Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 11.02.1980, Qupperneq 32

Dagblaðið - 11.02.1980, Qupperneq 32
Srjálst, úháð daghlað MANUDAGUR 11. FEBRUAR 1980. Akureyri: Féll niöur um lyftugat Maður féll niður um lyftugat á skemmtistaðnum H-100 á Akureyri aðfaranótt laugardags. Unnið er að uppsetningu lyftu á staðnum og hafði hurð að lyftuganginum því líklega verið skilin eftir ólaest. Maðurinn komst þar inn og féll niður um lyftugatið. Fallið var talsvert hátt þó maðurinn dytti aðeins af annarri hæð. Lyftu- gólfið er sem sé 2 metíum fyrir neðan jarðhæð og þar fullt af hvers kyns stýribúnaði sem maðurinn lénti á. Hann var þegar i stað fluttur á sjúkra- húsið á Akureyri en meiðsli hans voru það alyarleg að hann var fluttur þaðan suðurtil Reykjavikuri Uugvél. -DS. Fimm unglingar slösuðust í útafakstrí — Ökumaðurinn reyndist 13 ára gamall Fimm unglingar slösuðust meira og minna er bíll sem þeir höfðu tekið ófrjálsri hendi fór út af sunnan við Kópavogsbrúna um tíuleytið á laugar- dagskvöldið. Einn unglinganna hlaut talsvert alvarlegt höfuðhögg en er þó ekki talinn I lifshættu. Þrettán ára gamall drengur viðurkenndi að hafa verið undir stýri þegar óhappið varð. Hafði hann tekið bíl föður sins traustataki er foreldrar hans voru að heiman og boðið öðrum unglingum í ökuferð með sér. Mikil hálka var er slysið varð. Bíllinn fór margar veltur er út af veginum kom og er talinn ónýtur eftir óhappið, enda vegarbrúnin há og grýtt meðfram veginum. -A.St. Mikið um innbrot um helgina Mikið hefur verið um innbrot um helgina og voru rannsóknarlögreglu- menn í Reykjavík önnum kafnir í morgun við rannsókn slikra mála. Var tilkynnt um sex innbrot í morgun og önnur sex voru framin fyrr um þessa helgi. Á einum stað, Laugavegi 95, var peningum stolið, iitsjónvarpi á Njáls- götu, tóbaki úr söluskála við Bók- hiöðustíg, útvarpstækjum á nokkrum stöðum auk þess sem farið var inn í Fjölbrautaskólann í Breiðholti og sundlaugina í Breiðholti. -A.St. LUKKUDAGAR: 10. FEBRÚAR: 23514 Kodak Pocket A1 myndavél. 11, FEBRÚAR: Sharp vasatölva Cl. í * 6319 Vinningshafar hringi í síma 33622. Hart deilt á 12 stunda fundi sjálfstæðismanna: Skipzt á þungum skotum á fhkksráðsfundinum Harðvítugar deilur geisuðu á flokksráðsfundi sjálfstæðismanna I gær. Fundurinn stóð fram yfir klukkan þrjú í nótt eða I alls tólf klukkustundir, þegar tekið er tillit til þess að gert var um klukkustundar kvöldmatarhlé. Skotin voru oft hörð. Margir gagnrýndu Gunnar Thoroddsen og sökuðu hann um klofningsstarfsemi, en allmargir töluðu einnig máli Gunnars. Geir Hallgrímsson for- maður flokksins sætti einnig mikilli gagnrýni úr ýmsum áttum. „Það var áberandi, hvað Geir var mikið gagnrýndur,” sagði einn fund- armanna í morgun. í gagnrýninni á Gunnar Thorodd- sen voru þau hörðust Sverrir Her- mannsson alþingismaður, Matthias Bjarnason alþingismaður, Halldór Blöndal alþingismaður og Ragn- hildur Helgadóttir. Sverrir las upp úr vasabók sinni og virtist hafa vitað af tilraunum Gunnars til stjórnarmyndunar strax frá byrjun. Með Gunnari töluðu