Dagblaðið - 20.03.1980, Page 5

Dagblaðið - 20.03.1980, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980. 5 Sjómannaverkfallið á Isafirði: Helzta krafan sögð rökleysa —ekki hægt að vera á beinum launum og launahlut fyrir sömu vinnu Misjöfnum augum er litið á verk- fallsboðun undirmanna Ísafjarðar- togaranna fjögurra en Ijóst er þó að þar hefur Sjómannafélag ísafjarðar skorið sig frá öðrum verkalýðs- félögum innan Alþýðusambands ís- lands. Ekkert annað félag með sjómenn innanborðs hefur við núverandi að- stæður lagt út í það að krefjast hærri skiptaprósentu. Raunar hafa ís- firðingarnir þegar lækkað sínar kröfur úr 3% niður i 1,5% en það helgast af því að oliugjald sem tekið er af óskiptu hefur lækkað úr 9% í 5%. Útvegsmenn telja 1,5% hækkun á prósentustigi aflahluta skipshafnar fjarstæðu miðað við alla þróun mála og hafa tekið fram að þeir séu ekki til umræðu um slíkt við skipverja á minni skuttogurunum. Sjómenn í Sjómannafélagi ísa- fjarðar krefjast einnig sérstakra launa fyrir vinnu sem þeir leggja fram við veiðar og vinnslu aflans á frivöktum. Samkvæint satnninguin á að vinna i sex klukkustundir og síðan áað vera fri í sex klukkustundir. „Þar leggjum við fram aukavinnu án nokkurrar greiðslu,” segja sjómenn. „Sjómenn fá sinn hlut af auknuin afla í því tilfelli,” segja út- vegsmenn. Sérfróðir um launakjör sjómanna segja að ekki sé á neinn hátt hægt að verja beinan aflahlut, eins og sjó- menn af ísafjarðartogurunum fá eins og aðrir á minni skuttogurunum, og á togurunum verði réttlætl með skiptingu í fleiri hluti en gert er ráð fyrir samkvæint sainningum. Slikt er þó ávallt mögulegt. Félagar í Sjómannafélagi ísa- fjarðar standa einir í þessu verkfalli. Þeir féllust á beiðni kjararáðstefnu Alþýðusambands Vestfjarða uin að fresta verkfalli hvað varðar þá þrjá línubáta, sem gerðir eru út frá ísa- firði. Hins vegar ákvað Isafjarðar- félagið að láta verkfallsboðun sina gilda um þá fjóra togara, sein gerðir eru úl frá ísafirði. Samkvæmt athugun DB þá virðast flestir viðurkenna að kröfur urn fritt fæði um borð í togurum og öðrum fiskiskipum séu sanngirnismál og sama má segja um kröfuna um að hærra verði greitt fyrir „akkorðs” vinnu fyrir beitningu á linu. Samkvæmt sömu athugun þá verður hins vegar ekki annað séð en samúðin sé mjög takmörkuð með hæst launuðu sjómönnum landsins, þegar þeir gera sinar kröfur. Er þá ekki gleymt þeirri staðreynd að þessir sömu tnenn búa við miklar sveilfur i launakjörum sinum. -()(;. Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ: aukagreiðslur fyrir aukavinnu. Þar hljóti að vera um tvöfaldá greiðslu fyrir sömu vinnu að ræða þess vegna sé krafan rökleysa. Heimildir DB á Vestfjörðum kannast ekki við að sjómenn á togurum þar hafi fengið aukamenn í neinum verulegum mæli til afleysinga vegna mikils afla. Þar með virðist sú röksemcj falla að hátt kaup skipverja „Við vitum launatöl- umar og birtum þær” — Vek athygli á að Sjómannafélag ísafjarðar stendur eitt að sfnum kröfum, segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ ísafjarðartogarinn Guðbjörg, einn fjögurra verkfall. togara sem stöðvast, verði „Á meðan þeir nefna engar aðrar tölur um tekjur sjómanna á togurunum finnst mér ekki ástæða til aðendurskoða þær launatölur sem ég hef gefið upp í sambandi við sjómenn á togurum frá ísafirði,” sagði Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands isl. útvegsmanna i viðtali við DB i gær. ,,Við vitum þessar tölur, læpar sex milljónir hjá háseta frá ára- mótuin, og þess vegna birtum við þær, þegar allar horfur eru á því að þessir menn muni Ieggja niður störf.” Kristján Ragnarsson sagðist vilja vekja athygli á því að Sjómannafélag ísfirðinga stæði eitt að þessari verk- fallsboðun. Hún gildi aðeins um þá fjóra togara, sem gerðir væru út frá ísafirði og enga aðra togara. Þeir þrír línubátar, sem frá ísafirði væru gerðir út færu ekki í verkfall fyrr en um næstu mánaðamót. „Ég hef aldrei kynnzt því fyrr að inenn séu vittir í fjölmiðlum fyrir að vilja ekki ganga algjörlega að kröfum gagnaðilans í kjarasamningum eins og nú hefur átt sér stað i blöðum und- Kristján Kagnarsson, formaður LÍÚ. anfarna daga. Ástæðan fyrir þvi að LÍÚ kemur inn í þessa samningagerð er aðeins að ósk útvegsmanna á ísa- firði og engan veginn neitt annað en fyrirkomulagsatriði, sagði Kristján Ragnarsson ennfremur. Um þau orð Péturs Sigurðssonar, forseta Alþýðusambands Vestfjarða, að neitað hefði verið viðræðum og samningamálin væru orðin að hreinu stríði milli aðila, sagði Kristján að væru furðuleg í ljósi þeirrar staðreyndar að Alþýðusam- band Vestfjarða hefði skorað á