Dagblaðið - 06.03.1980, Side 3

Dagblaðið - 06.03.1980, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1980. 3 Vegurinn milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar: Tuttugu mín- útna akstur tekur nú klukkustund! Garðar Harðarson, Stöðvarfirði, skrifar: Mig langar til að skrifa fáeinar lín- ur um veginn milli Stöðvarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar og tel ég alveg furðulegt að fleiri hafi ekki skrifað um hann. Ég keyri þennan veg nokkuð oft og verður að segjast eins og er að vegur- inn er orðinn alveg ferlegur. Allt síðasta ár hefur hann verið meira og minna illfær en nú er svo komið að u.þ.b. 10 km langur kafli er alveg ófær. Er það kaflinn milli Gvendar- ness og Hafnarness. Þar sem ekki eru pyttir og hvörf er vegurinn svo holóttur að þar er varla „fyrstagírsfæri”. Það heyrir til undantekninga ef veghefill fer um veginn enda þyrfti hann að vera þar daglega þar sem allt það slitlag (malar) er á veginn var lagt er horfið fyrir tíu árum eða meira. Mér þykir alveg furðulegt að allir þeir atvinnubílstjórar sem um veginn fara skuli ekki vera búnir að kvarta fyrir löngu. Þegar þetta er skrifað er verið að tala í fréttunum í útvarpinu um hve illfært sé á Suðurlandi og segir Hjörleifur vegaeftirlitsnaður að „sæmilegasta færð sé suður með Austfjörðum” og séu helztu farar- tálmar grjóthrun í skriðum. Það væri gaman að vita hvort ein- hverjir fleiri hafa ekki eitthvað um þennan vegarspotta að segja. Vega- lengd sem vanalega tekur 20—30 mínútur að keyra tekur nú um það bil eina klukkustund. \ „Þar sem ekki eru pyttir og hvörf er vegurinn svo holóttur að þar er varla fyrstagírsfæri,” skrifar Garðar Harðarson um veginn milli Stöðvar- fjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Myndin er af vegi á Vesturlandi í svipuðu ásigkomulagi. DB-mynd Árni Páll. Góður gestur Helgi Vigfússon skrifar: Hérlendis hefur dvalið að undan- förnu einn af útvörðum islenzkrar menningar vestanhafs, Íslandsvinur- inn dr. Loftur Bjarnason, prófessor frá Monerey i Kaliforníu. Dr. Loftur hefur unnið stótkostlegt land- kynningarstarf vegna tslands i Bandaríkjunum, flutt á liðnum ára- tugum ógrynni fyrirlestra um land og þjóð. Hann hefur þýtt skáldverk ýmissa íslenzkra höfunda á ensku, t.d. verk Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, Gunnars Gunnarssonar, Kristmanns Guðmundssonar og Halldórs Laxness. Meðal ritverka dr. Lofts má nefna: Modern Icelandic Literature in English Translation, auk fjölda rit- gerða um íslenzkar bókmenntir og skáld. Dr. Loftur er fæddur í Utah, sonur Lofts fræðslumálastjóra i Utah, er var sonur Gísla Einarssonar frá Hrífunesi i Vestur-Skaftafells- sýslu. Þetta er fjórða ferð hans til íslands, hin fyrsta 1930—31, önnur ferðin 1937—’38, en hann var við nám í Háskóla íslands og Kennaraskóla íslands í bæði skiptin. Þriðju ferðina kom hann 1971 í fylgd konu sinnar, Ruth. Hann