Dagblaðið - 02.09.1980, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1980.
■■-■HMaiiwiKHrai
DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 2. SEPTEMBER 1980.
iþróttir
iþróttir
iþréttir
8
íslenzkt dómara-
tríó á Anfield
íslenzkum knattspyrnudómurum hefur verið falifl
af UF.FA-Evrópusambandinu að gegna störfum vifl
tvo leiki í UEFA-keppnum sem fram fara í Liver-
pool og I Paisley-Skotlandi þann 1. október.
Eftirfarandi dómarar hafa verið valdir til þessara
starfa:
Liverpool FC — Dulun Palloseure — Finnlandi
Dómari: Magnús V. Pétursson
Línuv. I: Eysteinn Guflmundsson
I.ínuv.ll: Rafn Hjaltalin
St. Mirren FC — Elfsborg — Svíþjóð
Dómari: Guðm. Haraldsson
I.ínuv. I: Hreiðar Jónsson
Línuv. II: Grétar Norðfjörð
Þá hefur FIFA — Alþjóðaknattspyrnusambandifl
— falið Eysteini Guðmundssyni að dæma landsleik í
heimsmeistarakeppninni, FIFA WORLD CUP, sem
fram fer á frlandi 19. nóv. nk. mllll ÍRLANDS og
KÝPUR. Með honum hafa verið valdir linuverðir
Þorvarður Björnsson og Óli P. Olsen.
Þetta er mikill helflur fyrir islenzka knattspyrnu-
dómara og mikil viðurkenning á hæfni þeirra, er
fram hefur komið á undanförnum árum á leikjum
erlendis, en þar hafa þeir undantekningarlaust
fengið mjög góðar einkunnir fyrir störf sín.
F.ysteinn Guðmundsson og Óli P. Ólsen vcrða
fulltrúar okkar á ráðstefnu sem haldin er I Hollandi
á vegum UEFA-Evrópusambands knattspyrnu-
sambanda — fyrir milliríkjadómara, dagana 1.—5.
sept. nk
Stefán þjálfar mfl.
Ármanns f handbolta
Stefán Sandholt hefur verið ráðinn þjálfari 2.
deildar liðs Ármanns í handbolta og tekur hann við
starfi sínu I dag, en þá hefjast æfingar hjá meistara-
flokki liðsins. Stefán hefur áður þjálfað kvennalið
Vals og meistaraflokk Breiðabliks i handbolta.
Stefán mun aðeins þjálfa meistaraflokk Ármanns,
en leikmenn meistaraflokksins munu taka að sér
þjálfun yngri flokkana. Þá stendur til að ráða einn
eða tvo þjálfara til að sjá um þá flokka.
Óskar Ásmundsson, sem lék meðTý í Vestmanna-
eyjum í fyrra, hefur nú snúið aftur til Ármanns og
mun hann leika með liðinu í vetur.
-SA.
114þúsundkr.
fyrirllrétta
í 2. leikvika Getrauna komu fram 15 raðir með 11
réttum og var vinningur fyrir hverja röð kr. 114.000.
Með 10 rétta var 231 röð og vinningur fyrir hverja
röð kr. 3.100.-
Þátttakan hefur verið verulega hærri en á siðasta
vetri, og var raðafjöldi I síðustu leikviku sami og var
i 5. leikviku á siðasta timabili. Á þessum tveimur
fyrstu leikvikum hafa félögin í Reykjavik selt 3/4 af
heildarsölunni, en hafa að jafnaðí til þessa verið
með ca 2/3 enda hafa fjölmörg íþróttafélög utan
höfuðborgarsvæðisins ekki enn hafið sölu getrauna-
seðla.
Landsliðið f bad-
minton utan
I.andsliðið i badminton fór i keppnisferð til
Austurríkis og Ungverjalands fyrir helgina. í liðinu
eru:
Kristín Magnúsdóttir, TBR, Kristín Berglind TBR,
I.ovisa Sigurðardóttir TBR, Ragnheiður Jónasdóttir
í A, Broddi Kristjánsson TBR, Guðmundur Adolfs-
son TBR, Jóhann Kjarlansson TBR, Haraldur
Korneliusson TBR, Sigfús Ægir Árnason TBR,
fyrirliði.
