Dagblaðið - 11.02.1980, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
i
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
FH-ingar heppnir að ná
stigi gegn HK að Varmá
— í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik. Tveir af máttarstólpum HK-liðsins
EYJA-ÞOR HLAUT
SÍN FYRSTU SHG
— Sigraði nafna sinn frá Akureyri
24-20 í 2. deild handknattleiksins
í Vestmannaeyjum
Þór frá Vestmannaeyjum hlaut sín
fyrstu stig i 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik í gær, þegar liðið sigraði
nafna sinn frá Akureyri í hörkuleik i
Vestmannaeyjum.
Þórsarar höfðu frumkvæðið framan
af en rétt fyrir hálfleik komust heima-
menn yfir og staðan var 11—8 fyrir
Þórsara í hálfleik.
Norðanmönnum tókst að jafna einu
sinni i síðari hálfieik, 16—16, en með
ódrepandi baráttuvilja og gífurlegum
Týr og Þór
unnu UBK
Tveir kvennaleikir í handknattleik voru
háðir í Vestmannaeyjum um helgina. í
2. deild kvenna sigraði Týr—UBK,
Kópavogi, með 15—12. í bikarkeppni
meistaraflokks kvenna sigraði svo Þór,
Vestmannaeyjum, UBK með 18—11.
-FÓV.
stuðningi áhorfenda tókst Eyjamönn-
um að sigra nokkuð örugglega24—20.
Leikurinn var mjög harður og þurftu
dómararnir, Bjarni Hákonarson og
Pétur Þ. Gunnarsson átta sinnum að
vísa leikmönnum út af — þar af fimm
heimamönnum.
Bezti leikmaður Þórs, Vm. og vallar-
sins var Karl Jónsson. Mikill baráttu-
maður og batt vörnina vel saman. Þá
var Sigmar Þröstur góður i marki —
varði meðal annars þrjú vítaköst. Her
bert var einnig góður en þetta var þó
fyrst og fremst sigur liðsheildarinnar.
Hjá Þór Ak. var Pálmi Pálmason
frískastur. Sigtryggur og Benedikt áttu
einnig ágætan leik. Árni Stefánsson,
línumaðurinn snjalli, fékk ekkert
svigrúm að þessu sinni.
Mörk Þórs Vm. skoruðu Herbert
7/4, Gústaf 6, Ásmundur 5, Ragnar 3,
Karl 2 og Gestur 1. Mörk Akur-
eyrar—Þórs skoruðu Pálmi 7/2,
Benedikt 3, Hrafnkell 3, Sigtryggur 3,
Arnar 2 , Sigurður 1 og Árni 1. -FOV
urðu að yfirgefa leikvöllinn. HK- hafði um tíma fimm marka forustu
,,HK-liðið væri stórgott ef þar væri
meiri breidd,” sagði liðsstjóri FH,
Ragnar Jónsson, eftir að lið hans hafði
gert jafntefli við strákana úr Kópavogi
í 1. deild íslandsmótsins í handknatt-
leik í íþróttahúsinu að Varmá í gær,
19—19. Eins og leikurinn þróaðist voru
FH-ingar heppnir að hljóta stig í
leiknum — ná jafntefli, þó svo HK
jafnaði í 19—19 mínútu fyrir leikslok.
HK varð fyrir miklum áföllum í
leiknum. Þegar 25 mín. voru af leikn-
um meiddist Kristján Þ. Gunnarsson,
þegar hann skoraði sitt sjötta mark í
leiknum. Fór úr liði á fingri og var ekið
á slysavarðstofuna. Lék ekki meir en
FH-ingar höfðu átt í hinu mesta basli
með að stöðva Kristján — raunar ekki
Norðmenn
sigurvegarar
— í C-keppnimi í
handknattleik
Norðmenn sigruðu I C-keppni heims-
meistarakeppninnar í Færeyjum, sem
lauk á laugardag. í úrslitaleik keppn-
innar unnu Norðmenn Frakkland með
21—19 eftir 11—6 í hálfleik. í keppn-
inni um þriðja sætið sigraði Austurríki
ísrael 25—20 (11—10). Röð efstu
þjóða varð þvi 1. Noregur 2. Frakkland
3. Austurriki 4. ísrael og þessi lönd
leika í B-keppninni 1981. Portúgal varð
í fimmta sæti — sigraði Færeyjar 34—
25 í lokaumferðinni. Færeyingar höfðu
yfir I hálfleik 17—16. Þá sigraði Belgía
Luxemborg 25—19 (13—10) og Ítalía
sigraði Bretland 25—17 (12—4).
