Dagblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 4
16.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980.
Hvað er á seyðium helgina?
í Vestmannaeyjum
opna sýningarsal
— fyrsta sýningin stendur nú yfir
„Við slefnum að því að verða með
þrjár sýningar í Galleríinu fram aðj
áramótum,” sagði Ragnar Sigurjóns-
son Ijósmyndari DB í Vestmannaeyj-
um og einn aðstandenda Gallerís
Landlyst. Það var opnað í gær með
samsýningu tveggja vestmanneyskra
málara, Ástþórs Jóhannssonar og
Jóhanns Jónssonar.
Það eru samtök áhugaljósmyndara
í Eyjum, sem hafa innréttað sýn-
ingarsalinn að Strandvegi 43 B. Hann
er fyrst og fremst settur á laggirnar til
að bæta sýningaaðstöðu Ijósmyndar-'
anna, en málarar og aðrir listamenn
fá þar inni með sýningar sínar.
,,Það er ekki afráðið enn, hver
sýnir næst í Gallerí Landlyst,” sagði
Ragnar. „Nokkrir myndlistarmenn
hafa spurzt fyrir um salinn hjá okkur
meðal annars Tryggvi Ólafsson. Þá
fara ljósmyndararnir hér í Eyjum
einnig að hugsa sér til hreifings. Nú
hefur opnazt sá möguleiki að einn og
einn geti sýnt í einu. Ég reikna með
að við eigum eftir að láta. mikið að
okkur kveða í framtiðinni.”
Ástþór Jóhannsson og Jóhann
Jónsson sýna vatnslita- og olíumynd-
ir. Sýning þeirra stendur til sunnu-
dagskvölds.
- ÁT
Coca Cola keppnin í golfi haldin í 20. sinn:
ALLIR FÁ KÓK-BÍL EN FÆR
□NHVER BÍLHLASS AF KÓKI?
Eyjamálararnir Ástþór Jóhannsson og Jóhann Jónsson fá heiðurinn af því að
halda fyrstu sýninguna í Gallerí Landlyst í Vestmannacyjuni.
DB-mynd: Ragnar Sigurjónsson.
Ljósmyndarar
Coca Cola keppnin í golfi verður
haldin um helgina á Grafarholtsvelli,
en þetta er i 20. sinn, er keppnin er
haldin. Verða leiknar 36 holur, 18
hvorn dag keppninnar, en ræst
verður út klukkan átta báða keppnis-
dagana.
Keppni þessi var fyrst háð á gamla
golfvellinum við öskjuhlíð árið
1961 og var hún fyrsta opna golf-
keppnin á íslandi. Árið 1963 vár hún
færð i Grafarholtið og þar hefur hún
verið háðsiðan.
Samkvæmt nýrri reglugerð, sem
sett var á síðasta golfþingi, hafa allir
rétt til þátttöku i karlaflokki, sem
hafa 23 í forgjöf eða minna. Þátt-
tökurétt í kvennaflokki hafa allar
sem hlotið hafa 29 i forgjöf eða
minna.
Verksmiðjan Vífilfell h/f gaf tvo
farandbikara til Golfklúbbs Reykja-
víkur, sem leikið skyldi um árlega á
golfvelli félagsins. Þá eru einnig veitt
eignarverðlaun. Þess má geta að sá
sem afrekar það að vinna keppnina
þrisvar í röð hlýtur farandbikarinn til
eignar, og slíkt hið sama gerir sá, sem
fyrstur verður til að vinna keppnina
fimm sinnum.
Að venju verða veitt veglegauka-
verðlaun og hlýtur sá sem fyrstur fer
holu í höggi á 17. braut heilt bílhlass
af Coca Cola. Eitt bílhlass er 226
kassar af kóki og ætti það að duga i
Farí einhver holu i höggi á 17. braut fær sá hinn sami heilt bilhlass af kók, eða
5424 flöskur af kóki. Þessi verðlaun hafa áður verið i boði, en hingað til hefur
engum tekizt að krækja f þau.
nokkur ár. Þá verða fimm kassar af
kóki veittir hverjum þeim, er á
hvorum degi fer næst holu á 2. og
17. braut, og að auki fær sá
kylfingur, sem hefur fæst pútt, fimm
kassa af kók I verðlaun. Allir
keppendur fá einnig kók-bíl að gjöf
fyrir þátttöku sína.
