Dagblaðið - 10.03.1980, Blaðsíða 18
íþróttir
Iþróttir
íþróttir
DAGBLAÐIÐ.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. MARZ 1980.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
„Dortmund — hér komum við Valsmenn”, gæti Stefán fyrirliði Gunnarsson verið að segja á þessari
mynd. DB-myndir Bjarnleifur.
.ÓTOJLEGT
—var venjulega þaðfyrsta er Valsmenn létu út
úr sér eftir leikinn í gærkvöld
Það var hrikalega þröngt i búningsherbergi
Valsmanna eftir leikinn i gærkvöld. og
leikmenn og eiginkonur föðmuðusl jafnfrámt
því sem fagnaðaróskum rigndi yfir liðsmenn
og þjálfarann Hilmar Björnsson. Það var ekki
hlaupið að því að ná tali af leikmönnum Vals
en DB spjallaði fyrst við Ólaf Benediktsson —
Óla Ben. — og spurði hann út i leikinn.
„Þetta er hreint og beinl ólýsanlegt," voru
fyrstu orð Óla. ,,Ég man ekki eftir annarri eins
stemmningu á mínum ferti. Ég hef aðeins verið
hálfur maður í vetur vegna meiðsla í baki og
oftast komið inn á allt of spenntur. í dag eyddi
ég megninu af deginum heima og einbeilti
mér að leiknum. Mér lókst að útiloka allt
annað og fann mig mjög vel þegar ég kom inn
á í leiknum. Ég var afslappaður og það hafði
mikið að segja. Uria var mér annars erfiður í
leiknum. Við fáum núna verðugt verkefni þar
sem v-þýzku meistararnir Grosswallsladl eru.
Ég vil svo koma á framfæri þakklæti til áhorf-
enda sem voru stórkostlegir.”
Næstan hittum við að máli Bjarna
Guðmundsson. „Þetta er erfiðasti síðari hálf-
leikur, sem ég hefi leikið í um ævina og hef ég
þó leikið nokkra leiki,” sagði Bjarni
Guðmundsson. Það mátti sjá á skyrtu Bjarna,
sem var gegnvot af svita, að hraustlega hafði
verið tekið á í leiknum.
,,Að minu mati höfðu áhorfendur afger-
andi áhrif á leikinn og þeir fengu svo sannar-
lega eitthvað fyrir aurana að þessu sinni.
Þetta er svo ótrúlegt að ég trúi þessu ekki
ennþá," sagði Bjarni að lokum.
„Þetta var frábært,” sagði Gunnar
I.úðviksson. „Ég var alltaf viss um að okkur
'tækist að vinna með nægum mun eftir að víð
komumst strax 3 mörkum yfir. Ég er ánægður
með minn hlut i leiknum og erfiðar æfingar eru
að skila sér núna hjá okkur. Mér fannst áhorf-
cndurnir vera stórkostlegir fyrir okkur og þeir
hjálpuðu okkur geysimikið. Það verður gaman
að mæta v-þýzku meisturunum í úrslitunum.”
„Okkur tókst það,” öskraði Slefán
Gunnarsson til einhvers vinar sins, sem kallaði
til hans inn i búningsklefann, en síðan fengu
blaðamenn að spjalla lítillega við kappann. |
„Allur okkar undirbúningur hefur miðazt.
við þessa Evrópuleiki og því er ánægjulegt að j
sjá dæmið ganga svo vel upp, en við þurftum
að hafa fyrir sigrinum i kvöld. í raun er það
ótrúlegt að litla ísland skuli eiga lið í úrslitumj
Evrópukeppni meistaraliða i handknattleik.)
Þetta er nokkuð, sem í raun á að vera
ómögulegt fyrir svo litla þjóð, en tókst samt
hjá okkur. Þelta er ótrúlegt — maður er
orðlaus í rauninni.”
„Þetta var ótrúlegt — ég bjóst ekki við
þessu,” sagði stjarnan Þorbjörn Jensson þar
sem hann sat dauðuppgefinn á einum
bekknum i búningsherberginu. „Það var ofsa-
lega erfitt að halda fengnum hlut í byrjun út
allan leiktímann og ég hugsa að það hefði verið
auðveldara ef við hefðum getað smá unnið upp
þetta forskot þeirra. Að sjálfsögðu var mjög
gott að komast strax vel yfir en það setti líka
pressu á okkur. Ég er ánægður með mina
frammislöðu því ég var slakur í leiknum úti en
náði mér vel á strik núna.”
