Dagblaðið - 10.03.1980, Page 17
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. MARZ 1980.
17
1
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Oruggur sigur hjá N jarðvík
—lögðu KR að velli með 100-83 í „Ljónagryfjunni” ogstefna á íslandsmeistaratitilinn
D
KR-ingar voru engin hindrun fyrir
Njarðvikinga á leið þeirra að íslands-
meistaralitlinum, þegar liðin ittust við
i Njarðvík í gærdag. Heimamenn
sigruðu með 100 stigum gegn 83, sem er
meiri munur heldur en flestir bjuggust
við, þvi KR-ingar höfðu fengið nýjan
Bandaríkjanna til liðs við sig, Keith
Yow, 2,08 m að hæð. Hann kunni
greinilega ekki við sig í fyrstunni.
Skoraði ekki körfu fyrr en undir lok
fyrri hálfleiks, en á eftir fylgdu aðrar
11 og varð hann stigahæstur KR-inga
með samtals 24 stig.
Njarðvíkingar eru sem sagt komnir
með aðra höndina á meistarabikarinn,
en það eru Valsmenn einnig, svo eftir er
að sjá hvor verður sterkari þegar þau
lið lenda saman eftir nokkra daga.
Ted Bee átti afbragðsgóðan leik.
Harður í vörn og djarfur í sókn og
dugandi og skoraði einmitt þegar mest
á reið fyrir liðið — en það gerði
Guðsteinn Ingimarsson einnig. Hann er
alhliða orðinn einn bezti körfuknatt-
leiksmaður á íslandi í dag og var oft
unun að sjá til hans i leiknum við KR-
inga, útsjónarsemi og hittni af löngum
færum, en samtals skoraði hann 32
stig. Gunnar Þorvarðarson gaf ekkert
eftir að venju, sennilega aldrei betri en
um þessar mundir og stigin urðu 19 hjá
honum áður en yfir lauk. Jónas
Jóhannsson fékk það hlutverk í
leiknum að gæta Keith Yows og átti
kannski stærstan þáttinn i hvað hann
var lengi að komast á „bragðið” með
að skora. Auk þess hirti Jónas
mýmörg fráköst og skoraði 10 stig,
flest af löngu færi, sem er nokkur
nýbreytni hjá honum.Smári Traustason
kom á óvart í lokin, þegar hann loks
fékk að koma inn á, og Brynjar Sig-
mundsson átti góða spretti.
Garðar Jóhannesson barðist eins og
Ijón í KR-liðinu og heimamönnum
gekk illa að hemja hann. Jón
Sigurðsson var eitthvað miður sín enda
vel gætt. Ágúst Lindal sýndi oft góð
tilþrif, var hittinn en sennilega of lítið
hafður inn á. Geir Þorsteinsson velgdi
sinum gömlu félögum undir uggum,
Blaklandsliðkvenna:
Oruggir sigrar
gegn Færeyjum
íslenzku kvennalandsliðin í blaki
lögðu loks af stað til Færeyja kl. 10 á
föstudagsmorgun eftir að verkfall
færeyskra brunavarða hafði tafið för
þeirra um sólarhring. Hófst þar með
fyrsta utanlandsferð kvennalandsliðs í
blaki en fyrstu kvennalandsleikirnir
voru leiknir i fyrra við Færeyinga hér á
landi. í ferðinni um helgina voru
lciknir 4 leikir, 2 A-landsiiðsleikir og 2
B-landsliðsleikir.
Á föstudeginum var leikið í Þórshöfn
og léku B-liðin fyrri leikinn sem hófst
kl. 18. Stúlkurnar komu þreyttar eftir
strangt ferðalag beint í leikinn en
íslenzka B-landsliðið vann engu að
siður 3—1, 15—2, 15—10, 14—16 og
15—10. Leikurinn var 87 mínútna
langur og frekar daufur, tækni fær-
eysku stúlknanna var léleg og litið
dæmt á þær.
Þvi næst léku A-liðin og var þar um
einstefnu að ræða. íslenzka liðið fékk
Iitla mótstöðu og vann 3—0, 15—3,
15—5 og 15—6.
Seinni leikirnir fóru fram í Klakksvík
á laugardeginum, B-landsliðsstúlkurn-
ar islenzku höfðu nú fengið smáhvíld
og hreinlega möluðu þær færeysku á
aðeins 44 mínútum, 15—6, 15—4 og
15—6. Var nú miklu meiri munur á
liðunum en i fyrri leiknum.
Hjá A-liðunum virtist það sama ætla
að verða upp á teningnum, íslenzka
liðið byrjaði á því að vinna fyrstu hrin-
una 15—4 og þá aðra 15—6 og allt
tefndi i enn eitt burstið en þá fannst
þeim færeysku nóg komið og hófu
þriðju hrinuna af miklum krafti. Þær
leiddu leikinn lengst framan af og
höfðu yfir upp i 12—11 en þá sneru
þær islenzku blaðinu við og mörðu
sigur 15—12. Siðasta hrinan var mikil
baráttuhrina og rnjög skemmtileg að
sögn Halldórs Jónssonar sem fór út
með stelpunum sem liðsstjóri og þjálf-
ari.