Ferðalangarnir munu dveljast á einkaheimilum í
Pressbaum, útborg Vínar, á meðan á heimsókninni
stendur, en allmikil samskipti hafa verið milli'
badmintonmanna þar og íslendinga á undanförnum
árum.
íslendingar munu leika landsleik gegn Austur-
ríkismönnum nk. þriðjudag. Austurríkismenn
sigruðu ísland 6:1 i landsleik fyrir tveimur árum en
'vonazt er til að landinn veiti þeim meiri keppni nú.
Einnig verður keppt gegn austurriskum félags-
liðum og úrvali frá nokkrum hlutum Austurríkis.
Þá mun landsliðið fara yfir til Ungverjalands og
leika þar landsleik laugardaginn 6. sept. nk. Ung-
verjar eru nokkuð sterkari en íslendingar í
badminton, en þó getur ýmislegt gcrzt og ekki ættu
allir leikirnir að tapast.
Landsliðið hefur æft af fullum krafti að undan-
förnu og hefur Garðar Alfonsson stjórnað þeim
æfingum. Einn nýliði er i liðinu, Ragnheiður Jónas-
dóttir frá Akranesi.
Fararstjóri hópsins er Magnús Eliasson, varafor-
maður Badmintonsambandsins.
ENN SIGUR
HJÁ KJÆRB0
Framarar sigruðu
Framarar sigruðu I Adidas-mót-
inu, sem fram fór á Selfossi um
helgina. Þeir unnu alla sina leiki
gegn Val, KR og Fylki og hlutu þvi
fullt hús sliga. Valur, KR og Fylkir
skiptu síðan stlgunum bróðurlega á
milli sin. Valur vann KR, Fylkir
vann Val og KR vann Fylki. Að
sögn Hilmars Björnssonar, þjálfara
KR og landsliðsins, var þetta ákaf-
lega vel heppnað mót og aðstaða öll
góð, en KR-ingar voru í æfinga-
búðum á Selfossi samhlifla mótinu.
Kvaðst hann vera ánægður með
handboltann sem sýndur var þarna
og greinilegt væri að keppnin í 1.
deildinni ætti eftir að verða spenn-
andi I vetur.
TindastéH nældi
í mikilvægt stig
Grindvikingar urðu að sjá af öðru
stiginu til Sauðárkróks, er lið þeirra og
Tindastóls skildu jöfn, 1-1, í úrslita-
keppni 3. deildar, um helgina.
Tindastóll lék undan sterkum vindi í
fyrri hálfleik á móti Grindavík, en þrátt
fyrir það voru það Suðurnesjamenn-
irnir sem voru fyrri til að skora. Sigur-
geir Guðjónsson skoraði það mark með
góðu skoti af markteigshorni, hans 20.
mark i deildakeppninni í sumar. Þeir
fengu gott tækifæri til að auka foryst-
una, er liðið fékk víti á 57. mínútu, en
Sigurjón Gíslason, markvörður Tinda-
stóls, varði með tilþrifum.
Tindastóll jafnaði á 78. minútu, er
Árni Jón Geirsson skaut bananaskoti
að marki rétt utan við vítateig og bolt-
inn skrúfaðist undir þverslána, óverj-
andi fyrir BjarnaSigurðssonmarkvörð.
Rétt á eftir munaði litlu að Tindastóll
tæki forystuna, er annað langskot frá
þeim hafnaði i samskeytunum.
-emm
Gamla kempan Þorbjörn Kjærbo,
GS, kemur sifellt á óvart þótt rúmlega
fimmtugur sé. Hann vann um helgina
Ron Rico keppnina á Hvaleyrarholts-
vellinum. Aðeins 12 keppendur mættu
til leiks I meistaraflokki og virðist því
svo sem „golfþreyta” sé farin afl gera
vart við sig hjá kylfingum. Kjærbc
sigraði Sigurjón Gislason I bráðabana
um 1. sætifl en báðir léku á 76 höggum.