„Ég á engin orð til að lýsa þessu,” sagði
Steindór Gunnarsson eftir leikinn. Ég var
farinn að biðja til himnaföðursins undir lokin
þegar Spánverjarnir fengu aukakastið eftir að
leiktíma lauk. Það hefðu verið ólýsanleg
vonbrigði ef þeir hefðu skorað þar. Ég var
alltaf vongóður um sigur í leiknum því við
börðumst eins og Ijón. Menn gáfust ekki upp
þótt þeir lægju flatir á gólfinu. Óli varði ofsa-
lega vel hjá okkur og vörnin var frábær í
lokin.”
„Þetta held ég sé stærsta stund í lífi mínu,
sem þjálfara,” sagði Hilmar Björnsson,
rólegur og yfirvegaður að vanda í öllum
látunum. Okkur hefur alltaf vantað herzlu-
muninn til að ná langt en í kvöld gekk dæmið
upp. Við fcngum frábæran stuðning hjá áhorf-
endum og það á réttum tima. Ég var dálítið
hræddur við upphafskaflann en siðan læstisl
allt. Lokakaflinn var taugatrekkjandi. Það var |
lítið um handbolta — heldur eilíf stöðubarátta
og við höfðum betur í lokin.”
-SSv.
STORKOSTLEGUR UPPH AFSKAFU KOM VAL
í ÚRSLIT EVRÓPUKEPPNIMDSTARAUDA
—Valsmenn stungu Atletico Madríd af strax í upphaf i er þeir komust (5-1 og sigruðu síðan með 15-15 í„leik aldarinnar” f Laugardalshöllinni
„Hvað get ég sagt ... ég á
heiminn,” hrópaði Stefán Gunnarsson
fyrirliði Valsmanna trylltur af gleði
eftir að Valsmönnum hafði tekizt hið
ótrúlega i gærkvöld! Valur sigraði þá
Atletico Madrid frá Spáni með 18
mörkum gegn 15 og tryggði sér sæti í
úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða í
handknattleik þar sem mótherjarnir
verða v-þýzku meistaranir
Grosswallstadt. Áhorfendur, sem
troðfylltu Laugardalshöllina í gær-
kvöld, ætluðu bókstaflega að ganga af
göflunum er úrslitin voru ljós og þeir
dönsuðu og sungu af Iffs og sálar
kröftum. Leikurinn í gærkvöld var
einhver sá æsilegasti sem fram hefur
farið á fjölum Laugardalshallarinnar
og vart er of mikið sagt þótt hann sé
kallaður leikur aldarinnar. Með stór-
kostlegri baráttu og samheldni tókst
Valsmönnu að láta langþráðan draum
sinn rætast og víst er að afrek Vals er
einslætt í íslenzkri iþróttasögu. Fara
verður allt aftur til ársins 1956 til að
finna hliðstæðu en þá hlaut Vilhjálmur
Einarsson silfurverðlaunin i þrístökki á
ólympíuleikunum í Melbournc. En af-
rek Valsmanna er i raun allt annars
eðlis og frammistaða þeirra á sér engan
líka í flokkaiþróttum á íslandi.
Ótrúleg stemmning
Það var hreint ótrúleg stemmning í
Laugardalshöllinni í gærkvöld og
áhorfendur voru komnir löngu áður
en leikurinn hófst. Lúðrablástur og
hvatningarhróp minntu á fyrri leikinn í
Madrid og undirrituðum er til efs að
spænsku áhorfendurnir hafi komizt
með tærnar þar sem þeir íslenzku
höfðu hælana í gærkvöld. Aldrei fyrr
hefur undirritaður orðið vitni að
annarri eins hvatningu og Valsmenn
fengu í leiknum og víst er að áhorf-
endur eiga stóran þátt í sigri Vals-
nianna. En víkjum að sjálfum leiknum.
Valsmenn hófu leikinn mjög vel og
léku hraðan sóknarleik — andstætt því
er var í fyrri leiknum — og greinilegt
var að Spánverjunum stóð ekki á sama.
Sænsku dómararnir tóku líka mun
harðar á brotum en hinir frönsku
kollegar þeirra úti á Spáni. Fyrsta
markið kom ekki fyrr en eftir 3 og
hálfa niínútu og það var sannkallað
sýningarmark. Bjarni stökk þá inn úr
horninu og gaf inn á línuna til
Steindórs, sem skoraði af stöku öryggi,
I—0. Höllin bókstaflega „sprakk” og
hvatning áhorfenda var hreint ótrúleg.
