Dagblaðið - 11.10.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. OKTÓBER 1980.
9
Fullorðinsfrœðsla í tónlist tekin upp:
JASSKENNSLAN VINSÆL
„Hinn nýi Tónlistarskóli FÍH yfirfullur” — segir Sigurður I. Snorrason skólastjóri
„Blessaður vertu, þetta hefur
gengið alveg ágætlega,” sagði
Sigurður 1. Snorrason, skólastjóri
hins nýstofnaða Tónlistarskóla
F.Í.H. er DB spurði hann um
byrjunarerfiðleika i skólastofnun.
„Skólinn er þegar orðinn yfirfullur,
en við verðum að reyna að taka inn
fleiri nemendureftir áramót”. Þegar
fyrst var rætt um stofnun skólans,
vakti það athygli að á stefnuskrá
hans var m.a. jasskennsla. Við
spurðum Sigurð hvernig sú nýbreytni
hefði mælst fyrir.
„Mjög vel, jassbrautin er þegar
fullskipuð. Annars erum við nú að
KRÓKUR1
KÚNSTINNI
Magnús Kjartansson myndlistar-
maður opnar einkasýningu í Djúpinu
í dag (laugardag) kl. 15. Þar sýnir
hann u.þ.b. 20 myndir, málverk og
silkiþrykk frá síðustu tveim árum,
eins konar sýnishorn þess sem hann
hefur verið að gera. Magnús er ötull
og fjölhæfur listamaður, vann m.a.
skúlptúrsýningu ásamt Árna Páli
Ijósmyndara sem hlaut góðar
viðtökur og aflaði þeim starfsstyrkja
til árs. í málverkum sínum og
silkiþrykkmyndum leikur Magnús sér
með „fundnar staðreyndir” og hluti
og tekur gjarnan fyrir eitt eða tvö
stef sem hann þrautkannar. Á
sýningu hans í Djúpinu er einmitt að
finna eitt slikt stef, „krókana”, sem
Magnús hefur eignað sér og gert að
mögnuðu myndrænu leikfangi.
Sýningu hans lýkur 22. október nk.
og er hún opin kl. II—23.00 alla
daga.
-Al.'
brydda upp á annarri nýjung sem er
fullorðinsfræðsla í tónlist. Fólk þarf
ekki að geta leikið á hljóðfærí til að .
; geta sótt þau námskeið sem fara fram
'á þriðjudagskvöldum og fimmtu-
dagskvöldum. Fyrsta námskeiðið af
þessu tagi hefst 14. október og
stendur níu vikur.”
— Hvernig ferslik fræðsla fram?
„Fyrstu þrjár vikurnar ætlar Atli
Heimir Sveinsson að leiðbeina fólki
um lendur klassisku sinfóníunnar.
Svo tekur Jón Múli Árnason við og
rekur sögu jassins i tali og tónum.
Síðan tekur Jónas Ingimundarson
píanóleikari við í tvær vikur, loks
mun Manuela Wiesler kynna hljóð-
færi sitt, flautuna, fyrir
nemendum.”
Sjálfur er Sigurður ágætur
klarinettleikari og spurðum við hann
hvort hann þyrfti ekki að gefa sitt
eigið hljóðfæri upp á bátinn.
„Ég leik með sinfóníunni til ára-
móta, fer svo í langt frí en verð svo
að gera upp við mig hvort ég held
áfram stjórn skólans eða hljóðfæra-
leik. Ef ég held áfram að leika fyrir
alvöru, þá hugsa ég að ég muni fara
meir út í kammermúsik.”
Eins og margir vita, er Sigurður
eiginmaður Manuelu Wiesler og þá lá
beinast við að spyrja tíðinda af
henni. „Hún er á þeytingi hingað og
þangað til að leika með ýmsum
hljómsveitum, — svona rétt að ég
sjái hana,” sagði Sigurður loks og
hló.
Tónlistarskóli FÍM er nú til húsa
að Brautarholli 4, en innritun i full-
orðinsfræðsluna fer fram í síma
23780 milli kl. 14 og 17.
-Al.
þ.
Siguröur I. Snorrason, skólastjóri hins nýja tónlistarskóla aö Brautarholti
4 ásamt húsnæöi skólans, fyrir ofan Bifreiöastillingu Nicoiais.
Aldrei meira
að gera
en einmitt núna
„Ég held svei mér þáað það hafi aldrei
verið jafn mikið að gera hjá okkur og
núna, síðan ég stofnaði hljómsveitina
árið 1977,” sagði Ólafur Helgason,
trommuleikari og hljómsveitarstjóri
Tívolí, í samtali við Fólk-síðuna. „Við
höfum leikið á skólaböllum, tónleikum
og síðan í Sigtúni um tvær siðustu helgar.
Lifandi tónlistin er alveg örugglega á
hraðri uppleið núna,” sagði Ólafur.
