Dagblaðið - 10.03.1980, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 10.03.1980, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. MARZ 1980. _______________________Snjóleikur í Hveradölum: Skíði á fótum eða hestöfí á milii þeirra Veðrið selti dálítið strik í reikninginn hjá skiðamönnum i höfuðborginni um helgina. Til dæmis var lokað i Bláfjöll- um á laugardaginn. Þess vegna var margmennt i brekkunum í Hveradölum !f og komin biðröð við lyftuna þegar hún var sett í gang á slaginu klukkan tvö. Þegar líða tók á daginn fjölgaði stöðugt í brekkunum og göngubrautun- um á svæðinu. Sólin fór að skína og Oliver Ævar Guðbrandsson, 6 ára, var heldur betur vfgalegur þegar hann var kominn f sldðagallann sinn. Hann hafði pabba sér til halds og trausts. veður til útiveru varð eins og bezt verður á kosið að vetrarlagi. Úr griðar- stórum hátölurum var útvarpað yfir réttláta jafnt sem rangláta Vikuloka- þættinum og þætti Svavars Gests. Svo var poppað af segulbandi til að létta mönnum lifið enn frekar. Einstaka gestur hafði ekki skiði með- ferðis heldur lét sér nægja að rölta um og skoða tilveruna, reyna dálítið á skrokkinn og anda að sér fjallaloftinu. Svo mátti sjá aðra koma á Bleiserum og Bensum með vélsleða á vagni aftan í. Siðan var þeyst um á þessum beltuðu tryllitækjum svo að snjórinn þyrlaðist í allar áttir. Menn fá trúlega kikk út úr því að hafa mörg hestöfl milli fóta og geta notað þau til að þjóta yfir snjó- breiðurnar. Krakkar á Selfossi héldu skólamót i svigi í Hveradölum á laugardaginn. Þau héldu að það væri fyrsta skólamót Magnús Jónasson umsjónarmaður íHveradöJum: I SE; y- *7|Síl 11 v : l fc- Haukur Jónsson seldi aðgang að lyft- unni. 8 ferðir kosta 1000 kr. fyrir full- orðna og 500 kr. fyrir börn. Dagskort kosta 2800 kr. fyrir fullorðna og 1400 kr. fyrir börn. Selfyssinga á skíðuni i sögunni og full- yrtu að fyrir þremur árum hefðu aðeins þrir Selfyssingar „getað eilthvað” á skíðum! „Nú eru meira en hundrað skiða- ntenn heima og verða alltaf fleiri og fleiri,” sögðu Selfosskrakkarnir ákveðin. Þau eru dugleg við að fara á skíði og koma oft i Hveradali. Á fimmta tímanum fór að hvessa með tilheyrandi renningskófi. Þá fór l'ólk að hugsa til hreyfings. Ég brá mér inn i Skiðaskálann og lét i andlitið á mér væna kleinu og prýðisgott kakó með. Svo var brennt í bæinn. - ARH Guðmundur Hrafn Pálsson, 9 ára, og mððir hans, Ema Reynisdðttir, brugöu sér á sklði á laugardaginn. ,V. - ; ♦ t*- Jðn Sigurðsson, ritstjðri Tfmans, hvfldi sig á leiðaraskrifum f blaðið sitt og fór f staðinn á skfði f Hveradölum. Vantar helst troð- ara og byrjendalyftu „Aðastaða til skíðaiðkana í Hvera- dölum er góð. Einnig er mögulegt að veita hér góða þjónustu i skíðaskálan um,” sagði Magnús Jónasson um sjónarmaður í skíðalandinu i Hvera dölum við Dagblaðið á laugardaginn Magnús sér um rekstur skiðalyftunnar og gistingar skólanema á staðnum Þetta er annar veturinn sem hann sinnir þjónustu við skiðafólk i Hveradölum fullu starfi. „Það sem helzt vantar hér er troðari Við höfum reynt að troða brekkurnar eins og hægt er með vélsleða. Slysum á skiðafólki hefur fækkað mjög í vetur Ég þakka það meðal annars þvi að við höfum troðið snjóinn. Gönguaðstaða er góð, en tilfinnan lega vantar lyftu fyrir byrjendur i fjall ið.” Magnús benti á að Hveradalasvæðið væri nálægt þjóðveginum. Þess vegna er alltaf fært í Hveradali svo lengi sem Hellisheiðin er fær. Alltaf er meira um fólk í Hveradölum ef ófært er i Blá- fjöll. „Annars er greinilegt að áhugi fyrir skíðaiðkun hefur vaxið gífurlega siðustu árin. Það má meðal annars sjá á aukinni ásókn fólks hingað,” sagði Vlagnús Jónasson. Þess má svo geta að skíðalyflan í Hveradölum er í gangi mánudaga og föstudaga kl. 13—16, þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga kl. 13—22 og löndin í Bláfjöllum og Hveradölum séu um helgar kl. 10—18. Sjálfvirkur sím- opin. Síminn er 25582. svari gefur daglega upp hvort skiða- -ARH Magnús Jónasson stjórnaði skölamóti krakkanna frá Selfossi og var bæði með timatöku og þularstarf á sinni könnu. DB-myndir: ARH TC -850/860 ML Bylgjur: LW/MW/FM —MPX Magnari: 2x6 wött Hraöspólun: Áfram og til baka Auto Reverse Suöeyöir (Noise killer) Styrkstillir fyrir móttöku TC-25 ML Bylgjur: LW/MW/FM — MPX Magnari: 2x6 wött Hraöspólun: Áfram ÉSBFÍfrá JAPAN Útvarpssegulbandstæki í bíla með stereo móttakara SIÓNVARPSBÚDM Kr. 123.000, Kr. 76.500.-

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.