Dagblaðið - 02.09.1980, Side 10
10
fíjálst, úháð dagblað
Utgefandi: Dagblaöifl hf.
Framkvnmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfason. Ritstjóri: Jónaa Krístjánsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Fréttastjórí: ómar Valdimarsson.
Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal.
íþróttir: Hallur Sknonarson. Menning: Aóalsteinn IngóKsson. Aöstoðarfréttastjórí: Jónas Haraldsson.
Handrít: Ásgrímur Pélsson. Hönnun: Hllmar Karisson.
Blaðamonn: Anna BJarnason, AtJi Rúnar Halldórsson, Atfi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi
Sigurðsson, Dóra Stefénsdóttir, Elín Albertsdóttir, Ema V. Ingólfsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson,
ólafur Goirsson, Siguröur Sverrisson.
Ljósmyndir: BJarnleWur Bjarnleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sigurður Þorri Sigurðsson.
Skrifstofustjóri: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þréinn Þorleifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing-
arstjóri: Mér E.M. Halldórsson.
Ritstjórn Siðumúla 12. Afgreiösla, éskriftadeild, auglýsingar og skrífstofur Þverholti 11.
Aöalslmi blaðsins er 27022 (10 línur).
Setning og umbrot: Dagblaðið hf., Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf., Siöumúla 12. Prentun
Arvakur hf.. Skeifunni 10.
Áskriftarverö 6 mánuði kr. 5.500.- Verö i lausasölu kr. 300 kr. ointakið.
Vestur-Þýzkalandiseríng
Henry Kissinger, fyrrum utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, taldi heppilegt
að auka viðskipti austurs og vesturs.
Það mundi slaka á spennunni og gera
Austur-Evrópu háðari Vesturlöndum í
tækni og fjármálum. __________
Þetta fór saman við opnunina til austurs, stetnu
kanslara Vestur-Þýzkalands, þeirra Willy Brandt og
Helmut Schmidt. Enda hefur ekkert ríki verið athafna-
samara í austantjaldssamningum en Vestur-Þýzkaland.
Vestræn iðnfyrirtæki hafa reist heilu verksmiðjurnar
í Austur-Evrópu, allt frá hönnun yfir í blómin í
garðinum. Þau hafa flutt austur heilu framleiðslurað-
irnar fyrir þessar verksmiðjur, t.d. í bílaiðnaði.
Auk fjármögnunar af þessu tagi hafa vestrænir
bankar lánað ótölulega milljarða til opinberra sjóða og
fyrirtækja austantjalds. Heill milljarður dala, mest af
þýzku fé, rann til Póllands dagana, sem verkfallið
stóð.
Þessi vestræna blóðgjöf hefur haft mikið gildi í hag-
kerfi, sem ekki nýtur nægilegs markaðar og hefur því
tilhneigingu til að stirðna. Einkum er það vestræna
tæknin, sem hefur magnað hagþróun Austur-Evrópu.
í staðinn telja leiðtogar á Vesturlöndum, að þeir fái
frið, svonefnda slökun á spennu. Þeir telja sig geta ofið
saman hagkerfi austurs og vesturs svo náið, að hvorug-
um aðilanum henti yfirgangur og árásir.
Englandskonungar fengu skamman frið, þegar þeir
keyptu af sér víkingana. Einum vetri síðar voru víking-
arnir komnir aftur, hálfu vígalegri en áður og
heimtuðu hálfu meira fé. Að lokum tóku þeir völdin af
Englum.
Meðan leiðtogar á Vesturlöndum eru að kaupa sér
friðinn, eru vestrænir iðjuhöldar og bankamenn að
raka saman peningunum á austantjaldsviðskiptum.
Þeir hafa beinan fjárhagslegan hag af slökun milli
austurs og vesturs.
Austurviðskiptin fara ekki eftir lögmálinu, að betra
sé að vera lánardrottinn en skuldunautur. Fremur gild-
ir reglan, að sá hefur betur, sem sterkari hefur taugarn-
ar. Og í þessu tilviki er það eindregið skuldunauturinn.
Iðjuhöldar og bankamenn Vesturlanda fá herping í
magann í hvert skipti, sem eitthvað skyggir á slökun og
stefnir í voða fjárfestingu þeirra í Austur-Evrópu.
Þetta er ekki Finnlandisering, heldur Vestur-Þýzka-
landisering.
Hliðstæðu máli gegnir um leiðtogana, sem unnið
hafa að efnahagstengslum austurs og vesturs. Þessi
tengsli eru tromp hins pólitíska ferils þeirra. Þau verða
að blífa, komi Afganistan og fari Afganistan.
Leiðtogar Vestur-Evrópu hafa mildari afstöðu en'
leiðtogar Bandaríkjanna gagnvart ýmsum yfirgangi
ráðamanna Sovétríkjanna og samningsrofum þeirra.
Leiðtogar Vestur-Þýzkalands hafa mildustu afstöð-
una, enda hafa þeir veðjað hæst.
Þetta kom enn einu sinni í ljós í pólska verkfallinu.