Alonso jafnaði síðan metin fyrir
Atletico skömmu síðar, en Steindór
kom Val aftur yfir með gullfallegu
marki af línunni, 2—1. Spánverjarnir
fóru síðan illa með næstu sókn sína en
það gerðu Valsmenn líka því dæmd
voru skref á Þorbjörn Jensson.Spán-
verjarnir klúðruðu síðan dauðafæri —
skutu í gólfið og yfir og það nýttu Vals-
menn sér til fullnustu. Þorbjörn Jens-
son lyfti sér upp og þrumufleygur hans
söng í netinu að baki spænska mark-
verðinum, sem vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið. Hver var þessi Jensson,
sem skyndilega vogaði sér að skora
mark? hefur spánski markvörðurinn
vafalitið hugsað. Leikmenn Atletico
höfðu mjög góðar gætur á Þorbirni
Guðmundssyni, sem skoraði 7 sinnurn
úti á Spáni. Það kom að litlu gagni þvi
nafni hans Jensson kont i hans stað,
var með öllu óstöðvandi í leiknum.
Þorbjörn Jensson
óstöðvandi
Staðan var því 3—1 eftir rúmlega 8
minútna leik og áhorfendur voru svo
sannarlega með á nótunum. Hávaðinn
var engu líkur og ekki minnkaði hann
er Þorbjörn skoraði fjórða mark Vals
með svipuðum tilþrifum og fyrr eftir
að langbezta leikmanni Spánverjanna,
Uria, hafði verið vikið af leikvelli í 2
mín. Þakið ætlaði bókstaflega af
höllinni þegar svo Þorbjörn
Guðmundsson skoraði 5. mark Vals
með fallegu skoti. Staðan 5—1 og
aðeins 9 og hálf minúta liðin af
leiknum. Menn horfðu hver á annan.
Hvað var eiginlega að gerast?
Gunnari Lúðvíkssyni var síðan vikið
af leikvelli í 2 mín. og Uria nýtti
tækifærið og skoraði annað mark
Atletico Madrid. Reyndar fengu Vals-
menn tækifæri til að bæta við 6.
markinu i millitiðinni en dæmdur var
ruðningur á Þorbjörn Jensson. Tobbi,
Stefán Gunnarsson átti stórleik i gær og gaf aldrei þumlung eftir fremur venju. Hér
taka tveir Spánverjanna vel á móti.
Úrslitin komin á hreint. Ljósataflan sýnir sætan sigur Vals.
bætti það strax upp í næstu sókn er
hann brauzt glæsilega i gegnum
vörnina og fiskaði vítakast. Stefán
Halldórsson kom inn á til að fram-
kvæma það og skoraði af miklu öryggi,
6—2. Valsmenn höfðu því skorað 6
mörk í 8 sóknum eða 75% nýting.
Og áfram hélt baráttan. Steindór
kom Val i 7—2 með mjög skemmtilegu
marki af linunni og var þá fyrri hálf-
leikurinn nákvæmlega hálfnaður.
Manrique svaraði fyrir Atletico en
Gunnar Lúðvíksson var ekki lengi að
kvitta fyrir Valsmenn með fallegu
marki úr hominu. Eitthvað tók nú að
hitna i hamsi hjá þjálfara og liðsstjóra
Atletico og varð Karl Wang eftirlits-
maður IHF (Alþjóða handknattleiks-
sambandsins) að beita hörku til að
korna þjálfara liðsins í skilning um að
honum væri ætlað að sitja á vara-
mannabekknum en ekki hoppa eins og
hirðfífl inni á vellinum.
Frábœr nýting
I byrjun
Nýting Valsmanna var enn frábær
— 8 mörk i 10 sóknum. Hvorki meira
né minna en 80% nýting. Slíkt hlaut
auðvitað að taka enda fyrr en síðar og
síðari hluta hálfleiksins sótti Atletico
nokkuð í sig veðrið. Uria og De Andres
skoruðu tvo næstu mörk og staðan var
orðin 8—5. Þrjú mörk skildu að og
með sama áframhaldi myndi Vals-
mönnum takast að ná takmarki sínu —
sæti í úrslitum Evrópumeistara-
keppninnar.