í þriðja sætinu varð svo Magnús Hjör-
leifsson á 78 höggum.
í 1. flokki sigraði Guðlaugur Krist-
jánsson, GK, á 82 höggum, en Ólafur
Marteinsson, GK, og Gisli Sigurbergs-
son, einnig úr GK, léku báðir á 83
höggum. I 2. flokki sigraði Jón E.
Ragnarsson, GK, á 80 höggum. Rafn
Sigurðsson úr sama klúbbi varð annar
á 81 höggi og og Kristján Hansson, enn
einn úr GK, þriðji á 82. í 3. flokki
sigraði Rúnar Gunnarsson, NK, á 85,
Magnús Guðmundsson, NK, varð ann-
ar á 88 og Hannes Ingibergsson, GR,
þriðji á 90. í kvennaflokki sigraði
Kristin Pálsdóttir, GK, önnur varð
Guðfinna Sigurþórsdóttir, GS, og
þriðja Þórdis Geirsdóttir, GK. Með
forgjöf sigraði Lóa Sigurbjörnsdóttir,
önnur varfl Kristine Eid, NK, og þriðja
varð Hrafnhildur Eysteinsdóttir, GK.
Fer Breitner
til Cosmos?
Bandarískt lið, að öllum likindum
New York Cosmos, ku nú vera á hött-
unum eftir lykilmanni Bayern
Munchen, Paul Breitner. Breitner, sem
átti stórleik er lið hans sigraði Borussia
Dortmund fyrir skömmu, 5-3, og
skoraði þá tvö mörk, á að hafa fengið
frábært tilboð frá Bandarikjunum og
stendur nú sjálfur i samningamakki við
Bandarikjamennina. Breitner er nú á
samningi hjá Bayern og forráðamenn
félagsins hafa gert Breitner Ijóst að þeir
ætlist til að hann virði þann samning.
i" '
1 'v^r v gi>
um>V.. rár 1 .
íþróttasfðunni barst I gær þessi mynd af liði Standard Liege eins og það er skipað nú.
Á morgun munum við birta mynd af Lokeren, liði Arnórs Guðjohnsen. Á myndinni er
I aftari röð frá vinstri: Happel, þjálfari, Bourguignon, nuddari, Graf, Bonomi, De
Matos, Edström, Daerden, Brunninx, Englebert, Oenal, Bollen, aðstoðarþjálfari.
Fremri röð frá vinstri: Gerets, Tahamata, Voordeckers, Plessers, Poel, Dardenne,
Preud’homme, Ásgeir Sigurvinsson, Delbrouck, Vandermissen og Wellens.
Kristján Olgeirsson, Húsvikingurinn knái, á landsliðsæfingu í Laugardal i gærdag.
Kristján kemur I hópinn I stað Janusar Guðlaugssonar, sem meiddist um helgina.
DB-mynd Ragnar Th.
:
en af hverju? Nokkur dæmi tekin um ósamræmi í dómgæzlu 1. deildariimar í sumar og undariegar ákvarðanir
Sl. föstudag var ætlun undirrít-
aðs að fjalla litillega um dómara-
málin í sumar en vegna gifurlegra
þrengsla i blaðinu komst greinin
hvorki fyrir á föstudag né i blaðinu
í gær. Hún birtist þar af leiðandi i
dag. Það skal tekið fram hér strax i
upphafi afl greinin er ekki skrifuð f
þeim tilgangi að niða niflur einn eða
neinn heldur aðeins til að skapa
gcirsson felldur innan vitateigs en ckkert viti.
DB-ntynd Bjarnleifur.
umræður ef þær mættu verða til að
skýra málin. Úr þvi að á annað
borfl er farið af stað er ekki úr vegi
að víkja fyrst að leik Akraness og
Vals á föstudagskvöld, en mikill
hiti rikir nú á Akranesi vegna
þeirrar ákvörðunar Kjartans Ólafs-
sonar, dómara leikslns, að visa Sig-
þóri Ómarssyni út af i leiknum.
