Dagblaðið - 03.07.1980, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ1980.
15
3
þróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
sinu i uær. I frí'ttinni er sact frá upphafi altinnu
Fór baráttuviljinn út með Kirby?
—FH-ingar sigruðu Skagamenn í annað skiptið í röð 3-1. Nú í bikamum og öll mörkin
komu á síðustu 23 mínútum leiksins i Kaplakrika
FH-ingar ráku af scr slyðruorð
síðustu leikja og sigruðu Akurnesinga
3—1 i 16-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ
í gærkvöld. Sigur FH var ekki ósann-
gjam ef i heildina er litið en lengi vel
framan voru Skagamenn sterkari aðil-
inn. Hvorugt liðanna náði þó að skapa
sér umtalsverð færí og það var ekki
fyrr en á 43. mín. að ástæða var til að
lyfta pennanum. Þá gaf Krístinn
Björnsson vel fyrir markið en Júlíus
Pétur Ingólfsson skaut vel yfir úr
þokkalegu færí. Minútu síðar fékk
Sigurður Lárusson knöttinn á sama
punkti eftir sendingu Krístins en skot
hans fór einnig yfir.
Siðari hálfleikurinn var mun fjörugri
enda þurfti ekki mikið til að bæta um
betur frá þeim fyrri. Skagamenn voru
mun atkvæðameiri framan af hálf-
leiknum og FH skapaði sér ekki eitt
einasta færi að heitið gat fyrr en á 67.
mínútu og þá lá knötturinn í nelinu.
Helgi Ragnarsson og Magnús Teitsson
unnu þá laglega saman úti á hægri
kantinum og Magnús gaf fyrir markið.
Þar tók Pálmi Jónsson knöttinn laglega
á brjóstið, sneri siðan á Jón
Gunnlaugsson og skoraði gullfallegt
mark í hornið fjær, 1—0.
Að vanda tókst FH-ingum ekki að
halda forystunni nema í skamma
stund. Ólæknandi kvilli i þeim her-
búðum að því er virðist. Eftir horn-
spyrnu Kristjáns Olgeirssonar missti
Friðrik, markvörður knöttinn yfir sig.
Eftir darraðardans sveif knötturinn i
boga áleiðis i markið. Viðar Halldórs-
son sá sér ekki annað fært en slá knött-
inn og var þvi dæmd vítaspyrna rétti-
lega. Kristján framkvæmdi spyrnuna
laglega en Friðrik varði meistaralega í
horn. Kristján tók þá hornspymu á
nýjan leik og aftur sigldi knötturinn
yfir höfuð Friðriks til Jóns Gunnlaugs-
sonar, sem var við markteigshomið.
Skalli hans hafnaði örugglega í netinu,
1—1.
í stað þess að brotna niður eins og
áður tóku FH-ingar öll völd á veliinum
— batamerki í þeirra herbúðum. Á 77.
minútu gaf Valur Valsson vel fyrir
markið, Jóni Gunnlaugssyni mistókst
að ná til boltans og hann barst til
Magnúsar Teitssonar, sem gat ekki
annað en skorað 2—I. Á 89. mínútu
bætti Helgi Ragnarsson síðan þriðja
markinu við, ef hægt er þá að skrifa
það á hann. Valur gaf vel þvert fyrir
markið yfir alla vamarmenn Skaga-
manna. Helgi fékk knöttinn rétt utan
markteigs í lokuðu færi. Tók hann þá
það ráð er oft gafst vel í 4. og 5. flokki
og þrumaði af öllum lífs og sálar kröft-
um inn i þvöguna. Dæmið gekk upp
því einn varnarmanna Skagamanna rak
skankann í tuðruna, sem þaut yfir lín-
una.