Hljómsveitin leikur eingöngú rokktón-
'list núna og hefur sérhæft sig í lögum
brezku hljómsveitarinnar Led Zeppelin,
gömlum og nýjum. „Það er staðreynd að
rokkið kemur alltaf upp aftur og aftur,
þó að einhver önnur tónlistarstefna
komist í tízku um stundarsakir,” sagði
Ólafur.
Auk hans eru nú í Tívolí þeir Brynjólf-
ur Stefánsson bassaleikari, Hjörtur
Howser senj leikur á hljómborð, Björn
Thoroddsen gítarleikari og Eiður Eiðs-
son söngvari. Þannig skipuð hefur
hljómsveitin verið í mánuð, síðan Brynj-
ólfur leysti Gunnar Hrafnsson af hólmi.
Tivolí hélt nýlega tvenna rokktónleika
á Hótel Borg, svokölluð Led Zeppelin
kvöld. Að sögn hljómsveitarstjórans var
aðsókn prýðisgóð. Um 350 manns komu
á hvora tónleika um sig.
„Við höldum ótrauðir áfram að leika
tónlist Led Zeppelin. Það hefur sýnt sig
að þess háttar músík er það sem krakk-
arnir vilja heyra núna,” sgði Ólafur
iHelgason.
Ólafur Helgason hljómsveitarstjóri Tívolí:
Hljómsveitin Tívolí. Frá
vinstri eru Hjörtur
Howser, Eiöur „Piant"
Eiösson, Óiefur Heiga-
son, Björn Thoroddsen
og Brynjótfur Stefáns-
son, nýjasti liösmaður
hljómsveitarinnar.
DB-mynd: Siguröur
Þorri.
Ráðningar-
stjóri
Fíug-
freyju
félagsins
Ekki eru allir Flugleiðamenn jafn-
ánægðir með stefnumótun Stein-
gríms Hermannssonar samgöngu-
ráðherra í afskiptum rikisins af
málefnum félagsins.
Ekki hafa þó heyrzt Ijótari
nafngiftir á ráðherranum en að hann
sé ýmist kallaður .„ráðningastjóri
Flugfreyjufélagsins” cða „lasleigna-
sali Flugleiða hf.”.
Rannsóknar-
lögreglumenn
til nýrra statfa
Tvær stöður rannsóknarlögreglu-
manna hjá ríkinu eru nú lausar til
umsóknar. Á að ráða í þær til að
fylla í skarð tveggja rannsóknar-
lögreglumanna sem eru farnir eða á
förum úr ríki Hallvarðs.
Annar þeirra sem á förum eru er
Torfi Jónsson, sem starfað hefur að
lögreglumálum í 40 ár, fyrst i, götu-
lögreglunni i Reykjavik frá 1940—
1960 og síðan jafnlangan tínia að
rannsóknum hjá Sakadómi Reykja-
víkur og síðan hjá RLR. Torfi vinnur
nú að gerð nýs samtíðarntannatals
fyrir Skuggsjá i Hal narfirði.
Þá er Magnús Magnússon á förum
frá RI.R og býst til Noregsfarar og
dvalar þar. Hann gerðist lögreglu-
ntaður 1964 aðeins tvítugur að aldri
en hóf störf að rannsóknarlögreglu-
málum 1969.
Báðir þessir menn hafa sérstæða
inenntun að baki fyrir rannsóknar-
lögreglumenn að vera. Torfi er
lærður iþróttakennari og Magnús var
búfræðingur er hann hvarf til lög-
reglustarfa. Fleiri rannsóknarlög-
reglumenn eiga fjölbreyttan starfs-
feril að baki og nægir að nefna sjálf-
an yfirmanninn Njörð Snæhólnt, sem
var flugkappi í norsku flugsveitinni á
íslandi á styrjaldarárunum. Aðal-
tómstundagaman hans nú er svifflug,
svo ólíkt, sem það nú er rannsókn-
umglæpamála.
Allt á að selj-
ast... nema...
Flugleiðamenn hafa að vonum
rætt á efsta plani um söluna á eign-
um félagsins, sem tilkynnt var á hlut-
hafafundinum að væri skilyrði fyrir
aðstoð ríkisins.
Talið er að þeir geti vel hugsað sér
að seljá skrifstofubygginguna á
Reykjavíkurflugvelli, enda sé orðið
rúmt um starfsfólkið þar og eigi eflir
að verða enn rýmra.
Hins vegar komi ekki til greina að
.selja hóteleignir félagsins, þvi að
þangað sé kjörið að flytja forstjóra-
skrifstofunnar.
Þá sé út af fyrir sig allt í lagi að
selja hlut Flugleiða í Arnarflugi hf.
Hann sé hvort sem er ekki metandi til
fjár og skipti ekki minnsta máli,
hvort hann verði seld ur eða ek ki.
Um aðrar eignir er minna talað,
nema flugvélarnar, sem hvort sem er
séu standandi á söluskrá.