Eins og kom fram hér í Dagblað-
inu í gær var um ásetningsbrot að
ræða hjá Sigþóri og það eftir að
dæmt hafði verið honum í vil.
Flestum, þ.á m. undirrituðum,
fannst þessi ákvörðun Kjartans
nokkuð harkaleg og brot Sigþórs
vart verðskulda rautt spjald. Hins
vegar hefði hann að ófyrirsynju
mátt líta það gula. í síðari hálf-
leiknum kom upp atvik þar sem
Guðbjörn Tryggvason var kominn í
gegnum Valsvörnina og á auðan
sjó. Honum var brugðið illilega
aftan frá er hann nálgaðist vítateig-
inn óðfluga. Aðeins aukaspyrna var
dæmd — ekkert spjald, hvorki gult
né rautt. Þarna virtist óumdeilan-
lega vera um ásetningsbrot að
ræða. Finnst undirrituðum þarna
vera um nokkurt ósamræmi að
ræða og það er að hans mati helzti
meinbugurinn á íslenzkri dómgæzlu
í dag.
Við eigum í sjálfu sér ágæta dóm-
ara, en ósamræmið hjá þeim, bæði
hjá hverjum og einum svo og á milli
dómara, er stundum hróplegt. Gott
dæmi er leikur KR og Keflavíkur í.
I. deildinni á Fögruvöllum i sumar.
Þar var tvívegis dæmd hendi á Þor-
stein Bjarnason, markvörð IBK,
þar sem línuvörðurinn taldi að
hann hefði haldið knettinum utan
vítateigs er hann spyrnti út. Enginn
er að efast um að línuvörðurinn
hefur haft rétt fyrir sér í þessu til-
viki en það er ólíklegt að þetta hafi
verið í fyrsta sinn í sumar er slíkt at-
vik gerðist. Undirritaður hefur enn
ekki séð dæmt á slíkt brot í öðrum
leik — hvorki fyrr né síðar í sumar.
Línuverðir eiga að fylgjast með
markvörðum er þeir spyrna frá
marki. Staðreyndin er hins vegar sú
að mikill meirihluti þeirra hirðir
ekki um að gera svo. Og þá komum
við að öðru atriði varðandi mark-
verði, en það er hin ótakmarkaða
vernderþeir fáíleikjum.
í leik Víkings og Vals gerðist það
að knötturinn barst fyrir mark
Valsmanna. Einn Víkingurinn
stökk upp en náði ekki til knattar-
ins, sem sigldi yfir höfuð honum og
beint i hendur Ólafs Magnússonar
markvarðar. Um 5 fet voru á milli
Víkingsins og Ólafs og er hann
jstökk upp til að góma knöttinn
missti hann jafnvægið og féll aftan
á Víkinginn. Hvað gerist? Flauta
dómarans gellur og dæmd er auka-
spyrna. Á hvað? Mjög keimlíkt at-
vik kom upp í leik Breiðabliks og
KR í Kópavogi fyrir skömmu. Þá
gómaði Stefán Jóhannsson, mark-
vörður KR, knöttinn eftir að hafa
átt í baráttu við sóknarmánn Blik-
anna. Stukku þeir samtímis upp og
hafði Stefán betur. Hann var í full-
komnu jafnvægi er hann kom niður
aftur og hugðist henda knettinum
út til bakvarðar í snatri. Blikinn
skokkaði í burt, en þá var flautað.
Brot á sóknarmennina. Til hvers?
Enn eitt atriðið varðandi mark-
verði er 4-skrefa reglan hjá þeim.
Enn hefur ekki verið dæmt á ol
mörg skref í sumar svo undirritaðui
hafi séð. Þó leikur ekki neinn vafi á
að markverðir taka mjög oft mun
fleiri skref en fjögur áður en þeir
losa sig við knöttinn. f fyrra var
tvisvar dæmt á slíkt atvik í sama
leiknum en síðan ekki söguna meir
út sumarið.
