Dagblaðið - 11.02.1980, Síða 31
(i
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. FEBl^ÚAR 1980.
Útvarp
31
9
Sjónvarp
(Jr leikritinu Ferdin til San Michele, frá vinstri: Toivo Pawlo sem AxelMunthe, Jan Blomberg sem Gústaf konungur og
Ingvar Kjellson sem Sven Hedin.
FERDIN HL SAN MICHELE — sjónvarp kl. 21.15:
Draumaferðin
sem aldrei er farin
„Leikritið fjallar um siðustu ævi-
daga Munthes og byggist að mestu
upp á töluðu orði. Það ér afskaplega
hæg atburðarásin en mér finnst mjög
gaman að þessu leikriti,” sagði Dóra
Hafsteinsdóttir þýðandi sænska sjón-
varpsleikritsins Ferðin lil San Mic-
hele 'sem sjónvarpið sýnir kl. 21.15 i
kvöld.
Leikritið er eftir Ingrid Dahlberg.
Leikurinn á að gerast árið 1947. Axel
Munthe er frægur rithöfundur. Hann
hefur búið í fjögur ár í Stokkhólms-
höll í boði Gústafs konungs.
Áður bjó Munthe í San Michele á
Kaprí . Þaðan hraktist hann þegar
stríðið brauzt út. Nú að lokinni styrj-
öld hyggst hann halda til fyrri heim-
kynna.
,,í leikritinu er hann að undirbúa
ferð sina til San Michele. Það eru þó
alltaf einhver ljón áveginum. Þegar
lestarferðir eiga að hefjast til Rómar
hugsar hann sér að fara með lestinni.
En heilsan leyfir honum það ekki.
Síðan ákveður hann að fljúga en
hann er of hjartveikur til þess.
Maðurinn er hálfblindur, hann er
orðinn fullorðinn, en samt éldhréss.
Leikritið segir aðallega frá þessum
draumum hans til að komást til San
Michele,” sagði Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
Með aðalhlutverk í leikritinu,-sem
er klukkustundar lahgf, fara Toivo
Pawlo, Jan Blomberg og Ingvar
Kjellson. Leikstjóri er'Johan Bergen-
stráhle.
- ELA
L0G UNGA FÓLKSINS
— útvarp kl. 20.40:
„Ætli ég fari ekki
að jiætta þessu”
- segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
„Nei, það er ekki rétt að Lög unga fólksins séu „ritskoðuð”, en það hefur komið til
tals,” sagði Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir umsjónarmaður þáttarins i samtali við
DB.
„Það eru alltaf fleiri og fleiri bréf sem berast þættinum. Ég kemst ekki yfir að lesa
helming af öllum þeim kveðjum semberast né spila öll þau lögsem beðiðer urn.
Krakkarnir eru alltaf að biðja um að jíátturinn verði lengdur en það hefur ekki
fengið neinn hljómgrunn hjá útvarpsráði.”
— Nú hefur þú, Ásta, verið svo lengi með þáttinn, ertu ekki orðin leið?
„Nei, ég er nú kannski ekki mjög leið. Ætli ég fari nú samt ekki að hætta þessu."
Aðspurð hvaða lag væri nú vinsælast í þættinum sagði Ásta. „Þaðer tvimælalaust
lagið um Nínu og Geira. Ef ég ætti að lesa allar kveðjur með þvi lagi tæki það
tuttugu og fimm mínútur.”
Lög unga fólksins er með allra vinsælasta efni útvarpsins. Þrátt fyrir það sér út-
varpsráð ekki ástæðu til að lengja þáttinn. Þykir það koma nokkuð spánskt fyrir
sjónir þar sem ekki er um mikið efni að ræða fyrir unglinga i útvarpinu. En hvað
segir Ásta um lengingu þáttarins?
„Auðvitað er það ekki mitt mál hvort þátturinn verður lengdur eða ekki. Ég hef
því visað á útvarpsráð. Annars er mér alveg sama hvað hann er langur. Það y.rði bara
meiri vinna fyrir mig ef þátturinn yrði lengur.”
- ELA.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir umsjónarmaður Laga unga fólksins.
DB-mynd Hörður.
UM
HELGINA
„EKKERT ER VERRA EN
VONDUR KOKKUR”
Eins og fyrri daginn þegar ég hef
fengið það hlutverk að skrifa um
dagskrá ríkisfjölmiðlanna varð lítið
úr útvarpshlustun. Þó hlustaði ég á
þáttinn í vikulokin á laugardag og
varð svo sem ekki fyrir vonbrigðum.
Mér finnst sá þáttur hafa sett mikið
ofan í haust, þegar skipt var um
stjórnendur. Það er þó til bóta þegar
hætt var að hringja alls konar asnaleg
símtöi, eins og var í þáttunum fyrr í
vetur. — Ég hlustaði einnig á þátt
Svavars Gests, eins og ég reyni jafnan
að gera. Hann var prýðilegur að
vanda. Svavar er góður útvarps-
maður, jafnvel þótt hann sé
kvefaður.
