Dagblaðið - 06.03.1980, Qupperneq 1
6. ÁRG. — FIMMTUDAGLJR 6. MARZ 1980 — 56. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.
r
Hundruða milljóna tjón á Akureyri:
SKIPASMÍÐASTÖÐ EYÐl■
LAGDIST í ELDI í NÓTT
Skipasmiðastöðin Vör á Akureyri Slökkviliðið fékk ekki við neitt ráðið innar var i húsinu verktakafyrirtækið áður sagði gjörónýit og Ijóst er að iraktorsgrafa. Eldsupptök eru ó-
eyðilagðist i eldi i nótt. og þegar slökkvistarfi lauk snemma i Norðurverk. þarna hefur orðið hundruða milljóna kunn.
Eldsins varð vart kl. 3.57 og var morgun var Ijóst, að húsið var gjör- Húsið, sem er rúmlega tiu ára tjón. í húsinu var 30 tonna bátur sem -(iAJ
hann þá orðinn nijög magnaður. cyðilagi. Auk skipasnriðastöðvar- gamalt stálgrindarhús, er eins og hrann og sömuleiðis Scania bifreið og
Olof Palme á fundinum I morgun ásamt Kjartani Jóhannssyni, Guttorm Hansen forseta norska stórþingsins — og Kristlnu
Guðmundsdóttur, formanni félags Alþýðuflokkskvenna. DB-mynd: Hörður.
Palme þingaði með
alþýðuflokkskonum
,,Nú ætla ég að ræða við islenzkar
jafnaðarkonur og svara spurningum
þeirra,” sagði Olof Palme fyrrver-
andi forsætisráðherra Sviþjóðar og
núverandi formaður sænska
jafnaðarmannaflokksins í samtali við
blaðamann DB á Hótel Loftleiðum í
morgun. Olof var á leið á ráðstefnu
með Sambandi alþýðuflokkskvenna
sem haldin var i morgun. Þar voru-
einnig Kjartan lóhannsson alþingis-
maður og Guttorm Hansen forseti
norska stórþingsins.
Auk þeirra voru sænskar
jafnaðarkonur sem héldu fyrirlestra
og áttu mikinn þátt í að undirbúa
ráðstefnuna. Mesl áherzla var lögð á
starfsemi flokkanna á
Norðurlöndum, sænskt og norskt,
þjóðfélag og vmis utanrikismál.
Höfðu nlþýðuflokkskonurnar
skrifað niðui hjá sér spurningar um
áhugaverðustu málefnin svo að sem
niestu væri hægt að fá svarað á
ráðstefnunni.
-EI.A.
Olafur Jóhannesson um Jan Mayen-málið:
„NORÐMENN VIUA SEMJA”
,,Eg byggi mina bjartsýni á þvi, að
ég held, að það sé vilj hjá utanríkis-
ráðherra Noregs að semja um Jan-
Mayen-málið,” sagði Ölafur
Jóhannesson utanrikisráðherra i
viðtali við DB í morgun.
Þetta var svar hans við
spurningunni, á hverju hann byggði
þá bjartsýni, að samningar við
Norðmenn mundu takast fyrir
sumarið.
,,Við reynum að athuga, hvort
unnt verður að leysa málið, áður en
loðnuveiðar byrja i sumar,” sagði
Ólafur.
„Blaðantenn eru svo duglegir við
að draga út úr mönnurn yfir-
lýsingar,” sagði Olaíur við spurningu
um, hvernig það færi saman, að
norski utanríkisráðherrann hefði lýst
yfir, að Norðmenn þyrftu að færa út
lögsögu við Jan Mayen fyrir sumarið.
,,Ég er bjartsýnn, en menn gela
orðið fyrir vonbrigðum,” sagði
Ölafur Jóhannesson.
-HH.
Aætlunarflug
til Bahrain?
—ekki grundvöllur vegna samkeppni
segja Flugleiðir
Frá því var skýrt nýverið i erlendu
blaði, að tvö flugfélög hefðu fengið
leyfi til áætlunarflugs til Bahrain við
Persaflóa og annað þeirra væri Flug-
leiðir. Flugleiðir sóttu um slikt leyfi
fyrir nokkrum árum en fengu ekki.
Þegar sótt var um leyfið voru til-
tölulega fá flugfélög sem flugu til þessa
svæðis, sem er miðsvæðis á hinu
olíuauðuga olíusvæði við Persaflóann.
DB bar þessa frétt undir Svein
Sæmundsson blaðafulltrúa Flugleiða
og sagði hann að þetta væri gamalt
mál. Þetta hefði verið mikið barátlu-
mál á sínum tima og sótt hefði verið
um leyfi til framhaldsflugs frá
I u\ n 'rorg. Málið hefði síðan lent i
saln en leyfið fengizt fyrir tveimur
árum. Þá hel'ði hins vegar ekki verið
talinn grundvöllur fyrir fluginu, þar
sem samkeppnin á þessari leið hefði
verið orðin gifurlega hörð. -JH.
Framtalsleiðbeiningar
fylgja með DB í dag
— og síðasta helgin áður en framtalsfrestur rennur
úterframundan
- sjá sérstakt 8 síðna leiðbeiningablað bls. 15—22
Boggi blaðamaður, sá mæti maóur, hefur átt i talsverðum erflðleikum með útfyllingu
nýja framtalsins sins — og hefur jafnvel leitað á ólíklegustu staði til að fá upplýsingar.
Hann þarf ekki lengur að leita langt yfir skammt — leiðbeiningarnar eru í DB í dag.
-DB-mynd: HV.
A