E.t.v. var sigurinn í stærra iagi en
þegar öllu er á botninn hvolft var hann
sanngjam. FH-ingar geta þvi verið
ánægðir með sinn hlut í gær og von-
andi dugir þessi bikarsigur til að lyfta
þeim af botni 1. deildarinnar. Til þess
að svo megi verða þurfa þeir að sýna
örlitla hörku og vera færir um að snúa
jafntefli upp í sigur. Skagamenn geta
engum nema sjálfum sér um kennt
hvernig fór. Liðið virkaði áhugalaust
lengst af og spumingin er aðeins sú
hvort Kirby hafi tekið baráttuvilja leik-
manna með sér út til Englands. Gengi
Skagamanna fyrir komu hans, á meðan
dvöl hans stóð og eftir að hann fór er
eins og pýramidi í laginu. Verði ekki
bót á þessu er þess ekki að vænta að
Skagamenn verði í baráttunni um titil-
inn i sumar. -SSv.
DB-nnnd Bjarnleifur.
ÓTSPOR
SRÓDUR
Dortmundímorgun
Guðlaugsson leikur sem kunnugl er með
Fortuna Köin. Nú eru sex ár liðin frá því að
bróðir Atla, Jóhannes Eðvaldsson, hóf
glæstan knattspyrnuferil sinn á erlendri grund
og verður fróðlegt að sjá hvort Atla vegnar
eins vel og stóra bróður.
-GAJ.
ðbrást
ir unnu
varofstórmiöaðvið
íiksins
mönnum liðsins vikið af leikvelli. Einnig mis-
notaði Stefán víti á þessu tímabili. Það var
komið fram í miðjan síðari hálfleik þegar
Bjarna tókst að laga stöðuna í 12—15 með
marki úr víti. Danir skoruðu 12—16 en
Kristján skorar 13—16 úr viti sem Þorbergur
hafði fískað. Stefán minnkar muninn i 14—16
með góðu langskoti en næstu tvö mörk voru
dönsk og fjögurra marka munur á ný, 14—18.
Kristján skoraði 15—18 úr viti en Danir svara
strax með 15—19 eftir slæm varnarmistök ís-
lendinga. Síðan skoraði Bjarni 16—19 úr mjög
fallegu hraðupphlaupi og fékk mikið klapp
fyrir frááhorfendum. Á lokakaflanum misnot-
uðu íslendingar tvö viti og lauk leiknum með
sigri Dana, 22—17. Síðasta mark íslendinga
gerði Stefán Halldórsson.
I Jóhann Ingi Gunnarsson landsliðsþjálfari
Isagðist alls ekki vera óánægður með leik is-
jlenzka liðsins þar sem það værí alls ekki i góðri
iæfíngu nú en Danir hins vegar í toppæfingu.
jHann sagði að leikurinn hefði verið jafnari en
lokatölur hans hefðu gefíð til kynna og hefði
tveggja marka sigur Dana verið sanngjarn.
IBeztu menn beggja liða hefðu verið markverð-
irnir. Jóhann sagðist búast við þungum róðri
,hjá Dönum á ólympíuleikunum.
Jens Einarsson sagði að Danir hefðu greini-
jlega haft betra úthald en Islendingar og það
ihefði verið afdrifaríkt að misnota þrjú viti á
jlokamínútunum. Hann sagðist hafa búizt við
danska liðinu sterkara.
• Leiv Mikaelsen, landsliðsþjálfari Dana,
Ikvaðst ánægður með leik danska liðsins og
leikinn í heild. Hann sagði islenzka liðið lofa
góðu en það ætti að einbeita sér að „teknisk-
ara” spili og leika ekki eins gróft og í þessum
leik. Um möguleika Dana á ÓL. sagðist hann
ekki vilja spá en liðið ætti að geta leikið betur
jen þaðgerði gegn íslendingum.
Flest mörk Dana gerðu Jeppesen 5 og Pazyj
4. Stefán Halldórsson 5 (3 víti) og Kristján
Arason 4 (3 víti) voru markahæstir í islenzka
liðinu.
kynnir
nýju línuna
frá