Dagblaðið - 17.03.1980, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980.
3
Opið bréf til ríkisskattstjóra
Sex hundruð þúsund kr.
mistök ekki leiðrétt
Stefán Pétursson, Skólavörðustig 26
(8358—3932) skrifar:
Hr. rikisskaltstjóri.
Ég skrifaði [rér brél' þann 31.
janúar sl. og bað þig vinsamlegast að
leiðrétta viðbótarútgjöld sem á mig
voru lögð síðast á árinu '79. Um þá
viðbólarálagningu vissi ég ekkert fyrr
en ég fékk seðil um fyrirframgreiðslu
sendan heim þann 28. janúar sl. Við-
bótin liljóðaði upp á 586.097 kr. og
var hún færð sem viðbót við fyrir-
framgreiðsluna 1.2. ’80. Með henni
átti ég að greiða tæpa milljón þann
dag.
Síðustu greiðsluna á árinu 1979
greiddi ég þann 27.11 ’79. Hún var
263.328 krónur og sýndi þá greiðslu-
kvittun stöðuna 0 sem rétt var. Þá
var ég búinn að greiða 1.923.328 kr. á
árinu ’79, eða það sem á mig var lagt.
Mér brá því ónotalega við út-
gjaldaaukninguna og dreif mig á
skattstofuna að fávitneskju unthverju
þetta sætti. Þar voru mér sýnd tvö
bréf sem mér höfðu verið send en þar
sem heimilisfangið var ekki rétt
skráð á þau hafði ég auðvitað aldrei
fengið bréfin. Þegar ég sá þau svo á
skatlstofunni kom í Ijós að um ntis-
skilning var að ræða af hálfu starfs-
manna hennar.
Þau gögn sem þurfti til
leiðréttingar fékk ég samdægurs. En
þá hljóp andskotinn í spilið. Enginn
taldi sér fært að leiðrétta þennan
misskilning þó allir þættust sjá að
hann væri augljós. Kærufrestur var
útrunninn og það var ekki þeim á
skattstofunni að kenna þó ég væri
haldinn einhverju flökkueðli og eirði
ekki við sömu götuna nenia
takmarkaðan tíma og pósturinn minn
glataðist. Einu leiðina sögðu þeir vera
að ég skrifaði ríkisskattstjóra bréf og
léti fylgja með öll gögn, þá fengi ég
þetta lagfært. Ég rölti inn á Skúla-
götu 57 og bað um viðtal við ríkis-
skattstjóra. Prúðbúinn ungur maður
sat þar fyrir innan afgreiðsluborð og
vildi fá að vita hvaða erindi ég ætti
við þig, sjálfan rikisskattstjórann. Þú
værir alls ekki til viðtals við.Pétur
eða Pál. Ég spurði manninn hvort
þetta væri ekki þinn vinnustaður og
ef svo væri taldi ég ekkert geta mælt
því í mót að ég fengi viðtal við þig.
Ég ætti brýnt erindi.
6 hundruð þúsund
peningur
fyrir mig
Ég sýndi unga manninum afrit af
báðurn bréfunum sem ég fékk hjá
skattstofunni, svo og sönnunar-
gögnin, sem beðið var um svo
leiðrétting fengist. Eftir að hafa litið
á pappírana sagði maðurinn að það
væru fordæmi fyrir því aðsvona mis-
tök væru lagfærð og ætti ég að skrifa
þér og senda þér alla pappírana nteð
bréfinu. Það gerði ég 31. jan. sl. og
keypti auk þess ábyrgð og
hraðsendingu undir bréfið til þess að
leiðrétting fengist sem fyrst. í dag er
10. ntarz og svar hef ég ekkert fengið.
Raddir
lesenda
Hringid
í síma
27022
milli kl. 13
og 15,
eða skrifið
Þessar 6 hundmð þúsund krónur eru
því enn til innheimtu hjá Gjaid-
heimtunni og hlaða á sig vöxtum og
vaxtavöxtunt.
Örugglega hefur þú góðar tekjur
og sex hundruð þúsund eru tittlinga-
skítur í þínum augum og ættu menn
ekki að gera rövl út af þeim. En því er
á annan veg farið með mig. Ég hef
slappar miðlungstekjur og því er
þessi upphæð stór fyrir mig og getur
raunar skipt sköpum um það hvort ég
get haldið því húsnæði sem ég hef
fest kaup á. Með tilliti til þess að þú
nenntir ekki að tala við mig, þegar ég
bað um viðtal 30. jan. sl., og eins
þess að þú hefur ekki nennt að svara
bréfinu sem ég skrifaði þér 31. jan.
þá er ég alveg hissa á því að þú skulir
nenna að vera ríkisskattstjóri. En
þú hefur kannski ekki nennu til að
hætta. Ef svona framkoma i starfi er
ekki leti þá get ég ekki annað meint
en það heiti embættishroki eða
mannfyrirlitning á hæsta stigi.
Stefán segir í bréfi sínu að tckið hafi
verið af sér 6 hundruð þúsund
krónum of mikið i skatta. Allir
viðurkenni mistökin en enginn vilji
leiðrétta þau.
.....— .......
Hljómburðurinn
einmitt
eins og þú
óskar þé
hann...
FÁLKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
I mótsetningu við öll önnurstereo-heyrnar-
tæki getur þú á KOSS Technican/VFR stjórnað
hljómburðinum alveg eftir þínu höfði. ístaðinn
fyrirað þú hlustirá uppáhalds tónverkin eins og aðrir heyra þau, nýtur þú þess að geta
framkallað þann hljómburð sem er þér að skapi- aðeins með því að færa til VFR-stillinn.
Tæknilegar upplýsingar: 50 mm aflhátalarar • Mótstaða : 230 ohm/1 kHz
Tíðnisvið: 10-22000 Hz • Næmleiki: 95 V-rms/1 kHz • Bjögun: Minni en 0,4%/1 kHz/100
dB SPL • Hljóðstyrkur við 1% bjögun: 108 dB/1 khlz • 3 metra gormlaga aðtaug
„Pneumalite” eyrnapúðar. • Tenging fyrir gálgahljóðnema • Þyngd: 483 g (u/aðtaug)
Hvað ætlar þú að
gera í páskafrfinu?
Sólveig Krístinsdóttir „bara
húsmóðir”: Ég ætla bara að vera
heima og hafa það gott.
Spurning
dagsins
Marteinn Lárusson nerni: Ég ætla að
selja blöð í páskafríinu og vera heima.
Ólöf Ásbjörnsdóttir sjúkraliðanemi:
Ætli ég verði ekki að vinna í
Stjörnubíói.
Pétur Arason verzlunarmaður: Ég
ætla nú bara að vera heima og hafa það
gott i fríinu.
Erla Baldursdóttir nemi: Ég á að
fermast um páskana svo ég hef nóg að
gera.
Björk Ragnarsdóttir nemi: Ég ætla til
Akureyrar áskíði um páskana.