tekizt það. Um miðjan síðari hálf-
leikinn var Ragnar Ólafsson rekinn af
velli í þriðja sinn — og útilokaður það
sem eftir lifði leiks. Þar með hafði HK
misst tvo af máttarstólpum sínum frá
leiknum — og liö, sem hefur jafn fáum
sterkum leikmönnum á að skipa, má
ekki við slíku.
Lengi vel virtist stefna í öruggan
sigur HK-manna. Þeir voru miklu
ákveðnari en FH-ingar, sem illa
söknuðu Sæmundar Stefánssonar.
Börðust miklu betur ákaft hvattir af
áhorfendum — og að baki sér höfðu
þeir frábæran markvörð, Einar Þor-
varðarson, sem varði 13 skot i
leiknum. Markvarzla FH hins vegar í
molum lengstum. Þegar 40 min. voru
af leik hafði HK náð fimm marka for-
skoti, 17—12 og hafði möguleika á að
auka þann mun í sex mörk. Það tókst
ekki. FH minnkaði muninn hins vegar i
fjögur mörk og um miðjan hálfleikinn
var Ragnari vikið af velli. Eftir það átti
HK í vök að verjast — tveir af hinum
fáu aðalmönnum liðsins úr Ieik. Þó hélt
HK forustu þar til að fjórar mín. voru
eftir. FH jafnaði í 18—18 og spennan
var gífurleg. Rétt áður hafði Hilmar
Sigurgíslason skotið himinhátt yfir
FH-markið úr vítakasti. í annað sinn,
sem hann varð fyrir því. FH komst
yfir, þegar rúmar tvær mínútur voru til
leiksloka. Það dugði ekki. Fyrrum
Víkingurinn, Magnús Guðfinnsson,
jafnaði í 19—19 fyrir HK. Mínúta til
leiksloka en FH fann ekki glufu á vörn
Kópavogsliðsins. Þegar sjö sekúndur
voru eftir fékk FH aukakast og upp úr
því reyndi Geir Hallsteinsson skot, sem
fór í varnarvegginn. Um leið rann
tíminn út. Spennandi leik var lokið —
en að sama skapi ekki alltaf vel leikinn.
Baráttuvilji HK-manna er aðdáunar-
verður og liðið hefur nú fengið fimm
stig úr síðustu þremur leikjum sínum.
Ef liðið hefði ekki misst þá Kristján og
Ragnar af velli hefði það eflaust staðið
uppi sem sigurvegari þriðja leikinn í
röð.
En enginn má sköpum renna. Liðið
var óheppið að þessu leyti en það átti
þrjá beztu leikmennina i leiknum —
Kristján áður en hann meiddist, Einar
markvörð, og hinn bráðsnjalla Hilmar
Sigurgíslason. FH reyndi að taka hann
úr umferð mest allan leikinn — en gekk
illa að hemja Hilfnar. Hann var þrátt
fyrir gæzluna allt í öllu í sóknarleik HK
og skoraði sex gullfalleg mörk. Hins
vegar fór hann illa að ráði sínu með
vítaköstin.
FH-liðið var heldur dauft í þessum
leik — einn af lakari leikjum iiðsins á
mótinu. Baráttuvilji HK-manna virtist
setja ýmsa leikmenn liðsins úr jafnvægi
— sóknarleikurinn aldrei verulega
beittur. Lítið um fléttur, sem komu
vörn HK úr jafnvægi. Enginn skar sig
verulega úr — helzt að Valgarður og
Pétur sýndu eitthvað.
Góð byrjun HK
Eftir að Valgarður hafði skorað
fyrsta mark leiksins fyrir FH svöruðu
HK-menn með fjórum mörkum, 4—1.
Jón Einarsson var erfiður framan af —
en Magnúsi Teitssyni tókst að setja
undir. þann leka, þegar á leikinn leið.
