöðum er DB- menn litu inn í eldhúsið hjá henni laust fyrir hádegi á föstudaginn. Þá var rétl í þann mund að hefjast veizla með fráfarandi ríkisstjórn og mökum ráðherranna. Þrátl fyrir það var ástandið í eldhúsinu mjög „yfir- vegað” og alll svo fágað og fínt að þar var ekki að sjá að Sigrún og Hall- dóra Pálsdóltir, aðstoðarkona hennar, væru að úlbúa dýrindis veizlu fyrir 16 manns. ,,Ég hef gegnt þessu starfi í bráðum 12 ár, eða frá 1. september 1968, er Kristján Eldjárn tók við for- setaembættinu. Þá flutiist ég hingað t*g bý hér.” Eftjirminnilegasta veizla sem Sigrún man eftir er kvöldverðarboð er forsetinn bauð Nixon, þáverandi Bandarikjaforsela, og Pompidou heitnum Frakklandsforseta til. „Þá Vóru hér leyniþjónustumenn um allt, húsið umkringt og menn um alll innanhúss. Ég sá um eldamennskuna en svo einkennilega vildi til að aldrei kom neinn leyniþjónuslumaður inn i eldhúsið til að athuga neitl þar,” sagði hún. Hlaut hún þar óbeina traustsyfir- lýsingu frönsku og bandarisku leyni- þjónustanna í senn, þær treystu henni til að tryggja að matföng höfðingjanna væru ómenguð aðskotaefnum óvina. Er hún var spurð hver væri skemmtilegasia veizla sem hún myndi komu á hana vomur, hún treysti sér ekki til aðgera upp á milli fjölmargra ánægjulegra veizlna þessi 12 ár: „Hvort ég verð hér áfram eftir að Kristján lætur af embætti veltur á þvi hvort nýr forseti óskar eflir þjónustu minni og hvort ég vil vera í þjónustu hans,” sagði Sigrún að lokum er hún var spurð hvort hún hefði hug á að vera áfram á Bessastöðum. -CIS. FRÚ HALLDÓRA ELDJÁRN BENEDIKT GRÖNDAL (fyrrv. forsætisráðh.) HELGA JÓNSDÓniR (kona Braga Sigurjóns.) VILMUNDUR GYLFASON (fyrrv. dómsmálaráðh.) KRISTlN CL BENEDIKTSDÓTTIR, | (kona Guðmundar Ben.) IRMA KARLSDÓTTIR (kona Kjartans Jóh.) MAGNÚS H. MAGNÚSSON (fyrrv. heilbrigðisráðh.) BJÚRK MELAX (kona Sighvats Björgvins.) SIGHVATUR BJÖRGVINSSON (fymi. fjármálaráðh.) MARTA BJÖRNSDÓTTIR (kona Magnúsar H.) KJARTAN JÓHANNSSON (fyrrv. sjávarútvegsráðh.) GUÐMUNDUR BENEDIKTSSON (ráðuneytisstj. forsætisráðun.) VALGERÐUR BJARNADÓTTIR (kona Vilmundar Gyffas.) BRAGISIGURJÓNSSON (fyrrv. iðnaðarráðh.) HEIDI GRÖNDAL (kona Benedikts Gröndal) HR. KRISTJÁN ELDJÁRN BORÐHALDIÐ SKIPULAGT Það er ekki bara að réttir i veizlu- höldum að Bessastöðum séu nákvæmlega skipulagðir heldur er gestum raðað til borðs fyrirfram og eiga þeir kost á að kynna sér væntan- leg sæti sin af blöðum sem liggja framrni í þeim salarkynnum er gestir fara um áður en til borðhalds kemur. í fljótu bragði virðist engin regla ráða niðurröðun við borðið i þessu tiltekna tilviki en þegar betur var að ATLIRÚNAR HALLDÓRSSON gáð sat fyrrverandi forsætisráðherra á hægri hönd forsetafrúarinnar og kona hans á hægri hönd forsetans. Á vinstri hönd hafði forsetinn konu fyrrverandi fjármálaráðherra og for- setafrúin hafði hann á vinstri hönd séro.s.frv. Hér er sýnishorn af skipulagsupp- drætti er gestir hafa aðgang að fyrir borðhaldið. Skýringarnar i svigunum eru Dagblaðsins. FÓLK Auður AðaJstBÍnsdóttír, tv. og Vilborg