Dagblaðið - 11.02.1980, Síða 28

Dagblaðið - 11.02.1980, Síða 28
28 r DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBRÚAR 1980. SYNILEGT LEIKHUS 0G OSYNILEGT Kenningar Augusto Boal — 3. grein I undangengnum tveimur greinum hefur verið gerð nokkur grein fyrir þeim kenningum leikhúsmannsins Augusto Boai er miða að því að breyta áhorfandanum úr óvirkum aðila innan leikhúsatburðarins í þátt- takanda í honum. Þetta er eitt megin- alriðið í leikhúskenningum Boals og þessa umbreytingu segir hann eiga að gerast í fjórum stigum. Um hin fyrstu þrjú þessara stiga hefur þegar verið rætt og í þessari siðustu grein verður vikið að fjórða stiginu sem Boal nefnir umræðuleikhús. Hin fyrri þrjú stig Boals eiga það kannski einkum sameiginlegl að þau eru öll á ein- hvern hátt undirbúningur fyrir leik- listaralburðinn um leið og þau eru vitaskuld leiklistaratburður. En fjórða stigið er hins vegar meira ,,til- búið” leikhús. Alþýðan vill tilraunir Því hefur verið haldið fram að borgaralega leikhúsið — leikhús ríkj- andi stéttar — sé hið tilbúna leikhús. Þetta er rökstutt á þann hátt að borg- ararnir þekkja heiminn þegar, sinn heim, og þeim er þess vegna kleift að sýna endanlegar og algildar myndir af honum. Verkalýðurinn og hinar kúguðu stéttir hafa hins vegar enga hugmynd um hvernig þeirra heimur kemur til með að líta út og af því leiðir að leikhús þessara stétta hlýtur að vera undirbúningur en ekki tilbú- inn alburður. Ofanritað er ekki frá Boal sjálfum komið en hann segir að vel megi sitthvað vera rétt í þvi og hann bætir við: -Aðeins-------------- hiáokkur Nýtt permanent frá París CLEO er þaö nýjasta CLEO er það bezta fyrir allar tegundir hárs. Jafnt fyrir dömur sem herra Rakarastofan ROMEO Glæsibæ — Pantanasími33444. Forstaða Styrktarfélag vangefinna óskar eftir að ráða starfskraft til að veita forstöðu sambýlum félags- ins í Reykjavík. Æskileg menntun þroskaþjálfun eða önnur uppeldismenntun. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Nánari upplýs- ingar á skrifstofu félagsins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist skrifstofunni, Laugavegi 11 Reykjavík, fyrir 20. þ.m. Styrktarfélag vangefinna. V ^ *J#'ICKentmere ^ 1\K Kentmere Ijósmyndapappír ..Pappírinn sem fagmennirnir nota“ 1. Fyrsta flokks gæði 2. Plasthúðaður pappír 3. Fjögur hörkustig 4. Glans. hálf-mattur og hamraður Utsölustaöir: GEVAF0T0 MflTS WIBE LUND MYNDAHUSIÐ (Hafnarfiröi) PEDRO-MYNDIR (Ak ureyri) Kynnið yður möguleika og gæði Kentmere Ijósmyndapappírs! STORKOSHLGA LJOSMYNDASAMKEPPNI Allar nánari upplýsingar varöandi keppina eru veittar í ofantöldum Ijósmyndavöruverslunum. Þessi mynd er af einu þekktasta dæmi um ósýnilegt leikhús á Vesturlöndum. Hópur fólks I Stokkhólmi fékk sér sæti við borð úti á gangstétt, en færði sig út á umferðargötu, eftir að gangandi vegfarendur höfðu amast við þeim. Stöðvun bflaum- ferðarinnar varð siðan grundvöllur umræðu um „bilismann” og hlut fólks I nútimaumhverfi. Svo kom lögreglan... ,,í öllu starfi mínu í fjölmörgum ríkjum rómönsku Ameríku hef ég orðið var við hið sama. Áhorfendur alþýðustéttanna