Dagblaðið - 30.09.1980, Page 16
16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. SEPTEMBER 1980.
fþróttir
Iþréttir
Iþróttir
Iþróttir
Bþrótl
Jafntefli
hjá Oster
„Við gerðum jafntefli, 1—1 við
Hammarby í skemmtilegum leik hér í
Vaxjö að viðstöddum um 13.000 áhorf-
endum,’’ sagði Teitur Þóröarson í
viðtali við DB í gær. ,,Við höfum nú
þriggja stiga forskot á Gautaborg, sem
vann sinn leik en nú eru aðeins þrjár
umferðir eftir.” Brage gerði jafntefli
og Malmö tapaði þannig aö slagurinn
stendur nú aðallega á milli Öster og
Gautaborgar. Öster á nú tvo erfiöa úti-
leiki eftir I röö — gegn Halmstad og
Elfsborg — en lokaleikurinn er á
heimavelli gegn Sundsvall. Öster þarf
nú 4 stig úr þessum þremur leikjum til
að tryggja sér titilinn í annað sinn á
þrem ur árum. '^Sv.
Nýliðar Como
dáleiddu Inter
ítölsku meistararnir Inter Milano
töpuðu mjög óvænt fyrir nýliöunum í
1. deild, Como, á sunnudag. Úrslit
urðu 2—0 fyrir Como og má með sanni
segja að Milanóbúarnir hafi legið i dái i
þessum leik. Juventus náði einungis
'1—1 jafntefli á útivelli gegn öðrum
nýliðum. Brescia er nafn þeirra.
Fiorenlina er nú efst i 1. deildinni, með
fimm stig, en liöið hékk á jafntefli
heima gegn Catanzaro. Hér á eftir fara
úrslit í leikjum helgarinnar en svo sem
sjá má var markaskorun um helgina
aftur eðlileg, eftir hið mikla markaregn
um siðustu helgi, þegar 21 mark var
skorað i átta leikjum.
Forystuliðin
unnu bæði 3-0
„Þeir grænu” frá St. Etienne og
Nantes eru efstir og jafnir í frönsku 1.
deildinni i knattspyrnu með 19 stig að
loknum 12 umferðum. Bæði liöin unnu
3—0 um helgina, St. Etienne vann
Metz og Nantes Valenciennes. I 3.-4.
sæti eru frauðvínsmennirnir frá
Bordeauz og silkiframleiðendurnir frá
Lyons en bæði liðin hafa hlotið 16 stig.
Lyons tapaði um helgina 1—3 á útivelli
fyrir Nancy meðan Bordeaux varð að
gera sér að góðu markalaust jafntefli
við Korsikubúana frá Bastia.
Úrslit I Frakklandi á laugardag urðu
þessi: St. Etienne-Metz 2—0
Nantes-Valenciennes 3—0
Nancy-Lyons 3—1
Bordeaux-Bastia 0—0
Sochaux-Paris Sl. Germain 4—0
Tours-Angers 2—2
Laval-Monaco 3—3
Lens-Auxerre 1—1
Nissa-Lille 1—2
Nimes-Strassborg 4—2
Fortuna Kðln
tapaði úti 1-3
„Við töpuöum 1—3 á útivelli fyrir
efsta liöinu i deildinni, Osnabruck. Við
komumst í 1—0 snemma i leiknum en
þeir jöfnuðu á 63. mínútu og unnu
síöan á endaspreftinum,” sagði Janus
Guðlaugsson er við inntum hann frétta
af liði hans, Fortuna Köln. „Við leik-
um næst við Oberhausen á heimavelli
en það lið er um miðja deild rétt eins
og við,” sagði Janus að lokum. -SA.
Cosmos keypti
Schiister fyrir
metupphæð
Vestur-þýzki landsliðsmaðurinn
Bernd Schiister skrifaði i dag undir
tveggja ára samning hjá New York
Cosmos en Cosmos keypti kappann frá
mótherjum Akraness i UEFA-keppn-
inni, Köln, á 2 milljónir dollara. Er
þetta hæsta upphæð sem nokkru sinni
hefur verið greidd fyrir knattspyrnu-
mann í Þýzkalandi. Schiister sló i gegn i
Evrópukeppni landsliða á Ítaifu i vor
og vitaö var að italskt félag hafði sýnt
honum mildnn áhuga. Hann lék ekki
með Köln i leiknum gegn Akranesi á
Laugardalsvelli fyrir tveimur vikum og
var þá sagt að hann væri að athuga að-
stæður á Italíu.
Iw
lllt'
Darraðardans i vítateig Hvidovre og dæmigert fyrir ieikinn er, að það er-varnarmaðurinn Jón Pétursson sem er kominn i
fremstu viglinu hjá Fram. DB-mynd Einar Ólason.
Fimm marka sigur á
slöku norskuliði
ísland vann sannfærandi fimm
marka sigur á Noregi í fyrri leik
þjóðanna i handbolta um helgina. Þeg-
ar í upphafi náðu íslendingar góöri
forystu og eftir 12 minútna leik var
staðan orðin 4—0 íslendingum í vil.
