Dagblaðið - 11.02.1980, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980.
■nrai
HALLUR
SÍMONARSON.
Fjórtekin
vítaspyma
— þegar Ástralía
og Tékkóslóvakía
gerðu jafntefli
Ástralía kom mjög á óvart i landsleik
í knattspyrnu við Evrópumeistara
Tékka 1 Melboume á laugardag —
jafntefli varð 2—2 en það þurfti fjór-
tekna vítaspymu til. Hún var dæmd
snemma leiks vegna brots Anton
Ondrus, hins fræga varnarmanns
Tékka. Eddie Krncevic tók spyrnuna en
markvörður Tékka, Dusan Keketi,
varði. Hafði hreyft sig of fljótt og
spyrnan var endurtekin. Aftur varði
Keketi snilldarlega frá sama ieikmanni.
En það fór á sömu leið. Hafði hreyft
sig. Enn vítaspyrna. Ivo Prskalo
spyrnti þá framhjá en dómarinn hafði
ekki gefið merki — og Prsalko reyndi
aftur. Þá lá knötturinn í netinu —
leikurinn hélt áfram. Krncevic skoraði
síðara mark Ástraliu — en Karol
Dobias og Zdcnek Nehoda mörk
Tékka.
Barcelona
steinlá fyrir
Real M.
Enn tapar Barcelona í 1. deildinni í
knattspyrnunni á Spáni í gær á heima-
velli gegn Rcal Madrid og það svíður
sárt hjá ibúum Barcelona. Við sigurinn
náði Real á ný forustu í deildinni.
Úrslit.
Sevilla — Malaga
Atl. Madrid — Burgos
Bilbao — Hercules
Valencia — Sociadad
Vallecano — Salamanca
Barcelona — Real Mad.
Aimeria — Betis
Zaragoza — Espanol
3—1
1—0
2—1
0—0
1—2
0—2
1—1
1—1
Ætlar sér 5
gullverðlaun
Bandaríkjamaðurinn Eric Heiden,
sem í gær sigraði fjórða árið i röð i
heimsmeistaramótinu i skautahlaup-
um, sagðist eftir keppnina, vonast til
að hljóta fimm gullverðlaun á ólympíu-
lcikunum í Lake Placid, sem hefjast á
miðvikudag. „Það verður þó erfitt —
einkum í 500 m hlaupinu,” sagði
Heiden. HM varð háð i Milwaukee í
Bandaríkjunum og 500 m voru æsi-
spennandi. Þar sigraði Tom Plant,
USA, á 38.66 sek. Heiden og Peter
Mueller, USA, komu næstir á 38.69
sek. og fjórði var Norðmaðurinn
Frodde Rönning á 38.70 sek. Ekki var
langt í fimmta mann, Evgeni Kulikov,
Sovétríkjunum, sem hljóp á 38.73 sek.
Sjö mörk í
leik á Ítalíu!
Inter Milano vann Napoli 4—3 á úti-
velli í 1. deildinni á ttalíu i gær. Hæsta
markatala i leik í deildinni í þrjú ár —
og Inter hefur fimm stiga forustu.
Úrslit í gær.
Bologna — Avellino 1—0
Catanzaro — Cagliari 1—0
Lazio — Ascoli 0—1
ACMilano — Perugia 1—0
Napoli — Inter 3—4
Pescara — Fiorentina 1—2
Torino — Roma 1—0
Udinese — J uventus 1—3
Staða efstu iiða.
