Dagblaðið - 19.09.1980, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980. ' 17
Hvað er á seyðium helgina?
Haustmót yngri flokka
Um helgina. laugardag og sunnudag. verður haust
mót yngri flokka í Reykjavikurmótinu í knatlspyrnu.
Reykjavíkurmótið
í handknattleik
FÖSTUDAGtJR
I.AUGARDALSHÖU.
Valur-Þróttur kl. 19.
Fram-Fylkirkl. 20.15.
IR-Ármann kl. 21.30.
LAUGARDAGUR
Fylkir-Þróttur kl. 14.
Fram-Valurkl. 15.15.
KR-Vikingur kl. 16.30.
SUNNUDAGUR
Tvö efstu lið úr hvorum riðli fara i úrslitakeppni um
1 .-4. sætið og keppa sem hér segir:
1A-2B kl. 19.
2A-IB kl. 20.15.
Skemmtistaðir
Skemmtistaöir borgarinnar eru opnir til kl. 3 e.m.
föstudags- og laugardagskvöld, en sunnudagskvöld til
kl. 1 e.m.
FÖSTUDAGUR
ÁRTtJN: UNGLINGADANSLEIKUR:
Hljómsveitin Friðryk leikur i kvöld frá kl. 10—2.
Aldurstakmark'16 ára. Munið nafnskirteinin.
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek
HÓTEL BORG: Diskótek. Matur framreiddur fyrir
matargesti. Snyrtilegur klæðnaður.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Dansskóli Heiðars Ást-
valdssonar 25 ára. Átthagasalur: Fæði og kiæði.
Mimisbar: Gunnar Axelsson leikur á pianó. Stjörnu-
salun Matur framreiddur fyrir matargesti. Snyrtilegur
kbeönaður.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
KLÚBBURINN: Hljómsveitin Upplyfting og diskó-
tek á tveimur hæðum.
LEIKHtJSKJALLARINN: Carl Billich leikur létta
tónlist. matur framreiddur fyrir matargesti.
ÓÐAL: Diskótek.
SIGTÍJN: Hljómsveitin Start og diskótek. Videó i full
um gangi. Grillbarinn opinn.
SNEKKJAN: Diskótek.
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Matur framreiddur fyrir matargesti. •s*n>rtilegur
klæönaöur.
LAUGARDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsveitin Glæsir og diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek.
HÓTEL BORG: Diskótek. Matur framreiddur fyrir
matargesti.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Hljómsveit Birgis Gunn
laugssonar leikur fyrir dansi. Mlmisban Gunnar
Axelsson leikur á pianó. Stjörnusalun Matur fram-
reiddur fyrir matargesti. Snvrtikgur klæðn.iður.
HREYFILSHÓSIÐ: Gömlu dansarnir.
INGÓLFSCAFÉ: Gömlu dansarnir.
KLÍJBBURINN: Hljómsveitin Hafrót leikur fyrir
dansi. Diskótek á tveimur hæöum.
Frá kvartmílukcppni. Þad gýs oft upp talsverður reykur þegar bílarnir eru
ræstir. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Akstursíþrótt helgarinnar:
Fjórða og síðasta
kvartmílukeppnin
á þessu sumri
„Flestir þeir sem hafa tekið þátt í
kvartmílukeppnum sumarsins verða
með á laugardaginn,” sagði Hálfdán
Jónsson formaður Kvartmíluklúbbs-
ins í samtali við blaðamann DB. Þá
fer fram fjórða og síðasta keppni
klúbbsins á þessu sumri.
Keppt verður í sex flokkum bif-
reiða og mótorhjóla. í hléi ætla
kvartmílumenn siðan að bjóða upp á
listaksturá mótorhjólum.
í kvartmilukeppni fáökumennirnir
punkta fyrir árangurinn. Síðan eru
punktarnir úr öllum fjórum keppn-
um sumarsins lagðir saman og sá
efsti fær íslandsmeistaratitil í íþrótt-
inni. Hálfdán Jónsson var ekki viss
um, hvenær úrslitin lægju opinber-
lega fyrir. ,,En við tilkynnum þau
von bráðar á einhverjum góðum
stað,” sagði hann.