Hafði Jón í strangri gæzlu. FH,
minnkaði muninn og tókst að jafna í
5—1. Komst síðan yfir 6—5. Hilmar
misnotaði víti hjá HK, en skoraði siðan
gull af marki. Jafnt 6—6 og HK hélt á-
fram sínum góða leik. Kristján Þ.
Gunnarsson óstöðvandi — skoraði
fimm mörk á stuttum tíma fyrir HK en
fór úr liði, þegar hann skoraði sjötta
mark sitt í leiknum — tólfta mark HK.
HK komst um tíma þremur mörkum
yfir, 9—6, en staðan í hálfleik 12—10
fyrir Kópavogsliðið. FH tókst ekki að
skora síðustu fimm minúturnar og voru
HK menn þó tveimur færri um tima.
HK byrjaði ntjög vel í síðari hálf-
leik. Komst i 14—10 og síðan 17—12.
Þá virtist HK-sigurinn vera innan
seilingar. En eftir að Ragnari var vikið
af velli fór að halla undan fæti. FH
gekk á lagið og jafnaði. Loka-
minútunum hefur áður verið lýst.
Mörk HK skoruðu Hilmar 6/1,
Kristján 6/2, Jón Einarsson 3, Magnús
2, Ragnar 1 og Kristinn 1. Mörk FH
skoruðu Valgarður 4, Kristján 4/3,
Hilmar Sigurgíslason, HK, — átti stór-
snjallan leik með liði sinu en urðu þó á
þau mistök að skjóta tvivegis himin-
hátl yfir úr vítaköstum. Ljósmynd
Bjarnleifur.
Guðmundur 3, Geir 3, Pétur 3, Magnús
logHansl. -hsim.
Gottogódýrt
Ærhakk
kr. 1.970.- pr. kg. \
Innihald
500-700 g ærhakk
1-2 stk. laukur
75 gr. sveppir
50 gr. smjörlíki
1 msk. tómatkraftur
1/4 tesk. karrý
1/4 tesk. paprika
salt, ostur
Tíllaga að matreiðsfu.
Ærhakkiðfœst í næstu
kjötbúð
ítalskur hakkréttur
Hakk, laukur og sveppir brúnað á vel
heitri pönnu i smjöri, kryddað.
Tómatkrafti bætt út i og e.t.v.
dálitlu af brúnni sósu ef til er. Allt
sett í eldfast mót eða form, ostinum
stráð yfir, bakað i vel heitum ofni
i 5-7 min. eða þar til osturinn er
bráðinn. Borið fram með spaghetti,
hrisgrjónum, bökuðum baunum, grófu
brauði, hræðrum kartöflum, hrásalati
eða öðru þvi er hugurinn girnist.
Kjötiðnaðarstöð Sambandsins
Kirkjusandi sírrú-.86366
HK — FH 19-19 (12-10)
Uiandsmótið í 1. deild karia, HK—FH19-19 (12—10) i íþróttahúsinu að Varmé 10. fabrúar.
Beztu menn Hilmar Sigurgislason, HK, 8, Einar Þorvarðarson, HK, 8, Kristján Þ. Gunnars-
son, HK, 8, Valgarð Valgarðsson, FH, 7, Pótur IngóHsson, FH 7.
HK. Einar Þorvarðarson, Bergur Þorgeirsson, Magnús Guðfinnsson, Kristinn Ólafsson,
Krístján Þ. Gunnarsson, Eriing Sigurðsson, Hilmar Sigurgisiason, Ragnar ólafsson, Berg-
sveinn Þórarínsson, Jón Einarsson, Gunnar Ámason, Kristján Guölaugsson.
FH. Sverrir Krístinsson, Valgarð Valgarðsson, Guðmundur Magnússon, Geir Hallsteinsson,
Pétur IngóHsson, EyjóHur Bragason, Ámi Ámason, Magnús Teitsson, Krístjén Arason, Hans
Guðmundsson, Hafsteinn Pétursson, Haraldur Ragnarsson.
Dómarar Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson, HK fékk 5 vitaköst Nýtti þrjú —
HHmar skaut tvivegis yfir. FH fékk 4 vftaköst. Nýtti þrjú — Einar varði eitt fré Kristjéni. Hjé
HK var Ragnari þrívegis vikið af velli, svo og Bergsveini i 2 min. Þremur FH-ingum. Hans, Pétrí
og Valgarði tvfvegis. Samtals étta min hjé hvoru Hði.