Þetta forskot náðu Norðmenn að vísu
að minnka í eitt mark um miðjan fyrri
hálfleikinn en í hálfleik var staðan 11—
7. í síðari hálfleik juku íslendingar
forystuna og komust í 18—12 en loka-
tölur urðu 24—19. Góð byrjun á hand-
boltavertiöinni en það verður að segjast
eins og er að norska liðið var frekar
lélegt og hinir ungu liðsmenn voru sem
kettlingar í höndum íslendinga.
Er fjórar mínútur voru liðnar af
leiknum komst Ólafur Jónsson inn úr
horninu en var gróflega hindraður og
víti var dæmt. Úr því skoraði síðan
Þorbergur Aðalsteinsson fyrsta mark
íslendinga og í kjölfarið fylgdu þrjú
íslenzk mörk í viðbót, fyrst mark frá
Páli Björgvinssyni úr hraðaupphlaupi
og þá mark sem Sigurður Sveinsson
gerði með þrumuskoti. Fjórða markið
CASIO
TÖLVUÚR
C-801
C3 O
I33H s&
Bí »4»
mn Iwammmmam O
M2
C-801 BÝÐUR UPPA:
• Klukkust, mln., sek.
• Mánufl, dag, vikudag.
• SjáHvirka dagatalsleiflréttingu um mán-
aflamót
• Nákvœmni + — 15 sek. á mán.
• 24 og 12 tíma kerfl samtímis.
• Skeiflkkikka 1/100 úr sek. og millitíma.
• Tölva með + +-X — og konstant
• Ljóshnappur til aflestrar í myrkri.
• Rafhlafla sem endistca 15 mán.
• Ryflfritt stál.
• 1 árs ábyrgfl og viflgerflarþjónusta.
CASIO einkaum-
boflifl á Íslandi. Bankastrœti 8,
sími 27510.
gerði síðan Ólafur H. Jónsson. Loks á
13. mínútu skoruðu Norðmenn mark;
Andersen sá um þá hlið málanna. Á 18.
mínútu var staðan orðin 6—3 fyrir
fsland, en Larsen lagaði stöðuna í 4—
6. Þorbergur náði aftur þriggja marka
forystu fyrir ísland með marki úr víti,
eftir svipaða leikfléttu og gaf fyrsta
mark íslands. Á eftir fylgdu tvö norsk
mörk og síðan tvö íslenzk. Hagby
skoraði annað mark sitt í leiknum á 24.
mínútu og var staðan þá 9—7 fyrir
ísland. En þeir Bjarni Guðmundsson
og Sigurður Sveinsson juku forystuna í
11—7 fyrir hálfleik.
Bjarni Guðmundsson skoraði enn á
upphafsmínútum síðari hálfleiks og var
forskot íslands þá orðið fimm mörk.
Næstu tvær mínútur léku íslendingar
einum færri því Páli Björgvinssyni var
vikið af leikvelli en eigi að síður héldu
íslendingar sínum hlut, skoruðu eitt
mark eins og Norðmenn Á 6. mínútu
hálfleiksins var Þorbirni Guðmunds-
syni vísað af velli í tvær mínútur og þeir
norsku voru ekki lengi að notfæra sér
það, Hagby skoraði strax mínútu siðar.
Þorbergur svaraði með fallegu lang-
skoti og Þorbjörn bætti öðru marki við
jafnskjótt og hann var kominn inn á,
15—9. Larsen og Pettersen löguðu
stöðuna í 15—II en Þorbergur átti
næsta orð er hann reif sig upp og
þrumaði boltanum í netið. Larsen
skoraði 12. mark Noregs en aftur var
Þorbergur skjótur til svars, 17—12.
Það sem eftir var leiksins var þetta
fimm, sex marka munur á liðunum.
Norðmenn náðu aldrei að ógna sigri
íslendinga.
íslenzka liðið verður vart dæmt af
þessum leik, keppnistímabilið nýhafið
og mótstaðan ekki mikil. Leik-
mennirnir eru þegar komnir í góða
líkamlega þjálfun og þegar samæfingin
verður orðin góð má fastlega gera ráð
fyrir því að það velgi handboltarisun-
um undir uggum.
Liðið var mjög jafnt í leiknum en
beztu menn þess voru Þorbergur
Aðalsteinsson, Ólafur H. Jónsson,
Bjarni Guðmundsson og Sigurður
Sveinsson sem tekinn var úr umferð er
langt var liðið á siðari hálfleikinn. Þá
var Alfreð Gíslason einnig góður og
var ákaflega óheppinn að skora ekki.
Markvarzlan var þokkaleg, einkanlega
varði Ólafur Benediktsson vel í fyrri
hálfleik. í þeim síðari varði hann
minna' enda var honum skipt út af og
kom Kristján Sigmundsson í hans stað.
Norska liðið er ungt að árum og
bezta mann liðsins, Tor Helland,
vantaði i liðið á laugardag. Sem fyrr
getur var liðið frekar slappt, það vantar
nauðsynlega góða langskyttu og spil
þess var oft á tíðum vandræðalegt, eins
og leikmennirnir hefðu ekki hugmynd
um hvernig þeir ættu að opna íslenzku
. vörnina. Beztu menn liðsins voru Pett-
er Hagby, Odd Larsen og Arnid Gerö.