Formaðurinn var að því spurður,
hvort ekki væri allra veðra von og því
líklegt að fresta yrði keppninni á
laugardaginn. Hann kvaðst bjartsýnn
á að veðurguðirnir yrðu hliðhollir.
,,Við búumst síður við rigningu að
haustinu til en á sumrin.”
Þó að Kvartmíluklúbburinn haldi
engin mót á vetrum liggur starfsemi
félagsins síður en svo niðri á þeim
árstíma.
„Veturinn er bílskúratimi kvart-
mílumannsins,” sagði Hálfdán. ,,Þá
er bíllinn tekinn i gegn og gerður sem
bezt úr garði fyrir næsta sumar. Nú,
við höldum félagsfundi á veturna,
breytum lögum og undirbúum félags-
starfið fyrir næsta keppnistímabil.
Þá undirbúum við einnig okkar ár-
legu bílasýningu, sem er ávallt haldin
um páskana. Við erum þegar
byrjaðir að undirbúa næstu sýn-
ingu.”
Kvartmílukeppnin á laugardaginn
verður að sjálfsögðu haldin á braut
félagsins sunnan við Hafnarfjörð.
Hún hefst klukkan tvö. -ÁT
Ferðafélagsferð í kvöld í Landmannalaugar og Jökulgil:
GENGIB í SP0R
TORFA í KLOFA
Ferðafélagið býður upp á 3 helgarferðir að þcssu sinni. Ein þeirra er „haustlita-
ferð” 1 Þórsmörk í fyrramálið kl. 8. Mvndin er tekin við Gígjökullón á leið inn i
Þórsmörk.
„Við ráðgerum 3 helgarferðir að
þessu sinni, eina í Landmannalaugar
og Jökulgil, aðra að Álftavatni og þá
þriðju í Þórsmörk. Lagt verður af
stað í fyrrnefndu tvær ferðirnar í
kvöld kl. 20 frá Umferðarmiðstöð-
inni en í Þórsmerkurferðina í fyrra-
málið kl. 8,” sagði Þórunn Lárus-
dóttir framkvæmdastjóri Ferðafélags
íslands þegar hún var innt eftir hvað
félagið hefði upp á að bjóða um helg-
ina.
Landmannalaugar eru sagðar sá
staður þar sem er að finna einna lit-
skrúðugasta landslag á fslandi. Þar
eru heitar og kaldar uppsprettur sem
sameinast í læk, og er hann hinn
ákjósanlegasti til að baða sig í og
synda. Landmannalaugar er fjöl-
sóttur ferðamannastaður á sumrin og
rómaður fyrir náttúrufegurð og
kosti.
Jökulgil er raunar fremur grunnur
dalur sem liggur upp undir Torfa-
jökli. Jökulgil er rómað fyrir litfeg-
urð fjalla sem að því liggja. Fjöllin
eru úr líparíti og víða sundursoðin af
brennisteinsgufum.
í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir
m.a. að Torfi í Klofa hafi flúið i
Jökulgil með allt sitt heimafólk
undan plágunni miklu 1493, en þar
hafi þá verið grösugur dalur með
skógi vöxnum hliðum en jöklum um-
kringdur. Nú er gilið hins vegar
gróðurlítið.
Að sögn Þórunnar Lárusdóttur
verður farið inn Jökulgilið á morgun
og farið langleiðina inn að Torfa-
jökli. Á sunnudaginn verður annað-
hvort farið að Brennisteinsöldu suður
af Landmannalaugum eða gengið á
Bláhnjúk. Ferðin í Landmannalaug-
ar/jöiculgil kostar kr. 20.500 fyrir
Ferðafélagsfólk en 22.500 fyrir utan-
félagsmenn. Ferðalangar skulu leggja
til nesti og svefnpoka, eri gist er í
upphituðum skála Ferðafélagsins í
Laugunum. Nánari upplýsingar veitir
skrifstofa Fl, símar 11798 eða
19533.