Skráningu í mótið lýkur kl. 18 i
kvöld og fer hún fram hjáGolfklúbbi
Reykjavíkur, í sima 84735. Rástimar
verða svo tilbúnir í kvöld, en ætlunin
er að ræsa út í þriggja manna hollum.
-SA.
Sjöfn Haraldsdóttir fyrir framan Djúpiö (Horniö) cn
þar sýnir hún sérstæA kcramikverk.
GALLKRl NONNI, Vcsturt>ötu: Pönni sýnir pönk.
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkv. umtali. Sími 84412
alla virka daga frá 9— 10.
GALLFRt GIIÐMUNDAR, BcrgstaAastræti 15:
Málverk, grafík og teikningar eftir innlenda og erlenda
listamenn: Weissauer, Jóhannes Geir, örlygur
Sigurösson, Eyjólfur Einarsson, Kristján Guðmunds
son. Opið alla virka daga.
MOKKA-KAFFI, Skólavörðustig: Úlfur Ragnarsson.
ný verk. Opiðalla daga 9—23.30.
NÖGGMYNDASAFN ÁSMNNDAR SVEINS-
SONAR: Opið þriðjud.. fimmtud., laugard. og
sunnud. frá 13.30—16.
IIAMRABORG 7, Kópavogi: Sigurður örlygsson, ný
málverk. Opiðá skrifstofutíma í einn mánuð.
GALLERl KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10: Sig
rún Jónsdóttir, batik, kirkjumunir. Opið 9—18 virka
daga, 9— 16 um helgar.
J*]DEN, llveragerði: Ketill Larsen, — „Þeyr frá
öðrum heimi", olíumálverk. Sýningin stendur til 29.
sept.
GALLERl LANDLYST (Vcstmannacyjum): Jóhann
Jónsson og Ástþór Jóhannsson, málverk. Opnaði
fimmtud. 18. sept. Stendur til 21. sept.
Bók vikunnar:
SKEMMHLEG BÓK UM BYGGMGARUST
Charles Jencks — ákveðnar skoðanir á nútímabyggingarlist
HORNIÐ: Hafnarstræti 16. Sjmi 13340. Opið kl.
11—23.30. Eldhúsinu lokaö kl. 21. Léttar vinveit
ingar.
HÓTEL HOLT: Bergstaðastræti 37. Borðapantanir i
sima 21011. Opiö kl. 12-14.30 og 19-23.30. Vin
veitingar.
HÓTEL LOFTLEIÐIR: Reykjavikurflugvelli.
Borðapantanir í síma 22321. Blómasalur er opinn kl.
8—9.30 (morgunmatur), 12—14.30 og 19—22.30.
Vínveilingar. VcitingabúA Hótel Loftlciða opin alla
daga kl. 5—20.
Hér á íslandi er öll umræða um
byggingar og skipulag ekki á ýkja
háu stigi og heil hverfi risa I bænum
án þess að nokkur finni hjá sér hvöt
til að rabba um þau opinberlega.
Ekki verður heldur sagt að fjölmiðlar
leggi sitt af mörkum til að örva slika
umræðu. Áhugamaðurinn verður því
að leita á náðir erlendra blaða, tíma-
rita og bóka um þessi mál. Sem betur
fer er nú að finna meira úrval af
bókum um byggingalist í bókabúðum
bæjarins en oft áður, einkanlega hjá
Snæbirni. Ég gladdist t.d. mjög um
daginn við að rekast á Penguin út-
gáfuna af hinni þekktu bók Charles
Jencks, Modern Movements in
Architecture. Jencks þessi er upphaf-
lega bókmenntafræðingur en vatt
sér út í byggingalist sem fræðimaður
og er höfundur nokkurra bóka um
það efni, sem allar hafa vakið mikla
athygli atvinnumanna og áhugafólks.
Siöferði í
húsahönnun
Jencks er nefnilega langt frá því
að vera þurrlegur fræðaþulur, heldur
er hann kjaftfor og skemmtilegur
Byggingar tryggingafélags i Indianapolis, Bandarikjunum eftir Mies van det
Rohe.
pólemíker með ákveðnar skoðanir á
byggingum og höfundum þeirra.
