Dagblaðið - 20.03.1980, Qupperneq 28
Næturflug Flugleiða vinsælt:
ÞEGAR FULLBOKAÐ í
FYRSIUF
" Nýju næturfargjöldin sem*
Flugleiðir bjóða upp á í sumar á
leiðinni Reykjavík-Kaupmannahöfn
og DB greindi frá í gær virðast ætla
að njóta mikilla vinsælda.
Mjög margir hringdu til Flugleiða
í gær og spurðust fyrir um þessar
ferðir og er þegar fullbókað í tvær
fyrstu ferðirnar.
Sveinn Sæmundsson, blaða-
fulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við
DB i morgun, að þessar ferðir virtust
ætla að nýtast vel og með þeim virtist
vera komið til móts við þarfir ýmissa
aðila.
Hann sagðist álíta að mjög margir
þeirra sem senda bíla sína til
Kaupmannahafnar í sumar með skipi
á vegum Útsýnar mundu notfæra sér
þessi næturflug.
Eins og DB greindi frá í gær er
fargjaldið með næturfluginu
helmingi minna en hið almenna sér-
fargjald eða 101 þúsund krónur fyrir
báðar leiðir i næturflugi á móti 204
þúsundum í hefðbundnu flugi.
Sveinn sagði fargjöld þessi gild frá
1. apríl til októberloka. Hins vegar er
ljóst að ekki er hægt að nýta sér þau
allan þann tima því fyrsta ferðin er
26. maí og sú síðasta 12. september.
-GAJ.
Vorjafndægurídag:
HONDLAÐ MED V0RB0DANN
Dagurinn I dag nœrþvífyrstur þetta vorið að vera jafnlangur nóttinni. Vorjafndægur, Marvel Eðvaldsson hefur 125 ár höndlað með einn vorboðann, grásleppuna. Hann
dagur sem lengi hefur verið tákn I augum þjóðarinnar um bjartari framtlð, eru I dag. afgreiðir hér eina hafnfirska frú sem ætlar að gæða fiölskyldu sinni á nýmeti meðan
Ýmsir vorboðar eru þegar famir að sjást þó kuldinn I morgun bendi til þess aðekkisé hugsað er um vorið.
vorið alveg komið. DS/DB-myndS.
Skákmótið íLone Pine:
Jón umkringdur
stórmeisturum
-íbaráttunni
umefstusætin.
Stórglæsileg
skákhjá
Margeiriígær
Jón L. Árnason er enn í hópi efstu
manna, umkringdur stórmeisturum,
á hinu geysisterka skákmóti í Lone
Pine í Kaliforníu. Hann gerði í gær
jafntefli við sovézka stórmeistarann
Balashov og er í 3.-6. sæti af 43
keppendum með 3 vinninga.
Jón hafði svart i skákinni gegn
Balashov og tókst honum fljótlega að
jafna taflið og eftir 20 leiki sá sovézki
stórmeistarinn þann kost vænstan að
bjóða jafntefli sem Jón þáði.
Margeir Pétursson tefldi við
alþjóðlega meistarann Grease frá
Bandaríkjunum og hafði hvítt. Að
sögn Jóns var hér um stórkostlega
skák að ræða hjá Margeiri, sem va'kTi
mikla athygli og var talin líkleg til að
hljóta fegurðarverðlaun.
Margeir fómaði fljótlega peði og
síðan tveimur mönnum fyrir hrók.
Náði hann síðan að brjóta upp
kóngsstöðu andstæðings síns og fékk
óstöðvandi sókn og vann glæsilega.
HefurMargeir nú l,5vinning.
Efstu mennirnir Geller og
Whitehead gerðu jafntefli og kom á
óvart að Geller skyldi ekki reyna að
tefla til sigurs í þeirri skák.
Staða efstu manna að loknum 4
umferðumer þessi:
1.-2. Geller og Whitehead 3,5
vinninga.
3.-6. Jón L. Árnason 3 vinninga.
3.-6. Gheorghiu 3. vinninga.
3.-6. Larsen 3 vinninga.
3.-6. Quinteros 3 vinninga.
Líklega bætast stórmeistararnir
Panno og Alburt í þennan hóp en
þeir eiga biðskák. Þess má geta að
góðkunningjar íslendinga frá því á
Reykjavíkurskákmótinu, þeir Miles
og Browne, hafa báðir 2,5 vinninga.
Sömuleiðis sovézki stórmeistarinn
Balashov.
-GAJ.
frfálst, áháð dagblað
FIMMTUDAGUR 20. MARZ1980.
Nýslátruð
paskalömb
tilDana
Þrjátiu og átta páskalömb hafa verið
alin í Gunnarsholti í vetur. Miðað er
við að þessum lömbum verði slátrað
28. marz nk. Daginn eftir verður flogið
með kjötið til Kaupmannahafnar þar
sem það verður á boðstólum fyrir pásk-
ana.
Þetta er nýjasta tilraun af mörgum
sem búvörudeild SÍS hefur annazt til að
koma á útflutningi á kældu dilkakjöti
af nýslátruðu. Kemur þetta fram í Sam-
bandsfréttum.
Ærnar voru látnar bera á afbrigðileg-
um tíma, þannig að lömbin yrðu tilbúin
til slátrunar fyrir páska. Þessi tilraun
gekk vel, en ekki er vitað hvað fæst
fyrir kjötið. Fer það því væntanlega
eftir viðtökum danskra neytenda hvort
tilraunin verður endurtekin. - EVI
Skattfrjáls
eigner
30 millj.
h já hjónum
Eignarskattsmörkin verða í ár 15
milljónir hjá einstaklingi og 30
milljónir hjá hjónum, að þvi er Halldór
■ Ásgrímsson alþingismaður (F) tjáði DB
í morgun.
Halldór gerir ráð fyrir, að eignar-
skatturinn verði 1,2% á nettóeign
umfram framangreind mörk.
Eftir uppnám á Alþingi í gær var
uinræðum um hækkun útsvarsins
frestað til mánudags.
Magnús H. Magnússon (A), tók
ekki undir tilmæli stjórnarliða um
samninga um útsvarsmálið, sem DB
skýrði frá í gær.
Stjórnarandstæðingar vildu fresta
umræðum, þar til frumvarp um skatt-
stiga lægi fyrir. Ragnar Arnalds fjár-
málaráðherra gaf þá nokkrar
upplýsingar, en takmarkaðar, um hvað
stjórnin hyggst fyrir um skattstigana.
Ragnar sagði að persónuafsláttur yrði
440 þúsund á einstakling. Skatturinn
yrði 20% af fyrstu 3 milljón króna
tekjuskattstofni (nettótekjum), 35% af
næstu 3 milljónunum og 50% af þvi,
sem færi fram yfir 6 milljónir. Þessi
mörk hafa lækkað i meðferð frá þvi
sem búizt var við fyrir viku. Stjórnar-
andstæðingum þótti þetta
ófullnægjandi og vildu fresta
umræðum um útsvarið. Var því fyrst
neitað en síðar tókst samkomulag um
frestun. -HH.