Stefán Halldórsson skoraði 9. mark
Vals með góðu skoti og voru þá 20
mín. liðnar af leiktíman(tmr Þá var
Þorbirni Guðmundssyni vikið af
leikvelli í 2 mínútur en Valsmenn léku
eins og snillingar á þessum kafla.
Gunnar Lúðviksson komst mjög
skemmtilega inn i sendingu
Spánverjanna, sendi á Steindór, sem
sendi siðan langa sendingu fram á
Bjarna. Hann stakk alla varnarmenn
Atletico af og skoraði frábært mark.
Aftur fimm marka munur — 10—5 og
allt á suðupunkti.
Það var svo Uria enn eina ferðina,
sem minnkaði muninn í 10—6 úr víta-
kasti og siðan var dæmd leiktöf á Val í
næstu sókn. En aftur sýndi Gunnar
Lúðviksson stórskemmtileg tilþrif.
Hann komst inn í sendingu og þeysti
upp allan völl með Spánverjana á
hælunum. Þegar hann stökk inn í
teiginn var hann gróflega hindraður af
einum leikmanna Atletico er stóð inni í
eigin vítateig. Auðvitað átti að dæma
þarna vítakast en aðeins var dæmt
horn! í þessari sömu sókn barst knött-
urinn inn á línu til Steindórs, sem aldrei
þessu vant greip ekki. „Ég var of
öruggur með mig og ætlaði að konia á
móti knettinum en hratt honum frá mér
í staðinn,” sagði Steindór við DB eftir
leikinn.
Talsverð harka færðist nú í leikinn
og De Andres var þvínæst vikið af leik-
velli í 2 mín. og höfðu þá tvcir úr hvoru
liði fengið kælingu.
Valsmenn nýttu sér það að Atletico
var með aðeins 5 útispilara og fengu
vítakast. En þar brást Stefáni Halldórs-
syni bogalistin. 1 stað þess að skjóta
niðri á markvörðinn reyndi Stefán að
skjóta yfir höfuð hans. Markvörðurinn
sá við þvi bragði og varði. Til að bæta
u,m betur var Þorbirni Jenssyni vikið af
leikvelli í 2 min. og Uria skoraði 7.
mark Atletico úr vítakasti rétt fyrir lok
fyrri hálfleiksins. Staðan var því 10—7
í hálfleik fyrir Val.
Klassísk byrjun
Siðari hálfleikurinn hófst á
klassiskan hátt og Þorbjöm Jensson
þrumaði knettinum i netið hjá Atletico,
II—7 eftir 2 min. af siðari hálf-
leiknum. Tvö mörk Atletico á næstu
minútunni hleyptu heldur betur fjöri í
leikinn. Fyrst skoraði Uria úr enn einu
vitinu og síðan skoraði Alonso með
hörkuskoti, en þá fór Óli Ben. að ranka
við sér í markinu og hvilik tilþrif það
sem eftir lifði leiksins! Óli skipti við
Brynjar um miðjan fyrri hálfleikinn, en
tókst ekki að verja fyrr en i upphafi
síðari hálfleiks — og þá svo um
munaði. Staðan var því orðin 11—9 um
tíma og voru þá aðeins tæpar 4 min.
liðnaraf síðari hálfleiknum.
Þorbjörn Guðmundsson skoraði 12.
Óli Ben kom I markið hjá Val og sýndi
snilldartakta þegar mest reið á.
mark Vals úr vítakasti — en alls fengu
Valsmenn 4 slík, eitt fór forgörðum.
Þorbjörn haði rétt áður átt slakt skot
að marki og var nokkuð bráður á sér á
köflum í gær. Uria svaraði fyrir
Spánverjana, 12—10, úr vítakasti og
menn hugsuðu vafalítið með sér hvort
Valsmenn ætluðu að missa leikinn út
úr höndum sér. En ekki aldeilis.
Óli Ben í gang
Þorbjörn Jensson sendi enn eina
þruntuna i netið hjá Atletico og Óli Ben
varði þvi næst glæsilega frá De La
Puente. Þorbjörn Guðmundsson
skoraði siðan 14. mark Vals — skaut i
veika hornið hjá spænska
markverðinum og munurinn var aftur
orðinn 4 mörk, 14—10 og 10 min.
liðnar af siðari hálfleiknum.