einkum ráðherrarnir Pálmi Jónsson og Friðjón Þórðarson, Björn Arason, Borgarnesi, Árni Helgason, Stykkis- hólmi, og Stefán Jónsson, Kagaðarhóli. Ekki var annað að sjá en vel færi á með sjálfstæðisþingmönnunum úr Norðurlandskjördæmi vestra, þeim Pálma Jónssyni ráðherra og Eyjólfí Konráð Jónssyni. Myndin var tekin f upphafi flokksráðsfundarins i gær. DB-mynd Bj. Bj. Björgúlfur Guðmundsson og margir fleiri mæltu fyrir sáttum. AIIs voru fluttar um 30 ræður. Engar kröfur komu fram um brottrekstur Gunnars og hans manna úr flokknum. Fram kom, að Gunnar og hans menn hyggjast vera áfram í Sjálf- stæðisflokknum og sitja þar fundi, meðal annars þingflokksfundi. -HH. ' Stjörnuhljómsveitin á œfingu: Kristinn Svavarsson saxófónleikari (í miðið) les yfir slnum mönnum. Frá vinstri eru: Friðrik Karlsson, Björn Thorarenseh, Gunnlaugur Briem (sitjandi), Daói Einarsson, Kristinn Svavarsson, Jóhann Ásmundsson og Eyþór Gunnarsson. Á myndina vantar Andrés Helgason. DB-mynd: Ragnar Th. Stjömumessa DB og Vikuimar 1980: UNDIRBUNINGUR A L0KAS11GI Fátt er nú eftir af miðum á Stjörnumessu DB og Vikunnar á Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Verða þeir seldir á morgun og ósóttar pantanir á miðvikudagáSögu kl. 17—19. Undirbúningur messunnar er nú á lokastigi. Stjömuhljómsveitin hefur æft stíft alla helgina og alla síðustu viku. Á morgun hefjast æfingar og lokaundir- búningur á Hótel Sögu, sem verður fagurlega skreytt i tilefni Stjörnumessu ’80. Þar er undirbúningur í eldhúsi I fullum gangi undir stjórn franska mat- reiðslumeistarans Francois Fons, en hann sá einnig um matseld á Stjörnumessunni I fyrra og hlaut einróma lof og lófaklapp gesta fyrir. Allt stefnir sem sé í yfirlýsta ætlun framkvæmdastjórnar Stjörnumessu DB og Vikunnar 1980: að í ár verði haldin glæsilegasta messan til þessa. -ÓV. Hálka og slæm veðurskilyrði á Kastrup: Flugleiðaþotan festíst í skafli utan brautar — sprakk á dekki — dráttarbíll f esti Boeingþota Flugleiða tafðist tals- vert á Kastrupflugvelli í Kaupmanna- höfn á laugardaginn vegna óhapps og slæmra veðurskilyrða. í lendingu á vellinum sprakk eitt dekk þotunnar. Mikil hálka var en flugmennirnir lentu vélinni þó án þess að missa hana til hliðar á brautinni. í lendingu en lending tókst án óhapps þotuna í skafli Að sögn Sveins Sæmundssonar blaðafulltrúa Flugleiða í morgun var aðeins ein braut opin á Kastrup á lai'eardag og völlurinn því hálf óstarfhæfur. Mikil hálka var, snjó- koma og frostregn. Vegna veðurs var ekki hægt að skipta um dekk á þot- unni úti á velli og því varþ að draga hana inn I flugskýli. Það gekk þó erfiðlega vegna hálku á brautinni. Ekki tókst betur til en svo, að dráttarbíll sem dró vélina fór út af brautinni og festist þotan í skafli utan brautar. Þegar tókst að losa hana varð hún að bíða hátt í tvo tíma þar til hægt var að draga hana yfir brautina vegna flugumferðar. Eftir að vélin komst I skýli, tók viðgerð skamman tíma. Flugleiða- þotan kom aftur til Keflavíkur kl. 22.30 á laugardagskvöld. -JH.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.