Inter 20 10 9 1 27—12 29
ACMilano 20 9 6 5 19—12 24
Juventus 20 10 3 7 25—20 23
Ascoli- 20 7 8 5 18—17 22
■ ! í
Valur höfuðlaus her
án Stebba fyririiða
- Fram gerði sér lítið fyrir og sigraði Val í 1. deild karla í
handknattieiknum 25-23 — Botnbaráttan á suðupunkti
Það hefur heldur belur færzt fjör í
botnbaráttuna i 1. deildinni í hand-
knattleiknum. Allt þar á suðupunkti og
fá liðin í deildinni, sem óbeint eru ekki
komin í fallbaráttuna. Fram gerði sér
lítið fyrir og sigraði íslandsmeistara
Vals 25—23 í bráðskemmtilegum leik i
Laugardalshöll í gærkvöld. Fyrsti sigur
Fram-liðsins á mótinu og mjög verð-
skuldaður. Sigurinn aldrei í hættu og
hefði átt að vera stærri. En það verður
að segjast eins og er, að Valsiiðið var
eins höfuðlaus her án Stefáns fyrirliða
Gunnarssonar, sem á við meiðsli í öxl
að stríða. Þá léku þeir ekki heldur
vegna meiðsla Olafur Benediktsson og
Björn Björnssonar, svo mikil forföll
voru hjá Valsmönnum.
. Það dregur þó ekki úr sigri Fram,
sem lék oft á tíðum mjög vel í leiknum
íen gaf verulega eftir undir lokin. Ekki
íþó svo að sigurinn kæmist i hættu. Atli
Hilmarsson átti stórleik hjá Fram. Það
Ivar sama hvað Valsmenn reyndu gegn
jhonum — Atli reif sig lausan og skor-
laði tíu mörk i leiknum. Hvert öðru
Iglæsilegra. Þó var reynt að taka hann
;úr umferð eftir að Atli hafði skorað
þrjú fyrstu mörk Fram í leiknum — en
jSteindór Gunnarsson náði sér aldrei
beint á strik í því gæzluhiutverki. Þá
kom kornungur markvörður, Snæ-
björn Arngrímsson, verulega á óvart í
marki Fram. Leikur með 2. flokki
félagsins og lék nú sinn annan leik í
jmeistaraflokki. Varði 13 skot í leiknum
eftir að hann kom inn á. Það hafði
'mikið að segja í Fram-sigrinum þvi
jBrynjar landsliðsmarkvörður Kvaran
;var ekki sjálfum sér líkur í Vals-
markinu. Varði lítið sem ekkert en
jgamla kempan, Jón Breiðfjörð Ólafs-
json, kom í hans stað lokakafla leiksins.
ÍVarði talsvert og þá saxaði Valur mjög
!á forskot Fram
j Það sást oft góður handknattleikur í
þessum leik — einkum framan af og
spenna var mikil. Áhorfendur fengu
vissulega mikið fyrir peninga sina og
hróp þeirra voru mikil, þegar Fram-
sigurinn var að komast í hús. Hins
vegar verður að segjast að það er
furðulegt að þetta skyldi vera fyrsti
sigur Fram í I. deildinni í vetur — eins
vel og liðið getur leikið. Það hefur oft
náð góðu forskoti i leikjum sínum áður
en glatað því niður — og því voru
áhorfendur allt annað en öruggir um
sigur liðsins þó það væri fimm til sex
mörkum yfir um miðjan síðari hálf-
leikinn. En það dugði þó munurinn
væri aðeins tvö mörk í lokin — Fram
tókst loks að leika heilan leik á viðun-
andi hátt.
Mikið jafnræði framan af. Allar
jafnteflistölur upp í 6—6 þar sem Fram
skoraði alltaf á undan. Síðan komst
Fram yfir 8—6 á 21.mín. og hafði eftir
það alltaf forustu í leiknum. Val tókst
þrivegis að minnka muninn í 1 mark í
hálfleiknum en lokakafli Fram var
góður. Atli skoraði þá þrívegis og
Hilmar eitt mark en Bjarna tókt aðeins
að svara fyrir Val. Staðan í hálfleik
14—lOfyrir Fram.