Mótlætið fór mjög i taugar
Spánverjanna og notuðu þeir alls kyns
bolabrögð til að koma sér áfram og
voru hnefahöggin ekki spöruð i þeim
herbúðum. Manrique skoraði 11. mark
Atletico. Þorbjörn Guðmundsson
bætti 15. marki Vals við úr vitakasti,
15—11 og 17 mín. til leiksloka.
Nú fór að síga á siðari hlutann og
spurningin var hvort Valsmenn stæðust
hina gifurlegu pressu sem á þeim var.
Það leit ekki vel út þvi Þorbirni
Jenssyni var vikið af leikvelli i annað
sinn og Parrilla skoraði með fallegu
gegnumbrotsmarki en það er sterkasta
hlið Spánverjanna. Enn dökknaði
útlitið þvi dæmd var leiktöf á Vals-
menn, sem hugsuðu of mikið um það
að „liggja á” tuðrunni. Atletico lét
ekki bjóða sé slíkt tækifæri tvívegis og
Manrique skoraði með tilþrifum 13.
mark Spánverjanna. Staðan 15—13 og
síðari hálfleikur hálfnaður. Nú fyrst
myndi reyna á þolrifin í Valsmönnum.
Ekki má gleyma því að þessi tvö síðustu
mörk Spánverjanna voru skoruð á
meðan Þorbjörns Jenssonar naut ekki
við.
Tobbi kom siðan galvaskur inn á og
var ekki að sökum að spyrja — hann
skoraði enn eitt glæsimarkið, 16—13.
Síðan gerðist undarlegt atvik. Þorbjörn
var sleginn á augabrúnina svo hastar-
lega að blæddi úr, en sænsku dómar-
arnir, sem annars dæmdu ágætlega,
sáu enga ástæðu til að vísa Spánverjun-
um út af. „Ég sá aldrei hver sló mig —
þetta gerðist svo snöggt,” sagði Þor-
björn við DB eftir leikinn.
Síðan misnotuðu Valsmenn a.m.k.
þrjár sóknir i röð og þeir nafnar Þor-
björn Jensson og Guðmundsson
reyndu í öllum tilvikum skot úr slæm-
um færum. Það kom þó ekki að sök
þvi Óli Ben bókstaflega lokaði markinu
hinurn megin og það var sama hvað
leikmenn Atletico reyndu. Óli varði
ailt. Þegar átta og hálf mín. voru til
leiksloka fékk Gunnar Lúðviksson
sendingu upp kantinn og með
leifturhraða sínum stakk hann
spænsku varnarmennina af og skoraði
glæsilegt mark, 17—13!
Taugastríðið hefst
Þá loks hófst taugastríðið. Þorbjörn
Jensson var útilokaður frá leiknum er
hann fékk sína þriðju brottvísun í 2
mín. Hann hafði verið bezti varnar-
maður Vals í leiknum ásanit Stefáni
Gunnarssyni og spurningin var hvort
Valsmenn mættu við þessari blóðtöku.
Þegar 7 mín. og 20 sek. voru til leiks-
loka skoraði Uria enn eitt niark sitt og
nú fór allt af stað. Þorbjörn Guð-
mundsson gaf beint i hendurnar á ein-
um Spánverjanum, en Óli Ben varði
enn eina ferðina með tilþrifum.
Minúturnar snigluðust áfram og eins
og staðan var, 17—14, var Valur kom-
inn i úrslit Evrópukeppni meistaraliða.
Þegar rúmar 5 min. voru til leiksloka
sauð enn upp úr og De La Puente —
einhver grófasti leikmaður er sézt hefur
i Höllinni — sló Jón H. Karlsson í gólf-
ið. Ekkert var þó dæmt og þar slapp
Atletico svo sannarlega fyrir horn.
Áfram tifuðu sekúndurnar og áhorf-
endur voru á nálum, sem og leikmenn
og aðrir í húsinu. Jón Karlsson brauzt
skemmtilega í gegn en fast skot hans
hafnaði í stönginni og fór þaðan út af.
Spánverjar fengu knöttinn en Óli Ben
sýndi enn snilli sína er hann varði
glæsilega.
Áhorfendur
lyftu Val upp
Valsmenn fengu
þvi knöttinn og
■
Þorbjörn Jensson brýst hér framhjá Uria, bezta manni Spánverjanna i leiknum. Tobbi átti stórleik gegn Atletico.
hófu sókn er 4 mín. voru til leiksloka.