Eftir þessa landsleiki er Ijóst að is-
lenzka kvennalandsliðið er nánast á
öðru plani en það færeyska, það hlýtur
þvi að verða stefnan að leita á önnur
mið en þau færeysku þegar næstu verk-
efni verða valin, eigi islenzku stelp-
urnar á annað borð að fá einhverja
keppni i framtíðinni. Raunar er sömu
sögu að segja af karlalandsliðinu, getu-
munur íslands og Færeyja virðist vera
aðaukast. -kmu
Fermingarskór
Litur: Vínrautt leöur
skinnfóðraðir
Stœrðir: 381/2 — 41
Kr. 25.400.-
Litur: Tan- og
rauðbrúnt leður
Stœrðir: 40 — 45
Kr. 21.900.-
Pástsendum
Skóbúðin Suðurveri
Stigehlíð 45-47. Sími 83225.
■ rr-iw------o" j ..........
harður í vöm og skoraði 12 stig eins
og Jón en Ágúst einu færra. Vafalitið
Danir töpuðu
yfirleitt í
úrslitum
Opna danska meistaramótinu í
badminton lauk nú um helgina og
máttu Danir iðulega bíta i það súra epli
að tapa úrslitaleikjunum. í einliðaleik
karla sigraði Prakash frá Indlandi
Morten Frost frá Danmörku 15—7 og
18—13. 1 einliðaleik kvenna sigraði
Yonekura frá Japan Ivana frá
Indónesíu 11 —8 og 12—11.
Í tviliðaleik karla sigruðu þeir
Fleming Delfs og Steen Skovgaard þá
Chandra og Hadinata frá Indónesíu
10—15, 15—10 og 15—10. í tvíliðaleik
kvenna unnu þær Nora Perry og
Gillian Gilks Englandi þær Yonekura
og Tokuda frá Japan 18—15, 9—15,
15—9.
Loks i tvenndarleik sigruðu þau
Tredgelt og Perry Englandi þau
Skovgaard og Köppen frá Danmörku
15—11 og 15—8.
á Yow eftir að falla betur in í KR-liðið
.— það verður ef til vill of seint — þar
sem keppnistímabilinu er að Ijúka — en
eftir er að útkljá deilumálið um bikar-
leikinn við ÍS. KR á þvi ef til vill
tækifæri þar.
Njarðvikingar voru ávallt yfir,
nema i fyrri hálfleik að KR-ingum tókst
að ná frumkvæðinu 17—14 og 21 —18
en siðan ekki söguna meir. Þegar á leið
þvarr þeim máttur, úthaldið ekki í lagi?
— og Njarðvikingar sigruðu örugglega
á góðum endaspretti, ef nota má það
(orð um körfuknattleik.
Rodnina
ekki með
Irina Rodnina frá Sovétríkjunum
dró sig til baka í heimsmeistara-
keppninni í listhlaupi á skautum vegna
meiðsla um helgina. Rodnina og maður
ihennar Saitsev voru talin langsigur-
stranglegust fyrir keppnina, sem fram
fer í Dortmund í þessari viku.Hörðuslu
'keppinautar sovézka parsins, Tai
jBabilonia og Randy Gardner frá USA,
hafa einnig dregið sig til baka vegna
.meiðsla Gardner.
Dómarar voru þeir Hörður Tuliníus
og Guðbrandur Sigurðsson, rnjög
góðir.
ValuroglS
leikaíkvöld
í kvöld kl. 20 eigast við í íþróttahúsi
ÍHagaskólans Valur og ÍS i úr-
[valsdeildinni. Leikurinn ætti að geta
orðið skemmtilegur, þar sem ÍS hefur
verið að ná sér vel á strik að undan-
jfórnu. Valsmenn hafa unnið alla þrjá
■ leiki liðanna i vetur mjög sannfærandi.
Fyrst 95—82, þá 96—81 og loks 85—
72.
Staðan í úrvalsdeildinni er nú þessi:
ÍS-Fram 78—73
iNjarðvík-KR 100—83
jÍR—Fram 120—94
18 14
17 13
18 10
18 10
18
19
4 1529—1419 28
4 1521—1414 26
8 1474—1421 20
8 1622—1622 20
13 1534—1599 10
17 1479—1676 4
SKOT®
1 sjö daga, frá og meö
morgundeginum 11. marz til og
meö þriöjudeginum 18. marz,
bjóöum viö í Sýningahöllinni aldeitís
makalaus kjör, aöeins 100 þús. út
og 80 þús. á mánuöi í hvaöa rúmsett
sem er.
Við bjóðum yður að veija
úr 54 mismunandi
tegundum af hjónarúmum.
Komdu í Sýningahöllina
Bíldshöfða 20 - Sv81410 - 81199
Sýningahöllin - Ártúnshöfða