Dagblaðið - 20.03.1980, Side 18

Dagblaðið - 20.03.1980, Side 18
18 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980. STRUTURINN ERBEZTI VINURINN Strútar eru nú eiginlega ekki vinalegastir og skemmtilegastir fugla. Þeir eru ekkert líkir páfagaukum sem syngja og geta talað. Strútar geta yfirleitt lítið annað en að stinga höfðinu í sandinn. Nú og svo gefa þeir stundum heldri frúm fjaðrir til að skreyta hatta með. Hún Cathy Holter, sem er aðeins þriggja ára, er ekki á því að strútar séu leiðinlegir. Hún hefur nefnilega valið sér einn sem sinn bezta vin. Faðir Cathy er gœzlumaður dýra í Blooming- ham í Kaliforníu og þar er strút- urinn, vinur Cathy. Cathy fær að sitja á baki strútsins og hann borðar úr hendi hennar. Auk þess fær eng- inn annar en hún að gæta eggja hans. Skemmtilegurfélagiþað. Leikur íáströlskum myndaflokki Þessi stúlka, sem við sjáum á mynd- inni, heitir Olga Tamara. Hún dansaði með ástralska ballettinum fyrir sex ár- um. Hún ferðaðist m.a. með hópnum til Evrópu, Ameríku og Asíu við góðan orðstír. Eftir það sneri hún sér að leik- list. Nú leikur Olga eitt aðalhlutverk- anna i áströlskum myndaflokki sem nefnist Arcade. Kannski hann eigi eftir að birtast okkur einhvern tima. Olga, sem er 28 ára, ver fristundum sínum aðallega við að láta sig renna á sjó- skíðum. Göt í eyrun? Nei, göt í neglumar Við þekkjum öll eyrnalokka sem festir eru í þar tilgerð göt í eyrunum. En hafið þið heyrt getið um ,,nagla”skartgripi, þ.e. örlitla skartgripi sem festir eru með gati ígegnum fingur- neglur? Það hafa þeir í henni Ameríku. Renee Dawson og Judith Herzog fengu hug- myndina að þessu naglaskrauti fyrir um það bil tveimur árum þegar nokkurs konar eyrna- lokkaæði greip um sig vestan- hafs. Þær fóru að selja slíka skartgripi fyrir neglurnar og hefurorðið velágengt. Pínulítill skrautsteinn er Neglurnar verða að vera bæði langar og sterkar til þess að hægt sé að nota þessa nýju skartgripategund. Þær stöllur verða sennilega vellrikar á þessum naglaskartgripum sinum, ef þær eru þá ekki þegar orðnar það. festur á örlitla undirstöðu úr 14 karat gulli. Með í pakkan- um fylgir smábor til þess að bora í gegnum nöglina. Skartið er síðan fest með lítilli skrúfu, alveg eins og eyrnalokkar í gegnum eyrnagöt. Herlegheit- in kosta 50 dollara. Stórverzlanirnar Blooming- dales og Gimbel seldu þessa nýstárlegu skartgripategund fyrir jólin og er nú verið að framleiða 500 þúsund stykki! Það er víst betra að þurfa ekki að gera vorhreingerningar eða sulla i uppþvottabalanum þegar svona skartgripir eru notaðir. VEÐR' K>ER bezt Þessi fagra mær, sem krýpur þarna og gefur öndunum, heitir Suzie Arthur og er amer- ísk leikkona. Ekki könnumst við við nafnið en þeir eiga svo margar leikkonur í Ameríku svo það er varla að furða. Suzie þessi heimsótti England á dögunum og var ánægðust með veðrið þar, sem henni þótti mjöggott. A^x;:ý.v 'M >*ví V Vv 4.: . • - ■ - ■. * . K..-. . * i íw

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.