Eiríksdóttír biða með eitthvaO iystaukandi i bökkum eftír þvi að gestír komi úr fremri sal inn í borðstof- DB-mynd: Bj. Bj. „Hár er bara ekki hægtað mynda okkur við að gera neittþvi það er aiit tílbúið," sagði Sigrún Pótursdóttír, réðskona, tílhægriá myndinni. T.v. er aðstoðarkona hennar, Halldóra Pálsdóttír. DB-mynd: Bj. Bj. Konumar biðu uppi á meðan karlamir slitu stjóminni niðri Á meðan ráðherrar Alþýðuflokks- ins og forseli héldu ríkisráðsfund á föstudagsmorguninn, þar sem þeir leystu upp slarfsstjórnina, biðu konur þeirra úppi á lofti. Var glatt á hjalla uppi á lofti á meðan á fundin- um stóð og tók Bjarnleifur þessa mynd er þær komu niður. Talið frá vinstri er Heidi Gröndal, kona Benedikts, Bera Melax, kona Sighvats, Helga Jónsdóttir, kona, Braga, Valgerður Bjarnadóttir, kona Vilmundar, Irma Karlsdóttir, kona Kjartans, Marta Björnsdóttir, kona Magnúsar H., og frú Halldóra Eld- járn. DB-mynd. Bj. Bj. fleira , FOLK Elska fyrst — kála svo Agnar Guðnason blaðafulltrúi bændasamtakanna sendir þingliði krata kveðjur i Þjóðviljanum fyrir helgi. Kveðjur hans eru ekki hlýlegar. Lokaorðin eru spakmæli og gefa vis- bendingu um að engir sældartímar biði kratanna: „Ef þú ert vitur, þá telur þú óvini þinttm trú um, að þú elskir hann, áður en þú kálar honum.” Omma gav mær Eg hitti ein kollfirðing í býnum nú ein daginn og spurdi, hvagar hann fór. Jú, hann fór að keypa sær eina bók. Tá eg undrunarsamur hugdi upp á hann, skoylti hann uppí: „Jú, sært tú, omma gav ntær eina lesilampu i jólagávu!” (Þeir sem sjá eitthvað athugavert við þennan texta ættu.að athuga sinn gang vandlega. Svona gjálifi um helgar gengur ekki lengur). Eins dauöi er annars brauð Það er orðin hefð að fráfarandi ráðherrar haldi starfsfólki ráðuneyt- anna smávegis samkvæmi að kvöldi siðasta vinnudags ríkissljórnar. Sú hefð var ekki brotin nú þegar Gröndaiia stakk möppum í töskur og rásaði á dyr. Ráðuneytisfólk kvartar því ekki þó títt sé skipt um menn á ráðherrakontórunum. Eins dauði er annars brauð. Dauði ríkisstjórnar er öruggur fyrirboði erfidrykkju og húllumhæs í Stjórnar- ráðinu. Löggan og pilsfaldar Það vakti athygli manna sem stöðu í röð fyrir utan veitingahúsið Holly- wood á laugardagskvöldið að i bil sem lagt var fyrir utan staðinn sat ung stúlka i hvitum kjól. Það er i sjálfu sér ekki i frásögur færandi nema hvað kjóll stúlkunnar kom niður undan hurð bílsinsog sópaði skítuga götuna. Er bíllinn keyrði siðan af stað með kjóiinn enn í göt- unni, heyrðu menn lögreglubil koma með sírenuna á fullu og stöðva þennan umrædda bíl. Gerðust menn nú forvitnir mjög og töldu að liklega væri fólkið í bílnum ölvað eða eitt- hvað slíkt. Ekki reyndist það vera heldur voru lögreglumennirnir svo hugulsamir aðstöðvabiljnn til að láta stúlkuna vita um hvernig komið var fyrir kjól hennar. Menn hlógu dátt í röðinni fyrir utan veitingahúsið að þessum atburði og einum varð að orði. . .já þetta er ekkert nýtt, þeir eltast við hvern pilsfald þessir lög- regluþjónar.. .

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.