Annað atriði úr leik Breiðabliks
og KR var er tveir leikmenn skullu
saman í baráttu við knöttinn. Dóm-
ari leiksins gaf báðum gult spjald en
dæmdi síðan brot á KR. Af hverju
er ekki uppkast í þessu tilviki úr því
að báðir voru brotlegir í sömu
mund?
Mjög algengt er í leikjum að leik-
menn sparki knettinum í burtu eftir
að dæmt hefur verið á þá til þess
eins að sýna vanþóknun sína.
Stundum er leikmönnum umsvifa-
laust gefið gult spjald — stundum
ekki. Mörg dæmi eru þess að leik-
menn hafi litið gula spjaldið fyrir
vikið en álíka mörg þess að engin
spjöld hafi verið á lofti.
Svo við vitnum enn í leik Breiða-
bliks og KR þá gerðist það að einn
KR-ingurinn hindraði framkvæmd
aukaspyrnu með því að spyrna
knettinum burtu frá brotstaðnum.
Ekkert var gert. Sumir dómarar
hefðu þarna gefið gult spjald, en
aðrir ekki. Þarna er enn ósamræmi
sem hlýtur að vera hægt að laga.
Síðast en ekki sízt er rétt að
benda á hinar ört vaxandi og sívin-
jsælu tæklingar aftan frá. Erlendis,
óg þá t.d. í Englandi, sem við
þekkjum hvað bezt til úr sjónvarp-
inu, er nær undantekningarlaust
gefið gult spjald fyrir slik brot.
Rökrétt, því andstæðingurinn á
ekki nokkurn möguleika á að bera.
hönd fyrir höfuð sér. Þetta eru lúa
leg brot og hér heima eru þau
stunduð í tíma og ótíma. Er nú svo
komið í leikjum að framherjarnir
hoppa yfirleitt í loft upp er þeir fá
knöttinn og snúa baki i andstæð-
inginn. Óttinn við að verða spark-
aður niður aftan frá er farinn að
orsaka það að framherjar eru
orðnir hræddir við að taka við
knettinum. Af því leiðir svo aftur
að sendingar á framherjana misfar-
ast oft og iðulega og sóknir renna út
í sandinn.
Eins og fyrr greindi var þessi
grein einungis skrifuð í þeim til-
gangi að vekja máls á misræmi því
er viðgengst i dómarastéttinni.
Auðvitað eru dómarar breyzkir eins
og aðrar mannverur, en það á ekki
að koma í veg fyrir að hægt sé að
skapa samræmi í gerðum þeirra.
Dómarar eiga sina slæmu daga eins
og reyndar allir er koma nálægt
knattspyrnunni. Samræmi í dóm-
gæzlu er hins vegar krafa sem
hlýtur að vera sanngjörn og rétt-
mæt.
- SSv.
Mætti aftur með nýja
tönn fyrír leikslok
Þriðju delldar lið Víðis frá Garði er
nýkomið heim úr 10 daga ferð til
Færeyja, en ferðin var farin i boði I.
deildar félagsins Götu. Léku Víðis-
menn fimm leiki, unnu einn, gerflu eitt
jafntefli og töpuðu hinum þremur. Var
þeim tekið með kostum og kynjum i
Færeyjum, enda þjálfari þeirra, Eggert
Jóhannsson, vel þekktur i Færeyjum,
en hann þjálfaði þarlend lið i tvö ár.
Viðismenn fóru utan laugardaginn
Húsvíkingurinn snjalli, sem leikur
með Akurnesingum í 1. deildinni,
Kristján Olgeirsson, var f gær valinn í
landsliðshópinn fyrir leikinn gegn
Rússum á morgun. Kristján hefur
loðað við landsliðið um skeið en fékk
tækifæri þar sem Janus Guðlaugsson
melddist i leik með liði sínu Fortuna
Einn leikur fór fram í 2. deildinni í
gærkvöld. Fylkir og Ármann gerðu 0-0
jafntefli I afar slökum leik. Sjö lið geta
enn fallið i 2. deildinni en KA og Þór
ættu að vera örugg i 1. deildina. KA
hefur reyndar þegar tryggt-sér sæti í 1.
deild með miklum yfirburðum.