Valur skoraði tvö fyrstu mörkin í
siðari hálfleik, 14—12, og þá héldu
flestir að gamla sagan hjá Fram væri að
endurtaka sig — liðið að gefa eftir. En
það var nú eitthvað annað. Fram
skoraði næstu fimm mörk og staðan
breyttist í 19—12. Sjö marka munur og
með þeim stuðningi sem Fram fékk frá
áhorfendum gat liðið ekki tapað öllum
þeim mun niður.
Þó var enginn viss, þegar fjór-
tán mínútur voru til leiksloka
höfðu Valsmenn minnkað muninn í
4 mörk, 20—16 fyrir Fram. Jón H.
Karlsson laumaði þá inn nokkrum
lausum boltum, sem Snæbjörn réð
ekki við, meðan hann hins vegar varði
þrumuskotin. En Egill Jóhannesson og
Atli skoruðu næstu tvö mörkin fyrir
Fram. 22—16 og rúmar 10 mín. eftir
Þáloks trúðu menn á sigur Fram.
Fram hafði Fimm mörk yfir 24—19,
þegar fimm mínútur voru eftir og
skoraði aðeins eitt mark, það sem eftir
lifði leiks gegn fjórum mörkum Vals-
manna. Fram lék þá rólega. Leikmenn
liðsins hugsuðu mest um að hala
sigurinn í land þó svo munurinn
minnkaði við það. Lokatölur 25—23 i
góðum og skemmtilegum leik, sem
áhorfendur kunnu að meta þó vissulega
hafi Valsliðið oft leikið betur. Meiðsli
settu strik i reikninginn hjá því.
Mörk Vals skoruðu Þorbjörn Guðm.
5/1, Stefán Halldórsson 5/5, Brynjar
4, Jón 3, Bjarni 3, Þorbjörn Jensson,
Steindór og Gunnar eitt hver. Mörk
Fram Atli 10, Erlendur 6/5, Andrés 5,
Hannes 3 og Egill 1.
-hsím.
Best í bann
„Það var í samningi okkar við
George Best að hann kæmi hingað á
miðvikudögum til að geta æft með leik-
mönnum Hibernian á fimmtudögum
og föstudögum. Hann hefur ekki sézt
hér og mér þykir fyrir því að félagið
hefur þurft að setja hann í leikbann,”
sagði formaður Hibernian, Tom Hart,
í Edinborg á laugardag. Best lék ekki
með Hibernian í sigurleiknum gegn
Morton — og ekki er vitað hvar þessi
frægi, írski knattspyrnumaður, sem
gerði garðinn frægan hjá Man. Utd.
heldursig nú.
Þjálfari til ÍBK
Keflvíkingar hafa átt í miklum erfið-
leikum með að fá þjálfara fyrir
meistaraflokk sinn í knattspyrnu. Þeir
lögðu mjög fast að Guðna Kjartanssyni
að taka að sér starfið, en nú er úti um
það, hann verður landsliðsþjálfari. All-
miklar likur eru loks taldar á því að úr
sé að Vætast hjá ÍBK ; John Mac
Kernan, ungur Skoti, er talinn mjög
líklegur. Verður úr því skorið í kvöld
hvort hann verður ráðinn. Mac Kernan
þekkir vel til ÍBK. Hann þjálfaði yngri
flokka þess árið 1972 með góðum
árangri og þekkir þv^ vel allar
aðstæður og piltana lika, en margir
sem skipa meistaraflokkinn núna voru
undir hans handleiðslu þá. Mac Kernan
hefur síðan stundað þjálfaranám hjá
Udo Lattek, sem þjálfaði Bayern
Munchcn á þess mestu velgengnisár-
um. Vegna þessarar fréttar má geta
þess, að Völsungar á Húsavík taldi að
McKernan væri á góðri ieið með að
koma til félagsins.
-emm.
Valur — Fram 23-25 (10-14)
íslandsmótifl i 1. deild karla i handknattleik, Valur-Fram 23—25 (10—
14) í Laugardalshöll 10. febrúar.