hafa umfram allt áhuga á tilraurium, að gera tilraunir, og þeim leiðast hefðbundnar leiksýn- ingar. Þá reyna þeir að ræða við leik-- arana, trufla í stað þess að bíða „vel uppaldir” þangað til leiknum er lok- ið.” Andstætt við hið borgaralega uppeldi leggur Boal áherslu á að ein- mitt þessir áhorfendur séu örvaðir og hvattir til að spyrja, ræða saman og taka þátr. Að sk ipta sér af atburðarás í tillöguleikhúsinu, styttuleikhús- inu og úrlausnarleikhúsinu er ekki um að ræða endanlega leikhúsat- burði.það er, upphafiðer Ijóst en end - irinn ekki af því áhorfandinn er frjáls, honum leyfist að skipta sér af, hann tekur sjáífur þátt í atburðarás- inni, og á endanum tekur hann að sér aðalhlutverk. Þessar Ieikhúsgerðir samsvara þörfum áhorfenda úr al- þýðustétt og þess vegna hefur Boal reynt þær með afar góðum árangri í löndum rómönsku Ameríku. En hann segir hins vegar að þetta þurfi ekki að vera þrándur i götu þess, að þessir áhorfendur spreyti sig á meira „tilbúnum” gerðum leik- hússins. Tilraunir í þá átt hafa einkum gefist vel í Argentinu og Brasiliu og sýnt ágætan árangur. i bók sinni, sem hér er vitnað í, nefnir Boal sjö slikar leikhúsgerðir en þar sem rýmið er takmarkað verður hér aðeins drepið á þrjár þessara leikhús- gerða: Blaðaleikhús, ósýnilegl leik- hús og rnyndasöguleikhús. Flett ofan af myndasögum Blaðaleikhúsið felst í því að með mismunandi tækni er dagblaðsfrétt- um breytt úr óleikrænu efni i leik- rænt og þannig reynt að varpa nýju ljósi á það sem í fréttinni stendur, auk þess sem má nýta annars konar efni (mannkynssögu, söngva, leik, Ijósmyndir o.fl.) til að Ijóstra upp um sannleiksgildi fréltarinnar. Leikari getur t.d. flutt frétt frá fjármálaráð- herra þar sem hann hvetur til aukins sparnaðar. Um leið situr hann við ríkulega úlbúið matarveisluborð og þannig opinberast okkur að fjár- málaráðherrann hvetur aðra en sjálfa sig til sparnaðar. Fleiri möguleikar eru einnig fyrir hendi. Myndasöguleikhúsið hefur það hlutverk að fletta ofan af myndasög- um. Þátttakendur fá í hendurnar texta úr einhverri myndasögu. Oft er um slíka texta, þegar búið er að rýja Leiklist Jakob S. Jónsson þá manna- og staðarnöfnum, sem annars gera það að verkum að menn átta sig á því hvaðan þeir eru komnir, að innihald þeirra er fjarska almenns eðlis. Myndirnar skera úr um hug- myndafræðilegt inntak þeirra. Text- inn er æfður eins og leikrit og þátt- takendur sviðsetja sjálfir. Þá kemur í Ijós að textann hafa þeir selt í allt annað samhengi en það sem var fyrir hendi i myndasögunni sjálfri. Þátt- takendurnir fá nú upphaflegu myndasöguna, sem textinn var fenginn úr, og munurinn er ræddur. Þessi gerð leikhúss hefur verið reynd með mjög góðum árangri og texti hefur jafnvel verið fenginn úr ýmsum miður merkilegum serium í sjón- varpi. Að vita ekki af leikhúsinu Ósýnilega leikhúsið er sennilega það leikhús Boal er mesta alhygli hefur vakið hér á Vesturlöndum. Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti þess og reyndar eru menn alls ekki sammála um ágæti leikhúskenninga Boals að öllu leyti hér á Veslurlönd- um. En víkjum að ósýnilega leikhús- inu. Hér er um það að ræða að sá sem að öðru jöfnu yrði áhorfandi i leik- húsalburði verður þátttakandi af því hann veit ekki að um leikhúsatburð er að ræða. Því er það að leikhúsgerð þessi er nefnd ósýnileg. Ósýnilegu leikhúsi er ætlað að „springa” í mannfjölda, að honum óviðbúnum. Staðurinn getur verið til dæmis veit- ingahús, biðröð, fjölfarin gata, stór- markaðsverzlun eða kvikmyndahús. Það fólk sem viðstatt er hinn ósýni- lega leikhúsatburð má aldrei renna grun í að um leikhúsalburð sé að ræða. Þá bregða menn sér strax í hið virka áhorfendahlutverk og hugsari- leg áhrif ósýnilega leikhússins farin með öllu fyrir bí. Að skiptast á skoðunum Leikararnir verða að vera viðbúnir beinum afskiptum viðstaddra af því sem gerist. Hins vegar er um að ræða handrit (a.m.k. að einhverju leyti) til að leikurum sé kleift að hefja leikinn og varpa þegar í upphafi fram þeim skoðunum og röksemdum sem styr- inn á að standa um. Það er sumsé ákveðinn texti til staðar, sem leikar- arnir æfa áður en leikhúsatburðurinn á að eiga sér stað, en sá texti hlýtur að breytast ef vel tekst til og viðstaddir skipta sér af því sem gerist. Sem Ijómandi dæmi um ósýnilegt leikhús nefnir Boal þegar honum var eitt sinn ætlað að flytja fyrirlestur um fyrir- bærið. Hann fékk nemendur sina, sem hann hafði áður unnið með, til að undirbúa ósýnilegan leikhúsat- burð. Réttindi barna Þegar fyrirlestur hans hófst stóð einn fundargesta á fætur og vakti at- hygli á bamaskaranum, sem var í fylgd með foreldrum sínum og fór fram á að börnin yrðu send fram svo áheyrendur gætu betur notið fyrir- lestrarins. Þetla gerðist í Sviþjóð en þar eru réttindi barna virt mjög i hvívetna, i orði og á borði. Þegar í stað spratl annar fundargestur á fætur og mót- mælti þessu harðlega. Ef börnin vildu ættu þau að fá að vera í fundar- salnum rétt eins og aðrir. Fyrr en varði var allur salurinn farinn að loga af heift og bræði og þá tóku leikar- arnir, sem höfðu undirbúið þetta ósýnilega leikhús, sig til, gengu upp á sviðið og hneigðu sig, rétt eins og ge’rt er í lok hefðbundinnar leiksýningar. Boal, sem ekki er sænskumælandi, jók svo vitaskuld áhrifjn með þvi að spyrja við og við á ensku, hvað á gengi. Og fleiri orða var ekki þörf. Nú er það hins vegar svo að leik- húshugmyndir Boals eru sprottnar upp úr aðstæðum gerólíkum þeim sem við eigum að venjast hér á Vesturlöndum og því má vel spyrja hvort nokkur ástæða sé til að vekja máls á þeim hér í heimi; er þetta ekki eitthvað sem hentar bara aðstæðum í rómönsku Ameríku? Boal svarar þessu afdráttarlaust neitandi. Hann segir að leikhús hinna kúguðu eigi ágætlega við hér sem þar. Hér sé að vísu til staðar annars konar kúgun og öðruvísi baráttuað- ferða sé e.t.v. þörf til að vinna bug á þeirri kúgun. En meðan kúgunin er þarf áð berjast gegn henni, hvort sem hún beinist gegn konum, börnum eða verkalýð, hvort sem hún er menn- ingarlegs eðlis eða hugmyndafræði- legs. Og meðan svo er, segir Boal, þá er jrörf á leikhúsi til handa hinum kúguðu.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.