Staðan er nú þannig i 2. deild:
KA 15 12 1 2 53-11 25
23. ágúst og voru drifnir beint úr
flugvélinni í bát, og síðan var siglt til
Skála, þar sem leikið var við heima-
menn. Vann Víðir þann leik 5—0 og
skoraði Daníel Einarsson þrjú mörk í
leiknum. Hin tvö skoruðu Viíberg Þor-
valdsson og Guðmundur Jens Knúts-
son.
Daginn eftir var leikið við Tóftir,
sem er langefst í 2. deild og leikur ekki
síðri fótbolta en liðin í 1. deild. Unnu
Köln um helgina. Telja verður nokkrar
líkur á að Kristján leiki sinn fyrsta
landsleik á morgun en ekki er hægt að
segja að hann byrji á léttum mót-
herjum. Rússneska liðið kom til
landsins í gærkvöld og mun æfa í
Laugardal á morgun.
Þór 15 9 3 3 29-13 21
Þróttur 15 6 5 4 21-21 17
ísafjörður 15 4 7 4 28-30 15
Haukar 15 5 5 5 27-31 15
Fylkir 15 5 4 6 25-20 14
Selfoss 16 5 4 7 23-35 14
Ármann 15 3 6 6 21-28 12
Völsungur 15 3 5 7 17-27 11
Austri 16 1 5 10 16-44 7
Tóftir með eina marki leiksins.
Á þriðjudag var leikið við gestgjaf-
ana í Götu og sigruðu þeir með tveimur
mörkum gegn einu. Mark Viðis skoraði
Guðmundur Jens Knútsson. Engin
flóðljós eru við völl Götu og voru
síðustu 20 mínútur leiksins leiknar í
myrkri!
Þar næst var leikið við Klakksvík-
inga og urðu lokatölur þess leiks 1 — 1.
Bæði mörkin voru sjálfsmörk og
skoraði Ólafur Ólafsson sjálfsmark
Víðis með góðum skalla, en hitt markið
kom u,ip úr aukaspyrnu, sem Guðjón
Guðmundsson tók. Hrökk boltinn af
tæreyskum maga í niarkið. Þessi leikur
var afnframtsá skemmtilegasti i förinni,
en siðari hállleikur hans var leikinn í
flóðljósum.
Síðasti leikurinn var síðan við HB í
Þórshöfn. Markvörður Víðis, Þorleifur
Guðmundsson, gat ekki verið með í
þeim leik, því hann varð að halda heim
til íslands sakir anna í námi en
Þorleifur er líffræðingur. Fengu Víðis-
menn lánaðan markmann frá B 36 og
stóð hann í markinu allan leikinn.
Víðismenn byrjuðu þennan leik mjög
vel og komust í 2—0 með mörkum
Daníels Einarssonar og Jónatans
Ingimarssonar. En HB svaraði fyrir
leikhlé og var staðan þá 2—1. í
upphafi síðari hálfleiks meiddist síðan
aðaldriffjöðurin í liði Víðis, Guðjón
Guðmundsson, tönn brotnaði i honum
og varð hann að fara út af. En
Færeyingarnir drifu Guðjón til læknis
og hann var mættur áður en leiktíminn
var úti með nýja tönn! En þegar
Guðjón var horfinn á braut hrundi
Víðisliðið ogHB sigraði örugglega með
5—2. Vildu Víðismenn kenna láns-
markmanninum um tvö markanna,
sem bæði voru skoruð beint úr auka-
spyrnu. -emm.
Krístján val-
inn í hópinn
Jaifnt hjá Fylki og Ármanni í gær
HKABMEISTABAR1980
MATUR ER
Kjötiönaðarstöð
Sambandsins
Kirkjusandi sími:86366