Beztu leikmenn. Atii Hilmarsson, Fram, 9, Snæbjöm Ásgrimsson,
Fram, 8, Brynjar Harðarson, Val, 7, Andrés Bridde, Fram, 7, Erlendur
Daviflsson, Fram, 7.
Valur. Brynjar Kvaran, Jón Breiðfjörfl Ólafsson, Þorbjöm Jensson,
Jón H. Karlsson, Steindór Gunnarsson, Bjami Guðmundsson, Þor-
björn Guðmundsson, Hörflur Hilmarsson, Brynjar Harflarson, Gunnar
Lúðvíksson, Gfsli Arnar Gunnarsson, Stefón Halldórsson.
Fram. Sigurður Þórarinsson, Snæbjöm Arngrimsson, Sigurbergur
Sigsteinsson, Atli Hilmarsson, Birgir Jóhannesson, Bjöm Eiriksson,
Jón Ámi Rúnasson, Jóhann Kristinsson, Egill Jóhannesson, Erlendur
Daviðsson, Andrós Bridde, Hannes Leifsson.
Dómarar Ámi Tómasson og Óli Olsen. Valur fókk sjö víti — nýtti
sex. Snæbjörn varfli fró Þorbirni G. Fram fókk sjö vítaköst. Nýtti
sex. Erlendur skaut framhjó. Einum Valsmanni var vikið af velli, Þor-
birni J. Fjómm úr Fram, Andrósi, Erlendi, Sigurbergi og Atla.
Atli Hilmarsson gnæfir hátt yfir varnarmi
i leiknum.
Ármaim vam
— en Keflvíkinga
kæra úrs
Körfuknatlleikur 1-dcild ÍBK-Ármann, 96—97 (34—
48)
Armenningar mega prísa sig sæla að
hafa sigrað IBK syðra á laugardaginn,
með aðeins einu stigi, 97—96. Kemur
það til af tvennu. í fyrsta lagi að
Guðbrandur Sigurðsson dómari
reyndist heldur betur glámskyggn i
leiknum, dæmdi körfu án þess að
knötturinn færi i körfuna, — ekki
„tæknikarfa” og alveg undir lok
leiksins, dæmdi hann körfu af ÍBK,
sem greinilega var gild, en þess i stað
fengu heimamenn tvö vítaköst. Þjálf-
arinn nýi hjá ÍBK, Monnie Ostrom,
hitti aðeins úr öðru vítakastinu, en
þurfti tvö til jöfnunar og þá
framlengingar. 97—96 urðu því loka-
tölurnar sem birtust á Ijósatöflunni.
Brynjar Harðarson, Val, svífur inn i vitateig Fram með miklum tilþrifum og skorar á glæsilegan hátt. DB-mynd: Bjarnleifur.
Sagt er að ekki tjái að deila við
dómarann en eftir að hafa horft á
leikinn af myndsegulbandi, ásamt
dómurunum, þá hefur ÍBK ákveðið að
leggja fram kæru, þar sem greinilega
kemur fram að knötturinn fór aldrei í
körfuna í umdeildu atviki. Mun þetta
-verða prófmál um slíkt atvik. Leiknum
er því ekki lokið ennþá og verður
fróðlegt að fylgjast með niðurstöðum
dómstólsins, sem verður í héraði.
Annars er vart hægt að segja að um
leik Ármanns og ÍBK haft verið að
ræða, miklu fremur ÍBK og Danny
Shouse, sem skoraði 67 stig af 97.
Heimsmet í
1500 metram
Mary Decker, USA, setti nýtt heims-
met innanhúss í 1500 m hlaupi á laugar-
dag i Madison Square Garden í New
York. Hljóp vegalengdina á 4:00.8
mín. Eldra metið, 4:03.0 mín átti
Natalia Maracescu, Rúmeniu. Decker,
sem er 21 árs frá Kaliforníu, setti
heimsmet i míluhlaupi utanhúss i Nýja-
Sjálandi i janúar. Hljóp miluna á
14:21.7 mín.