Dagblaðið - 27.06.1980, Side 27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1980.
35
Sjónvarp
8
Útvarp
Albert, Vigdis, Guðlaugur eða Pétur, hver skyldi verða næsti forseti Islands?
ÁVÖRP FORSETAEFNANNA - sjónvarp kl. 21,05
Koma f ram í síðasta
sinn fyrir kosningar
Þá er stóra stundin að renna upp,
forsetakjörið sjálft, og í kvöld koma
forsetaframbjóðendurnir í síðasta
skipti fram í ríkisfjölmiðlunum fyrir
kosningar. Þá flytja þeir hver sitt á-
varp í sjónvarpi en kynnir er Guðjón
Einarsson.
Dregið var um röð forsetafram-
bjóðendanna og er hún þessi: Vigdís
Finnbogadóttir, Albert Guðmunds-
son, Guðlaugur Þorvaldsson og
Pétur Thorsteinsson.
Án efa hafa sumir ekki enn á-
kveðið hvern þeir kjósasértilforseta,
en í kvöld er kjörið tækifæri til að
bera forsetaefnin saman og vega og
metakosti þeirraoggalla.
-SA.
DAUÐINN í GLASINU - útvarp kl. 21,30:
UPPIÁ FJÖLLUM MEÐ
KARLI, KONU 0G LÍKI
„Sagan er sálarlífslýsing,” sagði eru karl og kona og lík,” sagði Halldór Nils Johan Rud fæddist árið 1908,
Halldór S. Stefánsson, en hann les í og bætti við að eiginlega mætti segja að en fyrstu sögu sína gaf hann út 1935.
kvöld eigin þýðingu á smásögunni
Dauðinn í glasinu. Hún er eftir
Norðmanninn Nils Johan Rud, en sá
hefur skrifað töluvert af smásögum.
,,í upphafi segir frá sýslumanni,
sem er á ferðalagi upp til fjalla og hálf-
villist. Hann kemur að bústað, þar sem
tn hafi látizt af slysaskoti.
Sú var mjög mótuð af kreppunni og
nefndist Ég er enginn öreigi. Siðar sneri
hann sér að sálrænum sögum og gaf
1947 út tríólógíuna Synd friðarins.
Hann hefur einnig samið smásögur og
Dauðinn í glasinu birtist einmitt í smá
sagnaefni. -SA
„UPP RÍSIÞJODLIÐ.
Prýðileg þykja mér útvarpserindi
Bjarna Einarssonar, Mælt mál, sem
eru á dagskrá útarpsins á
mánudögum og fimmtudögum. í
gærkvöldi veik flytjandi að þýðingu
texta á islenzku. ,,Þar er að finna
málvillur sem ekki koma annars
staðar fyrir,” sagði hann, og tók
dæmi. Aðfinnslur hans og
ábendingar 'virtust mér fyllilega rétt-
mætar, svo sem oftast fyrr.
Stutt er síðan Bjarni ræddi um
ósmekkvísi í málfari manna. Þeim
lestri fagnaði ég sérstaklega. Það er
algeng hugsunarvilla að um smekks-
atriði eigi menn ekki að deila.
Þar sé hver og einn dómari.
Auðvitað er þetta hin mesta firra.
Um hvað ættu menn þá að deila?
Kannski staðreyndir?
íslenzkt mál er sameign okkar og
dýrmætasti fjársjóður. Mölur og ryð
granda efnislegum eigum, en
skeytingarleysi og værukærð eru
hættulegustu fjandmenn málsins.
Málvöndun má styðja augljósum nyt-
semdarrökum, en á endanum hygg
ég að ræktun íslenzks máls sé
siðferðislegs eðlis. Ef menn eru
sinnulausir um mál sitt eru menn það
um hugsun sína líka því mál er
búningur hugsunar. Hið sama gildir
þá bersýnilega um öll önnur
alvörumál. Afstaða manna til
málsins er prófsteinn á lífsskoðun
þeirra.
Það er skoðun mín, að fjölmiðlar;
dagblöð, útvarp og sjónvarp, verði
að gefa umræðu um islenzkt mál
meiri gaum en hingað til og stofna
sjálfir til hennar; ekki til málamynda
á tyllidögum heldur í alvöru á degi
hverjum. Framundan eru óvissir
tímar; alþjóðleg fjölmiðlabylting og
nýjungar á sviði tækni og vísinda
munu skapa íslenzkri tungu meiri
vanda en hún hefur áður glímt við.
Ef við viljum vera áfram íslendingar
megum við ekki leggja hendur í
skaut. Við verðum að vakna til dáða.
„Upp rísi þjóðlið. . .” o.s.frv.
-GM
450 ÁR — útvarp kl. 20,45:
Friðargjörð kaþólskra
og lútherskra
Miklar trúardeilur geisuðu í Þýzkalandi á 16. öld, allt til þess tíma, er friður
milli kaþólikka og lútherstrúarmanna var saminn í Ágsborg 1555.
Prestastefnu íslands 1980 lauk í
gær, en i tilefni hennar flytur Jón
Sigurðsson ritstjóri synoduserindi í
útvarpi í kvöld. Fjallar erindið um
Ágsborgarjátninguna.
Ágsborgarjátningin var friðargerð
lútherstrúarmanna og kaþólikka í
Þýzkalandi á 16. öld. Þá hafði lengi
geisað trúarstrið í landinu og vildu
margir taka upp hinn nýja sið
Lúthers. Friöur var loks saminn i
Ágsborg árið 1555 og undirritaði
Ferdinand Austurrikiskeisari
játninguna fyrir hönd bróður síns,
Karls V. keisara.
í Ágsborgarjátningunni er tekið
fram að þegnar hvers ríkis skuli vera
sömu trúar og þjóðhöfðinginn, en
honum var í sjálfs vald sett hvort
hann fylgdi lútherskum sið eða
kaþólskum.
-SA.
Fjalllendi Noregs er sögusvið smásögunnar, sem Halldór S. Stefánsson les I kvöld.
Sagan fjallar ekki um áfengi, eins og margur gxti ályktað af nafni hennar, Dauðinn i
glasinu, heldur er hún sálarlífslýsing, en höfundur hennar er Nils Johan Rud.
★ Efþú stendur tímunum saman
★ Ef þú ert barnshafandi
★ Efþú hreyfirþig fítíð og hefur lé/ega
blóðrás
★ Ef fætur þínir eruþreyttir og bó/gnir á
kvöldin
★ Þá éettir þú að klæðast Delilah
sjúkrasokkabuxum
★ Ennfremur fyrir/iggfandi Samson
sjúkrasokkar fyrir karlmenn ímörgum
litum.
I&mediahf.
Borgartúni 29 — Reykjavfk — Sfmi 27511.