Sóknin hafði ekki staðið lengi er þeim
Steindóri og De La Puenta var vikið af
velli fyrir stimpingar. Bæði liðin því
með aðeins 5 útispilara. Sókn Vals-
manna var hæg og þegar 2 mín. og 30.
sek. voru til leiksloka reyndi Stefán
Gunnarsson skot, sem spænski mark-
vörðurinn varði. Vonbrigðastunur láku
upp úr áhorfendum. Ætlaði Valur að
klúðra öllu? En þá komu áhorfendur
til skjallana enn eina ferðina og með
geysiöflugum hvatningarhrópum og
kröftugum lúðrablæstri tóku þeir
leikmenn Atletico hreinlega á taugum
og þeir misstu knöttinn úr höndunum á
sér. Valsmenn í sókn og þegar 100 sek.
voru til leiksloka lyfti Stefán fyrirliði
Gunnarsson sér upp og skoraði
gullfallegt mark, 18—14. Þetta var
markið sem allir höfðu beðið eftir og
áhorfendur fögnuðu innilega. En þá
fór kliður um salinn er Uria skoraði
með snöggu hoppskoti þegar 74 sek.
voru eftir, 18—15 og sigur Vals, sem
var svo öruggur fyrir nokkrunt
sekúndum, hékk nú aftur á bláþræði.
Ekki bætti úr skák þegar sóknin
mislukkaðist gersamlega og
Spánverjarnir fengu knöttinn þegar 58
sek. voru til leiksloka. Möguleikarnir
voru því allir þeirra megin. Valsmenn
stöppuðu stálinu hver i annan með
hvatningarhrópum og áhorfendur létu
ekki sift eftir liggja. Það var sama
hvað leikmenn Atletico reyndu, vörn
Vals var sem Kínamúr væri. Loks
þegar 1 sek. var eftir slapp Parilla
inn úr hægra horninu en Óli Ben varði
skot hans vel. Aukakast var dæmt en i
sama mund gall flauta tímavarðar við.
Leiknum var lokið en aukakastið var
eftir. Það skipti litlu máli því skotið fór
langt yfir Valsmarkið. Leiknum var
■lokið. Valsmenn voru komnir i úrslit
mestu handknattleikskeppni Evrópu.
Senurnar i Hóllinni ettir leikinn voru engu likar og áhorfendur gengu berserksgang.
Slórkostlegt
hamingju!
afrek, Valsmenn, og til
Frábœrt afrek,
Valsmenn!
Þó svo að sigur Vals hafi verið sigur
liðsheildar verður ekki hjá þvi komizt
að nefna nokkra leikmenn öðrunt
frernri. Óli Ben stóð sig eins og hetja i
markinu og markvarzla hans var þung
á metunum. Hvað eftir annað varði
hann glæsilega frá Spánverjunum þó
þeir væru í dauðafærum og virtist hon-
unt vaxa ásmegin eftir þvi sem á leikinn
leið. Þorbjörn Jensson sýndi loks
hvers hann er megnugur sem sóknar-
leikmaður. Varnarleikurinn hefur
aldrei verið vandamál hjá honum en nú
skoraði hann 5 mörk — hvert öðru
fallegra. Vafalitið einhver bezti leikur
hans fyrr og síðar. Stefán Gunnarsson
!átti einnig stórleik i vörninni og þessi
;sigur hlýtur að vera einn sá sætasti á
löngum og árangursríkum ferli hans.
Ciunnar Lúðvíksson var sá leikmaður,
sern langmest kom á óvart og hefur
ekki leikið betur i vetur. Gunnar átti
mjög góðan leik og hraði hans og ár-
vekni settu Spánverjana hvað eftir
annað út af laginu. Margsinnis komst
hann inn i sendingar þeirra auk þess
sem hann skoraði tvö falleg mörk.
Steindór átti mjög góðan fyrri hálf-
leik en siðan var óhægara um vik hjá
honum þar sem gæzlan á honum var
aukin verulega i síðari hálfleiknum.
Aðrir leikmenn Vals stóðu sig einnig
með prýði en þessir 6 áðurnefndu voru
þrepi ofar.
Mörk Váls: Þorbjörn Jensson 5,
Þorbjörn Guðmundsson 4/2, Steindór
Gunnarsson 3, Gunnar Lúðviksson 2,
Stefán Halldórsson 2/1, Bjarni
Guðmundsson 1, Stefán Gunnarsson I.
Mörk Atletico: Uria 8/2, Manrique
3, Alsono 2, Parrilla 1, De Andres 1.
-SSv.