Sjó- mannafélag ísafjarðar að fresta verk- fallinu. Þeirri áskorun hefðu Ís- firðingar hins vegar hafnað. Sjó- mannafélag ísafjarðar væri eina félagið sem lagt hefði fram kröfur fyrir hönd sjómanna að undanskildu Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungavikur. Á kröfum þessara félaga væri hins vegar mikill munur. Bolvíkingar hefðu til dæmis ekki farið fram á hækkaða skiplaprósentu né hækkaða kauptryggingu. Kristján Ragnarsson taldi kröfur Sjómannafélags Ísfirðinga um greiðslu fyrir vinnu á frídögum rangt hugsaða og engan veginn samræmast þeirri reglu að sjómenn fengju i laúnahlut vissa prósentu af afla. -ÓG. Karvel Pálmason alþingismaður og formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins í Bolungarvík: „Höfuðkrafa um frítt fæði” —en hart að fá ekki tækifæri til að ræða við útvegsmem „Kröfur okkar i Víkinni eru aðal- lega þær að frítt fæði verði um borð i minni skuttogurunum auk nokkurra smávægilegra annarra atriða, sein okkur finnst ekki ástæða til að verði til vinslita,” sagði Karvel Pálinason alþingismaður og formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins á Bolungavík í viðtali við DB í gær. Hann sagði að kröfur þær sem Alþýðusamband Vestfjarða hefði á- kveðið að leggja fram fyrir sjómenn hefðu hins vegar verið allar þær kröfur sem komið hefðu fram hjá félögunum. Þar á ineðal hefðu verið kröfur ísfirðinganna um hækkaða skiptaprósentu, hækkaða launa- tryggingu og greiðslu fyrir vinnu á frivöktum. Þessar þrjár síðastnefndu kröfur virtust vera þær sem mestum hita yllu. Hins vegar þætti þeim Bolvikingum það hart að fá ekki einu sinni tækifæri til að ræða við útvegs- menn um önnur atriði málsins. „Ég vil á þessu stigi málsins ekk- ert láta hafa eftir ntér um þær kröfur sem ísfirðingarnir leggja fram en það er vissulega áhyggjuefni ef deiluaðilar geta ekki einu sinni rætt tnálin sin á milli. Með viðræðum finnst lausn málsins og ég sé ekki hvernig endir þessarar deilu verður án viðræðna,” sagði Karvel Pálma- son. — Hvernig vilt þú, Karvel, rökstyðja þá kröfu að sjóntenn fái fitt fæði um borð i skipunum? „Fritt fæði fjarri heimili þarf raunverulega ekki að rökstyðja,” svarar Karvel. ,,Ég veit ekki um neina stétt á Islandi, sem dvelur fjarri heiinili sinu langtimum saman og þarf að greiða fæði. Fleslir sjómenn þurfa enn að greiða hluta fæðis- kostnaðar sins en nokkur hluti er greiddur úr sameiginlegum sjóði sjó- manna og úlvegsmanna-áhafnadeild Aflatryggingasjóðs. Frítt fæði á sjó er sjálfsagt réttlætismál.” Karvcl Pálmason, alþingismaður. Bæta á símasambandið við Kjósina: „ORDUM AUKIÐ AÐ ÁSTANDIÐSÉ EINS SLÆMT —og Kjósverjar segja” ,,Ekki eru uppi hugmyndir um að koma á sjálfvirku símasambandi við Kjósina á næstunni, til þess hefur ekki fengizt fjárveiting. En ráðgert er að bæta ástandið í símamálum þar eitt- hvað og hugmynd hefur komið upp um að tengja svæðið við Reykjavík þannig að opið sé í lengri tíma á hverjum sólar- hring,” sagði Kristján Helgason um- dæmisstjóri Pósts og síma fyrir Reykjavik og nágrenni. Á laugardag, er opnuð var ný símstöð að Varmá i Mosfellssveit, mættu nokkrir menn úr Kjósinni, með mótmælaskjal á athöfnina. í skjalinu var fundið að símamálum í Kjós og talað um að loforð um úrbætur hefðu verið margsvikin. Á meðan Kjósverjar voru þar að mótmæla fékk eiginkona eins þeirra fæðingarhriðir og þurfti sjálf að aka á fund eiginmanns síns, þar eð ekki náðist simasamband við lækni eða sjúkralið. Vildu Kjósverjar meina að þar væri aðeins eitt dæmi af mörgum. „Þetta held ég að sé orðum aukið,” sagði Kristján umdæmisstjóri. „Það sem gerðist á laugardaginn var að norðurstrengurinn fór í sundur og því hefði símasamband við Kjós dottið niður, jafnvel þó að sjálfvirk símstöð hefði verið á staðnum. Þarna er fjölsími sem dettur út ef rafmagnið dettur út en ennþá hafa ekki verið veittir fjármunir til að endurnýja slík tæki sem eru víða um land.” — Enþvað um Kjalarnesið? „Kjalarnesið er með samband við Reykjavík og því hægt að ná sambandi þaðan allan sólarhringinn. Við gerum Brunamálastofnun ríkisins sendir frá sér þessa dagana ýmis gögn um brunavarnir. Gögnin verða send til 400 aðila. Þar á meðal eru ýmsar opinberar stofnanir og menn sem fást við byggingar. Aðrir geta einnig keypt ráð fyrir að tengja það við sjálfvirkt samband nú á árinu,” sagði Kristján. þessi gögn. Þama er á ferðinni reglugerð um brunavarnir, upplýsingar um vatns- úðakerfi, leiðbeiningar um brunavarnir á heimilum og orðsendingar til slökkviliðsstjóraásamt fleiru. * -DS. -DS. BRUNAMALASTOFNUN SENDIR ÚT UPPLÝSINGAR

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.