Dagblaðið - 17.03.1980, Blaðsíða 8
g
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. MARZ 1980.
HAPPY-HÚSGÖGN eru hönnuð fyrir ungt fólk,
enda sýna vinsældirþeirra að þau eruþaö
sem unga fólkiö vill.
HAPPY-SVEFNBEKKUR, léttur og þægilegur
með þremur púöum í baki og rúmgóöa
sængurfatageymslu.
Verð: 149.000. Einnig fáanlegur2ja manna.
HAPPY-SKRIFBORÐID tekur ekki mikið pláss
en þjónarvel sínum tilgangi. Verð: 71.000.
HAPPY-SKÁPARNIR passa alls staðar.
Þeim má raða eins og hver vili. Mjög hagstætt
verð.
HAPPY-HÚSGÖGNIN eru einnig fáanleg úr
mahogni plötum.
HAPPY-HÚSGÖGNIN eru vönduö vara sem
þérgetið treyst.
Fást íöllum helstu húsgagnaverslunum
landsins.
Bandaríkin:
Ford ætlar ekki í
forsetaslaginn
—segist ekki vilja valda sundrungu í Repúblikanaflokknum
Gerald Ford fyrrum forseti Banda-
rikjanna hefur ákveðið að taka ekki
þátt i keppninni um útnefningu
Republikanaflokksins um forseta-
frambjóðanda. Ford tilkynnti þessa
ákvörðun sína á heimili sínu i Palm
Springs í Kaliforníu í gær. Sagðist
hann ekki telja rétt að hætta á enn
frekari klofning i flokki jepúblikana
cn þegar væri.
,,Þetla er ein erfiðasta ákvörðun
lífs mins,” sagði Gerald Ford, þvi ég
lel að Bandaríkin þarfnist nýs forseta
til að koma þeim upp úr hinum miklu
erfiðleikum sem að þjóðinni steðja,
Talið er að meginástæðan fyrir því að
Ford lagði ekki út í kosningabarátt-
una að þessu sinni hafi verið sú að
hann hafi ekki fengið nægan stuðn-
ing flokksbræðra sinna. Ford er nú
66 ára og tapaði fyrir Jimmy Carter i
forsetakosningunum árið 1976. Hann
var skipaður varaforseti eftir að
Spiro Agnew varaforseti Nixons varð
að segja af sér árið 1974. Siðan tók
Ford við embætti forseta Bandarikj-
anna þegar Nixon neyddist til að
segja af sér vegna eftirleiks Water-
gatemálsins. Er Gerald Ford eini
maðurinn sem gegnt hefur embætti
forseta Bandaríkjanna án þess að
hal'a verið kjörinn i embættið.
Ákvörðun Fords bætir stöðu Ron-
alds Reagans fyrrum fylkisstjóra i
Kaliforniu i baráttunni fyrir útnefn-
ingu Repöblikanaflokksins. Næstu
forkosningar fara fram i Illinois.
Bæði Ronald Reagan og John
Anderson fulltrúadeildarþingmaður
frá lllinois hafa fagnað ákvörðun
Fords. Segja þeir að hún hafi hreins-
að andrúmsloftið. Telja þeir báðir að
staða þeirra sjálfra hafi batnað til
muna. Helztu andstæðingar Reagans
eru taldir þeir George Bush fyrrum
forstjóri CIA og John Anderson
þingmaður. Hvorugur þeirra er þó
talinn liklegur til að veita Reagan
verulega keppni.
Gerald Ford fékk ekki nægiíegan stuðning til að leggja út í baráttuna gegn Ron-
ald Reagan.
Erlendar
fréttir
MÓSAÍK PARKETT
• HARDVIDARPARKETT
Auðvelt
að
leggja
Slit-
sterkt
Údýrt
Sópa gólfið
Lím á gólfið
Leggio flisarnar þétt
BYGGINGA
VÖRUR
Útsölustaðir: Norflurfell Akureyri Miflstöflin Vestmannaeyjum
Nýborg # ármúla 23
SÍMI
86911