Á Vesturlöndum voru menn á nálum af ótta við, að
verkfallsmenn gerðu eitthvað, sem kæmi elsku Gierek
frá völdum eða kallaði jafnvel á Rauða herinn.
Að baki er ekki fyrst og fremst raunsæ samúð með
Pólverjum. Fremur er það hið krampakennda tak
margra vestrænna leiðtoga á slökunarstefnunni.
Þeim finnst vera í voða bæði heiður og fjárfesting. Það
er Vestur-Þýzkalandiseringin.
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1980.
Skuldasöfnun
A-Evrópunkja
veldur vanda
— en Vestur-Þjóðverjar ákveðnir að auka viðskipti og
samskipti þrátt fyrir Afganistaninnrás og létta sjóði
í vestrænum gjaldmiðli
Atburðir síðustu vikna í Póllandi
hafa enn á ný vakið vestræna banka-
menn til umhugsunar um slæmt efna-
hagsástand í Austur-Evrópuríkjun-
um og vaxandi skuldasöfnun þeirra á
Vesturlöndum. Mestar áhyggjur hafa
Vestur-Þjóðverjar, sem eru stærstu
viðskiptamenn Austur-Evrópuþjóð-
anna vestan járntjalds. Á liðnu ári
voru viðskipti Vestur-Þjóðverja
5,l% af heildarviðskiptum landsins
við Comecon löndin. Comecon er
nokkurs konar efnahagsbandalag
Sovétríkjanna og fylgiríkja þeirra.
þeir hafa af greiðslugetu Pólverja.
Skuldir þeirra I erlendum gjaldeyri
eru nú taldar nema jafnvirði tuttugu
milljarða dollara og greiðslubyrði
þeirra í ár talin nema átta milljörðum
dollara i vexti og afborganir.
Vestur-þýzkir bankamenn segjast
óttast hið slæma fordæmi sem lán-
veitingin til Póllands í síðasta mánuði
muni gefa. Tveir þriðju hlutar lánsins
munu fara til að greiða niður eldri
skuldir. Óttast bankamennirnir að
önnur ríki í Austur-Evrópu sem einn-
ig skulda stórfé á Vesturlöndum
muni fara fram á svipaða aðstoð.
öll ríki í Austur-Evrópu verða nú
að horfast í augu við sömu
vandamálin og voru undirrót verk-
fallanna í Póllandi: lélegan efnahags-
árangur, sem síðan hefur neytt
stjórnvöld til að draga úr neyzlu og
grípa til samdráttaraðgerða.
Ástæðan fyrir mikilli skuldasöfnun
þessara r'ikja á Vesturlöndum er sú að
þau hafa leitazt við að byggja hratt
upp atvinnulif sitt. Pólland hefur
verið langharðast í slættinum. Af
kommúnistaríkjunum er Júgóslavía
talin eiga við næstalvarlegust
greiðsluvandræði að striða. Júgó-
slavía er þó ekki í Comecon eða hinni
svokölluðu Sovétblokk. Búast vest-
rænir bankasérfræðingar við að
stjórnvöld i Belgrad muni leita eftir
endursamningum á lánskjörum strax
næstaár.
Eiga vestur-þýzkir bankar nú miklar
upphæðir hjá austantjaldsaðilum.
Að sögn var það aðeins með
ntiklum semingi að nokkrir vestur-
þýzkir bankar lánuðu pólskum
stjórnvöldum mikla upphæð til að
rétta greiöslustöðuna ofurlitið.
Gerðist þetta í liðnum mánuði. Bank-
arnir voru beittir miklum þrýstingi
frá Bonnstjórninni, sem vildi aðstoða
þá pólsku. Margt reið þá yfir hana i
einu þó enn ætti ástandið eftir að
versna á þeim bænum eins og öllum
er kunnugt. Órói i hópi verkamanna
fór vaxandi, orkukostnaður fór
hækkandi og uppskeran í landbún-
aðinum brást vegna flóða og rign-
inga.
Ekki eru nema nokkrir dagar siðan
Helmut Schmidt, kanslari Vestur-
Þýzkalands, lýsti því yfir í sjónvarpi
að land hans og Bandaríkin væru
ákveðin i að aðstoða Pólland vegna
efnahagserfiðleikanna sem þar er við
að stríða. Búizt er við að stjórn
Jimmy Carters muni taka vel i óskir
stjórnarinnar í Varsjá um frekari lán-
veitingar í formi landbúnaðarvara til
að bæta úr vöruskorti vegna upp-
skerubrestsins. Samtök Bandaríkja-
manna sem eiga uppruna sinn í Pól-
landi hafa hvatt stjórnina í Washing-
ton til að veita Póllandi efnahagsað-
stoð.
Þrátt fyrir þennan velvilja ýmissa
vestrænna stjórnvalda gagnvart
Pólverjum fengust vestur-þýzkir
bankamcnn ckki til að lána nema
hluta þeirrar upphæðar sem farið var
fram á. Sýnir það þær áhyggjur sent