hefur verið prófessor við United States Naval Postgraduate School i Monterey, háskóla í Utah, Stanford, Hartnell College í Salinas og kennir íslenzku og íslenzkar bók- menntir við bréfaskóla Kaliforníu- háskóla. Dr. Loftur Bjarnason prófessor hefur nú þegar hitt hér á landi nokkra áður óþekkta frændur og frænkur, en væntir þess að geta hitt sem flesta, enda sérstaklega frændrækinn og fróður um islenzkar ættir. (B ■O C ■S ® skyr Enn einu sinni minna lesenda- dálkar DB alla þá, er hyggjast senda þœttinum linu, að látafylgja fullt nafn, heimilisfang, slmanúmer <ef um það er að rœða) og nafh- númer. Þetta er lítil fyrirhöfn fyrir , bréfritara okkar og til mikilla 1 þœginda fyrir DB. \ Lesendur eru jafnframt minntir á að brif eiga að vera stutt og skýr. Áskilinn er fullur réttur til að stytta bréf og umorða til að spara rúm og koma efhi betur til skila. Bréf œttu helzt ekki að vera lengri en 200—300 orð. Símatlmi lesendadálka DB er milli kl. 13 og 15 frá mánudögum tilföstudaga. J Úrvals snjódekk — Super verð ATHUGIÐ VERÐIÐ. GERIÐ SAMANBURÐ FOLKSBILADEKK 155 x 12 (Daihatsu-Corolla) 24.400.00 155 x 13 (Mazda-Lada-Subaru) 24.400.00 165x13(Mazda-Lada-Subaru) 25.600.00 B 78 x 14 (Volvo-Fairmont) 24.000.00 Br 78 x 14 (Volvo-Fairmont) 26.000.00 175 x 14 (Volvo-Fairmont) 31.000.00 195/75x14(c 78x14) 31.000.00 205/75x14 (E 78x14) (Malibu) 31.000.00 205/75 x 14 (E 70 x 14) (Breið dekk) 31.000.00 Fr 78x13 31.000.00 Gr 78x14 32.500.00 Hr 78x14 32.000.00 G 60x14 38.800.00 Br 78 x 15 (VW-Vohra-Saab) 24.000.00 Fr 78x 15 (Oldsmobile-dísil) 33.500.00 Gr 78 x 15 (Oldsmobiledísil) 34.000.00 JEPPADEKK: Hr 78 x 15 (Willys-Bronco-Scout) 36.500.00 Lr 78 x 15 (700 x 15) (Willys-Bronco-Scout) 39.500.00 700 x 15 (Willys-Bronco-Scout) 35.000.00 12x15 69.800.00 SENDIBÍLADEKK: 750 Rx16 65.300.00 800 Rx 16.5 56.500.00 875 Rx 16.5 59.400.00 950 Rx 16.5 67.000.00 VÖRUBÍLADEKK: 1100 x 20 AFTURDEKK 1100x20 FRAMDEKK 1000x20 AFTURDEKK 1000x20 FRAMDEKK Stk. 218.500.00 209.000.00 198.500.00 189.000.00 Sett 234.000.00 225.500.00 210.500.00 201.000.00 SÓLAÐIR HJÓLBARÐAR í FLESTUM STÆRÐUM. Sendum gegn póstkröfu um land allt Gúmmívinnustofan Skipholti 36 Simi31055 Spurning dagsins Hver er uppáhalds- drykkurinn þinn? (■unnar Jónsson nemi: Það er svo rnargt, allt frá kóki niður i mysu. Þórarinn Þórarinsson, bílstjóri hjá Vifilfelli: Uppáhaldsdrykkurinn tninn var brennivin en núna eru það allir óáfengir drykkir, sérstaklega þó sykur- lausir, megrandi drykkir. Siguróur GuAjónsson, slarfsmaöur Vifilfells: Enginn drykkur öðrum fremur. Ég er hrifinn af öllu sem rennur. Kókið er þó örugglega ekki minn uppáhaldsdrykkur. Margrét Ágústa Sigtryggsdóltir nemi: Mjólk, seven-up og trópikana. Vilborg Stefánsdóllir nemi: Guð, ég veit það ekki. Ætli það sé ekki helzt kók og mjólk. Guðni Már Kárason nemi: Ætli það sé ekki nijólkin.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.