Mörk lslands: Þorbergur 7/4,
Sigurður Sveinsson og Steindór
Gunnarsson 4 hvor, Bjarni Guðmunds-
son og Ólafur H. Jónsson 3 hvor, Páll
Björgvinsson 2 og Þorbjörn
Guðmundsson 1.
Mörk Noregs: Hagby 6, Larsen 6/2,
Gerö 3, Sönsterud 2, Pettersen og And-
ersen 1 hvor.
-SA.
Evr
að
— vel útfærð
Draumur Fram um að ná í 2. umferö
Evrópukeppni bikarmeistara í knatt-
spyrnu varð að engu á Laugardalsvell-
inum á sunnudag er liðið tapaði 0—2
fyrir danska liðinu Hvidovre. Hvidovre
vann einnig fyrri leikinn 1—0 og kemst
því áfram á samanlagðri markatölu,
3—0. Dönsku meistararnir sýndu
engan stórleik á Laugardalsvellinum,
liðiö lá lengstum í vörn en inn á milli
náði það skyndisóknum sem gáfu
góðan árangur. Framarar höfðu á
brattann að sækja og lögðu ailt undir
en augljóst var að liöið saknaði Péturs
Ormslevs sárlega, framlína þess var bit-
lítil og megnaði ekki að rjúfa gat á
danska varnarmúrinn.
Hvernig leikurinn hefði þróazt ef
Framarar hefðu skorað á 8. minútu er
ekki gott að segja en þá fékk liðið bezta
marktækifæri sitt í leiknum. Knettin-
um var þá lyft inn á Lárus Grétarsson
sem var aleinn rétt fyrir utan markteig
danska liðsins. En Lárus náði ekki að
drepa boltann niður og skot hans fór
naumlega fram hjá markinu. Nielsen
markmaður tók markspyrnu, sparkaði
knettinum langt fram á völlinn og
. .............................................- 'i—.......................
Þorbergur Aðalsteinsson var einna atkva
skorar hér eitt marka sinna i siðari leiknu
BLOSSOM
Frábært shampoo
Snilldarmarkv
BLOSSOM shampoo freyöir vel, og er fáanlegt
i 4 ger&um.
Hver og einn getur fengiö shampoo viö sitt hæfi.
Reyndu BLOSSOM shampoo, og^y^r mun vel lika.
dugði aðeins
er Islendingar og Norðmenn skil
BLOSSOM I
Heildsölubirgðlr.
KRISTJÁNSSON HF.
Ingóllsstræti 12, símar: 12800 - 14878
Þrátt fyrir snilldarmarkvörzlu Ólafs
Benediktssonar i síðari landsleiknum
við Norðmenn urðu 1300 áhorfendur
aðeins vitni að jafntefli. Lokatölur
urðu 18—18 og það var ekki mikið
meira en íslenzka liðið átti skilið. Ef
ekki hefði komið til þessi áðurnefnda
undramarkvarzla Óla Ben er ekki gott
að segja hvernig farið hefði. Alls varði
hann 25 skot i leiknum og slikt hefur
ekki sézt á fjölum Hallarinnar í háa
herrans tið. Hins vegar ber þess að
gæta að Norðmennirnir voru í flestum
tilvikum ekki miklir skotmenn.
íslenzka liðið lék þennan leik ekki
vel og er í sjálfu sér auðvelt að finna
skýringu á því. Samæfing leikmanna er
nær engin og kerfin í sóknarleiknum
voru fá — reyndar aðeins tvö sem
undirritaður sá. Norðmennirnir voru
fljótir að sjá þau út og grátlegt var að
sjá undir lokin hvernig einn þeirra
hreinlega gekk inn í sóknarlotu íslenzka
liðsins og hirti knöttinn.
Varnarleikurinn hjá íslenzka liðinu
var afar slakur og verst var að sjá
hversu óhemju lengi leikmenn voru að
koma sér aftur í vörnina. Norðmenn-
irnir voru yfirleitt komnir 2 og 3 upp í
vítateig áður en islenzka liðið vissi af og
oftast átti Óli Ben. ekki möguleika en
nokkrum sinnum tókst honum að verja
með tilþrifum.
Leikurinn var allan tímann mjög
jafn og jafnt allar tölur upp í 8—8. Þá
komst ísland í 11—8 en Norðmenn lög-
uðu stöðuna í 10—11 fyrir leikhlé. í
fyrri hálfleiknum og reyndar út nær
allan leikinn skoraði íslenzka liðið nær
eingöngu í gegnum miðjuna eða vinstri
vænginn. Hægri vængurinn var
ógnunarlaus með öllu og söknuðu
strákarnir Bjarna Guðmundssonar illi-
lega þar. Greinilegt að okkur vantar
nauðsynlega fieiri hornamenn. Atli
Hilmarsson kom inn á um miðjan fyrri
hálfieikinn og skoraði fjögur mörk i
röð fyrir ísland en mistök hans leiddu
lika til tveggja norskra hraðaupp-
hlaupa í röð.