Kvikmyndirnar i sjónvarpinu um
helgina voru hreint aldeilis ágætar.
Myndin á föstudaginn var alveg frá-
bærlega góð, bæði var efnið áhuga-
vert, hún var vel leikin og „falleg”.
Laugardagsmyndin var nokkuð
smellin, þótt hún væri dálítið barna-
leg, — eöa kannske dálitið
„amerísk” eins og amerískar myndir
voru fyrir nokkrum árum. Samt
mátti vel horfa á hana. Þátturinn
með Cleo Laine var fínn. íslendingar
þekkja Cleo Laine nokkuð vel, hún
hefur minnsta kosti komið hingað
tvisvar á listahátíð og er eftirlæti
fléstra'landsmanna. Ég hef svo oft
áður minnzt á hve mér þykir gaman
að þættinum um læknana í Kóreu,
svo það þarf ekki að minnast á það
hér. Þeir brugðust ekki frekar en
fyrri daginn.
Ég komst ekki til að horfa á sjón-
varp fyrr en í fréttum á ‘sunnudags-
kvöld. Strax á eftir þeim kom þáttur-
inn um íslenzkt mál.
Mér finnst að of mikil umgjörð sé
þar um frekar lítið efni, þótt oft sé
gaman að því sem þar ber fyrir augu.
Nokkuð mikið var um auglýsingar
í gærkvöldi, — þær voru þó ekki sér-
lega leiðinlegar, eða kannski ég hafi
bara verið svona vel fyrirkölluð. Mér
þykja auglýsingarnar frá Mjólkur-
samsölunni og Osta og smjörsölunni
alveg frábærar. Dálítið dularfullt
samt að verja miklu fé til auglýsinga
á vöru sem í rauninni skiptir engu
máli hvort selst eða ekki! Neytendur
borga brúsann hvort eð er. —
Kannske er betrafyrir okkur að borða
alla mjólkurvöruframleiðsluna sjálf
til þess að þurfa ekki að greiða
útflutningsuppbætur!
Markúsi veðurfræðingi tókst að
gera fræðsluþátt um veðurfræði
alveg frábærlega skemmtilegan og
fróðlegan. Það er vel við hæfi að
fræða íslendinga um veðurfræði og
gott er að gera sér grein fyrir þvi að
hér á landi væri ekki fýsilegt að búa
ef engar væm læeðirnar.
Og svo kom aðalrúsínan í pylsu-
endanum: Nýi „húsbænda og hjúa”
þátturinn. Nú er sunnudagskvöldum
framtíðarinnar bórgið. Þátturinn var
alveg frábærlega skemmtilegur, eins
og landsmenn hafa sennilega átt von
á. Þarna geta menn lært ýmislegt
gagnlegt i sambapdi við matreiðslu. í
Ijós kom að „matargerð er list” og
að „ekkert er verra en vondur
kokkur”.
Eins og við höfum svo sem ekki
vitað það, —vfð sem vinnum og
störfum í „tilraunaeldhúsi” DB.
-A.Bj.
ANDRÉE-LEIÐANGURINN
— útvarp kl. 17.20: r
AFDRIFARIKA
FERDIN HEFST
,, - . „„AaSWw- . •
Þessi mynd er af loftbelgnum sem Andrée og félagar ætluðu I til norðurheim-
skautsins. Hér leggur hann upp frá Virgo-höfn á Svalbarða 1897.
í dag kl. 17,20 verður flultur annar
þáttur framhaldsleikritsins Andrée-
leiðangurinn eftir Lars Broling í þýð-
ingu Steinunnar Bjarman.
í fyrsta þættinum var sagl frá
undirbúningi að leiðangri Andrées
sem ætlar að verða fyrstur til að
komast í loftbelg á norðurheimskaut-
ið.
í þættinum í dag er Andrée ásamt
félögum sínum á fallbyssubáti flot-
ans, Svensksund, á leið norður til
Svalbarða. Þar á sjálf loftbelgsferðin
að hefjast.
Skýli, sem reist hafði verið fyrir
belginn árið áður, hefur skemmzt og
þarfnasl iagfæringa. Það tekur sinn
tima. Auk þess þarf að haga sér eftir
veðrum og vindi.
Loks tekst þeim Andrée, Frænkel
og Strindberg að komast á loft. En þá
þegar í byrjun gerist atvik sem á eftir
að hafa örlagarikar afleiðingar.
Leiksljóri er Þórhallur Sigurðsson
og með hlutverkin fara, Jón Júlíus-
son, Þorsleinn Gunnarsson, Hákon
Waage, Jón Gunnarsson, Hjalti
Rögnvaldsson, Róbert Arnfinnsson,
Flosi Ólafsson og Aðalsteinn Berg-
dal. -ELA.