Hann hefur engan áhuga á litlausri
útlistun eða frásögn af húsum gegn-
um tíðina. Húsahönnun á að grund-
vallast á sömu siðfræði og ræður
öðrum gerðum okkar í nútímasam-
félagi, segir Jencks oger honum jafn
tamt að vitna í skáldið Coleridge,
heimspekinginn Hönnu Arendt, Bob
Dylan eða Pasolini eins og
arkitektana Frank Lloyd Wright og
Le Corbusier. Jencks getur ennfrem-
ur verið bráðfyndinn, einkum og sérí-
lagi þegar hann fjallar um sérstakt
hugarflug smekklausra arkitekta.
Hetjudýrkuner honum fjarri skapi og
enginn af helstu arkitektum vorra
tíma sleppur við rannsóknarréttinn.
Sumir fara illa út úr þeim réttar-
höldum, t.a.m. Mies van der Rohe,
átrúnaðargoð margra nútíma-
arkitekta (m.a. hér á íslandi) og
Philip Johnson, hinn fjölhæfi banda-
riski arkitekt. Aðrir eru hækkaðir i
einkunn, m.a. góðkunningi okkar
Alvar Aalto sem Jencks skipar i
fremstu röð.
Margar hreyf-
ingar samtímis
En hvort sem höfundur gagnrýnir
eða lofar arkitekta, er útlistun hans
ávallt skörp, lifleg og fræðandi.
Sjálfur aðhyllist Jencks ekki neina
sérstaka stefnu í byggingalist, hefur
enga trú á að tíðarandinn (Zeitgeist)
endurspteglist í byggingum og ekki er
hann heldur ginnkeyptur fyrir þeirri
kenningu að rekja megi sama þráðinn
í gegnum byggingar tuttugustu aldar.
Jencks gengur út frá plúralisma I
byggingalist, þ.e. að ávallt séu marg-
ar hreyfingar í gangi samtímis og án
mikilla tengsla hver við aðra. Þær
hreyfingar tekur hann fyrir í bókinni.
Þaðer kannski ekki hægt að segja að
Modern Movements in Architecture
sé skemmtilesning, en bókin er samt
skemmtileg og afar örvandi. Hún
fæst í Bókaverzlun Snæbjarnar og
kostar kr. 8.415.
HÓTEL SAGA: við Hagalorg. Borðapamanir i
Stjómusal iGrilll i sima 25033. Opiö kl. 8—23.30.
Matur framreiddur kl. 12—14.30 og 19—22.30. Vin-
veitingar. Boröapantanir I Súlnasal I sima 20221.
Matur er framrciddur föstudaga og laugardaga kl.
19—21. Vinveitingar.
KRÁIN: við Hlemmtorg. Simi 24631. Opiö alla daga
kl. 9-22.
LALIGA-ÁS: Laugarásvegi I.SImi 31620. Opið8—24
alla daga.
MATSTOFA AUSTURBÆJAR: Laugavegi 116.
Simi 10312. Opiö kl. 8—21 virka daga og 9—21
sunnudaga.
NAUST: Vcsturgölu 6—8. Boröapantanir i sima
17759. Opiöalla daga kl. 11—23. Vínveitingar.
KAFFIVAGNINN: Grandagaröi 10. Símar 12509 og
15932. Opiö kl. 00.04-23,30 alla daga.
Halla
Jónsdóttir
Matsölustaðir
REYKJAVlK
ASKUR: Laugavegi 28 B. Simar 18385 og 29355.
Opiö kl. 9—24. alla daga. Vinveitingar frá kl. 18 virka1
daga og allan daginn á sunnudögum.
ASKUR: Suðurlandsbraut 14. Simi 81344. Opiö kl.
11-23.30.
BRAUÐBÆR: Þórsgötu 1. viö óöinstorg. Simi
25090. Opiö kl. 9-23.30 virka daga og 10-23.30 á
sunnudögum.
ESJUBERG: Hótel Esju, Suðurlandsbraut 2. Simi
82200. Opiðkl. 7—22. Vínveitingar.
HLlÐARENDI: Brautarholti 22 (gengiö inn frá Nóa
túni). Borðapantanir i sima 11690. Opið kl. 11.30—
14.30og 18—22.30. Vínveitingar.
HOLLYWOOD: Ármúla 5. Borðapantanir i sima
83715. Matur framreiddur kl. 21—23 öll kvöld vik-
unnar. Vinveitingar.