Þórunn sagði að aðsókn hefði verið
meiri í sumarleyfisferðir félagsins í
sumar en t.d. i fyrra, það er í ferðir
sem taka4dagaeða fleiri. Sömuleiðis
var aðsókn mikil í helgarferðir
sumarsins.
j Helgarferðir eru ráðgerðar
fram i október, en siðan taka við
dagsferðir á vegum Ferðafélagsins
um hverja helgi til vors þegar sól
hækkar á lofti á ný og tækifæri gef-
ast til meiri útiveru í sól og sumaryl.
„Það er alveg óhætt fyrir fólk að
koma í ferðir hjá okkur þó það sé
óvant göngu. Ferðahraðinn miðast
við það sem allflestir ráða við,” sagði
Þórunn Lárusdóttir. -AKH
LEIKHtJSKJALLARINN: Carl Billich leikur létta
tónlist. Matur framreiddur fyrir matargesti.
LINDARBÆR: Gömlu dansarnir.
ÓÐAL: Diskótek.
SIGTON: Hljómsveitin Start leikur fyrir dansi. Videó
I fullum gangi. Grillbarínn opinn.
SNEKKJAN: Diskótek.'
ÞÓRSCAFÉ: Hljómsveitin Galdrakarlar og diskótek.
Matur framreiddur fyrir matargesti. Snvrtileutir
klæónaóur.
SUNNUDAGUR
GLÆSIBÆR: Hljómsvcitin Glæsir og diskótek.
HOLLYWOOD: Diskótek.
HÓTEL BORG: Hljómsveit Jóns Sigurðssonar leikur
gömlu dansana. Matur framreiddur fyrir matargesti.
HÓTEL SAGA: Súlnasalur: Dansskóli Heiðars Ásl-
valdssonar 25 ára. Mfmisbar: Gunnar Axelsson leikur
á pianó. Stjörnusalur: Matur framreiddur fyrir matar-
gesti. Snyrtlalgur klæðnaður.
ÓÐAL: Diskótek.
Leiklist
Leikhúsin
FÖSTUDAGUR
ÞJÓÐLEIKHOSIÐ: Snjór. fjórða sýning. Kl. 20.
LAUGARDAGUR:
I.EIKFtLAC REYKJAVlKOR: Að sjá til þln
maður, önnur sýning (grá aðgangskort). Kl. 20.30.
ÞJÓÐLEIKHtiSIÐ: Snjór, fimmta sýning. Kl. 20
SUNNUDAGUR:
LEIKFÉLAG REYKJAVlKUR: Að sjá til þin
maður, þriðja sýning (rauðaðgangskort). Kl. 20:30.
ÞJÓÐLEIKHÓSIÐ: Snjór, sjötta sýning. Kl. 20.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Helgarferðir 19.-21. september:
Landmannalaugar-Jökulgil (ef fært verður)
Álftavatn-Torfahlaup-Stórkonufell.
Brottför kl. 20 föstudag.
Þórsmörk-haustlitaferð.
Brottför kl. 08 laugardag.
Allar upplýsingar á skrifstofunni Öldugötu 3.
Útivistarferflir
Sunnud. 21. september.
1. kl. 8 Þórsmörk i haustlitum, einsdagsferð,
2. kl. 10 Esja- Móskarðshnúkar, verð 4000 kr.
3. kl. 13 Tröllafoss og nágr., verð 4000 kr.
4. kL 13 Möskarðshnúkar, verð4000 kr.
I
möguleika i kaaliskápum, frystj-'
skápum og frystikistum. I “
VAREFAKTA,
vottorði dönsku
inrrar DVN um orku-J
notkun og aðra i
eiginleika.
afborgunarskilmAlar varefakta
TRAUSTÞJÓNUSTA
JFOrax
HÁTÚNI 6A # SÍMI 24420
KÆLISKÁPAR
1MEÐ OG ÁN FRYSTIS
GLÆSILEGIR - STERKIR - HAGKVÆMIR
Lítum bara á hurðina: Hægri eða vinstri opn-
un, frauðfyllt og níðsterk — og í stað fastra
hillna og hólfa, brothættra stoða og loka eru
færanlegar fernu- og flöskuhillur úr málmi
og laus box fyrir
smjör, ost, egg, álegg
og afganga, sem bera
má beint á borð.